Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Fordæmalausir tímar #2
    Annar þátturinn í sérútgáfu Lestarinnar: Fordæmalausir tímar. En um þessar mundir helgar Lestin tvo þætti í viku sögum úr faraldrinum.
    Að þessu sinni verða tómir ferðamannastaðir heimsóttir, erlent hótelstarfsfólk og einmana ferðalangur verða meðal annars á vegi Lestarinnar.
    Við fylgjumst með fjölskyldu sem púslar æskuminningum fjölskylduföðurins saman í gegnum fjarfundabúnað.
    Og rætt verður um samfélagsleg áföll og minningar við Gunnþórunni Guðmundsdóttur bókmenntafræðing.
    55 min
  • Heimþrá, Four Tet, 200 landa ferðalangur og Persona non grata
    Nú þegar stór hlut heimsbyggðarinnar neyðist til að halda sig heima er mikilvægt að velta fyrir sér hugtakinu heimili. Í nýrri pistlaröð fjallar Tómas Ævar Ólafsson um heimili og heimþrá og mikilvægi þess að eiga sér samastað
    Ferðalög koma einnig við sögu í Lestinni í dag. Katrín Sif Einarsdóttir er líklega einhver víðförlasti Íslendingur sögunnar, að minnsta kosti ef talið er í heimsóttum löndum, en hún hefur komið til meira en 200 lönd. Í Lestinni í dag verður flutt viðtal við Katrínu Sif.
    Sixteen Oceans nefnist ný plata frá breska raftónlistarmanninum Kieran Hebden, sem kallar sig yfirleitt Four Tet. Davíð Roach Gunnarsson rýnir í plötuna.
    Nú á dögunum kom út fyrsta lagið í níu ár frá hljómsveitinni Bright Eyes. Lagið nefnist Persona Non Grata og er það fyrsta sem heyrist af væntanlegri plötu indísveitarinnar.
    55 min
  • Fordæmalausir tímar #1
    Í dag hefur göngu sína sérútgáfa Lestarinnar: Fordæmalausir tímar, sem verður á dagskrá tvisvar í viku á meðan samkomubanni stendur. Við heyrum persónulegar sögur, förum í vettvangsferðir og veltum fyrir okkur þeim spurningum sem upp koma um samfélagið nú og í framhaldi faraldursins.
    Í þætti dagsins heyrum við m.a. sögu Pálma Gunnlaugs Hjaltasonar matreiðslumanns og alkóhólista og ræðum um þá stöðu sem faraldurinn setur fólk með fíknivanda í.
    Við tókum einnig púlsinn á nokkrum samkomustöðum örfáum klukkustundum áður en hert samkomubann gekk í gildi á miðnætti síðastliðinn þriðjudag. Við heimsækjum hverfisbarina Moe?s og Álfinn í Breiðholti, hárgreiðslustofuna Blanco og skemmtistaðinn Röntgen
    50 min
  • Kófið í Hollywood, AJ og drottningin, JFDR
    Fræga fólkið. Það er alveg eins og við! Sjáið myndir af þeim hundleiðast í sóttkví og samkomubanni alveg eins og okkur hinum - Nema, þeim leiðist í lítilli höll í Kaliforníu með sundlaug og tennisvöll í bakgarðinum á meðan þér leiðist í 65 fermetra blokkaríbúð í Árbænum með svalirnar fullar af klósettpappír. Lestin rennir til Hollywood í dag þar sem viðbrögð stjarnanna við covid-19 hafa mætt blendnum viðtökum hjá almenningi.
    Á sama tíma og íhaldssemi og fordómar hafa aukist í valdatíð Donalds Trump Bandaríkjaforseta hefur hálfgert dragæði gripið landið. Ekki síst í kjölfar vinsælda raunveruleikaþáttaraðarinnar RuPaul?s Drag Race. Nýjasta útspil RuPaul eru leiknir sjónvarpsþættir, AJ and the queens. Þættirnir eru svipmynd af þjóðfélagi sem brýtur niður staðalímyndir og samþykkir fjölbreytileika. Katrín Guðmundsdóttir rýnir í AJ og drottningarnar.
    Fyrr í mánuðinum kom út platan New Dreams, önnur sólóplata Jófríðar Ákadóttur, sem kallar sig yfirleitt JFDR. Jófríði hefði líklega ekki dreymt um að fylgja plötunni eftir í sóttkví í Ástralíu, en þangað flýtti hún sér þegar ljóst var að öllu tónleikahaldi til kynningar á plötunni. Við hringjum til Ástralíu og ræðum við Jófríði um nýja drauma.
    55 min
  • Kófið, satíra Tom Lehrer og sjónvarpsmálarinn Bob Ross
    Halldór Armand flytur okkur pistil að venju á þriðjudegi. Eins og stærstur hluti heimsbyggðarinnar er hann með hugann við Covid-19.
    Smitsjúkdómar eru ekkert gamanmál. Það var atómsprengjan ekki heldur. En píanistanum Tom Lehrer var nokk sama og henti gaman að hverju sem honum sýndist á þvers og kruss yfir siðprútt samfélag sjötta og sjöunda áratugarins. Við rifjum upp verk Lehrer í Lestinni í dag sem sum öðlast nýja merkingu í samtímanum.
    Við kynnumst líka bandaríska sjónvarps-málaranum Bob Ross sem kenndi bandaríkjumönnum að mála í sjónvarpinu á níunda og tíunda áratugnum. Einkennandi útlit hans og seiðandi rödd hafa gert hann að hálfgerðri költhetju. Við spjöllum við Sigurð Mikael Jónsson, upplýsingafulltrúa Unicef, sem hefur tekist á við stress og lært að mála með Bob Ross.
    55 min
  • Framtíð tölvuleikja, Heppni og hetjudáðir, heimspekin og kófið
    Ítalía hefur orðið verst úti allra landa vegna Covid-19-veirunnar. Að undanförnu hafa heimspekingar þar í landi rökrætt faraldurinn og tekist á um merkingu hans og áhrif. Miklar umræður hafa meðal annars sprottið út frá skrifum hins virta stjórnmálaheimspekings Giorgio Agamben í febrúar, en mörgum þykir hann hafa gert of lítið úr faraldrinum og mislesið aðstæður alvarlega.
    Í viku hverri hittist fjögurra manna hópur í Hveragerði og grípur í spil, hlutverkaspilið Dungeons and Dragons þar sem ímyndunaraflið og teningakastið ræður þeim ævintýrum sem leikmenn rata í. Í þeirra ævintýraheimi er engin veira - bara drekar og djöflar í yfirvigt - og hópurinn leyfir almenningi að fylgjast með í gegnum hlaðvarpið Heppni og hetjudáðir.
    Og Bjarki Þór Jónsson heldur áfram að fræða okkur um heim tölvuleikja. Í þessum síðasta pistli sínum af fjórum fjallar hann um sýndarveruleika og framtíð tölvuleikja.
    55 min
  • Stóri bróðir, þjóðarkórinn og KR stólar
    Fátt annað kemst að á frétta- og samfélagsmiðlum þessa dagana en veiran sem nú herjar á heimsbyggðina. Hvort sem fólk er í sóttkví eða ekki er almenningi ráðlagt að loka sig af frá umheiminum og margir finna fyrir miklum kvíða og ótta. En svo er hópur fólks, í Þýskalandi, sem hefur lifað í sjálfskipaðri einangrun og óttaleysi frá því áður en faraldurinn hófst - keppendur í raunveruleikaþættinum Big Brother sem fengu fyrst fregnir af ástandinu í fyrradag, og það í beinni útsendingu.
    Það eru til margar leiðir til að finna gleði og samkennd í erfiðum aðstæðum. Ein þeirra er að syngja. Á síðustu dögum hafa myndbönd af sönglandi Ítölum á svölum flogið manna á milli og í kjölfarið hefur fólk um allan heim hafið upp raust sína. En þetta er auðvitað ekki í fyrsta skipti sem söngur hefur sameinað fólk. Jelena Ciric flettir í dag sögubókunum og segir okkur frá þjóðarkór seinni heimstyrjaldarinnar.
    Við heimsækjum líka tóman KR-völlinn og spjöllum við ítalska innanhúshönnuðinn Tobia Zambotti hefur endurnýtt gömul stúkusæti í litríka stólalínu.
    55 min
  • Söngvakeppni aflýst, síðdegisleikfimi, hnattvæðing í krísu
    Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva hefur verið blásin af í fyrsta skipti í sögunni. Eðlilega ríkir mikil sorg meðal unnenda keppninnar og við fengum tvo dygga áhangendur til að ræða stöðuna.
    Við höldum áfram að ræða áhrif Covid-19 á hnattvætt samfélag í Lestinni í dag, en á undanförnum dögum höfum við séð fordæmalausar lokanir á landamærum og takmarkað flæði fólks og vara milli heimshluta. Við ræðum við Kristínu Loftsdóttir, mannfræðing, um hnattvæðingu, kófið og krísur.
    Á þessum síðustu og verstu eiga margir landsmenn erfiðara með að sækja líkamsrækt. Ríkisútvarpið sinnir þeim hópi sem endranær með morgunleikfiminni á Rás 1 en í dag býður Lestin upp á sérstaka síðdegisleikfimi: kennslu í hristum og twerk-listum með Margréti Erlu Maack.
    55 min
  • Dream Wife, dómsdagsprepp í Berlín, hnattvæðing og covid-19
    Allt flug hefur verið stöðvað milli heimsálfa, landamærum hefur verið lokað, flæði fólks og vara þvert yfir hnöttinn hefur verið heft verulega vegna Covid-19 heimsfaraldursins. Nú spá því sumir að einangrunarsinnaðir þjóðarleiðtogar muni grípa tækifærið og festa slíkt fyrirkomulag í sessi til frambúðar. Við veltum fyrir okkur framtíð hnattvædds samfélags í Lestinni í dag. Rætt verður við Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðing.
    Halldór Armand Ásgeirsson sendir okkur svipmyndir frá Berlín á tímum Covid-19. Þar eru upplýsingamiðar á veggjum, myllumerki á samfélagsmiðlum, og dómsdagsprepparar hlaupa um stórmarkaði að undirbúa sig fyrir heimsendi.
    Bresk/íslensku indie pönkararnir í Dreamwife gefa út sína aðra plötu í sumar og gáfu út nýtt lag í síðustu viku af því tilefni. Við heyrum í söngkonu sveitarinnar Rakel Leifsdóttur og ræðum við hana um vegferð Dreamwife sem var stimplað sem stúlknaband í fyrstu en hefur nú öðlast einskonar „költ-status
    55 min
  • Klósettkúltúr, áhrif tölvuleikja, og Genesis P.Orridge
    Um helgina lést einn helsti frumkvöðull iðnaðar-tónlistarinnar Genesis Breyer P-Orridge, 70 ára að aldri. Genesis stofnaði hljómsveitirnar Throbbing Gristle og Psychic-TV sem báðar léku háværa og tilraunakennda tónlist, og vakti athygli fyrir ágenga framkomu, óvenjulegan persónuleika og óvenjulegar lýtaaðgerðir. Við ræðum þennan sérstæða tónlistarmann í Lestinni í dag. Gestir eru Curver Thoroddsen og Hilmar Örn Hilmarsson, fyrrum meðlimur Psychic TV
    Bjarki Þór Jónsson heldur áfram að flytja okkur pistla úr heimi tölvuleikjanna. Í sínum þriðja pistli veltir hann fyrir sér hvort skilgreina megi tölvuleiki sem menningarverðmæti og skoðar áhrif þeirra á menningu okkar og samfélag.
    Nokkuð hefur borið á því síðustu daga að landsmenn hamstri klósettpappír í verslunum. Eins og margir hafa bent á kemur klósettpappír ekki í veg fyrir veirusmit en að einhverju leyti kann að vera um sálfræðileg viðbrögð að ræða þar sem mannskepnan bregst við hættu með því að huga að sínum helstu grunnþörfum. Ef Íslendingar væru lengra komnir í klósettmenningu þyrfti hinsvegar enginn að hamstra. Klósettáhugakonurnar Marta Sigríður Pétursdóttir og Dröfn Ösp Snorradóttir taka sér far með Lestinni.
    55 min