Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Íslensku tónlistarverðlaunin, Gettu betur, haldið ró ykkar og haldið á
    Við kynnum okkur uppruna breska mottósins Keep calm and carry on sem er prentað á nánast allar gerðir söluvarnings í dag í hvítum stöfum á rauðum bakrunni. Skiltið vinsæla var fyrst hannað í seinni heimsstyrjöldinni en mottóið á sér mögulega lengri og banvænni sögu sem tengist meðal annars skæðum inflúensufaraldi.
    Fjölmörgum viðburðum og samkomum hefur verið aflýst vegna nýju kórónaveirunnar og Covid-19 sjúkdómsins. Kappleikir víða um Evrópu fara fram fyrir luktum dyrum. Úrslitarimman í spurningakeppni framhaldsskólanna Gettu Betur er einn þeirra viðburða sem mun fara fram fyrir tómum sal á föstudag. Við ræðum við stjórnendur Gettu Betur um ákvörðunina og áhrif hennar.
    Ílensku tónlistarverðlaunin fóru fram í Hörpu í gærkvöldi. Davíð Roach Gunnarsson fylgdist með og flytur okkur greiningu á úrslitunum og ræðunum, en meðal verðlaunahafa í ár voru Vök,, Hildur Guðnadóttir, Grísalappalísa þessi hér.
    55 min
  • Persónulegur aktívisimi, spunadjass, Síðasta veiðiferðin, Onward
    Á UAK deginum um helgina ræddi Hrefna Björg Gylfadóttir, loftslagsbaráttukona, um þá viðleitni sína að lifa án sóunar, án þess að skapa rusl. Fjölmargt baráttufólk hefur tileinkað sér slíkan lífstíl en í máli Hrefnu kom fram að þar væru konur í áberandi meirihluta. Hví skyldi það vera? Við ræðum við Hrefnu og skoðum sálfræðina á bakvið persónulegan aktívisma.
    Gunnar Theodór Eggertsson kvikmyndagagnrýnandi segir frá tölvuteiknimyndinni Áfram sem er framleidd af Pixar og rýnir í nýja íslenska kvikmynd Síðasta veiðiferðin.
    Íslensku tónlistarverðlaunin fara fram í kvöld. Meðal þeirra tónlistarmanna sem hlýtur flestar tilnefningar í ár er djasspíanóleikarinn Ingi Bjarni Skúlason, en hann er tilnefndur til fimm verðlauna fyrir sína þriðju plötu Tenging. Við setjumst niður með Inga Bjarna og ræðum djasstónlist og listina að skapa spunatónlist.
    55 min
  • Studio Ghibli, handþvottur og gervigreind klárar sinfóníu
    Árið 1822 hóf austurríska tónskáldið Franz Schubert að semja sína áttundu sinfóníu. Hann veiktist hins vegar af sárasótt og lagði verkið til hliðar og kláraði það aldrei. 40 árum síðar var það grafið upp og flutt óklárað. Nú rétt tæplega 200 árum hefur þessi vinsæla ókláraða sinfónía Schuberts verið fullgerð með hjálp gervigreindarforrits. Þórður Ingi Jónsson ræðir við bandaríska tónskáldið Lucas Cantor sem stendur fyrir verkefninu.
    Við sökkvum okkur ofan í heim japanska kvikmyndagerðarmannsins Hayao Miyazaki, sem hefur stundum verið kallaður hinn japanski Walt Disney. Í byrjun þessa árs urðu nokkrar af bestu myndum frá framleiðslufyrirtæki Miyazakis, Studio Ghibli, aðgengilegar á Netflix. Við ræðum við Hilmar Finsen, en hann stýrir sérstakri Studio Ghibli-spurningakeppni annað kvöld. Hann segir okkur meðal annars hvað það er sem einkennir myndir frá kvikmyndaverinu.
    Mörgum er handþvottur hugleikinn um þessar mundir. Það er þó merkilega skammt síðan að slíkar athafnir voru umdeildar innan læknisfræðinnar. Við skoðum uppruna handþvottar í Lestinni í dag.
    52 min
  • Hugvekjuleikir, Herdís á HBO, Stockfish í skugga Covid
    Stöðugt fleiri stórviðburðum og samkomum er aflýst um þessar mundir eða skotið á frest vegna kórónuveirunnar og Covid-19. En þó það hafi kannski hægst eitthvað á hjólum menningarlífsins rúlla þau enn. Einn þeirra viðburða sem fer fram í skugga veirunnar er kvikmyndahátíðin Stockfish sem hefst á fimmtudag. Við heimsækjum Tjarnarbíó þar sem undirbúningur er nú í fullum gangi og ræðum við Marzibil Sæmundardóttur framkvæmdastjóra hátíðarinnar.
    Bjarki Þór Jónsson flytur annan pistil af fjórum um tölvuleiki, að þessu sinni segir hann frá svokölluðum hugvekjuleikjum, en það eru tölvuleikir sem taka fyrir flókin efni og fá spilarann til að staldra við og hugsa.
    Og við heyrum í tónskáldinu Herdísi Stefánsdóttir. Síðustu vikur hefur hún unnið hörðum höndum að tónlist við nýja þætti HBO sjónvarpsstöðvarinnar um dragsýningar í bandarískum smábæjum.
    55 min
  • Tame Impala, Dixie Chicks og gæludýratískusýning
    Í byrjun febrúar ár hvert fer fram á efstu hæð Pennsylvania Hótelsins í New York einhver yfirgengilegasta, litríkasta og hárugasta tískusýning heims, New York Pet Fashion Show. Margir þátttakendur eyða þúsundum dollara og mörgum mánuðum í undirbúning, og eru búningar gæludýranna jafnvel sérhannaðir af sérstökum gæludýrafatahönnuðum. Ljósmyndarinn Kári Björn Þorleifsson hefur fylgst með sýningunni undanfarin ár.
    Þeir segja að tíminn græði öll sár og Dixie Chicks hafa beðið nógu lengi. Tríóið gaf í gær út lag af nýrri plötu, þeirri fyrstu sem sveitin sendir frá sér allt frá því að þær gerðu upp útskúfun sína úr kántrí-heiminum á Taking the Long Way árið 2006. Á þeim 14 árum sem liðin eru, án nýrrar tónlistar, hefur bandið orðið áhrifameira en nokkru sinni fyrr.
    The Slow rush nefnist nýjasta plata áströlsku sýrurokksveitarinnar Tame Impala. Þessi einsmannssveit hefur verið einhver vinsælasta rokksveit heims undanfarin ár, í stöðugri framþróun. Davíð Roach Gunnarsson rýnir í plötuna og veltir fyrir sér hvort sveitin stefni enn áfram - eða hvort hún sé föst í sama farinu.
    53 min
  • Kvikmyndahátíðin í Berlín, Sjónleikar og Love is Blind
    Love is Blind nefnast raunveruleikaþættir sem njóta mikla vinsælda á Netflix um þessar mundir. Þættirnir bjóða upp á nýjan snúning á hefðbudna stefnumótaþætti, tilhugalíf þátttakenda fer fram án þess að þeir fái að hittast í eigin persónu. Nokkur hópur íslendinga hefur tekið ástfóstri við þáttunum, við ræðum við eina þeirra Evu Ruza í Lestinni í dag.
    Kvikmyndahátíðin í Berlín fór fram í sjötugasta skipi á dögunum. Það var íranska kvikmyndin There is no evil hlaut aðalverðlaun hátíðarinnar í ár, en Ásgeir Ingólfsson tíðindamaður Lestarinnar í mið-Evrópu, fjallar um þrjár aðrar kvikmyndir sem sýndar for á hátíðinni: Shirley, Last and First men og svo myndina sem honum fannst bera höfuð og herðar yfir aðrar myndir á hátíðinni First Cow.
    Sjónleikar er tilraun til þýðingar á hugtakinu audio-visual performans, lifandi flutningur á myndefni og tónum. Tvíeykið Unfiled, sem er skipað þeim Atla Bollasyni og Guðmundi Úlfarssyni, hefur haldið úti hálfgerðri tilraunastofu um sjónleika undanfarna mánuði. En á föstudag opna þeir sýninguna Skjáskot í Ásmundarsal þar sem þeir leika sér með afrakstur vinnunnar.
    54 min
  • Kvíðaröskun, eldur á Klambratúni, gallafata-Barbie og ritskoðaðar reyk
    Í gegnum tíðina hafa sígarettur verið tákn um töffaraskap, frelsisþrá og óttaleysi andspænis dauðanum. En nú eiga þær undir högg að sækja. Unga fólkið reykir færri sígarettur en áður, kvikmyndaver vilja stroka reykingar út af hvíta tjaldiu og Facebook ritskoðar auglýsingaefni sem inniheldur sígarettur - jafnvel þó það sé bara fyrir íslenskan söngleik byggðan á ævi og tónlist Bubba Morthens.
    Heimildarmyndin Chasing the Present verður frumsýnd á Íslandi á sunnudag. Myndin segir frá leit James Sebastiano að lausn við kvíðaröskun sinni en sýningin fagnar einnig útgáfu tónlistarinnar úr myndinni, sem er eftir íslenska tónlistarmanninn Snorra Hallgrímsson.Við ræðum við Snorra og James í Lestinni í dag.
    Halldór Armand Ásgeirsson flytur pistil að venju á þriðjudegi. Í dag rifjar hann upp sögu af því þegar það kviknaði í á Klambratúni.
    En við byrjum á því að sökkva okkur djúpt ofan í safn Ríkisútvarpsins hér í Efstaleiti.
    55 min
  • Minningartattú, tölvuleikir, Söngvakeppnin og Korter í flog
    Í síðustu viku var tilkynnt að hljómsveitin Korter í flog væri ein þeirra sveita sem kæmi fram á Hróarskelduhátíðinni í sumar. Sveitin hefur verið iðin við kolann í íslensku neðanjarðarrokksenunni undanfarin ár. Nýjasta plata þeirra Anna & Bernhard Blume (drepa alla fasista) er uppfull af kaotískri leikgleði, pönkuðu súrkálsrokki og meinfyndinni textagerð. Korter í flog heimsækja Lestina í dag.
    Næstu fjórar vikur verður fjallað um tölvuleiki í Lestinni á mánudögum. Bjarki Þór Jónsson flytur fyrsta pistil sinn af fjórum úr heimi tölvuleikjanna. Að þessu sinni stiklar hann á stóru í sögu þessarar menningargreinar.
    Um helgina kom saman hópur fólks og fékk sér húðflúr. Hér var um heldur óhefðbundna flúrun að ræða því ekki aðeins rann allur ágóðinn til góðgerðarmála heldur er það ætlað til minningar um ungan mann sem kvaddi alltof snemma.
    Og við spjöllum lauflétt um söngvakeppnina og tæknivandræðin sem henni fylgdu.
    55 min
  • „Frumlegasta sci-fi mynd síðustu ára,“ slúðursögur frá Hollywood og In
    Er Chromo Sapiens Instagramvænsta sýning listasögunnar? Þessari spurningu varpaði mbl.is upp í fyrirsögn eftir opnun sýningar Hrafnhildar Arnardóttur/ Shoplifter í Hafnarhúsinu í janúar. Síðan þá hafa sjálfur á skærbleikum, loðnum bakgrunni flætt um samfélagsmiðla - allir verða að eiga mynd af sér og barninu sínu í Shoplifter frumskógunum. í Lestinni í dag veltum við fyrir okkur þeim áhrifum sem Instagram hefur á list og það hvernig við upplifum listina.
    Við flettum hinni umdeildu bók, Hollywood Babylon frá árinu 1965, sem inniheldur gróuslögur og slúður um kvikmyndastjörnur frá gullaldarárum Hollywood. Það er kvikmyndaleikstjórinn Kenneth Anger sem skrifaði bókina á sínum tíma en með útgáfunni áleit h+ann sig vera að skrásetja þjóðsagnaarf borgarinnar.
    Á þriðjudag var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Berlín, kvikmyndin Last and first men eftir Jóhann Jóhannsson tónskálds. Myndin er fyrsta leikstjórnarverkefni Jóhanns í fullri lengd, en honum auðnaðist ekki að klára myndina áður en hann lést í febrúar 2018. Við heyrum um viðtökur myndarinnar á Berlinale og ræðum við Þóri Snæ Sigurjónsson, framleiðanda, sem er staddur í Berlín.
    55 min
  • Fertugasta þáttaröð Survivor, Raggi Bjarna, Duffy snýr aftur og Plat
    Við ræðum við Eyjólf Kjalar Emilsson, prófessor í heimspeki við háskólann í Osló, um nýja þýðingu hans á samræðunni Fædros eftir gríska heimspekinginn Platón. Þessi 2400 ára samræða er stórskemmtileg og í henni tekst söguhetjan Sókrates á við ýmis krassandi viðfangsefni, popúlíska ræðulist, gagnsleysi ritmálsins og samkynhneigðar ástir.
    Það hefur ekki farið mikið fyrir söngkonunni Duffy undanfarið. Hún átti eina vinsælustu plötu fyrsta áratugarins gerði aðra minni plötu, og hvarf svo. Fyrir 24 tímum var hún þó skyndilega komin á Instagram, þar sem hún útskýrði afhverju hún þurfti að hverfa úr sviðsljósinu.
    Brynhildur Bolladóttir tekur sér svo far með Lestinni í dag. Hún segir okkur frá raunveruleikaþættinum Survivor sem hefur verið á skjánum í 20 ár um þessar mundir, öllum að óvörum. Hún ræðir langl
    55 min