Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Vetrarhátíð, reif, Joe Meek, pólskt bíó á íslandi
    Um helgina verður haldið upp á Vetrarhátíð á höfuðborgarsvæðinu í 19. sinn. Lestin kemur við í ráðhúsinu og veltir fyrir sér dagskránni með Aðalheiði Santos Sveinsdóttur, viðburðarfulltrúa. Einnig verður rætt við Atla Bollason sem segir frá Vetrarblóti, reifi sem haldið verður í Hörpu sem hluti af hátíðinni.
    Meira en 1500 manns hafa skrifað undir áskorun þar sem hvatt er til þess að Bíó Paradís verði bjargað. Nokkur hluti þeirra sem skrifa undir eru Pólverjar, enda hefur kvikmyndahúsið verið duglegt að sýna nýjar vinsælar pólskar bíómyndir. Við ræðum við Mörtu Magdalenu, ritstjóra Iceland News Polska, um pólskt bíó og Bíó Paradís.
    Þrátt fyrir að vera hálfgerður utangarðsmaður í bresku tónlistarsenunni hafði upptökustjórinn Joe Meek lúmsk áhrif á popptónlist og upptökutækni á sjöunda áratugnum. Á sínum tíma þóttu aðferðir hans furðulegar, en tæknin sem hann þróaði hefur orðið viðtekin í hljóðverum samtímans. Þórður Ingi Jónsson skoðar skrautlegt líf og feril Joe Meek í dag.
    56 min
  • The Sims, Frostbiter, orgelverk um loftslagið, Björk+Microsoft
    Gunnar Theodór Eggertsson segir frá íslensku hryllingsmyndahátíðinni Frostbiter sem fór fram um helgina. Myndirnar voru auðvitað misgóðar, sumar léku sér að klisjunum en aðrar hættulega snjallar.
    Um þessar mundir eru tuttugu ár frá því að tölvuleikurinn The Sims kom fyrst út. Við rifjum upp stafræna hliðartilveru í Sims-heiminum.
    Við höldum niður í Hallgrímskirkju þar sem organistinn Kristján Hrannar Pálsson undirbýr tónleika þar sem hann leikur frumsamið verk í tuttugu hlutum um loftslagsbreytingar, en orgelið er sérstaklega viðeigandi hljóðfæri til að takast á við málefnið.
    Í hótelanddyri í New York má heyra nýja kóratónlist frá Björk Guðmundsdóttur. Tónlistin er unnin af gervigreindarforriti Microsoft og túlkar í hljóðum himininn yfir borginni. Við kynnum okkur Kórsafn Bjarkar og Microsoft.
    55 min
  • Gugusar, dýrtíðin, feminísk sjálfsvörn og ímynduð umferðarteppa
    Á föstudögum hittist hópur fólks í Háskóla Íslands og æfir sjálfsvörn. Stundum snúast æfingarnar um að brynja líkamann, öðrum stundum um að brynja andann. Hugmyndin er að þær séu í eðli sínu feminískar. Lestin leit við á æfingu og ræddi við forsprakka hópsins, Elínborg Hörpu Önundardóttur.
    Við kynnumst 16 ára raftónlistarkonu, Guðlaugu Sóley Höskuldsdóttur, sem kallar sig Gugusar. Hún var valinn rafheili Músíktilrauna 2019, vann til Kraumsverðlaunanna fyrir sína fyrstu þriggja laga útgáfu. Hún vinnur nú að breiðskífu sem kemur út síðar í mánuðinum.
    Halldór Armand Ásgeirsson flytur pistil að venju á þriðjudegi. Hann heldur sig á svipuðum slóðum og í síðustu viku, þegar hann ræddi um dýrasta land í heimi, en í dag fjallar hann um þá hugmyndafræði sem hlúir að dýrtíðinni.
    Og við heyrum um listamanninn sem blekkti Google Maps til að skapa ímyndaða umferðarteppu í Berlín.
    55 min
  • Myndbönd mánaðarins, Gang of Four og K-Pop
    K-Pop er það allra heitasta í tónlistarbransanum í dag. Hulda Hólmkelsdóttir er með hana á heilanum og tekur sér far með Lestinni næstu vikur til að útskýra fyrir okkur hinum af hverju kóreysk stúlkna- og drengjabönd eru að taka yfir heiminn.
    Bergur Ísleifsson stendur á tímamótum. Ævistarf heyrir sögunni til: fór sömu leið og myndbandaleigurnar, VHS spólan, DVD-diskarnir....og kannski var kominn tími til. Það sem kom almenningi mest á óvart - þegar tilkynnt var að Myndir mánaðarins myndi ekki koma út framar - var eftir allt það að blaðið hefði ennþá verið að koma út. En Bergur elskaði að skrifa um kvikmyndir og í dag rifjar hann upp hvernig það sem var í grunninn auglýsingabæklingur varð að ástríðu.
    Það eru fáir tónlistarmenn sem mótuðu hljóm hins svokallaða síðpönks jafn mikið og breski gítarleikarinn Andy Gill úr hljómsveitinni Gang of Four, en hann lést um helgina 64 ára að aldri. Hrykkjóttur, krampakenndur ásláttur, skær bjagaður hljómur, leikur að enduróm og hálfgerð and-gítarsóló einkenndu gítarleik hans og urðu einkennismerki þessarar stefnu. Við minnumst Andy Gill í Lestinni í dag, og ræðum við tvo einstaklinga sem þekktu hann úr ólíkum áttum Höllu gunnarsdóttur og Trausta Júlíusson.
    54 min
  • Umdeildur slúðurfréttamiðill, Chromatics og Bíó Paradís lokar
    Í morgun bárust fréttir af því að Bíó Paradís hefði sagt upp öllu starfsfólki og framtíð kvikmyndahússins væri óljós. Óvissan virðist að einhverju leyti snúast um framtíð húsnæðisins. Fréttirnar hafa vakið upp sterk viðbrögð á samfélagsmiðlum enda hefur kvikmyndahúsið mikla sérstöðu á íslenskum bíómarkaði. Við ræðum við Hrönn Sveinsdóttur, framkvæmdastjóra um framtíð Bíó Paradísar
    Slúðurvefsíðan TMZ hefur mætt mikilli reiði síðustu daga vegna fréttaflutnings síns á andláti Kobe Bryant. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem síðan kemst í kast við almenningsálitið en alltaf heldur hún þó velli.
    Í síðustu viku kom út nýtt lag með rökkurdiskósveitinni Chromatics. Þau gáfu út sína fyrstu breiðskífu í sjö ár í október síðastliðnum en það var þó ekki platan sem fólk var að bíða eftir. Davíð Roach segir okkur upp og ofan af Chromatics í Lestarferð dagsins.
    55 min
  • Saga titrarans, Little Women, frönsk kvikmyndahátíð og Dreyfus-málið
    Marta Sigríður Pétursdóttir rýnir í kvikmyndirnar Little Women og Portrait of a Lady on Fire.
    Í tilefni að sýningu nýjustu kvikmyndar Romans Polanski, J'accuse, eða Ég ákæri, sem sýnd er á franskri kvikmyndahátíð rifjum við upp eitt frægast dómsmál sögunnar, Dreyfus-málið, sem tvístraði frönsku samfélagi um aldamóin 1900. Liðsforingi í franska hernum, gyðingurinn Alfreð Dreyfus var dæmdur fyrir njósnir og landráð en reyndist saklaus.
    Og við kynnum okkur upplýsingar sem varpa nýju ljósi á sögu titrarans.
    52 min
  • Dýrasta land í heimi, Benni Hemm Hemm, Hlaðvörp og Grandi 101
    Síðar í vikunni sendir tónlistarmaðurinn Benni Hemm Hemm frá sér sína áttundu breiðskífu, Kast spark fast. Undanfarin ár hefur Benni gefið út lágstemmt svefnherbergispoppið sem hefur ekki alltaf ratað í útvarp eða á tónleika. En nú snýr hann aftur endurnærður með hljómsveit skipaðri stórskotaliði íslenskra indítónlistarmanna. Benni Hemm Hemm heimsækir Lestina í dag.
    Halldór Armand Ásgeirsson flytur pistil að venju á þriðjudegi. Í þetta sinn er hann að hugsa um hversu óafsakanlega dýrt er að búa á Íslandi og einhvern veginn kemur Ódysseifur við sögu.
    Á síðustu misserum hafa hlaðvörp rutt sér til rúms í hinni íslensku fjölmiðlaflóru. Þau fjalla um allt milli himins og jarðar, frá morðum yfir í meðgöngu og koma í ýmsum formum - geta verið spjallþættir, einræður eða jafnvel leikin. Næstu vikur hyggst Lestin kynna sér þessa nýju ólínulegu dagskrárflóru landsins, eitt hlaðvarp í einu. Við byrjum á hlaðvarpi Granda 101.
    54 min
  • Kobe Bryant, Grammy verðlaun, ár rottunnar og veggjakrotarinn
    Fyrst birtist fréttin á slúðurvefnum TMZ. Svo barst staðfesting frá fleiri miðlum, ESPN, CNN, LA Times: Ein skærasta stjarna körfuknattleiksheimsins er öll. Kobe Bryant, 13 ára dóttir hans og sjö aðrir létust í hörmulegu þyrluslysi í Kaliforníu í gær. Lestin fer yfir feril hans og menningarlegt gildi með blaðamanninum Kjartani Atla Kjartanssyni.
    Andlát Kobe setti mark sitt á Grammy verðlaunahátíðina sem haldin var í gærkvöldi. Þrátt fyrir harmi þrungið yfirbragð tókst tónlistarfólkinu þó að deila út grammófónum og í sumum flokkum mörkuðu þeir jafnvel tímamót. Við lítum yfir hápunktanna.
    Í skugga hinnar skæðu Kóróna-veiru héldu Kínverjar áramót nú um helgina. Ár svínsins leið undir lok og ár rottunnar gekk í garð. Við sökkvum okkur ofan í kínverska tímatalið og heyrum hvernig fólk fagnar nýárinu í þessu fjölmennasta ríki heims. Hafliði Sævarsson heimsækir Lestina og segir frá.
    Tómas Ævar Ólafsson flytur síðasta hlutann í þriggja pistla röð sinni um veggjakrot.
    55 min
  • Myrkraverk, Grammy, afleiðingar stórmóts og tvær virðulegar konur
    Í vikunni höfum við litið um öxl á Heimsmeistaramótið í handknattleik 1995. Við höfum skoðað aðdraganda þess, hvernig tíðarandinn tók það föstum tökum og slakt gengi íslenska landsliðsins. Í síðasta innslagi örseríunnar Þegar Ísland hélt stórmót, skoðum við hvað læra má af mótshaldinu og ræða nákvæmlega hvað það var sem fór úrskeiðis.
    Júlía Margrét Einarsdóttir tekur sér far með Lestinni. Hún fjallar um Hollywood myrkurs og dauða, fjöldamorðingja og safn dauðans á þessum annars lauflétta fimmtudegi.
    Og tónlistargagnrýnandi Lestarinnar, Davíð Roach Gunnarsson, veltir fyrir sér Grammy verðlaununum sem afhent verða um helgina.
    En við byrjum á sannri sögu af tveimur virðulegum konum á ferð og flugi. Anna Kristjánsdóttir segir frá
    55 min
  • Eltihrellir, kynlífsdúkka og handboltadraumurinn sem dó
    Gengi íslenska karlalandsliðsins í handknattleik gegn Noregi í gær rímar ágætlega við innslag dagsins í örseríunni Þegar Ísland hélt stórmót. Í dag rifjum við upp sjálfan handboltann og skoðum hvernig lið sem stefndi á pall endaði nær botninum.
    Áslaug Torfadóttir rýnir í sjónvarpsþættina You. Þeir segja frá sætum en siðblindum eltihrelli og hafa vakið mikla athygli.
    Og við leggjum leið okkar með Gráum ketti í kynlífstækjaverslunina Adam og Evu og finnum fyrir forláta dúkku.
    55 min