Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Hugmyndafræði ójöfnuðar, Sunna Margrét og Brennifer snýr aftur
    Fyrsta sólóplata tónlistarkonunnar Sunna Margrétar, sem áður söng með hljómsveitinni Bloodgroup, kom út á dögunum. Stuttskífan Art of History inniheldur tilraunakennt rafpopp sem hefur strax vakið nokkra athygli, hlaut meðal annars Kraumsverðlaunin í desember áður en hún var komin út opinberlega.
    Auðmagn og hugmyndafræði, Capital et idéologie, nefnist ný bók franska hagfræðingsins Thomas Picketty, en hann varð alþjóðlega stjarna í heimi fræðanna árið 2013 eftir að hann gaf út stórvirkið Auðmagnið á 21. öldinni. Við heyrum um nýjstu bók Picketty í Lestinni í dag.
    Áður en árið var úti bárust mikilvægar fréttir úr heimi fræga fólksins: Brad Pitt og Jennifer Aniston elska hvort annað aftur. Hvað það þýðir nákvæmlega skiptir kannski ekki öllu máli. Aðdáendur þeirra grafa gömlu Brennifer bolina upp úr skápum og skúffum á meðan stuðningsmenn Brangelinu gráta söltum tárum. Í dag ferðast Lestin aftur í tímann, rifjar upp skilnaðinn sem skók Hollywood og skoðar ást okkar á frægum pörum.
    55 min
  • Pistlahöfundar gera upp menningarárið 2019
    Í síðustu Lest ársins líta lestarstjórarnir um öxl á menningarárið sem er að líða. Pistlahöfundar síðustu mánaða leggja orð í belg, velja sín uppáhalds listaverk og skoða það sem einkennt hefur menningarumræðuna.
    Gestir þáttarins eru Anna Gyða Sigurgísladóttir, Ásgeir H. Ingólfsson, Áslaug Torfadóttir, Davíð Roach Gunnarsson, Gunnar Theodór Eggertsson, Jelena Ciric, Laufey Haraldsdóttir, Marta Sigríður Pétursdóttir, Tómas Ævar Ólafsson og Þórður Ingi Jónsson.
    55 min
  • Jólaplata morðingja, kettir, jólakveðjur og sníkjulist
    Myndlist getur verið sníkjudýr á vef-vettvangi á borð við Facebook, E-bay og Amazon. Það er að minnsta kosti kenningin sem drífur áfram sýningarhald í netgalleríinu Cosmos Carl. Galleríið fær listamenn til að nýta sér fjölbreyttan vefvang í sköpun og sýningu listaverka sinna. Við ræðum við annan eigenda þessa sérstaka sýningarýmis, Sæmund Þór Helgason, í Lestinni í dag.
    Davíð Roach Gunnarsson flytur okkur pistil um eina bestu jólaplata allra tíma. Sú var sett saman af manni sem nú situr í fangelsi fyrir morð. Upptökustjórinn, lagahöfundurinn og annálaði ofbeldismaðurinn Phil Spector gaf heiminum jólagjöf árið 1963, plötuna A Christmas Gift For You. Hún vakti hins vegar minni athygli en hún átti skilið því hún kom út sama dag og annað alræmt morð var framið.
    Og við flytjum ykkur jólakveðju í þessum síðasta þætti fyrir jól - eða kannski sendið þið okkur kveðjurnar. Jólakveðjum almennings hefur verið útvarpað hér á Rás 1 frá 1932 og eru þær órjúfanlegur hluti af jólahaldi margra Íslendinga.
    En við byrjum á kvikmynd um ketti.
    55 min
  • Endurtekning, innblástur, Geiri Sæm og metnaðarfullur ferðalangur
    Katrín Sif Einarsdóttir er líklega einhver víðförlasti Íslendingur sögunnar, að minnsta kosti ef talið er í heimsóttum löndum, en hún hefur komið til meira en 200 lönd. Katrín heimsækir Lestina í dag og segir frá ferðalífstílnum.
    Listamaðurinn Loji Höskulds situr fyrir svörum hjá Önnu Gyðu Sigurgísladóttur sem hefur leitað innblásturs meðal viðmælenda sinna síðastliðna mánuði.
    Tómas Ævar Ólafsson flytur okkur sinn þriðja og síðasta pistil um myrkari hliðar jólahátíðarinnar. Hann hefur fjallað um neyslumókið, barna- og dýraslátrun en í dag fjallar hann um endurtekninguna.
    En við byrjum á andlátsfregn sem barst í vikunni. Tónlistarmaðurinn, Ásgeir Magnús Sæmundsson, betur þekktur sem Geiri Sæm, lést á heim­ili sínu í Reykja­vík 15. des­em­ber síðastliðinn, 55 ára að aldri.
    51 min
  • Meðmæli á bókakápum, Maxím Gorkí, álitsgjafar, óskarstilnefningar
    Nú flæða bækur sem aldrei fyrr. Margar eru þær kirfilega merktar í bak og fyrir með tilvitnunum - meðmælum sem væntanlega nýtast lesendum í leit sinni að réttu bókinni í jólapakkann. En hvaðan koma þessar tilvitnanir og hvað þýða þær í raun?
    Áramótin eru tími sjálfsskoðunar. Fólk gerir upp árið, lítur yfir farinn veg og veltir fyrir sér stöðu sinni í alheiminum. Halldór Armand Ásgeirsson er í þess konar naflaskoðun þennan þriðjudaginn, endurkoma saturnúsar og hlutverk álitsgjafans eru viðfangsefni Halldórs í dag.
    Prósaljóðið Mannveran eftir rússneska skáldið Maxim Gorkí fjallar um lífskraft mannlegrar tilvistar. Ljóðið var meðal fyrstu útgefnu verka Gorkís sem átti síðar eftir að verða áberandi stuðningsmaður rússnesku byltingarinnar, og frumkvöðull í félagslegum raunsæisbókmenntum. Við ræðum við þýðandann, myndlistarkonuna Freyju Eilífi um Rússland, skáldskap og mannveruna.
    Og við heyrum fréttir úr óskarskapphlaupinu.
    51 min
  • Kaffidrykkja, förðunarfræðingur Tarantinos, vampíran Nos4a2
    Fólk um allan heim hóf þennan mánudag með einum rótsterkum kaffibolla og Íslendingar eru þar síst undanskildir. Hvort sem hann er svartur, sætur eða með örlítilli mjólkurlögg er kaffisopinn fastur liður í rútínunni - koffínkikkið sem þarf til að keyra daginn í gang. En hvenær skolaði þessum dökkia ódáinsdrykk á fjörur vorar? Már Jónsson sagnfræðingur leiðir okkur í allan sannleikann um kaffiþamb Íslendinga á öldum áður.
    Heba Þórisdóttir, förðunarfræðingur, er tilnefnd til Critics Choice verðlaunanna fyrir förðun í kvikmynd Quentin Tarantio, Once Upon a Time in Hollywood. Við sláum á þráðinn vestur um haf og ræðum við Hebu um þennan heiður í Lestinni í dag.
    Og Áslaug Torfadóttir flytur okkur sjónvarpspistil. Að þessu sinni fjallar hún um Nosferatu - skrifað “NOS4A2“ - sem eru óhefðbundnir vampíruþættir með örlitlum en óþægilegum jólakeim. Og einmitt þar ætlum við að byrja þennan máanudaginn.
    51 min
  • Caribou, eftirlitskapítalismi, Kraumsverðlaunin og melgresi
    Í kvöld opnar splunkunýr veitingastaður í Reykjavík en reyndar lokar hann aftur aðeins fáeinum tímum síðar. Er einnar nætur gaman. Staðurinn mun bjóða fjögurra rétta matseðil þar sem aðalhetjan er melgresi. Lestin brunar niður í Hafnarhús og brögðum á þessu sérlega stórgerða og harðgerða grasi.
    Kanadíski raftónlistarmaðurinn Caribou gaf nýlega frá sér tvö ný lög, hið síðara í síðustu viku, sem eru það fyrsta sem heyrist frá kappanum síðan rómantíska húsplatan Our Love kom út fyrir meira en fimm árum síðan. Laginu You and I fylgdi svo tilkynning um að von væri á breiðskífunni Suddenly í lok febrúar. Davíð Roach Gunnarsson rýnir í fyrirboðann sem og fjölþættan feril Caribou í Lestinni í dag.
    Fáar bækur hafa vakið jafn miklar umræður og viðbrögð á árinu og Öld eftirlitskapítalismans eftir bandaríska félagssálfræðinginn Shoshana Zuboff. Í bókinni heldur hún því fram að mannleg upplifun sé orðin að mikilvægustu auðlind 21. aldarinnar. Hún lýsir því hvernig tæknirisar á borð við Google og Facebook svífast einskis í stöðugt ítarlegri söfnun upplýsinga um alla okkar reynslu, og setur svo fram þær hættur sem ótæpileg gagnasöfnun og nýting getur haft í för með sér - ógn við sjálft eðli mannsins. Við rýnum í Öld eftirlitskapítalismans í Lestinni í dag.
    Og við ræðum þá sex listamenn sem hljóta þóttu eiga framúrskarandi plötur í ár að mati Kraumsverðlaunanna.
    50 min
  • Marie Fredrikssen, innflytjendur og leikhús, Jólamyrkur, Saga Sig
    Á undanförnum árum hefur Ísland breyst úr einsleitu þjóðfélag yfir í marbreytilegt fjölmenningarsamfélag. Innflytjendur eru orðnir meira en 50 þúsund. Eitt af markmiðum hins nýstofnaða alþjóðlega sviðslistahóps Reykjavík Ensemble er að auka sýnileika þessa hluta þjóðarinnar í íslensku leikhúsi, en stofnhátíð hópsins fer fram í Tjarnarbíói í kvöld. Við ræðum við Pálínu Jónsdóttur og Ewu Marcinek um þennan nýja leikhúshóp
    Við förum yfir feril sænsku poppsöngkonunnar Marie Fredriksson úr hljómsveitinni Roxette en hún lést á mánudag 61 árs gömul.
    Saga Sigurðardóttir ljósmyndari segir frá því sem fyllir hana innblæstri um þessar mundir. Hún segir skilningarvit sín þurfa stöðugan innblástur.
    Tómas Ævar Ólafsson flytur annan pistil sinn af þremur um myrkari hliðar jólahátíðarinnar.
    55 min
  • Veðrið, eyðimörk, Krot&krass, Golden Globe
    Fréttir af yfirvofandi stormi hafa tröllriðið fréttum sem og samræðum í dag en það er svo sem ekkert nýtt að Íslendingar láti sig veðrið varða. Af hverju tölum við svona mikið um veðrið? Hvað erum við í rauninni að segja? Við lítum til veðurs í Lestinni í dag.
    Kuldaljóð nefnist ný sýning vegglistateymisins Krot&krass, þar eru verk innblásin af íslensku höfðaletri og íslenskum veðurorðum. Við ræðum við Elsu og Björn Loka, um kuldaljóð og ferðalög, en á undanförnum árum hafa þau ferðast um landið og heiminn í húsbíl og málað leturlistaverk sín á auða gafla og hvíta veggi.
    Við höldum út í eyðimörkina með Halldóri Armand Ásgeirssyni. Meðal þess sem kemur við sögu í pistli hans þennan þriðjudaginn er meinlætamaður í frumkristni, geðlæknir í útrýmingabúðum nasista og eyðimerkurgangan sem við þurfum öll að leggja á okkur.
    Og við kíkjum á tilnefningar til Golden Globe verðlaunanna.
    52 min
  • Íslenska geimferðastofnunin, árið á Spotify, Factfulness
    Í síðustu viku fylltust samfélagsmiðlar af listum tónlistarunnenda yfir þá listamenn og lög sem þeir hlustuðu mest á á tónlistarstreymisveitunni Spotify árið 2019. Listarnir voru hluti af Spotify Wrapped ársyfirlitinu sem birtist í byrjun desember ár hvert og er nánast orðinn fastur liður í dagatali tónlistarunnandi. Við veltum fyrir okkur tónlist, Spotify og gagnasöfnun.
    Inga Þórsdóttir, prófessor í næringarfræði og forseti Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands, mælir með bók sem varpar ljósi á heiminn. Hún segir frá bókinni Factfulness eftir sænska lækninn og talnasérfræðinginn Hans Rosling.
    Skjannahvítir jöklar, eldgos og glæringar, skvísa í geimbúning. Já, Helga Kristín Torfadóttir er óvenjulegur áhrifavaldur en hún fræðir fylgjendur sína minna um fæði og fatnað og meira um jarðfræði.
    En það var þetta með geimbúninginn. Spjallið við Helgu leiddi okkur á aðrar slóðir, frá jöklum og setbergslögum á jörðu niðri og út í geim, eða hér um bil. Við fræðumst um íslensku geimferðastofnunina og stofnanda hennar Daniel Leeb.
    55 min