Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Leynifélög, 50' snjallsjónvarp, Doritos og Samherji
    68% bandaríkjamanna eru með snjallsjónvarp eða snjalltæki tengt við sjónvarpið sitt til að ná efnisveitum á borð við Netflix. Snjalltæki eru að verða stöðugt fyrirferðameiri í hversdagslífi okkar. En nánast öll slík tækni safna fjölþættum upplýsingum um notendur. Við þetta bjóðum við ýmsum öryggishættum heim, en einnig kvikna siðferðilegar spurningar um hver á rétt á að safna og hagnast á upplifunum okkar. Við ræðum um snjallsjónvörp í þættinum í dag við Theodór Gíslason, hjá tölvuöryggisfyrirtækinu Syndis.
    Við köfum ofan í launhelgar og leynifélög með Mark Booth sem skrifaði vinsæla bók um efnið, The Secret history of the world - Hin leynlega saga heimsins. Þórður Ingi Jónsson ræðir við rithöfundinn.
    Halldór Armand Ásgeirsson flytur pistil að venju í Lestinni á þriðjudegi og að þessu sinni er það Doritos, frelsið og Samherji sem honum er sértaklega hugleikið.
    51 min
  • Arkitektúr, The Politician, ósýnilegir kraftar, jarðafarasöngvar
    Hvernig verður maður að stjórnmálamanni? Það er löng og ströng leið upp í efstu metorðastiga stjórnmálanna. Þessi leið er rakin í í bandarísku gamanþáttaröðinni The Politician, Stjórnmálamaðurinn, sem eru framleiddir af Netflix. Í fyrstu þáttaröðinni tekur aðalpersónan þátt í hörðum kosningaslag í stúdentapólitíkinni. Áslaug Torfadóttir rýnir í þættina í Lestinni í dag.
    Eldhús, Baðherbergi, Stofa, Borðstofa, svefnherbergi, bílskúr. Einkaheimili kjarnafjölskyldunannar, íbúðin, er það búsetuform sem þykir eðlilegt í samtímanum. En þannig hefur það ekki alltaf verið og þarf ekki að vera í framtíðinni. Um þetta fjallar þýski arkitektafræðingurinn Niklas Maak í bókinni Living Complex. Anna María Bogadóttir, arkitekt, segir frá bókinni sem henni finnst varpa sérstaklega áhugaverðu ljósi á heiminn sem við lifum í.
    Sambandið milli orsaka og afleiðinga, þess lífræna og ólífræna, milli lifandi og dauðra, er hverfandi í nýju dansverki Rósu Ómarsdóttur, Spills, sem verður frumsýnt á Reykjavík Dance Festival í vikunni. Sviðið umbreytist í einskonar vistkerfi þar sem ósýnileg öfl eru hreyfiaflið: raki, bylgjur, rafsegulsvið og þyngdarafl. Við spjöllum við Rósu um orsakasamband og ósýnilega krafta.
    Við heyrum um það sem er ábyggilega átakanlegasta aukavinna margra íslenskra popptónlistarmanna, að syngja í jarðarförum. Ingó Veðurguð segir frá sinni reynslu í endurfluttu innslagi úr útvarpsþættinum Grár Köttur.
    55 min
  • Kveikur, eftirlendur, meme og Doctor Sleep
    Hvernig kemur maður upp um margra milljarða króna spillingarmál sem teygir anga sína til annarrar heimsálfu? Lestin skyggnist á bakvið tjöldin og kynnir sér hlaðvarp fréttaskýringarþáttarins Kveiks.
    Mím (meme) hafa alltaf verið til þó maðurinn hafi ekki vitað það. Svo segir Laufey Haraldsdóttir sem í dag hefur pistlaröð sína um þetta menningarfyrirbæri. Hún byrjar á að skoða sögu mímsins það hvernig fyrirbærið hefur stökkbreyst með tilkomu veraldarvefsins.
    Við kynnum okkur hugtökin eftirlenda, síðnýlendufræði og ný-nýlendustefna. Kristín Loftsdóttir, mannfræðingur, hjálpar okkur að skilja þessi margslungnu hugtök.
    Og við rýnum í kvikmyndina Doctor Sleep sem er byggð á samnefndri bók Stephens King. Þetta er framhald af bókinni The Shining sem Stanley Kubrick lagaði að hvíta tjaldinu með eftirminnilegum hætti fyrir rétt tæplega 40 árum.
    50 min
  • Harkhagkerfið, Gunnlaðar saga og frelsi íþróttafréttamanna
    Í fyrradag greindi fotbolti.net frá því að íþróttafréttamönnum sem fylgja landsliðinu eftir í Tyrklandi hefði verið bannað að að spyrja Kolbein Sigþórsson ákveðinna spurninga. Það er oft talað um fréttamenn sem fjórða valdið, en er þessi þörf á aðhaldi líka til staðar þegar kemur að íþróttafréttum? Í Lestinni í dag veltum við fyrir okkur fjölmiðlafrelsi á vettvangi íþróttanna.
    Harkhagkerfið hefur það verið kallað hið nýja samband atvinnurekanda og starfsmanns þar sem verkafólkið ræður sig ekki beint í vinnu heldur gerist það sjálfstæðir undirverktakar á vegum fyrirtækja á borð við Uber, Deliveroo eða Amazon og fær verkefni, gigg, í gegnum stafrænan vettvang. Þessi nýja tegund vinnu er viðfangsefni kvikmyndarinnar Sorry we missed you, nýjustu kvikmyndar eins helsta meistara breska sósíalrealismans, Ken Loach. Við rýnum í kvikmyndina og orðaforða harkhagkerfisins.
    Við höldum áfram að skoða fyrirbærið innblástur hér í Lestinni á miðvikudögum. Að þessu sinni ræðir Anna Gyða Sigurgísladóttir við Xinyu Zhang, bókmenntafræðinema um Gunnlaðar sögu eftir Svövu Jakobsdóttur.
    55 min
  • Makalausi dagurinn, Vasulka-áhrifin, Rauður, Öreigar á mannöld
    Dagur einhleypra var haldin hátíðlega í gær og það einna helst á vefverslunum. Dagurinn er talinn rekja uppruna sinn til háskóla í Nanjing þar sem hópur ungra karlmanna vildi fagna því að vera piparsveinar. Markaðsöflin gripu hugmyndina á lofti og á skömmum tíma er dagur einhleypra orðinn stærsti verslunardagur heims.
    Í gegnum tíðina hafa konur verið fyrirferðarminni en karlar á tæknilegri sviðum tónlistarsköpunar - framleiðslu, taktsmíðum og raftónlist. Þessu vill Auður Viðarsdóttir, sem gefur út tónlist undir listamannsnafninu Rauður, breyta - hún hefur tekið þátt í skipulagninu Stelpur Rokka, Synth Babes og skrifað meistararitgerð um efnið. Nú á dögunum kom svo fyrsta sólóplata Rauðar út, Semilunar. Við ræðum við Auði um plötuna í þættinum .
    Gunnar Theodór Eggertsson rýnir í heimildarmyndina Vasulka-áhrifin, mynd um ömmu og afa vídjólistarinnar, hina íslensku Steinu og eiginmann hennar Woody Vasulka.
    Halldór Armand Ásgeirsson flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi. Að þessu sinni skoðar hann suður kóreisku kvikmyndina Parasite, gluggar í kafka og veltir fyrir sér eilífri synd öreigans á mannöld - sekt sem er hægt að reikna út á vefsíðunni Kolefnisreiknir.is
    52 min
  • King Kong-kenningin, Kesha, Social Unrest, Airwaves-uppgjör
    Iceland Airwaves fór fram í 21. skipti um helgina. Þó hátíðin hafi verið smærri í sniðunum en oft áður var þar mikið um dýrðir. Davíð Roach Gunnarsson tónlistargagnrýnandi Lestarinnar hlýddi á gamlar kempur, gerði nýjar uppgötvanir, sá rokk, rapp, dans og svo líka þetta.
    Harðkjarnapönkið þróaðist fyrst í suðurhluta Kaliforníu undir lok áttunda áratugarins. Þar spiluðu menn enn hraðar og harðar en kollegar þeirra í New York og Bretlandi. Í Lestinni í dag ræðir útsendari Lestarinnar í Los Angeles, Þórður Ingi Jónsson, við einn þátttakanda í þessari merkilegu tónlistarsenu, Jason Honea, söngvara hljómsveitarinnar Social Unrest.
    Að venju á mánudegi fáum við til okkar fólk til að segja frá bók sem að þeirra mati varpar áhugaverðu ljósi á heiminn sem við búum í. Elínborg Harpa Önunardóttir, aðgerðasinni, segir frá bókinni King Kong-kenningin eftir franska feministann, rithöfundinn og kvikmyndagerðarkonuna Virginie Despentes. Viðfangsefnin eru kvenleikinn, nauðgunarmenningu og klám en nálgun hennar er nokkuð óvenjuleg í íslensku samhengi.
    Þegar rætt er um leiðandi raddir innan tónlistarheimsins síðastliðinn áratug er poppsöngkonan Kesha ekki endilega ofarlega á lista. En ætti hún að vera það? Frá því Kesha rumskaði fyrst í baðkarinu árið 2009 hefur ferill hennar farið ótal kollhnísa, og það yfirleitt augnablikum áður en dægurtónlistin hélt í sömu átt. Er það kannski Kesha sem slær taktinn? Við veltum fyrir okkur sögu Keshu, stöðu poppsins og framtíð í Lestinni í dag.
    53 min
  • Airwaves, Hystería og tónlistarborgin Reykjavík
    Íslenskt tónlistarlíf verður í fyrirrúmi í Lestinni í dag. Iceland Airwaves sigldi inn í sitt tuttugasta aldursár í gærkvöldi og útsendari Lestarinnar var að sjálfsögðu á staðnum. Davíð Roach lítur við og fer yfir fyrsta kvöld hátíðarinnar og það sem koma skal.
    Nú í haust fengu níu litlir tón­leik­astaðir og menn­ing­ar­hús sem sinna lif­andi tón­listar­flutn­ingi styrk úr nýj­um úr­bóta­sjóði tón­leik­astaða í Reykja­vík. Sjóður­inn er runn­inn und­an rifj­um Tón­list­ar­borg­ar­inn­ar í Reykja­vík og hlut­verk hans að styðja við til­vist minni og miðlungs­stórra tón­leik­astaða í borginni. Við ræðum um mikilvægi þess að styðja við innviðina til að skapa hagstæð skilyrði fyrir gróskumikið tónlistarlíf við Maríu Rut Reynisdóttur verkefnastjóra Tónlistarborgarinnar Reykjavík.
    Fyrr á tímum var orðið móðursýki læknisfræðilegt hugtak. Orðið var síður en svo hjálplegt, enda kynjapólitískt í eðli sínu og notað gegn jafnréttisbaráttu kvenna, þær gætu eftir allt ekki stjórnað tilfinningum sínum fyrir móðursýki, hysteríu. Fyrr á tíðum voru „hysterískar“ konur oft lagðar inn á geðspítala gegn sínum vilja og leg þeirra jafnvel fjarlægt. Þó orðið sé í dag síður notað í læknisfræðinni lifir það enn í félagslegu samhengi, oft sem einskonar skammaryrði. Rapparinn Countess Malaise hefur upplifað slíka skömm á eigin skinni og er hún viðfang hennar fyrstu plötu, Hysteríu, sem út kom á dögunum. Greifynjan, sem heitir réttu nafni Dýrfinna Benita, tekur sér far með Lestinni í dag.
    55 min
  • Jesus is King, galdralækningar, innblástur og tvítugur Harry Potter
    Í þessari viku eru 20 ár frá því að íslensk þýðing á fyrstu Harry Potter bókinni var gefin út á Íslandi. Við ræðum við þýðanda bókarinnar, Helgu Auðardóttur.
    Og það verður meiri fjölkynngi í þætti dagsins. Tómas Ævar Ólafsson pistlahöfundur Lestarinnar er handviss um að langvinn flensa sem hann lagðist í á dögunum sé til komin vegna bölvunar sem lögð var á hann. Í pistli dagsins prófar Tómas sig áfram með galdra - hann er kominn í kuklið.
    Við höldum áfram að skoða fyrirbærið innblástur hér í Lestinni á miðvikudögum. Að þessu sinni ræðir Anna Gyða við Hjalta Jón Sverrisson, prest í laugarneskirkju, sem fær innblástur frá skjólstæðingum sínum, til að mynda verðandi brúðhjónum.
    En við byrjum á tónlist. Hún inniheldur ekkert blót eða klámyrði en þess meira af guði og gospel. Hún er níunda plata Kanye West til að komast í fyrsta sæti Billboard listans strax við útgáfu en hún er gríðarlega umdeild, ekki síst meðal annarra trúrækinna svartra Bandaríkjamanna. Hún átti að heita Yhandi en heitir þess í stað Jesus is King.
    53 min
  • Ókeypis drasl, Perú og flóttamenn á Norðurlöndum
    Við heimsækjum sýningu myndlistarkonunnar Berglindar Ágústsdóttur, La Luna es mi Amiga - Tunglið er vinkona mín - sem hún vinnur út frá ævintýralegu ferðalagi um Perú í Suður Ameríka. Kaþólsk gleði, töfralyf og brosandi fjöll koma meðal annars við sögu
    Halldór Armand Ásgeirsson flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi, og fjallar að þessu sinni um ókeypis drasl.
    Miklar deilur hafa sprottið upp vegna beinskeyttrar ræðu danska rithöfundarins Jonas Eika þegar hann hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs í síðustu viku. Þar gagnrýndi hann stefnu danmerkur og annarra norðurlanda í flóttamannamálum. Við kynnum okkur Eika og flóttamannamálin í Lestinni í dag
    52 min
  • Paul Rudd x2, neðanjarðarmyndasögur, Tilgangur lífsins, blandaðir tónl
    Í bókinni Leitin að tilgangi lífsins segir austurríski sálfræðinginn og geðlækninn Viktor Frankl frá upplifnum sínum sem fangi í útrýmingarbúðum nasista og þeim lærdómum sem hann dró af reynslunni um mannssálina og tilgang tilverunnar. Gunnlaugur Jónsson, framkvæmdatjóri Fjártækniklasans, segir frá bókinni, sem hann álítur að varpi áhugaverðu ljósi á heiminn.
    Klónanir hafa verið í umræðunni undanfarnar vikur vegna frétta um klónun fyrrverandi forsetahunds þjóðarinnar, Sáms. Klónanir eru einmitt viðfangsefni nýrra gamanþátta frá Netflix, Living with yourself, Paul Rudd leikur meðaljón sem ákveður að verða að betri manni - með því að láta klóna sig. Áslaug Torfadóttir rýnir í tvöfaldan Paul Rudd í þætti dagsins.
    Lestin rennir líka við á gömlu almenningssalerni og ræðir við myndasöguhöfunduna Ægi Má og Björn Heimi Önundarson, um nýútgefna bók Áskell Jónsson tekst á við tæpa frændann, og stöðuna í íslensku myndasögusenunni
    Tónlistarkonan Jelena Ciric flytur sitt fjórða og síðasta innslag um tónlistarfólk sem er staðsett á milli tveggja menningarheima, blandað tónlistarfólk. Að þessu sinni spjallar hún við Loga Pedro Stefánsson, en þau eiga að ýmislegt sameiginlegt.
    55 min