Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Maraþon undir tveimur, Poco Apollo, lagaleg réttindi náttúrunnar
    Lestin heldur til tunglsins með Halldóri Eldjárn, tónlistarmanni og tölvunarfræðingi. Í þrjú ár hefur hann haldið úti veftónverkinu Poco Apollo. Það er vefsíða sem sækir handahófskenndar myndir úr safni NASA, myndir sem geimfarar tóku í Apollo tunglferðunum, og umbreytir þeim í tónverk. Blæbrigði tónverksins breytast og verða til út frá innihaldi myndarinnar. Nú hefur Halldór svo unnið heila plötu út frá þessum litlu mynd-tónverkum.
    Langhlauparinn Eliud Kipchoge sló met um helgina - eða ekki. Maraþon-hlaup hans undir tveimur tímum fæst ekki viðurkennt sem heimsmet þar sem aðstæðum var stjórnað um of - voru of fullkomnar. Hlaupið er engu að síður sögulegt og mun hafa mikil áhrif á langhlaupara um allan heim. Kannski hefur það nú þegar haft sitt að segja í heimi heimsmetanna. Hlaupagarparnir Bjartmar Örnuson og Vilhjálmur Þór Svansson hoppa um borð í Lestina og skýra afrek Kipchoge.
    Í vikulegum pistli sínum heldur Halldór Armand Ásgeirsson áfram að velta fyrir sér lagalegum réttindum náttúrufyrirbæra. Hann sér fyrir sér hvernig menningarfræðingur af fjarlægri plánetu myndi greina menningu og sjálfsmynd mannkynsins.
    52 min
  • Jóker, Stórskáldið, Hannah Gatsby, blandaðir tónlistarmenn, For Sama
    Um helgina kemur tasmaníski grínistinn Hannah Gatsby fram í Hörpu með uppistandssýninguna Douglas. Gatsby setti uppistandsheiminn á hliðina eftir að sýning hennar Nanette varð aðgengileg á Netflix í fyrra og gerði hana að stórstjörnu á einni nóttu. Sýningunni var lýst sem hinu fullkomna uppistandi fyrir tíma #metoo, með því að berskjalda sjálfa sig spurði hún spurninga um tilgang og virkni gríns og hvernig það tengist fordómum og ofbeldi í samtímanum. Við kynnumst Hönnuh Gatsby í Lestinni í dag, og ræðum meðal annars við Nönnu Hlín Halldórsdóttur, um grín og viðkvæmni.
    Nóbelskáldið Benedikt er dauðvona. Dóttir hans Rakel og tengdasonur eru stödd í niðurníddum iðnaðarbæ, djúpt í amazon-frumskóginum, að vinna að heimildarmynd um þetta sérvitra stórskáld. Feðginin hafa ekki hist í áratugi og geta ómögulega komið sér saman um hvernig Benedikt á að birtast í heimildamyndinni. Þannig er atburðarásinu í nýju leikriti, Stórskáldið, eftir Björn Leó Brynjarsson, sem var leikskáld Borgarleikhússins síðasta vetur. Við ræðum við Björn Leó um hinar mörgu hliðar sannleikans.
    Í dag hefur göngu sína pistlaröð serbnesku tónlistarkonunnar Jelenu Ciric um blandaða tónlistarmenn - tónlistarfólk sem stendur á einn eða annan hátt á milli menningarheima og nýtir sér þá togstreitu í verkum sínum. Í þessum fyrsta pistli fjallar Jelena um bandarísk-japanska indie-rokkarann Mitski.
    Marta Sigríður Pétursdóttir rýnir svo í umtöluðustu kvikmynd ársins, Jóker, og sýrlensku heimildarmyndina For Sama.
    55 min
  • Bakhjarlar, Danny Brown og það sem ekki má
    Auðugir velunnarar, svokallaðir patrónar, hafa í gegnum tíðina verið einir mikilvægustu bakhjarlar vísinda og listsköpunar. En að undanförnu hefur nýtt kerfi velunnara sprottið upp á vefsíðum á borð við Patreon.com, þar sem aðdáendur geta styrkt skapandi einstaklinga með mánaðarlegum greiðslum. Í Lestinni í dag kynnum við okkur smá-patróna internetsins.
    Einu sinni mátti allt - nema kannski pissa bakvið hurð. Í dag virðist staðan flóknari. Ný kynslóð kallar eftir breytingu á gildum, hegðun og tjáningu og stundum stendur sú eldri eftir með góðar meiningar en sárt ennið. Hefur pólitískur rétttrúnaður „gengið of langt“? Má ekkert lengur? Við köfum í kynslóðabil og „það sem ekki má" í Lestinni í dag.
    Og Davíð Roach Gunnarsson rýnir í nýja plötu bandaríska rapparans Danny Brown, U Know what I'm sayin?
    52 min
  • Mannöld, innblástur, ljótar kartöflur og saga kartöfluflögunnar
    Íslenska kartaflan stendur á tímamótum. Hingað til hefur hún ekki ratað í verslanir, þyki hún ekki nógu löguleg í útliti. Henni hefur verið kastað til hliðar, sóað fyrir það eitt að vera ófríð, en ekki lengur. Lítið fyrirtæki í Mosfellsbæ hefur tekið að sér ljótu kartöflurnar og ætlar að gera þær að vinsælasta partýsnarli hins vestrænaheims - kartöfluflögum. Lestin lagði leið sína í Mosó og aftur í tímann, til að fræðast um framleiðslu og sögu kartöfluflaga.
    Við fræðumst um hugtakið mannöld sem hefur orðið sífellt meira áberandi í fræðilegri orðræðu á síðustu tveimur áratugum. Mannöld er íslenskun á enska hugtakinu anthropocene sem á að tákna það jarðsögulega tímabil sem við lifum um þessar mundir. Samkvæmt þeim sem nota hugtakið hafa áhrif einnar dýrategundar, mannskepnunnar, orðið svo afgerandi á þessu tímabili að það réttlætir að kenna tímaskeiðið við hana. Við fræðumst um hugtakið mannöld hjá Gísla Pálssyni, prófessor í mannfræði.
    Anna Gyða Sigurgíslasóttir heldur áfram að ræða við allra hana fólk um það sem fyllir það eldmóði þessa stundina. Í þætti dagsins ræðir hún við Jökul Sólberg Auðunsson, ráðgjafa hjá Parallel ráðgjöf.
    55 min
  • Sjálfsfróun kvenna, svartþröstur í dómsmáli, Gattaca og erfðahönnun
    Á undanförnum árum hefur orðið stórstíg þróun í erfðatækni sem gerir vísindamönnum kleift að klippa út og breyta eiginleikum í genamengi lífvera. Margir hafa áhyggjur af þessari þróun og telja að innan skamms muni vísindamenn geta farið að hanna einstaklinga, skapa erfðabreytt börn. Hollywood-kvikmyndin Gattaca sló í gegn árið 1997 með því að varpa upp slíkri framtíðarsýn. Myndin fjallar um framtíðarsamfélag þar sem erfðamengi einstaklingsins segir allt um stöðu hans í samfélaginu, tækifæri og örlög. Í Lestinni í dag verður rætt við Ernu Magnúsdóttur, líffræðing, um þær hugmyndir sem eru settar fram í kvikmyndinni með hliðsjón af þeim möguleikum sem nú virðast handan við hornið í erfða- og líftækni.
    Sjálfið og sjálfsfróun verður einnig til umræðu í Lestinni. Rætt verður við Írisi Stefaníu Skúladóttur, sviðslistakonu, sem hefur unnið ýmis verkefni tengd sjálfsfróun og flytur þátttöku gjörning á Akureyri um helgina sem og á listahátíðinni Sequenses.
    Halldór Armand Ásgeirsson veltir fyrir sér því hvort kirsuberjatréð í garðinum hans gæti kært þresti himinsins fyrir að gæða sér á ávöxtum þess.
    52 min
  • Undone, vísindamenn deila, óþolandi trymbill, taktlausir íslendingar,
    Á mánudögum í haust munu ólíkir einstaklingar úr ýmsum kimum íslensks samfélags setjast um borð í Lestina og segja frá bók sem þeim finnst varpa sérstaklega áhugaverðu eða gagnlegu ljósi á veröldina. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, ríður á vaðið í dag og segir frá bók sem skýrir heiminn. Hann velur bókina Quantum: Einstein, Bohr, og deilan mikla um eðli veruleikans eftir Manjit Kumar.
    Áslaug Torfadóttir rýnir í sjónvarpsþættina Undone. Í þáttunum ferðast aðalhetjan, Alma, um í tíma og rúmi í kjölfar bílslyss þar sem hún lætur næstum því lífið.
    Við minnumst trommugoðsagnarinnar Gingers Baker sem lést í gær, en hann gerði meðal annars garðinn frægan með hljómsveitinni Cream. Kristján Frímann Kristjánsson segir frá manni sem var magnaður trommari, en umdeildur persónuleiki.
    Og við ræðum um taktlausa Íslendinga.
    55 min
  • Ungir mótmælendur, umdeilt tíst, myndasögur og Blautt heitt langt vont
    Fyrir nokkrum vikum síðan bauðst 14 ára tvíburasystkinunum Idu og Elís að stroka út allt skróp sem þau hafa safnað í kladdann síðustu mánuði. Þau höfnuðu því með látum. Skrópið, er eitt fárra verkfæra sem unglingar hafa til að beita yfirvöld þrýstingi í loftslagsmálum. Innblásin af Gretu Thunberg hafa systkinin mætt mánuðum saman niður á Austurvöll til að mótmæla. Stundum tekst þeim að draga vini sína með sér, stundum ekki. Viðbrögð stjórnvalda hafa verið enn lítilfjörlegri en í síðustu viku dró til tíðinda, þegar mótmælendur fengu fund með forsætisráðherra. Lestin fylgdist með degi í lífi ungra loftslagsmótmælenda, síðasta föstudag.
    Davíð Roach Gunnarsson flytur tónlistarpistil að venju á fimmtudegi. Í dag sökkvir hann sér ofan í heim hornfirsku hljómsveitarinnar Kef Lavík og rýnir í nýja plötu þeirra, Blautt heitt langt vont sumar.
    Við heyrum síðasta hlutann í pistla röð Ásgeirs Ingólfssonar þar sem hann skoðar mannkynssögu síðustu 250 ára út frá því hvernig hún birtist í nokkrum vel völdum myndasögum frá ýmsum heimshornum. Í þessum fjórða pistla Ásgeirs rýnir hann í myndasögurnar Palestine eftir Joe Sacco og Persepolis eftir Marjane Satrapi sem báðar fjalla um bakgrunn átakanna á í Mið-Austurlöndum.
    Síðast en ekki síst lítum við á umdeilt tíst og spyrjum: hvað hafa komandi kynslóðir gert fyrir okkur?
    59 min
  • Kína, Banksy, innblástur og meira RIFF
    Í gær fögnuðu Kínverjar því að 70 ár voru frá því að Mao Tse-tung lýsti yfir stofnun Kínverska alþýðulýðveldisins undir einræðisstjórn kommúnistaflokksins. Síðan þá hefur landið farið frá því að vera bláfátækt landbúnaðarland yfir í það að vera heimsveldi með ævintýralegan hagvöxt. Vel æfðar fjöldamarseringar, hátæknivopn og Maó-jakkar voru meðal þess sem voru áberandi í herskrúðgöngu í Peking en á sama tíma kom til átaka milli mótmælenda og lögreglu í Hong Kong. Við rýnum í þjóðhátíðarfögnuð Kínverja í Lestinni í dag með Hafliða Sævarssyni, sem hefur búið og starfað í alþýðulýðveldinu
    Anna Gyða Sigurgísladottir skoðar fyrirbærið innblástur hér hjá okkur í Lestinni á miðvikudögu. Andagift! Þessi hvatningarörvun sem kann að blása lífi í stíflað, venjugjarnt, síendurtekið, oft og tíðum leiðigjarnt, hversdegið. Hún ræðir við allra handa fólk um það sem fyllir það eldmóði þessa stundina. Í þætti dagsins ræðir hún við Maríu Elísabetu Bragadóttur, skáld.
    Við höldum áfram að rýna í Riff. Að þessu sinni var það Marta Sigríður Pétursdóttir sem skellti sér á hátíðina. Í pistli sínum í dag fjallar hún um kvikmyndirnar Varda by Agnés, Burning Cane og Ivana the Terrible.
    Götulistamaðurinn Banksy hefur opnað verslun, nauðbeygður, að eigin sögn vegna lagadeilna við fyrirtæki sem selur tækifæriskort. Deilan snýst um vörumerkjarétt og segist Banksy hafa staðið í ströngu síðustu mánuði við að framleiða gjafavöru til að tryggja rétt sinn á eigin verkum.
    55 min
  • RIFF, tattúfjarlæging, dauðaóttinn, kristilegur Kanye
    Alþjóðlega kvikmyndahátíðin RIFF hófst með pompi og prakt í síðustu viku. Gunnar Theodór Eggertsson kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar lét sig ekki vanta. Og í þættinum í dag rýnir hann í myndirnar Dead Don't Die, Síðasta haustið og Space Dogs.
    Undanfarnar vikur hafa bandarískir popptónlistarmiðlar fjallað ítarlega um réttarhöldin yfir rapparanum Tekashi Six-Nine, en til að forðast langan fangelsisdóm vegna ýmissa glæpa hefur hann samþykkt að veita lögreglu upplýsingar um félaga hans úr alræmdu glæpagengi. Honum býðst að hverfa í fjöldann í vitnavernd. Vandamálið er að hann er auðþekkjanlegur vegna fjölda húðflúra í andliti og á líkamanum. En væri hægt að losa hann við tattúin? Við kynnum okkur húðflúra-fjarlægingar í Lestinni í dag.
    Útgáfu nýjustu plötu Kanye West hefur verið frestað í þriðja skipti en að þessu sinni virðist hún engu að síður yfirvofandi. Um helgina húrraði hann hópi frelsaðra Kanye fylgjenda inn í United Palace leikhúsið á Manhattan og spilaði fyrir þá hráa útgáfu af því sem koma skal - gospel þrunginni og blótlausri plötu, Jesus is King.
    Og Halldór Armand flytur okkur að venju pistil á þriðjudegi. Að þessu sinni veltir hann fyrir sér ofurmannlegu afreki klettaklifrarans Alex Hannolds.
    53 min
  • Hornkaupmenn, Spotify og Fight Club
    Lestin rennir við í kunnulegt umhverfi sem er óðum að hverfa, til kaupmannsins á horninu. Sigríður Rut Marrow hefur verið að skrásetja þennan menningarkima í ljósmyndum en frá því hún hóf verkefnið hafa í það minnsta fimm hornkaupmenn lagt upp laupana.
    Tónlistarmaðurinn Oddur Klemenzson hefur farið miklum á Spotify undanfarið en þrátt fyrir að hafa aðeins gefið út eitt einasta lag hlusta yfir 600 þúsund manns á það í mánuði hverjum. Það er ekki síst áhugavert í því ljósi að Oddur lést 12 ára að aldri, árið 1882. Rætt verður við Loga Pedro Stefánsson um dulnefni og gervilistamenn á streymisveitunni.
    Og 20 ár eru liðin frá útgáfu kvikmyndarinnar Fight Club - hvers fyrsta regla er að ekki skal talað um Fight Club. Engu að síður ætlum við að ræða myndina og þær karlmennsku hugmyndir sem í henni birtast og litað hafa kynjapólitík samtímans.
    54 min