Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Andlitsgreining, nördar í Miðgarði, athyglisviðskipti og hýrir kossar
    Um helgina flykkjast furðuverur í Fífuna, Kópavogi. Undir niðri - undir búningunum það er - eru verurnar auðvitað venjulegt fólk - ósköp venjulegir nördar, myndu einhverjir segja. Þær eru á leið á Midgard ráðstefnuna að spila borðspil og tölvuleiki, LARPA og kynna sér allt það besta sem njarðheimar hafa upp á að bjóða. Í Lestinni í dag fræðumst við um Midgard-ráðstefnuna.
    Við veltum líka fyrir okkur sjálfvirkri andlitsgreiningu með breska listamanninum Jake Laffoley. En hann stendur fyrir sýningunni Biometric Exit í sýningarrýminu Midpunkt um þessar mundir.
    Halldór Armand Ásgeirsson flytur pistil um hinsegin athyglisviðskipti og það sem kallað hefur verið "woke-washing"
    Borgarstjóri í Brasilíu reyndi á dögunum að banna teiknimyndasögu af því að hún sýnir tvo karlmenn kyssast. Uppátækið þykir ekki aðeins lýsa miklum fordómum og fáfræði heldur einnig algjörri vanþekkingu á kristinni listasögu þar sem allt úir og grúir í samkynhneigðri ástleitni.
    55 min
  • Hljómur framtíðarinnar, Jókerinn, Veronica Mars og Timothy Morton
    Hvernig hljómar framtíðin á Íslandi? Hvernig hljómar hnattræn hlýnun og yfirgefnar og sokknar borgir? Þetta eru þær spurningar sem Sveinbjörn Thorarensen, betur þekktur sem Hermigervill, veltir fyrir sér á nýtti plötu, The Future Sound of Iceland sem kom út í sumar. Hermigervill tekur sér far með Lestinni í dag.
    Dauðinn er kósý en kraftmikill, lífið hráslagalegt og brothætt skrifar breski heimspekingurinn Timothy Morton í nýlegri bók sinni Being Ecological. Tómas Ævar Ólafsson skoðar bókina og pælir í kenningu Mortons um vist-veruna.
    Framleiðslu samnefndrar þáttaraðar um táningsspæjarann Veronicu Mars var hætt árið 2007 en árið 2014 var gerð kvikmynd um kvenhetjuna. Sú hlaut heldur dræma dóma en aðdáendur þyrsti í meira og nú hefur fjórða serían litið dagsins ljós. Áslaug Torfadóttir rýnir í Veronicu fyrr og nú.
    The Joker, Jókerinn, upprunasaga illmennisins síglottandi úr sagnaheimi Leðurblökumannsins, Batman, hlaut um helgina gullljónið, aðalverðlaunin á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum. Þetta er í fyrsta skipti sem kvikmynd byggð á sagnaheimi ofurhetjanna hlýtur aðalverðlaun á A-lista kvikmyndahátíð - einni af virtustu kvikmyndahátíðum heims. Við heyrum fréttir frá Feneyjum.
    53 min
  • Úlfapiss, Hvítur hvítur dagur og heilarinn Hilarion
    Þegar maðurinn drepur dýr skapast tómarúm í fæðukeðjunni sem þarf að fylla. Úlfar eru nauðsynlegir hræætum sem nærast á afgöngum þeirra og halda líka öðrum óværum í skefjum - en þeir eru manninum til ama og því skotnir í hundraðavís. Og hvað gera bændur þá við tómarúmið?
    Í Stúdíó Open úti á Granda hefur rándýrinu verið tappað á flösku.
    Um helgina býður Snorri Ásmundsson til hugleiðslustundar í Egilshöll þar sem hann hyggst stofna nýja jógahreyfingu, Sana Ba Lana, og umbreytast í óræða veru, meistara Hilarion - heilara og prest í musteri sannleikans. Hilarion, birtist tortryggnum og trúlausum í Lestinni í dag.
    Og Marta Sigríður Pétursdóttir gleður okkur með nærveru sinni - hún fór á kvikmyndina Hvítur hvítur dagur í vikunni og setti upp gleraugu rýnisins.
    55 min
  • Rúnasápa, Hlökk og lestarstjórar
    Uppi á Höfða, fyrir utan gamalt verkstæði, kúra tveir sólstólar undir skilti sem á stendur Studio Sol. Þar mætti ætla að fyrir innan sé að finna sólbekki - sérlega gerðarlegar brúnkuvélar - en í staðinn er þar sápa. Bleik, útskorin, í neti. Það verk listamannsins Arnars Ásgeirssonar en sýning á verkum hans stendur yfir í Studio Sol, sem er ekki sólbaðsstofa heldur listagallerí. Við tökum lestina upp á Höfða í þættinum í dag.
    Listhópurinn Hlökk kíkti til okkar í stúdíóið en hópurinn blæs til útgáfuhófs í Mengi á föstudaginn.
    Tilefnið er platan Hulduhljóð sem skartar samruna ýmissa listgreina sem þær stöllur Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir, Lilja María Ásmundsdóttir og Ragnheiður Erla Björnsdóttir ætla að segja okkur betur frá.
    Þá lítur lestin einnig inn á við þar sem nýjir þáttastjórnendur spyrja sig - hvað er gott útvarp?
    Þau Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson, lestarstjórar fyrri tíma svara þeirri spurningu.
    52 min
  • Lotukerfið, Nick Cave, bangsanöfn og Strange fruit
    Lotukerfið er eins og landakort af alheiminum, þar er öllum frumefnum heimsins raðað upp eftir eiginleikum sínu. Kerfið var fundið upp af rússneska vísindamanninum Dimitri Mendeleev fyrir 150 árum og að því tilefni verður rætt við Ágúst Kvaran, prófessor í eðlisefnafræði við Háskóla Íslands.
    Ástralski tónlistarmaðurinn Nick Cave heimsótti Ísland um síðustu helgi og hélt sérstaka samtalstónleika í Eldborgarsal Hörpu. Davíð Roach Gunnarsson fór á þessa sérstöku tónleika og segir frá upplifun sinni í Lest dagsins.
    80 ár eru liðin frá því að jazz söngkonan óviðjafnanlega Billie Holiday steig inn í stúdíó með átta anna hljómsveit og tók upp sinn allra stærsta smell - lag um undarlega ávexti sem hanga á trjám með blóðugum laufum. Við rýnum í sögu "Strange Fruit".
    Og bangsanöfn og frelsið eru umfjöllunarefni Halldórs Armands sem snýr nú aftur eftir sumarfrí
    55 min
  • Heilaþvottur, fangelsi, Dr. Seuss og áhrif plötusnúða
    Plötusnúðar þurfa að svara eftirspurn dansgólfsins með endalausu framboði á nýjum tegundum tónlistar. Reggí, diskó, teknó og hip-hop, allar þessar stefnur eru sköpunarverk DJ-a sem hefur fannst eitthvað vanta í tónlistarlandslagið. Í Lestinni í dag skoðum við hvernig plötusnúðar hafa mótað popptónlist samtímans. Við heimsækjum Ívar Pétur Kjartansson, tónlistarmann og plötusnúð, sem hefur verið að sökkva sér ofan í sögu skífuþeytinga að undanförnu fyrir útvarpsþáttaröðina Snúðarnir sem breyttu heiminum.
    Þær Anna Hallin og Olga Bergman fóru í fangelsi; ekki til betrunar- eða refsivistar heldur til þess að skapa listaverk, einskonar innsetningu í heim fanga á Hólmsheiði. Eðli verksins samkvæmt geta aðeins fangar notið þess. Verkið og vinnan innan fangelsisins varð hinsvegar uppspretta annars verks sem nú er til sýningar í Hafnarborg þar sem gestir geta gengið inn í fangaklefa í raunstærð. Við kíkjum í klefann og veltum fyrir okkur frelsinu, fangelsum og eftirlitssamfélaginu í Lestinni í dag.
    Tómas Ævar Ólafsson flytur pistil um heilaþvotti. En hann veltir því fyrir sér hvort hann hafi sloppið naumlega undan heilaþvottabragði þriggja miðaldra karlmanna á götum Reykjavíkurborgar.
    55 min
  • Dystópíur, rafíþróttir og lægstu mörk vitundarinnar
    Manneskjan býr yfir þeim eiginleika að geta ímyndað og séð fyrir sér allt það sem mögulega gæti gerst í framtíðinni, hún getur skapað mögulegar framtíðir. Á undanförnum árum hafa slíkar framtíðarpælingar verið áberandi í skáldskap og poppmenningu. Oftar en ekki er það svartsýnin sem ræður för og sá framtíðarheimur sem við sjáum fyrir okkur er ógnvekjandi og hryllilegur. Slík dystópísk framtíðarsýn einkennir meðal annars tvær nýjar seríur sjónvarpsþáttanna Black Mirror og Handmaid's Tale sem komu út í byrjun júní. Í Lestinni í dag veltum við því fyrir okkur af hverju við erum sérstaklega móttækileg fyrir dystópíum í dag með Eyju Margréti Brynjarsdóttur, heimspekingi.
    Í kvöld mætast FH og Dusty í úrslitum Lenovo deildarinnar í tölvuleiknum League of Legends. Lið FH er raunar eiginlega nýtt af nálinni en það hét áður Frozty og var sjálfstætt starfandi. Ákvörðun FH að taka svokallaðar rafíþróttir upp á arma sína er umdeild enda er hreinlega umdeilt hvort tölvuleikir geti eða eigi að taljast sem íþróttir yfirhöfuð. Hallsteinn Arnarsson verkefnastjóri hjá FH eSports segir nálgun félagsins á fyrirbærið þó eiga augljósa rót í íþróttum. Rætt verður við Hallstein og Counterstrike leikmanninn Gísla Geir Gíslason í Lestinni í dag.
    Í pistli sínum í dag fjallar Karl Ólafur Hallbjörnsson um minnið og lægstu mörk vitundarinnar.
    55 min
  • Secret Solstice, Kvikmyndaferðamennska, Kate Tempest og náttsloppur
    Black Eyed Peas, Robert Plant, Pusha T og Patti Smith voru meðal þeirra sem komu fram á Secret Solstice tónlistarhátíðinni sem fór fram í Laugardalnum um helgina. Davíð Roach Gunnarsson var útsendari Lestarinnar á hátíðinni og flytur pistil um upplifun sína.
    Við kynnum okkur hina vaxandi grein kvikmyndaferðamennsku á Íslandi, en á undanförnum árum hafa æ fleiri kvikmyndir og sjónvarpsþættir notast við íslenska náttúru sem sviðsmynd. Rætt verður við Lindu Katrínu Elvarsdóttur sem skrifað hefur lokaritgerð í ferðamálafræði um markaðssetningu, væntingar og upplifun ferðamanna í kvikmyndaferðamennsku á Íslandi.
    Þann 14. júní síðastliðinn gaf breska skáldið og tónlistarkonan Kate Tempest frá sér plötuna The Book of Traps and Lessons. Tómas Ævar Ólafsson hlustaði á plötuna og segir frá henni í Lestinni í dag.
    Halldór Armand Ásgeirsson flytur okkur pistil um rándýran náttslopp sem varpar ljósi á hina duldu gæsku hversdagsins.
    Umsjón: KG og AMC
    55 min