Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Kef Lavík, Channel Tres, kaldastríðið, Alexa,
    Blautt heitt langt vont sumar nefnist nýjasta plata hornfirska dúettsins Kef Lavík, fjórða platan en sú fyrsta í fullri lengd. Hljómsveitin er kannski ekki allra vitorði en hefur eignast þéttan hóp heitra hlustenda, hálfgerðan költ-aðdáendahóp. Hljómur sveitarinnar og ekki síst textar eru einstakir í íslensku rapp og r'n'b senunni, flóknari og margræðari. Lestin brunar til Kef Lavíkur í dag.
    Sýndaraðstoðarmaðurinn Alexa mun brátt geta rætt við notendur sína með kunnuglegum röddum fræga fólksins. Í gær tilkynnti Amazon að samningar væru í höfn við fyrstu stórstjörnuna og fleiri eru væntanlegar árið 2020.
    Við heyrum annan hlutann í fjögurra pistla röð Ásgeirs Ingólfssonar þar sem hann skoðar mannkynssögu síðustu 250 ára út frá því hvernig hún birtist í nokkrum vel völdum myndasögum frá ýmsum heimshornum. Að þessu sinni skoðar hann tíma kaldastríðsins og meðal þess sem kemur við sögu er Vínarborg, hundurinn Laika, Graham Greene og Norður Kórea.
    Rapparinn og raftónlistarmaðurinn Channel Tres hefur með tveimur þröngskífum á einu ári skotist langleiðina út fyrir himinhvolfið. Pumpandi húsgrúvin hans með nötrandi bassa og vælandi vesturstrandarhljómborðum hafa hrist rassa frá Compton til London, og djúp röddin fullvissar alla um að hann er við stjórnvölinn, The Controller.
    55 min
  • Fosse/Verdon, pólitík ofurhetja, Hugleikur, Kenýa... eða Úganda
    "Son Of The Day" - sonur dagsins, nú eða bara Dagsson, var yfirskrift Evrópuferðalags Hugleiks Dagsonar vorið 2019. Hann var með uppistand í alls átján borgum og lauk leiknum í Helsinki þar sem glensið var kvikmyndað. Útkoman er fyrsta íslenska "uppistands-specialið" af erlendri grundu en það verður einmitt frumsýnt í kvöld í Bíó Paradís. Hugleikur tekur sér far með Lestinni í dag og segir frá uppistandinu í Evrópu og streyminu sem koma skal.
    Pólitík seinni heimsstyrjaldarinnar mótaði hinar grímuklæddu ofurhetjur myndasagnanna þegar þær stigu fyrst fram á sjónarsviðið. Súperman barðist gegn ójafnrétti og Kapteinn Ameríka kýldi nasista kalda. Þessari gullöld myndasögunnar er gerð góð skil í nýrri og veglegri bók sem innheldur safn af sögum frá Marvel-útgáfunni frá fimmta áratug 20. aldarinnar. Hins vegar var ákveðið að kippa inngangi myndasöguhöfundarins Art Spiegelmans úr bókinni því hann þótti of pólitískur. Við skoðum pólitík myndasagna í Lestinni í dag.
    Áslaug Torfadóttir rýnir í þættina Fosse/Verdon, sem fjalla um goðsagnir úr heimi söngleikjanna, leikkonuna og dansarann Gwen Verdon og leikstjórann og danshöfundinn Bob Fosse.
    Og við ræðum nýlegt lag frá Ingó Veðurguð sem er innblásið af för hans til Kenýa.... eða Úganda.
    55 min
  • Fleabag, Notorious RBG, ferðalög og stolnir draumar
    Bresku grínþættirnir Fleabag hafa vakið verðskuldaða athygli að undanförnu og sönkuðu meðal að sér verðlaunum á nýafstaðinni Emmy verðlaunahátíð, og er höfundurinn og aðalleikkonan Phoebe Waller-Bridge ein hraðast rísandi stjarna sjónvarps og kvikmyndaheimsins. Þættirnir eru drepfyndnir en með virkilega myrkum undirtónum, takast á við dauðann, sorg, sjálfsásakanir, tengslaleysi og kynlífsfíkn. Við sökkvum okkur ofan í Flóabælið með Laufeyju Haraldsdóttur, leikkonu og Fleabag-aðdáanda.
    Um helgina fór fram stofnfundur aðdáendafélags stórstjörnunnar Notorious RBG. Stjarna þessi er hvorki rappari né leikari, né heldur er hún listamaður í nokkrum hefðbundnum skilningi. Hún heitir réttu nafni Ruth Bader Ginsburg og er hæstaréttadómari í Bandaríkjunum en á engu að síður miklu fylgi að fagna hér á landi.
    „Þið hafið stolið draumum mínum og æsku með innantómum orðum ykkar," sagði Greta Thunberg, í tilfinningaþrunginni ræðu í gær á loftslagsráðstefnu Sameinuðu Þjóðanna. Ræðunnar hefur verið beðið með nokkurri eftirvæntingu og gæti skráð sig á spjöld sögunnar - það er ef sagan endist mikið lengur.
    Að venju flytur Halldór Armand Ásgeirsson pistil í Lestinni í þriðjudegi, og að þessu sinni fjallar hann um ferðalög - og sækir meðal annars í brunn heimspekingsins heimakæra Ralps Waldo Emerson.
    53 min
  • Skjáskot Bergs Ebba, hægvarp, Don Kíkóti og Kaf, straumar
    Í Lestinni í dag hittum við Berg Ebba Benediktsson í rúllustiga í Kringlunni og ræðum þar við hann um nýja bók hans Skjáskot, þar sem hann gerir tilraun til að greina hvaða áhrif hinn sítengdi og snjallvæddi samtími hefur á hug okkar og hjörtu.
    Hvernig á að íslenska hugtakið „Slow Television"? Hægt sjónvarp? Hægvarp? Í öllu falli, þá hefur sólarhringsútsending sjónvarpsþáttarins Landans verið bendluð við þetta hugtak. Það passar einhvern veginn ekki alveg enda er lítil ró yfir Landanum þennan sólarhringinn. Þar er þó eitthvað töfrum slungið í gangi - Anna Marsibil rannsakar málið.
    Gunnar Theodór Eggertsson rýnir tvær kvikmyndir og ástríðuverkefni, annars vegar kvikmynd Terry Gilliams, The man who killed Don Quixote, og hins vegar nýja íslenska heimildarmynd Kaf.
    Rætt verður um Emmy sjónvarpsverðlaunin sem voru afhent um helgina
    Og í pistli sínum í dag skoðar Tómas Ævar Ólafsson þessa einkennilegu strauma, hrif eða bylgjur sem geta skapast á milli fólks og valdið óútskýranlegum óþægindum.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Anna Marsibil Clausen.
    55 min
  • Sækadelískt synþafönk, millistríðs-myndasögur, geðveikur göngutúr og L
    Í dag hefst "Klikkuð Menningarhátíð" í tilefni 40 ára afmælis Geðhjálpar. Það verður mikið um dýrðir á hátíðinni, listasýningar, uppistand, tónleikar. Sigurgeir Guðjónsson sagnfræðingur ætlar hinsvegar að fara með fólk í göngutúr. Hann ætlar að leiða áhugasama um miðbæinn og segja sögur af geiðveiku fólki í Reykjavík. Við bregðum okkur á röltið með Sigurgeir í þættinum í dag og heyrum klikkaðar sögur.
    Hollensk-tyrkneska sækadelíska synþafönksveitin Altin Gun er dásamlegt móteitur við beljandi síbyljunni sem rennur af færiböndum tónlistarbransans - ekki síst fyrir fólk með smekk fyrir sandbörnum hljómum og austurlenskum grúvum sem er búið að ofspila Khruangbin og langar í eitthvað aðeins exótískara.
    Við heyrum annan hlutann í fjögurra pistla röð Ásgeirs Ingólfssonar þar sem hann skoðar mannkynssögu síðustu 250 ára út frá því hvernig hún birtist í nokkrum vel völdum myndasögum frá ýmsum heimshornum. Að þessu sinni er hann staddur í Þýskalandi millistríðsáranna og nasismans, í tveimur myndrænum skáldsögum: Berlin eftir Jason Lutes og Maus eftir Art Spiegelman.
    Og við kveðjum Listastofuna, sérstakt listarými í JL-húsinu í Reykjavík sem hefur verið starfrækt undanfarin fjögur ár, en lokar dyrum sínum í kvöld.
    55 min
  • Metoo, samfélagsmiðlar, Hungur og réttlæti
    Aðgerðarsinninn Marai Larasi ræðir rót #metoo byltingarinnar og hvernig áratuga vinna svartra kvenna fékk flugið þegar hvítar stjörnur tóku hana upp á sína arma.
    Hungur - endurminninar um líkama (minn) nefnist endurminningbók bandaríska rithöfundarins Roxane Gay sem er einn aðalfyrirlesara ráðstefnunnar í Hörpu. Í bókinni segir Gay frá því hvernig það er að vera feit svört kona í heiminum í dag. En upphafega þyngdi hún sig meðvitað til að brynja sig eftir nauðgun sem hún varð fyrir aðeins 12 ára gömul.Katrín Hjartardóttir þýðandi segir frá bókinni.
    Hlutverk samfélagsmiðla í þessari leiðtogalausu byltingu verður síst ofmetið en er það raunverulega til gagns? Eru samfélagsmiðlar uppspretta sannrar réttindabaráttu eða bergmálshellir? Þær Rannveig S. Sigurvinsdóttir aðstoðarprófessor við sálfræðideild Háskólans í Reykjavík og Ingibjörg Þórðardóttir ritstjóri CNN Digital taka sér far með Lestinni.
    Réttlæti og ábyrgð eru stór og flókin hugtök sem við ætlum að reyna að kryfja undir lok þáttar. Hvað þarf til að þolendur kynbundins ofbeldis upplifi að réttlætinu sé fullnægt og hvað þarf til að gerendur og samfélagið allt líti í eigin barm og gangist við sinni ábyrgð í ofbeldinu. Hildur Fjóla Antonsdóttir og Jón Ingvar Kjaran ræða þessi mál síðar í þættinum.
    Allt þetta í beinni útsendingu frá Bryggjunni úti á Granda þar sem gestir eru að gera sér glaðan dag eftir fyrirlestra og umræður dagsins á ráðstefnunni #MeToo - Moving Forward í Hörpu.
    55 min
  • Vegan vöðvatröll, andlitshakkarar, sögur og Angela Davis
    Hulda B. Waage er á meðal sterkustu kvenna landsins en hún bætti eigið Íslandsmet í bekkpressu um helgina þegar hún lyfti 150 kílóum og tryggði sér þátttöku rétt í heimsmeistaramótinu í greininni. Hún deildi árangrinum með fylgjendum sínum á Instagram, eins og hún gerir reglulega, en þar, inn á milli lyftingamyndskeiða og vöðvasjálfa er allt út í matarmyndum. Vegan matarmyndum. Hnausþykkir vöðvar Huldu eru nefnilega alfarið reknir án dýra og dýraafurða. Við fjöllum um afrek Huldu og kraftlyftingar á vegan fæði í Lestinni í dag.
    Við rýnum líka í hönnun sem hefur það að markmiði að dulbúa notendur fyrir sjálfvirkum andlitsgreiningartækjum og eftirlitsmyndavélum, föt fyrir þá sem vilja aftengjast eftirlitssamfélaginu með stíl.
    Í pistli sínum í dag fjallar Halldór Armand Ásgeirsson um sögurnar sem við segjum okkur sjálfum, og þar koma meðal annars við sögu lasagna, Joan Didion og áætluð viðbygging við Stjórnarráðshúsið.
    Og við heyrum örstutt um bandarísku fræðikonuna og aðgerðasinnann Angelu Davis.
    52 min
  • Endurkoma Björns Braga, umdeild sparnaðarherferð, Emmy og ruglvinna
    Stéttavitund var nokkuð til umræðu í síðustu viku í samhengi við umdeilda auglýsingaherferð Landsbankans „Ungt fólk og peningar“ - þar sem ungu fólki voru gefin ýmis konar sparnaðarráð. Þeir sem voru í forgrunni í herferðinni voru margir hverjir úr efstu lögum samfélagsins, börn forstjóra, stjórnenda úr fjármálageiranum og áhrifamanna úr þjóðfélaginu. Einn montaði sig á samfélagsmiðlum af því að hafa haft fjögurra milljón króna armbandsúr á hendinni í auglýsingunni. Við ræðum um stéttir og stéttavitund við Guðmund Ævar Oddsson, dósent við Háskólann á Akureyri, í Lestinni í dag.
    Björn Bragi Arnarsson dró sig i hlé úr sviðsljósinu á síðasta ári eftir að myndband af honum að káfa á unglingsstúlku fór í dreifingu á netinu. Nú, er hann snúinn aftur. Lestin lítur á hvernig grínistinn vinnur úr reynslu sinni í sýningu hvers titill og innihald vísar sterklega í umrætt hneykslismál.
    Vinnur þú við að stjórna fólki sem stjórnar sér samt að mestu sjálft? Vinnuru við að finna upp ónauðsynleg verkefni? Eyðiru kannski mestum vinnutímanum þínum á samfélagsmiðlum og fréttaveitum? Í pistli sínum í dag skoðar Tómas Ævar Ólafsson kjaftæði á vinnustað og styðst við nýlega kenningu bandaríska mannfræðingsins David Graeber um störf sem eru í eðli sínu tilgangslaus.
    Og við rifjum upp viðtal við Hildi Guðnadóttur sem í nótt vann Emmy verðlaun fyrir tónlistina í þáttunum Chernobyl.
    57 min
  • Daniel Johnston, hinsegin konukvöld, myndasögur, Peggy Gou
    Við minnumst hins sérstæða og einræna tónlistarmanns Daniels Johnston sem lést í gær 58 ára að aldri. Við ræðum við Ágúst Garðarson sem er mikill aðdáandi Johnston og skipulagði meðal annars tónleika hans í Fríkirkjunni árið 2013
    Einu sinni í mánuði, í Framsóknarhúsinu við Hverfisgötu, er partý. Það er reyndar ekkert Framsóknarpartý og hreint ekkert venjulegt partý ef út í það er farið. Það er hinsegin partý. Bara fyrir kynsegin fólk og konur sem elska konur.
    Lestin leit við á Hinsegin Ladies Night í gærkvöldi.
    Við heyrum fyrsta hlutann í fjögurra pistla röð Ásgeirs Ingólfssonar þar sem hann skoðar mannkynssögu síðustu 250 ára út frá því hvernig hún birtist í nokkrum vel völdum myndasögum frá ýmsum heimshornum. Í þessum fyrsta þætti ferðumst við til Ástralíu, Alsír og í samfélag kínverskættaðra Bandaríkjamanna.
    Suður-Kóreska raftónlistarkonan, plötusnældan, fatahönnuðurinn og instagram-áhrifavaldurinn Peggy Gou hefur farið sigurför um dansgólf heimsins síðustu misseri og breytt yfir þau stjörnubjarta nótt - en lag hennar Starry Night er eitt af lögum ársins hingað til. Davíð Roach Gunnarsson skautar yfir feril Peggy Gou hér á eftir en hún er búsett í Berlín og hefur á þremur árum tekist að koma sér í raðir eftirsóttustu plötusnúða í heiminum.
    50 min
  • Arkitektúr valdsins, Birgir Hákon, ljósmyndun, Taylor Swift chatbot
    Í breska þinginu standa stjórnarflokkar og stjórnarandstaða andspænis hvorum öðrum og þingmann standa upp í sætum sínum til að halda ræður. Á Íslandi draga Alþingismenn um sæti, þeir sitja í hálfhring og vísa allir í átt að ræðupúltinu. í Slóveníu mynda þingmenn heilan hring til að tákna jafnrétti en í NorðurKóreu sitja þingmenn og horfa allir í eina átt, eins og börn í skólastofu, í átt að leiðtoganum. Í Lestinni í dag veltum við fyrir okkur arkitektúr valdsins með Andrési Inga Jónssyni þingmanni.
    Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari lítur við. Hann segir frá ljósmyndaranum Robert Frank sem lést í gær, 94 ára að aldri. Bók Frank, The Americans, er tímamótaverk sem olli straumhvörfum í ljósmyndun.
    Rapparinn Birgir Hákon hefur vakið nokkra athygli í íslensku rappsenunni að undanförnu en hann braust fram á sjónarsviðið í fyrra með laginu Sending. Í dag kemur út nýtt myndband við lagið Starmýri eftir Birgi Hákon og breiðskífa er væntanleg á næstu dögum. Þórður Ingi Jónsson hitti rapparann í hljóðveri í miðbæ Reykjavíkur þar sem hann opnaði sig örlítið um vafasama fortíð sína.
    Taylor Swift hótaði að fara í mál við Microsoft vegna spjallþjarkans Tay þar sem hún taldi sig hafa eignarrétt á nafninu. Full dramatísk viðbrögð gætu sumir sagt en annað kom á daginn. Spjallþjarkinn gerðist nefnilega nasisti.
    55 min