Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Une Misère, Airwaves, 10 ára hamborgari, Þorsti og Addams-fjölskyldan
    Það er hrekkjavökustemning í Lestinni í dag. Gunnar Theodór Eggertsson rýnir í tvær nýjar kvikmyndir í þætti dagsins, annars vegar nýja tölvuteiknimynd um Addams-fjölskylduna ,og hins vegar gay-splatter-vampírumyndina Þorsta eftir Steinda Jr., Gauk Úlfarsson og leikhópinn X.
    Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves hefst í næstu viku. Tugir erlendra listamanna koma fram á hátíðinni auk fjölmargra heimamanna. Það er ærið verkefni að kynna sér alla þá tónlistarmenn sem koma fram og finna það besta og áhugaverðasta. Davíð Roach Gunnarsson, tónlistargagnrýnandi, sparar hlustendum vinnuna og segir frá nokkrum af mest spennandi listamönnunum sem koma fram á Iceland Airwaves í ár.
    Á morgun kemur út fyrsta breiðskífa hljómsveitarinnar Une Misére, Sermon, plata sem þungarokksaðdáendur hafa beðið eftir með öndina í hálsinum. Jón Már Ásbjörnsson, söngvari, og Gunnar Ingi Jones, gítarleikari, stíga um borð í Lestina í dag og ræða um fegurðina í eymdinni.
    Og Lestin heldur áfram að rifja upp ris og fall McDonald's í örseríunni Mc' blessi Ísland. Tilefnið er sá áratugur sem liðinn er frá því að skyndibitarisinn yfirgaf landið. Í dag höldum við í ferðalag í leit að 10 ára gömlum hamborgara.
    51 min
  • Flóttabörn, galdrakennsla, innblástur og Mc' Blessi Íslands
    633 börn, þar af 66 ein síns liðs sóttu um alþjóðlega vernd á Íslandi á árunum 2016 til 2018. Að undanförnu hafa Unicef og vöruhönnuðrinn Búi Bjarmar Aðalsteinsson, skoðað hvernig staðið er að móttöku flóttabarna hér á landi út frá sjónarhóli barnanna sjálfra. Búi Bjarmar verður í Lestinni í dag.
    Galdrar og álög eru allt í kringum okkar. Tómas Ævar Ólafsson pistlahöfundur Lestarinnar er til að mynda handviss um að langvinn flensa sem hann lagðist í á dögunum sé til komin vegna bölvunar sem var lögð á hann.
    Við höldum áfram að skoða fyrirbærið innblástur hér í Lestinni á miðvikudögum. Að þessu sinni ræðir Anna Gyða Sigurgísladóttir við Sunnu Ástþórsdóttur, verkefnastjóra hjá Nýlistasafninu um hvað fyllir hana innblæstri og hvernig þetta merkilega fyrirbæri lýsir sér.
    Þá er þriðji hluti örseríunnar Mc'blessi Ísland að sjálfsögðu á sínum stað í tilefni af 10 ára ártíð McDonald's. Í dag er sjálft hamborgarahrunið tekið fyrir, þar sem skyndibitarisinn riðaði til falls og íslenskur hálfbróðir, Metro, kom í hans stað.
    56 min
  • Fæðing internetsins, Kaupmaðurinn í Feneyjum, Jesus is King og starfsm
    Þann 29. október 1969, fyrir nákvæmlega 50 árum síðan, voru fyrstu skilaboðin send milli tveggja tölva á vesturströnd Bandaríkjanna yfir hið svokallaða ARPAnet. Þetta tölvunet á vegum Bandaríkjahers var forveri og fyrsti vísirinn að því interneti sem við þekkjum í dag. Í Lestinni í dag kynnum við okkur söguna af upphafi internetsins. Sæmundur Þorsteinsson, lektor við rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands, hjálpar okkur að skilja þessa áhugaverðu sögu.
    Lestin heldur áfram að rifja upp ris og fall McDonald's í örseríunni Mc' blessi Ísland. Tilefnið er sá áratugur sem liðinn er frá því að skyndibitarisinn yfirgaf landið en að þessu sinni verður litið til tímabilsins inn á milli upphafs og endis, þar sem reksturinn gekk sinn vanagang. Við beinum kastljósinu að starfsfólkinu.
    Ný plata Kanye West, Jesus is King, er komin út eftir langa bið. Platan tók óvænta stefnu, átti upprunalega að heita Yhandi en þegar trúarhiti tók að færast í rapparann breyttist hún í óð til almættisins.
    Og Halldór Armand Ásgeirsson flytur að venju pistil á þriðjudegi, og að þessu sinni fjallar hann um 400 ára gamalt skáldverk, grátklökkann forsætisráðherra og tekur til varna fyrir depurðina.
    54 min
  • Grísalappalísa hættir, Mc' blessi Ísland, In Touch, Empress of
    Á föstudag eru 10 ár liðin frá því að McDonald?s lagði upp laupana á Íslandi. Ástæðan var sögð bág staða krónunnar í kjölfar hruns og almenningur tók brotthvarf skyndibitarisans nærri sér - upplifði það sem enn annað höggið í þá þegar laskað þjóðarstoltið. Við gátum ekki rekið banka, og nú gátum við ekki einu sinni rekið McDonald?s! Margir vonuðu eflaust að aðeins væri um tímabundin aðskilnað að ræða en nú, tíu árum síðar hafa Big Mac og félagar enn ekki snúið aftur. Á næstu dögum lítur Lestin yfir söguna, upprunan, áhrifin og endalokin í fjögurra hluta örseríunni Mc?blessi Ísland.
    Rokkhljómsveitin Grísalappalísa kom eins og stormsveipur inn í íslenskt tónlistarlíf árið 2012 með hreissilegum súrkálsrokkbræðingi og bókmenntalegum textum um óheflaðar tilfinningar og villt líferni. Síðar í vikunni kemur út þriðja hljóðversplata septetins, Týnda Rásin, en hún verður sú síðasta áður en Grísalappalísa leggur upp laupana. Lestin brunar inn á týndu rásina með Grísalappalísu, Gunnar Ragnarsson, söngvari, og Tumi Árnason, saxófónleikari, verða leiðsögumenn okkar.
    Marta Sigríður Pétursdóttir rýnir í pólsk-íslensku heimildamyndina In Touch, sem gefur okkur merkilega innsýn í líf fólks í litlum bæ í norðaustur Póllandi, en um þriðjungur íbúanna, 400 manns, hefur flust búferlum til Íslands á undanförnum árum og áratugum. Það er ekki síst tengslin og tengslaleysið við hina brottfluttu sem fjallað er um í þessari athyglisverðu heimildarmynd.
    Jelena Ciric heldur áfram að fjalla um tónlistarmenn af blönduðum uppruna en þennan mánudaginn tekur hún fyrir Lorely Rodriguez. Rodriguez er alin upp í Bandaríkjunum en móðir hennar er frá Hondúras. Þessir ólíku menningarheimar mætast í raftónlist hennar sem hún semur undir listamannsnafninu Empress of
    55 min
  • Agnes Joy, Lana Del Rey, keisarakrýning í Japan, Zuckerberg í yfirheyr
    Fyrr í vikunni var nýr keisari krýndur í Japan. Aki­hito keis­ari, sagði sig frá völd­um í apríl síðastliðnum og sonur hans Naruhito tekur nú við. Hátíðin fór fram eftir árþúndagömlum hefðum með ýmis konar táknum og ritúölum. Sakauppgjöf, umræður um kynjajafnrétti og frestaðar skrúðgöngur vegna fellibyls hefur verið meðal þess sem hefur einkennt krýninguna að þessu sinni. Í Lestinni í dag hringjum við til Japan og fræðumst um japanska keisarann og þessa veglegu athöfn. Kristín Ingvarsdóttir, lektor í japönskum fræðum við Háskóla Íslands, er í Tokyo.
    Við kynnum okkur deilur um Libra, nýjan gjaldmiðil sem Facebook ætlar að setja í loftið á næstunn, og athyglisverðar umræður í þingnefnd Bandaríkjaþings um málið.
    Tilvistarkreppa mæðgna á Akranesinu er viðfangsefni nýrrar íslenskrar kvikmyndar, Agnes Joy eftir Silju Hauksdóttur. Kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar, Marta Sigríður Pétursdóttir, rýnir í myndina.
    Bandaríska tónlsitarkonan Lana Del Rey gaf út nýja plötu nú í haust. Norman Fucking Rockwell heitir platan og hefur fengið prýðilegar viðtökur. Davíð Roach Gunnarsson hefur verið að hlusta og fjallar um plötuna í þætti dagsins.
    53 min
  • Hæfishroki, útvarpsskáldskapur, bölvanir og álög, innblástur
    Persóna Freyju Haraldsdóttur hefur tekið á sig ýmsar myndir í fjölmiðlum. Henni hefur verið stillt upp sem fórnarlambi. Henni hefur verið hampað fyrir það að vera "dugleg". Hún er einnig reglulega máluð litum frekjunnar. Mál hennar gegn Barnaverndarstofu, um rétt hennar til að fá hæfi sitt sem mögulegt fósturforeldri meta, var flutt fyrir hæstarétti í dag. Hún lítur á afstöðu Barnaverndarstofu sem hæfishroka, og það gerir líka hópur fatlaðra mæðra sem mætti í dómssal í dag til að sýna henni stuðning. En hvað er hæfishroki og hvernig birtist hann í fjölmiðlum?
    Tómas Ævar Ólafsson pistlahöfundur hefur ekki verið með okkur hér í Lestinni undanfarnar vikur. Hann hefur verið með flensu, verið með ýmsa dularfulla kvilla sem hann finnur engar skýringar á - nema kollegi hans hafi rétt fyrir sér og þetta er hreinlega bölvun sem hefur verið lögð á hann.
    Og við höldum áfram að fræðast um það sem fyllir fólk eldmóði og innblæstri þessa dagana. Viðmælandi Önnu Gyðu Sigurgísladóttur þessa vikuna er Viðar Eggertsson, leikstjóri, leikari, útvarpsmaður og eldri borgari í þjálfun. Hann segir frá því hvernig hann upplifir innblástur þessa dagana.
    En við byrjum í Evrópu. Allt það besta og áhugaverðasta sem er að gerast í útvarpi og hlaðvarpi í Evrópu var verðlaunað á evrópsku ljósvakahátíðinni Prix Europa sem fór fram í Þýskalandi fyrr í mánuðinum. Íslenska útvarpsleikritið Sol hlaut meðal annars þriðju verðlaun í flokki útvarpsskáldsskapar. Þorgerður E. Sigurðardóttir, útvarpsleikhússtjóri, er gestur Lestarinnar í dag.
    54 min
  • Niðurskurður, Hressingarskálinn og Marvel-rifrildið
    Halldór Armand Ásgeirsson flytur að venju pistil í Lestinni á þriðjudegi og fjallar í dag um niðurskurð og hagræðingu. Meðal þess sem hann snertir á pistlinum er Jókerinn, Thomas Picketty og niðurskurður á stafrófinu.
    „Kvikmyndahús eru orðin að skemmtigörðum,“ sagði hinn virti bandaríski kvikmyndaleikstjóri Martin Scorcese á dögunum og gagnrýndi bíómyndir Marvel-myndasögurisans harkalega. Orð leikstjórans hafa kveikt heitar umræður á netinu um gildi og gæði ofurhetjukvikmynda sem hafa verið áberandi í kvikmyndahúsum undanfarinn áratug. Í Lestinni í dag verður spurt hvort Scorcese hafi eitthvað til síns máls, eða hvort þetta sé bara nöldur í gömlum karli? Ásgrímur Sverrisson og Gísli Einarsson takast á um gildi og gæði Marvel-kvikmyndanna - og þeim er heitt í hamsi.
    Og við höldum á söguslóðir. Hressingarskálinn við Austurstræti var reistur árið 1805 og var þá kallað „svenska húsið.“ Síðan þá hefur ýmisstarfssemi verið rekin í húsinu - það hefur verið embættisbústaður, kaffihús og McDonalds - en nú vonast nýjir eigendur til að það muni glæða íslenska tónleikamenningu lífi.
    52 min
  • Leðurjakkaveður, post-kolónískur kvíði, Twilight Zone, Tamino
    Því hefur stundum verið haldið fram að Íslendingar þjáist af sérstaklega slæmum kvíða, póst-kólónískum kvíða. Vegna nýlendasögu landsins kvíða Íslendingar því að tilheyra ekki hinum svonefnda fyrsta heimi og eru þess vegna uppteknir af því að sanna stöðu sína með því að stilla sér upp sem algjörri andstæðu vanþróaðra landa. Þetta birtist í athöfnum og sköpun Íslendinga, allt frá popptónlist til kvikmynda og bókmennta. Í grein í nýjasta hefti Tímarits Máls og menningar rýnir kínverski bókemnntafræðingurinn Xinyu Zhang í verðlaunabókina Ör eftir Auði Övu Ólafsdóttir og greinir hvernig sagan mótast af þessu kvíðaástandi Íslendinga. Xinyu Zhang verður gestur Lestarinnar í dag.
    Twilight Zone - Í ljósaskiptunum - eru einhverjir þekktustu og goðsagnakenndustu fantasíu-þættir síðustu aldar. Áslaug Torfadóttir fjallar um nýja útgáfu sjónvarpsþáttanna, þar sem leikstjórinn vinsæli Jordan Peele sem fer með rödd sögumannsins.
    Við gluggum í ljóðabók Fríðu Ísberg, Leðurjakkaveður. Bókin lýsir ljóðmælanda sem vegur salt milli viðkvæmni og töffaraskaps - brynjar sig með leðurjakka en notar sársaukann sem gjaldmiðil. Og kannski er ljóðmælandinn leðurjakki líka. Við spyrjum skáldið spjörunum úr í Lestinni í dag.
    Jelena Ciric heldur áfram að fjalla um tónlistarmenn sem eru staðsettir á milli ólíkra menningarheima, blandaða tónlistarmenn. Að þessu sinni fjallar hún um belgíska tónlistarmanninn Tamino sem á ættir að rekja til Egyptalands.
    55 min
  • Í beinni frá LHÍ
    Bein útsending frá Listaháskóla Íslands. Lestin og Víðsjá leiða saman hesta sína í dag og mæta í heimsókn í Listaháskóla Íslands í Laugarnesi. Tuttugu ár eru nú liðin síðan kennsla hófst í skólanum og því tímabært að spyrja hvernig til hafi tekist. Gestir ræða meðal annars um lífið í skólanum, listnám og eðli þess, háskólavæðingu listanna, líf eftir námið og áhrif skólans á menningarlífið í heild. Fylgst verður með kennslu í ýmsum listgreinum og sköpun nemenda sem einnig stíga á stokk. Meðal gesta verða stjórnendur, nemendur og kennarar við skólann.
    Umsjón: Anna Marsibil Clausen, Kristján Guðjónsson, Eiríkur Guðmundsson og Guðni Tómasson.
    50 min
  • Rapp og Hennessy, Erró um innblástur, tölvuleikjamyndskeið
    Myndskeið eða sýnishorn í tölvuleikjum, það sem er kallað á ensku Cutscenes, eða Full motion videos, FMW, eru oft svo vel útfærð og framleidd atriði að þau gætu vel sæmt sér í kvikmyndum. Það eru þó ekki allir á einu máli um gildi þessara uppbrota í tölvuleikjum, en óskarsverðlaunaleikstjórar á borð við Steven Spielberg og Guillerme Del Toro hafa lýst yfir vanþóknun sinni á þessu fyrirbæri. Við spjöllum við Nökkva Jarl Bjarnason, doktorsnemi í menningarfræði, um hlutverk myndskeiða í tölvuleikjum.
    Við köfum ofan í poppsöguna og kynnum okkur áhugavert samband rapptónlistar og áfengisframleiðandans Hennessy, en drykkurinn er vinsælt umfjöllunarefni bandarískra rappara.
    Við lítum við á vinnustofu Errós í París, þar ræðir Anna Gísla Sigurgísladóttir við þennan 87 ára meistara íslenskrar myndlistar - sem er enn í fullu fjöri - og spyr hann hvaðan hugmyndirnar og innblásturinn kemur.
    54 min