Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Ferðadagbækur, Vinsæl Misþyrming og Good omen
    Við leitum uppi ferðadagbækur sem komið hefur verið fyrir á bekkjum í almenningsrýminu í Reykjavík
    Önnur plata svartmálmsrokksveitarinnar Misþyrmingar, Algleymi kom út í lok maí. Misþyrming hefur á undanförnum árum orðið ein þekktasta íslenska þungarokksveitin á hinum alþjóðlega vettvangi. Þetta er svartmálmur, blakkmetall, eins og hann gerist bestur. Hávær og harður, ómstrýður og groddalegur. En líka á köflum melódískur. Platan hefur hlotið góðar viðtökur og komst meðal annars á Billboard-metsölulistann í Bandaríkjunum yfir mest seldu erlendu plöturnar í byrjun júní. Við ræðum við forsprakka sveitarinnar í Lestinni í dag.
    Djöflar og englar koma svo við sögu í sjónvarpspistli dagsins. En Áslaug Torfadóttir fjallar um sjónvarpsþættina Good Omen, en nýlega var gerð sjónvarpsþáttaröð byggð á samnefndri bók, guðfræðilegri grínfantasíu, eftir þá Terry Pratchett og Neil Gaiman.
    55 min
  • Reðurmyndir, Rafmynt frá Facebook, Chernobyl, Bonobo og Kiasmos
    Fyrr í vikunni tilkynnti tæknirisinn Facebook að hann stefndi á útgáfu sinnar eigin rafmyntar á næsta ári. Libra nefnist þetta sýndarfé sem stofnandi Facebook Mark Zuckerberg segir að muni að valdefla almenning um allan heim. Um leið hafa komið fram háværar gagnrýnisraddir sem vara við þessar tilraun Facebook. Við ræðum við Gísla Kristjánsson, einn stofnanda rafeyrisfyrirtækisins Monerium, um sýndarfé og Libra.
    Í gær komst fjallakrot í fréttir þar sem óprúttnir aðilar hafa krassað nöfn sín í Helgafell. Þykja þeir hafa unnið mikil umhverfisspjöll en verst þykir sumum að í kringum nöfnin má einnig finna fallíska fjöld typpamynda. Reðurtáknin eru víða og í Reykjavík er auðvitað heilt safn tileinkað typpum. En afhverju finnur fólk þessa þörf á að teikna þau? Lestin gáir til reðurs í dag.
    Davíð Roach Gunnarsson segir frá tónleikum Bonobo og Kiasmos sem fóru fram í Iðnó á dögunum.
    Áslaug Torfadóttir rýnir í sjónvarpsþættina Chernobyl, sem eru byggðir á frásögnum frá kjarnorkuslysinu í Tjernobyl í Úkraínu árið 1986.
    Umsjón: KG og AMC
    52 min
  • Djúpvefurinn, kláði, kynlífsatriði og framtíð skáldskaparins
    Við greiðum fyrir góða veðrið með blóði okkar. Lúsmýið ætlar að éta Íslendinga lifandi og því seljast flugnafælur, ofnæmispillur og sterakrem eins og heitar lummur víða um land, seljast jafnvel upp. Bitum flugnanna fylgir nefnilega kláði, óbærilegur, sársaukafullur kláði og hann er í ofanálag smitandi. Við fjöllum um félagslegan og líkamlegan kláða í lestinni í dag.
    Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar um framtíð skáldskaparins, vísindi og fantasíu, í pistli sínum í dag.
    Djúpvefurinn er sá hluti veraldarvefsins sem er óaðgengilegur almennum leitarvélum.
    Þórður Ingi Jónsson hefur sökkt sér ofan í djúpvefinn að undanförnu. Í pistli sínum í dag heyrir hann í kerfisfræðingi og nafnlausum viðmælanda sem þekkir til verslunar með vímuefni á dökkvefnum - þeim hluta djúpvefsins sem falinn er almenningi.
    Við beinum sjónum okkar að kynlífsatriðum í bíómyndum og skoðum nýlega grein eftir kvikmyndagagnrýnanda Washington Post þar sem hann spyr hvort kynlífssenur séu á undanhaldi í Hollywood.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Anna Marsibil Clausen
    53 min
  • Blandaðir Íslendingar, D.I.Y., heimsendir og hafa gaman.
    Í nýjum hlaðvarpsþáttum fjallar þýski blaðamaðurinn Phil Uwe Widiger um íslensku grasrótarsenuna í Reykjavík, og þá sérstaklega þann kima hennar sem byggir á svokallaðri D.I.Y. lífsspeki, gerðu-það-sjálfur. Phil tekur sér far með Lestinni og segir frá kortlagningu sinni á reykvísku jaðarrokksenunni.
    Daria Andrews er hálf-íslensk, hálf-bandarísk, hálf svört, hálf hvít og talar hálffullkomna íslensku. Hún býr í limbó - tilheyrir aldrei fullkomlega, er aldrei alveg nóg.
    Margir Íslendingar af blönduðum uppruna þekkja þá tilfinningu vel. Hún sprettur af öráreiti, hegðun eða athugasemdum sem oft eru settar fram í hugsunarleysi, fremur en illum hug gagnvart fólki sem sker sig úr meginstraumnum. Aftast í hugum flestra er nefnilega enn samnefnari milli þess að vera Íslendingur og að vera hvítur.
    Daria skrifaði um þessa upplifun, að heyra hvergi til, í lokaverkefni sínu frá Stokkhólmsháskóla. Hún segir sögur úr limbóinu í Lestinni í dag.
    Árið 1975 átti að rigna eldi og brennisteini yfir heimsbyggðina, hafið átti að breytast í blóð og að loks átti myrkrið gleypa jörðina - en hér erum við enn. Í pistli sínum í dag skoðar Tómas Ævar Ólafsson gamla heimsendaspá ónefnds trúfélags og veltir fyrir sér hvort heimsendir hafi í raun átt sér stað árið 1975.
    Í pistli sínum í dag fjallar Halldór Armand Ásgeirsson um listina að hafa gaman.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Anna Marsibil Clausen.
    55 min
  • Rocket Man, Saklaus á dauðadeild, Primavera, Godard á Hjalteyri,
    Í síðustu viku fjallaði Lestin um baráttu raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian í þágu fanga í Bandaríkjunum. Tilefnið var heimsókn hennar á dauðadeild Kaliforníu en í kjölfar hennar lýsti hún því yfir að hún teldi fangan sem hún heimsótti saklausan. En er hann það? Í dag, kafar lestin í sönnunargögnin með og á móti Kevin Cooper.
    Davíð Roach Gunnarsson segir frá Primavera Sound tónlistarhátíðinni sem fór fram í Barcelona um síðustu helgi.
    Marta Sigríður Pétursdóttir kvikmyndagagnrýni segir frá myndunum Beautiful Boy og Rocket Man.
    Við hringjum norður til Hjalteyrar og fræðumst um nýja sýningu á kvikmyndum og myndbandsverkum í Verksmiðjunni þar í bæ. Sýning sem nefnist "Hvernig hefurðu það? og tekur nafn sitt og innblástur frá kvikmynd eftir franska framúrstefnuleikstjórann Jean-Luc Godard. Gústaf Geir Bollason, annar sýningarstjóra sýningarinnar, verður við símann.
    Umsjón: KG og AMC
    55 min
  • Ágætis byrjun, undirskriftir, afrískar kasettur, Immanuel Kant
    Í dag eru 20 ár frá því að önnur breiðskífa Sigur Rósar Ágætis Byrjun kom út. Plata sem var meðal annars valin besta plata Íslandssögunnar árið 2009. Í tilefni af afmælinu ræðum við um áhrif þessarar merkilegu plötu.
    Ingi Vífill rekur líklega einu alvöru “skrif“stofuna á stórreykjavíkur svæðinu en hann kennir fólki að skrautskrifa á efri hæð Eiðistorgs. Ingi tekur að sér ýmis störf tengd þessari iðn en meðal annars hefur hann hjálpað fólki að hanna undirskriftir, og svo verða stundum veggir fyrir barðinu á honum enda stundar hann einnig caligraphiti. Við heinsækjum Inga á Eiðistorg í lestinni í dag.
    Í pistli sínum í dag skoðar Tómas Ævar Ólafsson tónlistarbloggsíðuna Awesome Tapes from Africa, en þar má hlusta á ógrynnin öll af gömlum afrískum kasettum sem hafa verið færðar yfir á stafrænt form.
    Karl Ólafur Hallbjörnsson flytur okkur heimspekilega vangaveltu um skynjun og hugmyndir þýska heimspekingsins. Immanuel Kant
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Anna Marsibili Clausen
    55 min
  • Uppþvottabursti, Upphaf íslenskrar dægurtónlistar, Góð list og slæm
    Áhangendur tyrkneska karlalandsliðslins í knattspyrnu eru ævareiðir og þeir eru ekki hræddir við að sýna það. Þeirra menn þurftu að bíða lengi á Keflavíkurflugvelli, það var ekki töluð tyrkneska á blaðamannafundi Íslenska liðsins og síðast en ekki síst gerðist íslenskur íþróttafréttamaður svo grófur að ota klósettbursta að fyrirliða liðsins. Nema, þetta var auðvitað ekki íslenskur íþróttafréttamaður. Og þetta var ekki klósettbursti. Hvað sem því liður hafa tyrkneskir netverjar tekið málið óstinnt upp eins og íslenskir íþróttafréttamenn hafa mátt finna fyrir. Við fjöllum um fótbolta og ofbeldi á netinu í Lestinni í dag.
    Við ætlum líka að fjalla um popptónlist í þætti dagsins, fyrstu íslensku dægurtónlistina. Upphaf íslenskrar dægurtónlistar er hulið nokkurri þoku, en henni léttir ekki fyrr en í kringum 1930 þegar fyrstu lögin birtust á nótum og voru gefin út á hljómplötum. Fyrir þann tíma eru áþreifanlegar heimildir afskaplega óljósar. En hvernig hljómaði íslenskt popp fyrir hundrað árum. Til að greina einhverjar útlínur í þessari þoku tímans, til að svipast um eftir upphafi íslenskrar dægurtónlistarhefðar, fáum við til okkar Trausta Jónsson veðurfræðin og tónlistaráhugamann. hann hefur um árabil leitað að upphafi íslenkrar dægurtónlistar. En nú í vikunni stendur hann fyrir tónleikum þar sem hann gefur fólki innsýn í þessa leit.
    Og í pistli sínum í dag fjallar Halldór Armand Ásgeirsson um listaverk sem eru bæði góð og slæm á sama tíma.
    55 min
  • Kim Kardashian, Eden, BlaKkKlansman og All Points East
    Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian West hefur látið til sín taka í fangelsismálum á síðustu misserum. Mörgum þykir það skjóta skökku við, að kona sem ýtir undir neysluhyggju og útlitsdýrkun beiti sér fyrir einn undirokaðasta hóp Bandaríkjanna.
    Hún hefur þó átt beina aðild að frelsi 17 fyrrum fanga og fundaði í vikunni með fanga á dauðadeild San Quentin fangelsisins. Ingibjörg Friðriksdóttir, tónlistarmaður, starfaði í fangelsinu um tíma. Hún ræðir Kim og fangelsismál og réttarkerfi Bandaríkjanna í lestinni í dag.
    Marta Sigríður Pétursdóttir tekur fyrir tvær kvikmyndir. Önnur er ný íslensk kvikmynd um par sem leiðist út í sölu fíkniefna í íslenskum undirheimum en hin segir frá því þegar svartur löglreglumaður kom sér inn í Ku Klux Klan á áttunda áratugnum. Við heyrum af Eden og BlackkKlansman.
    Útsendari Lestarinnar lagði land undir fót síðustu vikur, ferðaðist til London og Barcelona og fór á tónlistarhátíðir í báðum borgum. Davíð Roach Gunnarsson segir okkur frá All Points East sem haldin var í Victoria Park í London þar sem fyrir augu bar hljómsveitir og listamenn eins og Chemical Brothers, Roisin Murphy, The Strokes og Danny Brown.
    55 min
  • Dauði iTunes, Edouard Louis, trú og átrúnaður
    Apple forritið iTunes mun deyja drottni sínum með nýjustu uppfærslu Apple á stýrikerfi sýnu fyrir Mac tölvur, MacOS Catalinu, sem verður gefin út í haust. iTunes kom fyrst út árið 2001 og var í upphafi einöld tónlistarveita en óx svo fiskur um hrygg og þykir hafa haft gríðarleg áhrif á hvernig við neytum tónlistar. Í dag þykir það engu að síður eitt versta forrit Apple - hvað kom fyrir?
    Við förum yfir málið með hjálp Gunnlaugs Reynis Sverrissonar.
    Við kynnum okkur líka eina hraðast rísandi stjörnu í bókmenntaheimi Evrópu, hinn 26 ára gamla Edouard Louis. Í bókum sínum skrifar hann á opinskáan hátt um uppeldi sitt sem samkynhneigður drengur í harkalegu umhverfi fátæktar í smábæ í Norður-Frakklandi. Í kjölfarið er hann orðinn að einum helsta málsvara hinna undirokuðu í Frakklandi.
    En við byrjum á trúnni, þeirri hversdagslegu og þeirri hátíðlegu. Karl Ólafur Hallbjörnsson dýfir sér í hringiðuna.
    55 min
  • Sýrurokk, Instagram og umhverfisspjöll, Atvinnuviðtöl og íhaldssemi
    Rússnesk samfélagsmiðlastjarna skyldi eftir sig djúp sár í landslagið þegar hann ók jeppa utanvega skammt frá jarðböðunum í Mývatni á sunnudag. Umhverfisspjöllin eru augljós en svo virðist sem þau hafi verið með vilja gerð - allt fyrir ljósmyndamiðilinn Instagram. Instagram á einmitt lykilþátt í uppbyggingu ferðaþjónustunnar hér á landi og víðar. Þó svo að meðal-grammarinn ætli sér ekkert illt, hefur miðillinn haft slæmar afleiðingar á viðkvæm svæði víða um heim. Fjallað er um umhverfis áhrif Instagram í Lestinni í dag.
    Tómas Ævar Ólafsson heldur áfram að skoða atvinnu-umsóknarferlið. Að þessu sinni spyr hann viðmælendur sína út í atvinnuviðtalið sem er einn miklivægasti hluti starfsumsóknar.
    Á föstudag lést einn af frumkvöðlum sýrurokksins í Bandaríkjunum, Roky Erickson úr hljómsveitinni The 13th Floor Elevators. Erickson er hálfgerð költhetja, goðsagnakenndur töffari sem sökk djúpt ofan í heim vímuefna og glímdi í kjölfarið við alvarlega andleg veikindi. Í Lestinni í dag köfum ofan í feril Roky Erickson með Arnari Eggerti Thoroddsen, poppfræðingi.
    Í pistli sínum í dag fjallar Halldór Armand Ásgeirsson um hvernig sumir hlutir virðast eldast afturábak.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Anna Marsibil Clausen
    55 min