Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Ástralskt pöbbapönk, næntís handboltamót og mikilvægi vanþekkingar
    Lestin heldur áfram för sinni, aldarfjórðung aftur í tímann í örseríunni þegar Ísland hélt stórmót en að þessu sinni skoðum við menninguna í kringum HM í handknattleik 1995 - þann svip sem staður og stund setti á mótið. Við sögu koma meðal annars Diddú, Davíð Oddson, Kringlan, Café Reykjavík og svo lukkudýrið Mókollur.
    Það er kannski skrítið að segja að ferskir vindar leiki um ástralska pönk tónlist, svona miðað við það hamfaraveður og elda sem geysa í álfunni, en engu að síður gerir Jóhannes Ólafsson þessa vinda og þróun þeirra að umfjöllunarefni sínu í dag. Síðasti áratugur hófst með hljómsveitum eins og Tame Impala og Pond sem ruddu sækadelíska braut fyrir rokkið og í dag hefur þróast þar „geggjað pöbbapönk“, eins og Jóhannes orðar það, með tilheyrandi möllettum og stælum.
    Og Halldór Armand Ásgeirsson flytur okkur pistil að venju á þriðjudegi.
    53 min
  • Veggjakrot, Silfur epli, Einfaldur maður og þegar Ísland hélt stórmót
    Nú þegar heimsmeistaramótið í handknattleik stendur yfir er viðeigandi að líta um öxl og minnast þess þegar sama mót var haldið á Íslandi fyrir aldarfjórðung. Næstu daga flytjur Lestin örseríuna Þegar Ísland hélt stórmót og í fyrsta þætti ætlum við að skoða aðdragandan að HM '95, þar sem gekk á ýmsu og jafnvel kom til greina að hætta við mótið.
    Ein áhrifamesta plata allra tíma er ein fyrsta raftónlistarplata sögunnar, Silver Apples of the Moon frá árinu 1967 eftir bandaríska tónskáldið Morton Subotnick. Subotnick braut blað í tónlistarsögunni með því að búa til algjörlega nýtt listform en platan var eins konar auglýsing fyrir Buchla hljóðgervilinn, sem átti eftir að móta hvernig raftónlist hljómaði næstu áratugina. Þórður Ingi Jónsson skoðar magnað líf og brautryðjandi feril tónlistarmannsins Morton Subotnick í dag.
    Marta Sigríður Pétursdóttir rýnir í heimildarmyndina Ég er einfaldur maður, ég heiti Gleb.
    Og Tómas Ævar Ólafsson flytur okkur annan pistil sinn af þremur um veggjakrot.
    53 min
  • Geimskot frá Íslandi, tónleikarými í Breiðholti, Tyler the creator,
    Geimvísinda- og tækniskrifstofa Íslands hefur ekki farið hátt með störf sín síðastliðin misseri. Nú verður hinsvegar breyting þar á, þar sem stofnunin hefur hafið samstarf við Skyrora, ungt frumkvöðlafyrirtæki með höfuðstöðvar í Skotlandi sem sérhæfir sig í smíðum og skotum á eldflaugum fyrir gervihnetti. Vonast er til að Ísland geti verið skotpallur fyrir þrjár tilraunaeldflugar á næstu tólf mánuðum. Atli Þór Fanndal, ráðgjafi og Owain Hughes, viðskiptastjóri Skyrora, taka sér far með Lestinni í dag.
    Davíð Roach flytur okkur fimmtudagspistil. Í þetta sinn rýnir hann í rapparann Tyler the Creator. Sá átti að margra mati eina bestu plötu síðasta árs en hans fyrri verk eru síst síðri að mati Davíðs.
    Á föstudag verður haldið opnunarpartý nýrrar tónlistarmiðstöðvar Stelpur rokka! í Völvufelli í Breiðholti. Þar munu samtökin halda úti tónleikasal og kennslurými. Við kíkjum í tónlistarmiðstöðina í Breiðholti og ræðum við Önnu Sæunni Ólafsdóttir frá Stelpur Rokka.
    Og við heyrum um fyrstu beinu útvarpsútsendinguna sem fór fram fyrir 110 árum síðan.
    55 min
  • Gullregn, Tindersticks, ljósmyndanemar og 150 ára asni
    Í rúman aldarfjórðung hefur breska hljómsveitin Tindersticks verið að móta sinn sérstaka hljóðheim, dramtískt kammerpopp með melankólískum textum og einkennandi baritónsöng Stuarts Staple. Þessi virta sveit kemur fram á tónleikum í Hljómahöllinni í Keflavík í febrúar og leikur meðal annars lög af nýútkominni tólftu plötu sinni, No Treasure but hope. Við hringjum til Frakklands og ræðum við Stuart Staple úr Tindersticks.
    Marta Sigríður Pétursdóttur rýnir í kvikmyndina Gullregn eftir Ragnar Bragason
    Húsnæði Ljósmyndaskólans á Granda hefur stækkað um heilan sýningarsal á síðustu vikum. Í rýminu má nú finna verk sex útskriftarnema, sem veita gestum innsýn inn í fjölbreytt umfjöllunarefni, allt frá fósturmissi til eyðibýla í kartöfluþorpi. Útskriftarneminn Hrafna Jóna Ágústsdóttir leiðir okkur um sýninguna.
    Og við kynnum okkur 150 ára gamlan, bandarískan asna
    55 min
  • Haltu áfram, ástir og kynlíf unglinga og örsögur
    Textar í kennslubókum fyrir tungumálanema eru misskemmtilegir. Þessu kynntist Karítas Hrundar Pálsdóttir þegar hún lærði japönsku þar í landi fyri rnokkrum árum. Nú hefur hún sent frá sér örsagnasafnið Árstíðir, en bókin er sérstaklega hugsuð fyrir lesendur sem eru að læra íslensku sem annað mál.
    Halldór Armand Ásgeirsson flytur okkur þriðjudagspistil. að þessu sinni fjallar hann um fortíðina, minningar og skilaboðin um að „halda áfram“. Skilaboð sem hann er ekki viss um að hafi verið gagnleg fyrir þebversku drottninguna Níóbe eftir að börn hennar voru myrt af guðunum.
    Um þessar mundir má heyra kór táninga flytja söngvasafn í Tjarnarbíói undir heitinu The Teenage Songbook of Love and Sex eða söngbók táningsins um ást og kynlíf. Söngvarnir eru samdir af unglingunum sjálfum um þeirra eigin reynslu af rómantískum samböndum og kynlífi, fjalla um ástina, forvitni, misnotkun, að koma út úr skápnum, fyrstu kynlífsupplifunina og ástarsorgina. Lestin lítur við á frumsýningu hjá hópnum og skyggnist inn í heim unglingsins.
    50 min
  • Veggjakrot, MC Hammer, Óskarsverðlaunin og samþykki
    MeToo-bylgjan sem hefur skekið heiminn undanfarin ár hefur loksins náð inn í franskan bókmenntaheim með nýrri bók "Le Consentement" eða Samþykkið. Þar lýsir Vanessu Springora misnotkun sem hún varð fyrir af hendi hins virta rithöfundar Gabriels Matzneff þegar hún var aðeins 14 ára gömul. Matzneff hefur ekki farið í felur með kynferðislegan áhuga sinn á ungmennum í gegnum tíðina en sjaldan verið gagnrýndur.
    Í dag eru 30 ár liðin frá útgáfu lags MC Hammer, „Can't Touch This“. Ósnertanlegar danshreyfingar hamarsins í tónlistarmyndbandi lagsins hafa verið uppspretta gleði allar götur síðan og eins er dægurmenningin þrungin af vísunum í texta þess. Samt er það eini smellur MC Hammer á heimsvísu. Við lítum á lagið og feril hamarsins í Lestinni í dag.
    Þá rennir Lestin yfir tilnefningar til Óskarsverðlauna sem afhjúpaðar voru í dag og Tómas Ævar Ólafsson flytur fyrsta pistilinn í þriggja pistla seríu um veggjakrot.
    54 min
  • Prjónað fyrir pokadýr, Mikael Lind, besta plata ársins 2019
    Á tímum hamfarahlýnunnar og loftslagskvíða fallast mörgum hendur gagnvart ástandinu í Ástralíu þar sem skógareldar geysa af miklum ofsa. Sumir kjósa að breiða sængina yfir höfuðið, signa sig og vona það besta en aðrir grípa sér prjóna í hönd. Lestin leit við á Kex Hostel í gær þar sem hátt í hundrað manns sóttu viðburðinn „Prjónað fyrir Ástralíu.“
    Sænski tónlistarmaðurinn Mikael Lind hefur verið búsettur á Íslandi í meira en áratug og hefur verið virkur þátttakandi í íslensku tónlistarlífi. Um helgina fagnar hann útgáfu nýrrar plötu, Spaces in Between, með tónleikum í Mengi við Óðinsgötu. Plötuna vinnur Mikael með japanska fiðluleikaranum Hoshiko Yamane úr hinni goðsagnakenndu rafsveit Tangerine Dream.
    Nú er rykið farið að setjast á hinum ýmsu ársuppgjörum fjölmiðla og listum yfir bestu listaverk ársins 2019. Við skoðum þá tónlist sem þykir hafa staðið upp úr á árinu , og rifjum upp pistil Davíðs Roach Gunnarssonar um þá plötu sem þykir hvað best. En hún er með Lönu Del Rey.
    55 min
  • Stjörnustríð, Classic, minjagripir og Elizabeth Wurtzel
    Eitt af yfirlýstum markmiðum Útvarp 101 er að vera stökkpallur fyrir næstu kynslóð tónlistarmanna. Eldri kynslóðir fá þó að þvælast með og í einu tilfelli löngu dauðar kynslóðir. Sú tónlist er í höndum Nönnu Kristjánsdóttur, umsjónarmanns, hlaðvarpsþáttarins Classic sem fjallar um hina ýmsu meistara klassískrar tónlistar á kumpánlegum nótum.
    Við rýnum í nýjustu Stjörnustríðskvikmyndina, Star Wars: The Rise of Skywalker, en það er níunda og síðasta myndin í heildarsögunni um Geimgengla-fjölskylduna. Gunnar Theodór Eggertsson er ekki hrifinn af myndinni.
    Í grein í nýjasta hefti Ritsins skrifa Guðrún Steinþórsdóttir, doktorsnemi í bókmenntum, og Bergljót Soffía Kristjánsdóttir um ferðamannavörur, minjagripi og þá sjálfsmynd sem Íslendingar draga upp af sjálfum sér og landinu slíkum varningi. Við ræðum við Guðrúnu í lundabúð við Laugarveg.
    Og við minnumst bandaríska rithöfundarins Elizabeth Wurtzel sem lést í gær 52 ára gömul. Wurtzel var ein mest áberandi rödd X-kynslóðarinnar svokölluðu og vakti athygli fyrir opinská sjálfsævisöguleg skrif sín um þunglyndi og eiturlyfjafíkn.
    55 min
  • Endalok tímans, morðið á Qasem Soulemani og The Bachelor
    Sú var tíðin að áhorfendur þurftu að bíða eftir því að fylgjast með uppáhalds sjónvarpsþáttunum sínum viku eftir viku. Streymisveitur og hámhorf hafa útrýmt þessari bið að miklu leyti en örfáir þættir frá fyrri tíð hafa blómstrað í línulegu áhorfi. Þeirra á meðal eru þættir um piparsveina og piparmeyjar og í dag skyggnumst við í 2000 manna Facebook grúppu sem meltir örlög þeirra í viku hverri.
    Í síðustu viku varpaði mannlaus dróni frá bandaríkjaher sprengju sem grandaði íranska hershöfðingjanum Qasem Souleimani. Síðan þá hefur gríðarleg spenna verið í samskiptum Bandaríkjanna og Íran, og stríð jafnvel yfirvofandi. Í pistli sínum í dag fjallar Halldór Armand Ásgeirsson og setur í samhegi við forláta gólfmottu sem honum áskotnaðist fyrir nokkrum árum.
    Og við höldum áfram að velta fyrir okkur tímaskynjun nútímamannsins. Í dag skoðum við muninn á hringrásartíma og línulegum tíma, og tengsl þess síðarnefnda við hugmyndi um heimsendi. Einmitt þar byrjum við þennan þriðjudaginn
    55 min
  • Golden Globe, Watchmen, tíminn og dagatöl
    Í nótt braut Hildur Guðnadóttir blað í sögu Golden Globe verðlaunanna þegar hún hlaut verðlaunin fyrir tónlistina í kvikmyndinni Joker. Við fjöllum um verðlaunin og þýðingu þeirra, fyrir Hildi og aðra, og rennum yfir atburði næturinnar.
    Nú í upphafi árs fjárfesta margir í almanaki fyrir árið 2020. Í árþúsundi hafa menn notað ýmis konar dagatöl og tímamælingatæki til að ná utan um tímann. Elsta íslenska almanakið sem enn er gefið út er almanak háskóla íslands - það hefur komið út í meira en eina og hálfa öld. Við ræðum við Þorsteinn Sæmundsson hefur unnið við útgáfu almanaksins um áratugaskeið í Lestinni í dag.
    Áslaug Torfadóttir rýnir í Watchmen, nýja sjónvarpsþætti sem byggja á frægri myndasögu Alans Moore frá árinu 1987. Þættirnir gerast þremur áratugum síðar í sama sagnaheimi og myndasagan sem tókst á við kjarnorkuótta kaldastríðsáranna og afbyggði hina hefðbundnu ofurhetjumynd.
    55 min