Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Leikhústónlist, heimsmeistaraeinvígi í Dubai, Deig
    Júlía Margrét Einarsdóttir rýnir í sjónvarpsþættina Deig þar sem snemmmiðalda og framalaus sænsk kona Malú finnur tösku með 47 milljón sænskum krónum. Hún leigir sér bakarí til að þvo hina nýfundnu peningana og ræður til sín unga konu.
    Sú spurning er stundum sett fram í gríni hvort skák geti talist íþrótt. Við í Lestinni svörum því neitandi og segjum: skák er ekki íþrótt heldur list. Skáklistin er stunduð af krafti í Dubaí þessa dagana en þar fer heimsmeistaraeinvígið í skák fer fram. Norðmaðurinn Magnus Carlssen er hægt og örugglega að skrá nafn sitt í skáksögubækurnar. Björn Þorfinnson skákmaður og ritstjóri DV heimsækir Lestina og segir frá.
    Og við kíkjum á safnkost leikminjasafns Íslands eina ferðina enn með Sigríði Jónsdóttur, sérfræðingi og gullgrafara við safnið. Í þetta sinn færir hún okkur valin brot úr leikhústónlistarsögu Íslands en þar kennir ýmissa grasa.
    55 min
  • Jólin hjá Simma Vil, heiðursborgarinn Rihanna og Treble Technologies
    Við heimsækjum íslenska sprotafyrirtækið Treble Technologies. Hópur tónlistarmanna stendur að fyrirtækinu sem sérhæfir sig í hugbúnaði á sviði hljóðhermunar, nýtir meðal annars sýndarveruleika til að hjálpa arkitektum að hanna betri hljóðvist í byggingar sínar.
    Þegar Barbados lýsti formlega yfir sjálfstæði, aðfararnótt mánudags við hátíðlega athöfn, nýttu ráðamenn einnig tækifærið og skráðu nýtt nafn á opinberan lista þjóðhetja landsins. Nafnið, er Robin Rihanna Fenti, en Rihanna hefur í gegnum tíðina tekið virkan þátt í að kynna eyríkið á alþjóðavettvangi, meðal annars með því að sækja innblástur til tónlistarsköpunar í menningararf sinn.
    Lóa Björk Björnsdóttir stígur um borð í Lestina í fyrsta innslagi sínu af þremur sem rannsaka karlmennsku og jólahaldið. Í dag ræðir hún við athafnamanninn og fyrrum sjónvarpsstjörnuna Sigmar Vilhjálmsson og þá meðal annars um það hvernig hann nálgast hátíðarnar sem fráskilinn faðir.
    En við byrjum á tveimur 91 orða jólasögum frá nemendum í ritlist við háskóla íslands.
    55 min
  • Regnbogadeildin, Burial, áhrifamest í listheiminum, jólasögur
    Síðustu vikur hefur Alexander Laufdal Lund leitt okkur í gegnum þau meðferðarúrræði við fíknivanda sem í boði eru hér á landi, frá sjónarhorni hinsegin fólks. Í dag kynnir hann okkur fyrir eina meðferðarúrræðinu sem er gagngert sett upp fyrir þennan hóp, en það var búið til af hópnum sjálfum, hinsegin fólki með fíknivanda, fyrir aðeins tveimur árum síðan.
    Við rýnum í árlegan lista myndlistartímaritsins Art Review yfir þá áhrifamestu í listheiminum um þessar mundir.
    Jóhannes Helgason fjallar um breska hughrifa- og raftónlistarmanninn Burial.
    Eins ætlum við að heyra tvær örsögur, jólasögurfrá meistaranemum í ritlist við Háskóla Íslands,
    55 min
  • Lana Del Rey, Hver á internetið? Og Spotify wrapped
    Ert þú hlustandi góður búinn að deila tölfræði Spotify um þá tónlist sem þú hlustaðir mest á á árinu? Telurðu þig nægilega vel á nótunum til að fá fullt hús stiga í heimsbyggðar-spotify prófi Lestarinnar? Og hvernig er hljóð-áran þín á litinn?
    Í október kom út áttunda breiðskífa bandarísku tónlistarkonunnar Lönu Del Rey, Blue Banisters. Karitas Mörtudóttir Bjarkadóttir, ritstjóri Stúdentablaðsins, beið plötunnar með eftirvæntingu. Hún rýnir í Blátt stigahandrið Lönu og rekur sögu þessarar einstöku tónlistarkonu.
    Undanfarnar vikur höfum við verið með hugan við internetið. Í nóvember ferðuðumst við um landið og reyndum að snerta internetið með misjöfnum árangri. Í síðustu viku rifjuðum við upp söguna af fyrstu skilaboðunum sem voru send yfir forvera internetsins, Arpanetið í kaliforníu. Og að þessu sinni spyrjum við Sæmund Þorsteinsson lektor í rafmagns- og tölvunarfræði um hver það er sem eigi internetið, spurning sem er ekki einfalt mál að svara:
    55 min
  • Tsjernobyl-bæn, Ógæfureið eða klikkað klám, Hinsegin fíklar #2
    Í síðustu viku hittum við ungan mann, Alexander Laufdal Lund, sem er umhugað um úrræði fyrir hinsegin fíkla. Alexander, sem er tvítugur, er óvirkur fíkill en þegar hann leitaði sér hjálpar á sínum tíma fann hann engin úrræði ætluð fólki eins og honum: hinsegin fólki og þá sérstaklega transfólki. Í vikunni sem leið heyrðum við upplifun Ísabellu vinkonu hans af meðferð á Vogi, í dag kynnir hann okkur fyrir Sævari sem hefur mikla reynslu af svokölluðum eftirmeðferðum og áfangaheimilum, þar sem honum var meðal annars gert að sækja samkomur hjá Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu. Tengsl trúarbragða og meðferðarrúrræða geta reynst fíklum mikil hindrun, kannski sérstaklega þeim sem eru hinsegin.
    Við ferðumst 35 ár aftur í tímann til ársins 1986. Í apríl það ár gerðist það óhugsandi, eldur kom upp í kjarnorkuverinu í Tsjernobyl í Sovétríkjunum. Hætta var á því að öll Evrópa yrði óbyggileg. En sem betur fer tókst að afstýra því. En slysið hafði gríðarleg áhrif á líf fjölda fólks sem bjó og lifði í námunda við kjarnorkuverið. Þessar sögur eru sagðar í bókinni Tsjernobyl bænin eftir nóbelsskáldið Svetlönu Alexievich sem kemur senn út í íslenskri þýðingu Gunnars Þorra Péturssonar.
    Gunnar Ragnarsson kvikmyndarýnir Lestarinnar fór í Bíó Paradís í vikunni og sá rúmenska kvikmynd eftir leikstjórann og handritshöfundinn Radu Jude. Myndin heitir Ógæfureið eða klikkað klám og vann Gullbjörninn, aðalverðlaun kvikmyndahátíðarinnar í Berlín, fyrr á árinu en myndin segir frá kennara sem kemst í hann krappann eftir að kynlífsmyndbandi er lekið á netið
    Og auðvitað tvær 91 orða jólasögur ritlistarnema.
    57 min
  • Sagan af Svölu og The Real Me
    Lagið The Real Me með söngkonunni Svölu Björgvinsdóttur kom út fyrir 20 árum. Þá hékk Svala með stjörnunum í Los Angeles, hitaði upp fyrir vinsæla strákasveit og var alveg að fara að gefa út sína allra fyrstu plötu þegar skyndilega var fallið frá öllum áætlunum um útgáfu. Hvað gerðist?
    Í dag heyrum við sögunna af því þegar Svala var, eitt augnablik, rísandi poppstjarna í Bandaríkjunum.
    54 min
  • Síðasti söngur Sondheim, jólasögur Blekfjelagsins, Sölvaminni
    Hann lést á föstudag, 91 árs að aldri og söngleikjaheimurinn syrgir. Fráfall Stephen Sondheim markar eftir allt einhvers konar tímamót, fáir ef einhverjir hafa haft viðlíka áhrif á vestræna leikritun síðustu áratugina enda má í söngbók Sondheim finna efni úr sýningum á við West Side Story, Gypsy, Into the Woods og Sweeny Todd. Undanfarnar vikur höfum við reglulega litið við hjá Sigríði Jónsdóttir, sérfræðingi á leikminjasafni íslands, en í dag kemur hún í heimsókn, með tárin í augunum.
    Í hverjum þætti fram að jólum ætlum við í Lestinni að útvarpa jólasögum frá meistaranemum í ritlist við Háskóla Íslands. Þetta eru örsögur, hver þeirra 91 orð og allar eru þær unnar út frá sama þemanu: Grautur. Við ætlum að hefja lesturinn í dag, og við fáum líka til okkar tvo ritlistarnema í spjall, þau Helga Grím og Berglindi Ósk.
    Gamalt fréttastef, flökkusaga um rifbein Marilyn Manson, torfbær og nýtt lag frá Taylor Swift kemur allt við sögu í pistli Sölva Halldórssonar í dag, en hann er að velta fyrir sér minninu.
    50 min
  • Tveggja gramma Óli Arnalds, Sly Stone, draumar vegfarenda
    Ólafur Arnalds tónlistarmaður kemur í heimsókn undir lok þáttar, en hann er tilnefndur til tveggja Grammý-verðlauna í ár,
    Anna Gyða Sigurgísladóttir fer á stúfana og spyr vegfarendur um drauma þeirra undanfarnar nætur.
    En fyrsta stopp er sálartónlist. Davíð Roach Gunnarsson tónlistargagnrýnandi segir frá 50 ára meistaraverkinu There is a riot going og rekur sögu snillingsins Sly Stone.
    55 min
  • Nýtt blóð fyrir Dexter, gengin í Köben, Grammy, skammdegið
    Danmörk á við gengjavanda að stríða, á því er enginn vafi, en reynst hefur erfitt að ná til þessa hóps og rannsaka hann, af hverju velja ungir menn að lifa glæpalífi á götum Kaupmannahafnar? Félagsfræðingurinn Hakan Kalkan vildi vita svarið. Hann varði níu árum meðal götudrengja í Norrebro og nú hefur hann gefið út bók byggða á rannsóknum sínum.
    Anna Gyða Sigurgísladóttir er með hugan við svefn þessa dagana. Nóvember er senn að klárast, dagarnir styttast. Sólin settist rétt um klukkan fjögur í dag. Já, skammdegið lætur meira á sér kræla . Anna Gyða spyr dómstól götunnar um svefn í skammdeginu.
    Dexter Morgan er líklega ástsælasti raðmorðingi sjónvarpssögunnar. Sérfræðingur í blóðferlagreiningum hjá lögreglunni í Miami á daginn en miskunnarlaus morðingi á kvöldin. Þættirnir um Dexter nutu mikilla vinsælda á árunum 2006 til 13. Nú átta árum eftir að hafa lagt hnífinn á hilluna er hann snúinn aftur í níundu seríunni: Dexter: new blood. Júlía Margrét Einarsdóttir er byrjuð að horfa á þættina.
    Og við pælum í tilnefningum til Grammy-verðlauna sem voru kunngjörðar í gær
    55 min
  • Adele, fyrstu internetskilaboðin, íslenskt sci-fi
    Eggið nefnist stuttmynd eftir Hauk Björgvinsson kvikmyndagerðarmann sem hlaut verðlaun sem besta sci-fi stuttmyndin á kvikmyndahátíð í Bolton á dögunum. Myndin fjallar um samfélag sem vill útrýma ástarsorg og skapar hefðir í kringum makaval sem koma okkur spánskt fyrir sjónir. Haukur tekur sér far með Lestinni í dag.
    Í síðustu viku ferðuðumst við um landið og reyndum að snerta internetið. Næstu vikur ætlum við að halda að velta fyrir okkur ýmsum hliðum internetsins. Í dag rifjum við upp söguna af fyrstu skilaboðunum sem voru send yfir arpanetið í kaliforníu - forvera internetsins - fyrir 52 árum síðan.
    Nýjasta plata söngkonunnar Adele kom út síðastliðinn föstudag, aðdáendum hennar til mikillar gleði. Þeir höfðu beðið frá 2015 eftir ferskum skammti af ástarsorg og Adele bregst þeim ekki frekar en fyrri daginn. Platan 30 kafar djúpt ofan í skilnað Adele við eiginmann sinn og tilfinningar hennar til barnsins síns á þeim erfiðu tímum og á án efa eftir að verða eitt af helstu sambandsslitalistaverkum okkar tíma - svo lengi sem við hlustum á lögin í réttri röð
    50 min