Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Að byggja kofa, FM Dögun og Gasljós
    Sagnorðið að gaslýsa hefur rutt sér til rúms í íslenskri umræðu síðastliðin misseri. Sá sem beitir gaslýsingu gegn öðrum grefur undan trúverðugleika og skynjun þess síðarnefnda á raunveruleikanum með því að afneita upplifunum og tilfinningum viðkomandi. Hugtakið er nátengt valdi, þekkist úr stjórnmálaumræðu en þessa dagana ber það helst á góma í tengslum við kynbundið ofbeldi. Þessa dagana, og í upphafi, því orðið rekur uppruna sinn til leikrits um andlegt ofbeldi frá 1938.
    Sölvi Halldórsson pistlahöfundur er mættur aftur til leiks, ferskur á nýju ári. Í dag veltir hann fyrir sér smíðum fyrri tíðar, viðurkenningunni, því að búa um rúm og segir okkur sögu af kofa þar sem eitthvað hræðilegt átti sér stað.
    Og Davíð Roach tónlistarrýnir Lestarinnar setur spánýja plötu á fóninn - ja eða tengir spotify við heyrnartólin og hlustar á nýjustu plötu The Weeknd. Sú er fimmta breiðskífa kanadíska söngvarans, heitir Dawn FM - eða FM dögun ef við beinþýðum - og inniheldur ýmsa ólíka gesti, þeirra á meðal rapparann Lil Wayne og leikarann Jim Carrey.
    52 min
  • Edda Falak: fjölmiðlakona eða aktívisti?
    Edda Falak var einn af mest gúggluðu íslendingum síðasta árs samkvæmt auglýsingastofunni Sahara. Nafn hennar var slegið inn að meðaltali 2.380 sinnum á mánuði og skyldi engan undra; á þessum tíma í fyrra var hún svo til óþekkt í meginstraumnum en í mars tók hún þá afdrifaríku ákvörðun að stofna hlaðvarp.
    Eigin konur varð fljótt eitt allra vinsælasta hlaðvarp landsins og er án efa það áhrifamesta, hefur leikið stórt hlutverk í feminískri umræðu síðasta árið og þá sérstaklega síðustu vikuna. Edda Falak tekur sér far með Lestinni í dag og ræðir fjölmiðlun, aktívisma og skilin þar á milli.
    55 min
  • Hin raunverulega Svala - endurtekinn þáttur
    Leið Lestarinnar er ekki eins greið og vanalega. Líkt og samfélagið allt finnur hún vel fyrir áhrifum veirunnar skæðu og þessa vikuna gengur einhvern veginn allt á afturfótunum. Við þurfum þó ekki að dvelja við sjúkravagninn því það er alltaf nóg til af gullmolum í farangursvagninum góða.
    Í dag seilumst við því aftur í tímann og finnum þátt frá því í nóvember 2021, sem fjallar alfarið um lag sem kom út 20 árum fyrr.
    55 min
  • Hamfaravæntingar, orðaforði #MeToo og neðanjarðarrapp
    Tónlistarmaðurinn, myndlistarmaðurinn og fatahönnuðurinn Marcy Mane er áhrifamikill í neðanjarðarrappsenu Bandaríkjanna. Þórður Ingi Jónsson ræðir við Marcy um stafræna list í nútímanum en hann ber merkilegt nokk ættarnafnið Ölfus, sem er mögulega hægt að rekja til Ölfusár á Íslandi.
    Eins og klám mótar væntingar fólks til kynlífs, rómantískar gamanmyndir móta væntingar til ástarsambanda, þá móta hamfarabíómyndir væntingar okkar til tímalengdar heimsendis - og skapa mögulega lífshættulega skekkju. Kristján sendir okkur pistil úr einangrun um heimsendabíómyndir og tímaskynjun.
    Að fara yfir mörk einhvers. Einu sinni þýddi þetta orðasamband eitthvað meira en það þýðir í dag, þegar það er notað næstum því til að fyrra sig ábyrgð fremur en að gangast við henni. Annadís Gréta Rúdólfsdóttir, dósent við menntavísindasvið Háskóla Íslands tekur sér far með lestinni þar sem við veltum fyrir okkur hugtakanotkun metoo hreyfingarinnar og gengisfellingu orðasambanda í höndum meintra ofbeldismanna.
    55 min
  • Harmageddon í hjónabandsráðgjöf
    Honum var lýst sem endalokum Harmageddon - síðasta útvarpsþætti þeirra Frosta Logasonar og Þorkells Mána Péturssonar á X-inu 977 þann 24. September 2021 og það þóttu mikill tímamót. Harmageddon hafði eftir allt saman verið í loftinu í 14 ár og á þeim tíma unnið sér sess sem einn vinsælasti útvarpsþáttur landsins en jafnframt einn sá umdeildasti. Margir syrgðu brotthvarf þeirra Frosta og Mána, aðrir fögnuðu. En PC-fólkið var ekki lengi í paradís, í vikunni tilkynntu þeir félagar að Harmageddon hyggðist snúa aftur - nú sem hlaðvarpsþáttur í áskriftarformi. Frosti og Máni mæta í Lestina og spjalla um hlaðvarpsformið, pólitískan rétttrúnað, hlutverk fjölmiðla og hjónabandsráðgjöf.
    55 min
  • Dopesick, gervigreinarmyndlist og barist við vindmyllur
    Á undanförnum árum og sérstaklega síðustu mánuðum hefur orðið gríðarlegt stökk í færni gervigreindar til að búa til myndir af nánast hverju sem er. Tæknin verður æ öflugri og aðgengilegri almenningi. Nú fyrir jólin gafst íslendingum til að mynda tækifæri á að setja merkimiða á jólapakkana með fallegum jólamyndum teiknuðum af gervigreind. Merkimiðarnir fögru eru samstarfsverkefni svokallaðs útbreiðslulíkans og tölvunafræðingsins Hafsteins Einarssonar.
    Árið 1996 setti fjölskyldufyrirtækið Purdue Pharma á markað glænýtt undralyf sem nefnist Oxycontin og átti að vera nokkurnveginn hættulaust og allra meina bót. Fljótt kom í ljós að lyfið væri afar ávanabindandi og stórhættulegt. Streymisveitan Hulu sendi í október frá sér glænýja þætti sem fjalla um þetta lyf og þær afleiðingar sem það hafði á bandarískt samfélag. Þættirnir eru aðgengilegir á Disney plus og Júlía Margrét Einarsdóttir horfði.
    Hún féll eins og einfættur maður á skautum, en það þurfti þó sex tilraunir til. Sprengjusveit landhelgisgæslunnar barðist við vindmylluna á suðurlandsundirlendinu og hafði betur að lokum, ólíkt hinum margrómaða Don Kíkóta sem taldi sig eftir allt ekki vera að berjast við vindmyllur heldur risa. En myllurnar unnu þó athygli lesenda vísis þennan daginn, þrátt fyrir að miðillinn birti aðra og nokkuð sláandi frétt. Getur verið að birtingar baráttufólks á vindmyllum veraldarvefsins spili þar inn í?
    57 min
  • Áramótagleði, töfrar svepparíkisins og kynlaus tónlistarverðlaun
    Aðstandendur Íslensku tónlistarverðlaunanna hafa tekið þá ákvörðun að fella út þá kyngreindu flokka sem eftir standa frá og með verðlaunahátíðinni 2022. Það verða því ekki sérverðlaun fyrir söngvara og/eða söngkonur. Flokkarnir verða sameinaðir og verðlaun veitt fyrir söng ársins, hvers kyns sem viðkomandi er. Hvers kyns ákvörðun er þetta? Við ræðum við Kristján Frey framkvæmdastjóra hátíðarinnar.
    Við kynnum til leiks nýjan pistlahöfund í Lestinni Anna Dóra Gunnarsdóttir sendir okkur pistil frá höfuðstað norðurlands, Akureyri, en hún verður með okkur í nokkur skipti nú í janúar og febrúar. Anna Dóra er með hugann við áramót og þær miskræsilegu hefðir sem við höldum í á slíkum tímamótum.
    Og við förum í heimsókn til Þorsteins Úlfars Björnssonar áhugamanns um svepparíkið en hann hefur gefið út bók um þessa mögnuðu lífveru og sambúð manns og sveppa.
    55 min
  • Glæpatíðni, karlmennskuverðlaun og pólifónísk saga
    Hvernig segir maður margradda sögu í gegnum tónlist. Þessu veltir tónlistar og myndlistarmaðurinn Bergur Anderson fyrir sér á hinni sérkennilegu hljómplötu Night Time Transmissions, plötu sem er meðal annars innblásin af húsnæðisvandræðum listafólks í Amsterdam.
    Glæpum í Bandaríkjunum hefur fjölgað til muna í faraldrinum, ekki síst í Kaliforníu þar sem glæpagengi sammælast um ráðast inn í búðir og láta greipar sópa. Umræðan um glæpatíðnina í Bandaríkjunum er þó svo samansúrruð af mismunandi hagsmunum að erfitt getur reynst að fá skýr svör um tölfræðina. Þórður Ingi talar frá Los Angeles.
    Eitt sinn hefðu karlmennskuverðlaun mögulega verið veitt fyrir loðnustu bringuna, flestum sviðakjömmum sporðrennt eða kílóum lyft - en fyrir áramót voru þau veitt nokkrum mönnum sem þóttu hafa skarað fram úr í svokallaðri jákvæðri karlmennsku, mönnum sem nýttu forréttindi sín með uppbyggilegum hætti í þágu jafnréttis.
    55 min
  • Áramótapallborð Lestarinnar og Víðsjár
    Systurþættirnir Lestin og Víðsjá gera upp árið.
    Í fyrri hluta þáttarins var fjallað um bestu og athyglisverðustu listaverk ársins, en í síðari hlutanum velt upp spurningum um miðlun og samfélagsumræðu á árinu sem leið.
    55 min
  • Íslensku TikTok-stjörnurnar 2021
    Þessa vikuna höfum við gert upp árið með því að rifja upp tónlistina sem stóð upp úr á árinu og svo stærstu menningarfréttir ársins eða kannski fremur menningarlega vinkilinn á stærstu fréttum ársins. Dagurinn í dag er hinsvegar tileinkaður markverðasta samfélagsmiðli ársins.
    í upphafi ársins 2021 var TikTok-forritið sá samfélagsmiðill sem óx hvað örast á heimsvísu, í lok ársins er það sú vefsíða heimsins sem fékk flestar heimsóknir. Jafnvel leitarvélin Google var ekki jafn tíður áfangastaður netverja.
    Með því að forgangsraða efni eftir áhuga, fremur en eftir vinatengslum eins og Instagram og Facebook, gerir TikTok algrímið framleiðendum kleift að koma fyrir mun fleiri augu en ella. Þannig hefur það á skömmum tíma skapað fjöldan allan af ungum stjörnum sem eru raunverulega heimsfrægar, en samt bara á TikTok. Forritið hefur einnig skapað nokkrar slíkar stjörnur á Íslandi og við upphaf árs tókum við fjórar þeirra tali. Í dag rifjum við upp hvað þær höfðu að segja um forritið góða og framtíðin
    55 min