Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Rússneskur poppkúltúr, Jane Campion, bíódómur
    Við kynnum okkur nýsjálensku kvikmyndagerðarkonuna Jane Campion sem skrifaði nafn sitt enn einu sinni í kvikmyndasögubækurnar á dögunum þegar hún varð fyrsta konan til að hljóta tilnefningu í annað sinn sem besti leikstjórinn á óskarsverðlaununum. Helga Rakel Rafnsdóttir kemur og spjallar um verk Jane Campion, m.a. The Piano sem hún elskar og The Power of the Dog sem hún elskar ekki jafn mikið.
    Gunnar Ragnarsson rýnir í kvikmyndina Bergman Island, mynd sem gerist á slóðum sænska kvikmyndarisans Ingmar Bergman.
    Undir lok þáttar spjöllum við svo upp rússneska dægurmenningu við Victoriu Bakshina, spjöllum um rapp, tik-tok, bíómyndir og emó-Stalín.
    55 min
  • Licorice Pizza, Ingibjörg Turchi, Frönsk kvikmyndahátíð
    Ég efast um að nokkur bassaleikari hafi verið virkari undanfarinn áratug en Ingibjörg Elsa Turchi, hún hefur spilað með ótal hljómsveitum og tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum, frá tilraunadjassi til indípopps, frá Bubba Morthens og Stuðmönnum til Sinfóníuhljómsveitar Íslands. En hún hefur einnig vakið mikla athygli og hlotið fjölda verðlauna fyrir sólótónlist sína. Ingibjörg Elsa Turchi sést um borð í Lestina, spjallar um eftirmiðdagstónleika í Mengi og nýja plötu sem hún ætlar að taka upp um helgina.
    Það er komið að uppáhaldsárstíma allra íslenskra frankófíla. Frönsk kvikmyndahátíð hefst um helgina í Bíó Paradís og Ása Baldursdóttir segir frá.
    Gunnar Ragnarsson sendir okkur pistil og rýnir í kvikmynd sem honum tókst að sjá áður en hann endaði í einangrun. Þrátt fyrir smit finnur Gunnar lyktina af lakkríspítsu, en bíómyndin Licorice Pizza eftir Paul Thomas Anderson lyktar reyndar aðallega af gráum fiðringi.
    55 min
  • Megas, reiði og Betty Davis
    Eftir að ásakanir um kynferðisofbeldi á hendur Megasi birtust í Stundinni undir lok síðasta árs hefur styr staðið um listamanninn. Rætt hefur um stöðu hans sem heiðurslaunahafa, einhverjir hafa hætt að hlusta á tónlist hans sér til ánægju, en aðrir hafa farið í það að endurlesa textana með nýjum gleraugum. Í Lestinni í dag verður rætt við Þorstein Vilhjálmsson, doktorsnema í sagnfræði, sem nú á fimmtudag flytur fyrirlestur þar sem hann mun rýna í texta á þremur plötum Megasar frá 1987 og 88 og skoða viðbrögðin við þeim hér á landi, texta sem eru innblásnir af ferðum hans til Tælands þar sem hann komst í kynni við kynlífstúrisma, meðal annars með ungum tælenskum drengjum.
    Þórður Ingi Jónsson fjallar um dívuna og funk-drottningina Betty Davis sem lést í síðustu viku, 77 ára að aldri.
    Og við pælum í reiði, í samtímanum, í stjórnmálum og menningu. Rósa María Hjörvar flytur okkur sinni fyrsta pistil af þremur um þessa kraftmiklu tillfnningu.
    55 min
  • Verbúðar-gagnrýni, ástartíst, Ægisbraut Records
    Í gærkvöldi fór í loftið áttundi og síðasti þátturinn í Verbúðinni, sjónvarpsþáttum sem hafa sameinað þjóðina í nostalgíu fyrir níunda áratugnum og karpi um áhrif og gildi kvótakerfisins. Í Lestinni í dag rýnir Salvör Bergmann í þættina.
    Í dag er Valentínusardagur, dagur helgaður ástinni og kapítalisma en hér í Lestinni kjósum við fremur að fagna ástinni og internetinu, nánar tiltekið Twitter þar sem nú stendur yfir niðurtalning undir myllumerkinu #regnus í fyrsta fund tveggja turtildúfna sem kynntust á forritinu. Magnús hinn færeyski sendir okkur línu og Regn, betur þekkt sem skvísumálaráðherra Twitter segir okkur ástarsöguna.
    Við höldum líka upp á Akranes og ræðum við Kristján og Berg hjá nýrri útgáfu Ægisbraut sem gefur út þungt skagarokk á segulbandsspólum og stendur fyrir mis-löglegum tónleikum.
    55 min
  • Borgen snýr aftur, Cate Le Bon, Fréttir Stöðvar 2
    Tæpum áratug eftir að við sögðum skilið við fyrsta kvenforsætisráðherra Danmerkur Birgitte Nyborg snýr hún aftur í fjórðu þáttaröðinni af Borgen. Þetta stjórnmáladrama heltók dönsku þjóðina og síðar heimsbyggðina. Við spjöllum við Birtu Björnsdóttur, fréttamann, um hvað þættirnir segja okkur um danska stjórnmálamenningu.
    Í janúar 2021 skellti Stöð 2 í lás. Eða þannig upplifðu margir það, þegar ákveðið var að framvegis myndu aðeins áskrifendur geta horft á sjónvarpsfréttirnar sem fram að því höfðu verið í opinni dagskrá. Ákvörðunin vakti spurningar um lifibrauð fjölmiðla, um lýðræðishlutverk fjórða valdsins en þó kannski fyrst og fremst hvort þetta væri einu sinni góð hugmynd. Myndi Stöð 2 lifa þetta af? Ári síðar segir Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sýnar, að svarið sé já - og vel það.
    Davíð Roach fjallar um velsku tónlistarkonuna Cate Le Bon og nýja plötu hennar, sem ber titilinn Pompeii. Þetta er sjötta breiðskífan sem Le Bon sendir frá sér - titillinn hljómar heimsendalega en gagnrýnendur hafa hafið hana til skýjanna - Davíð Roach segir okkur frá þessum áhugaverða listamanni og af einhverjum ástæðum, geitinni hennar.
    55 min
  • Harmur, míkródósaðir Bítlar, Sprettfiskur með breyttu sniði
    Í næstu vikur verður frumsýnd fyrsta kvikmyndin í fullri lengd eftir tvo rétt rúmlega tvítuga kvikmyndagerðarmenn. Dramatíska spennumyndin Harmur eftir þá Anton Karl Kristenssen og Ásgeir Sigurðsson er gerð fyrir lítinn pening en af mikilli ástríðu og útsjónarsemi.
    Og talandi um unga kvikmyndagerðarmenn. Við heyrum um breytt fyrirkomulag á stuttmyndakeppninni Sprettfisk sem er árlegur viðburður, hluti af kvikmyndahátíðinni Stockfish. Nú fer keppnin fram í fleiri flokkum en áður og verðlaunin veglegri. Marzibil Sæmundardóttir framkvæmdastjóri hátíðarinnar segir frá.
    Heimildaþættirnir Get Back um frægustu hljómsveit 20. aldarinnar, Bítlana, vöktu mikla athygli og umtal þegar þeir komu út undir lok síðasta árs. Og síðan þá hefur fólk rökrætt hvort Paul sé óþolandi stjórnsamur, hvort stöðug nærvera Yoko sé þrúgandi, og af hverju George hætti tímabundið í bandinu. Gunnar Ragnarsson kvikmyndagagnrýnandi hefur hins vegar tekið þessa þætti í smáskömmtum, míkródósað bítlana undanfarnar vikur, og hann lýsir áhrifunum í Lest dagsins.
    55 min
  • Sjálfið, Óskarstilnefningar, Trúnó á sviði
    Við röltum í kringum tjörnina í Reykjavík með Sigríði Eir Zophaníasdóttur, sviðslistakonu, og ræðum um berskjöldun á sviði og sviðssetningu hins persónulega. En um helgina sýnir hún í Tjarnarbíói verkið Engar flatkökur í erfidrykkjunni þar sem hún og móðir hennar eiga í trúnó á sviðinu. Þær ætla ekki að tala um krabbamein og dauða en munu þó ræða skipulag jarðarfararinnar, já og veitingarnar í erfidrykkjunni.
    Sölvi Halldórsson flytur okkur pistil um sjálfið í samtímanum: handbremsubeygjur, kæfugerð, Gísli Pálmi, Laddi og Shrek koma meðal annars við sögu.
    En við byrjum á Óskarstilnefningum.
    55 min
  • Pam & Tommy, hinsegin þjóðhverfa, myndlistarjaðar í L.A.
    Í öðrum þætti Pam and Tommy - sem segir söguna af einni frægustu heimaklámmynd sögunnar - stígur óvænt stjarna myndarinnar á svið, nefnilega typpið á Tommy Lee. Atriðið er afar óvenjulegt og sumir áhorfendur hafa tekið það óstinnt upp en það er í það minnsta til þess fallið að endurvekja minninguna um einn frægasta reður Hollywood, Tommy Lee mögulega til nokkurrar gleði. En hvað með Pamelu?
    Þórður Ingi Jónsson jaðarfréttaritari Lestarinnar í Bandaríkjunum hefur verið að þefa uppi það athyglisverðasta á jaðrinum vestanhafs. Að þessu sinni heimsækir hann listagalleríið Superchief sem er með útibú í New York, Miami og Los Angeles - en það síðastnefnda opnaði nýlega aftur eftir gassprengingu sem rústaði sýningarýminu í upphafi faraldurs.
    Og við veltum fyrir okkur samtvinnun, öráreiti og hómó-nationalisma eða hinsegin þjóhverfu, með Hjörvari Gunnarssyni. En í mastersverkefni sínu tók hann viðtöl við og rannsakaði reynslu samkynhneigðra karla af asískum uppruna á Íslandi.
    55 min
  • Ný mannkynssaga, ?eðlilegt? kynlíf, lúkkið á ólympíuleikum
    Við kynnum okkur nýja róttæka og ögrandi mannkynssögu sem er umtöluð og umdeild þessa dagana. Þetta er bókin The Dawn of everything, Dögun heila klabbsins, Ný saga mannkyns eftir mannfræðinginn David Graeber og fornleifafræðinginn David Wengrow. Meira um það á eftir.
    Ástalíf, rómantískt ástarlíf, hófstillt kynferðislíf og afbrigðilegt kynferðislíf.Þetta eru nokkur af þeim hugtökum sem notuð voru til að lýsa kynvitund og kynhegðun mannsins í sjálfshjálparbókum á fyrri hluta síðustu aldar - hugtök sem notuð voru áður en orðið kynlíf varð til - löngu áður en við tókum að má út hugmyndir um að til væri eitthvað sem héti afbrigðilegt kynferðislíf. Hvað breyttist? Hvernig fórum við frá því að roðna af minnsta tilefni í að kippa okkur ekki upp við þriggja stafa tölu fyrri rekkjunauta nýs maka - nú eða kynferðislegar kyrkingar? Katrín Ásmundsdóttir leitar svara hjá Sólveigu Önnu Bóasdóttur, prófessor í guðfræðilegri siðfræði í Háskóla Íslands.
    Á morgun hefjast vetrarólympíuleikarnir í Peking formlega. Á dagskránni eru hinar ýmsu vetraríþróttir: skíði, krulla og skautar - íþróttagreinar sem krefjast kannski mismikils af keppendum hvað útlitið varðar. Við endurflytjum brot úr innslagi frá sumarólympíuleikunum 2021 þar sem hár og naglatíska ólympíufara var til umfjöllunar.
    54 min
  • Svörtu sandar, Börn, Nightmare Alley
    Um helgina var sýndur tvöfaldur lokaþáttur spennuþáttaraðarinnar Svörtu Sandar á stöð 2. Baldvin Z leikstýrir þáttunum sem hefjast á því að lík ungrar erlendrar konu finnst á svartri íslenskri sandfjöru, Júlía Margrét Einarsdóttir rýnir í þættina.
    Hljómsveitin Börn særir fram frumorku pönksins í tónlist sinni, svartklædd, nælur, göt og gaddar,, ofursvalar einfaldar lagasmíðar þar sem naumhyggjulegur basso, vélrænn trommutaktur og skerandi gítarar fléttast saman undan feminísku reiðiöskri söngkonunnar. Í síðustu viku kom út ný plata frá Börnum, Drottningar Dauðans, fyrsta plata sveitarinnar í sjö ár.
    Við sökkvum okkur ofan í rökkurheima Martraðarsundsins, Nightmare Alley. Gunnar Ragnarsson fjallar um þessa nýjustu mynd mexíkanska leikstjórann Guillermo Del Toro,og rökkurmyndir sem hún stælir.
    55 min