Þriðjung sólarhringsins liggja manneskjur og sofa, á bakinu eða hliðinni, í mjúku rúmi eða hörðu fleti, einar eða í faðmlögum. Þær eiga erfitt með svefn, sofa eins og börn, sofa yfir sig og fá sér lúr. En af hverju sofum við, sofum við öðruvísi en forfeður okkar og hvernig getum við tryggt okkur sem bestan nætursvefn? Í Lestinni í dag verður rýnt í svefnmenningu samtímans með Erlu Björnsdóttur, sálfræðingi.
Einnig verður rætt við Laylu Alexander-Garrett sem stödd var hér á landi nú á dögunum, en hún starfaði á sínum tíma sem túlkur og sérlegur aðstoðarmaður rússneska kvikmyndaleikstjórans Andreis Tarkovskys við gerð síðustu myndar hans, Fórnarinnar, frá árinu 1986.
Guðmundar- og Geirfinnsmálið kemur við sögu í þættinum í dag, mál sem heltók íslenskt samfélag á áttunda áratugnum og hafa áhrif þess verið mikil, og birtingarmyndur verið mýmargar í íslenskri menningu. Í fjórum pistlum í septembermánuði fjallar Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson um þetta alræmdasta sakamál Íslandssögunnar í skáldskap - og sem skáldskap. Snorri flytur fjórða og síðasta pistil sinn um þetta efni í Lestinni í dag, en dómur verður kveðinn upp í Hæstarétti í dag.
Og Marta Sigríður Pétursdóttir rýnir dagskrá kvikmyndahátíðarinnar RIFF sem hefst í dag.
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson