Efni Lestarinnar í dag: Pawel Adamowicz, borgarstjóri í G-dansk í Póllandi, var borinn til grafar um helgina, en hann andaðist á mánudag eftir að hafa orðið fyrir hnífstunguárás á góðgerðarsamkomu, þar sem hann flutti ávarp, á sunnudag fyrir rúmri viku. Þúsundir manna komu saman í G-dansk um helgina til að kveðja borgarstjórann og heiðra minningu hans, og þjóðarsorg var lýst yfir í Póllandi. Adamowicz hafði verið borgarstjóri í G-dansk í rúm tuttugu ár, eða frá árinu 1998, hann var frjálslyndur í skoðunum, og hafði meðal annars gagnrýnt mjög stjórnarflokkinn í landinu, sem kennir sig við Lög og réttlæti, hann var andvígur áherslu núverandi valdhafa í Póllandi á þjóðernishyggju og hafði staðið vörð um réttindi innflytjenda og samkynhneigðra á tímum sem einkennast af íhaldsemi og þjóðernishyggju. Lestin minnist Adamowicz í dag, og rýnir í voðaverkið G-dansk fyrir rúmri viku, gestur þáttarins verður Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi og fyrrverandi alþingismaður. Í nótt átti sér stað stór stund í lífi stjörnuspekúlanta, magnþrungið sjónarspil þar sem himintunglin röðuðust einhvern veginn hárrétt svo út varð blóðrauður tunglmyrkvi. Rætt verður í Lestinni í dag við Sævar Helga Bragason um tunglmyrkva næturinnar, en einnig verður rýnt í ýmsar þjóðsögur og mýtur sem tengjast ,,blóðmánanum." Caroline Calloway, sem hefur verið kölluð fyrsti Instagram-áhrifavaldurinn, sætir nú mikilli gagnrýni eftir að notandi á Twitter sakaði hana um svik. Calloway seldi upp á fjölda fjögurra stunda námskeiða í „sköpun“ og rukkaði hvern þáttakanda um andvirði 20.000 króna. Nína Richter segir nánar frá í Lestinni í dag. Og Áslaug Torfadóttir fjallar í dag um bandarísku sjónvarpsþættina Dirty John.
Umsjón: Anna Marsibil Clausen og Eiríkur Guðmundsson