Jesús Kristur, Arcade Fire, fótboltadómari og Evripídes. Þannig hljómar leiðarlýsing Lestarinnar í dag, 21. ágúst.
Jesús Kristur er vafalaust einn allra áhrifamesti einstaklingur í sögu mannkyns, en alveg frá upphafi hefur átt sér stað hörð barátta um arfleifð hans. Hugmyndir fólks um það hver Jesú var hafa tekið stöðugum breytingum í tímans rás, eðli hans og gjörðir túlkaðar og endurtúlkaðar. Í Lestinni í dag verður rætt við Sverri Jakobsson, sagnfræðing, um sögu Kristshugmyndarinnar.
Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur tekur til máls í Lestinni í dag, á nýjan leik, og fjallar um enskan fótboltadómara og óréttlætið sem hann varð fyrir um helgina.
Í kvöld heldur kanadíska hljómsveitin Arcade Fire tónleika í Laugardalshöll. Margir hafa beðið eftir þessum tónleikum, enda þykir hljómsveitin einstaklega gott tónleikaband. Við hitum upp fyrir kvöldið í Lestinni í dag, og rifjum upp feril Arcade Fire.
,,Tíminn mun milda harm þinn. Hinn látni er horfinn og að engu orðinn." ,,Set sorg þinni takmörk." ,,Gerir þú þér grein fyrir hlutskipti dauðlegra manna, hvernig því er háttað?" ,,Ein ævi er oss gefin, ekki tvær" (117) ,,Dauðlegir menn verða að ala hugsanir í brjósti í samræmi við sitt dauðlega eðli. Forn-gríska harmleikjaskáldið Evripídes kemur við sögu í Lestinni í dag.