„Mennirnir elskuðu náttúruna svo mikið að þeir gleyptu hana í sig, eyddu henni algjörlega.“ Það er þessi ást, þessi tengsl manns og náttúru, sem er meginumfjöllunarefni dansverksins The Lover eftir Báru Sigfúsdóttur sem verður sýnt á Íslandi á Listahátíð í Reykjavík í vikunni. Bára er búsett og starfar í danshöfuðborg Evrópu, Brussel í Belgíu. Þar var The Lover frumsýnt árið 2015, síðan þá hefur það ferðast víðsvegar um Evrópu og er nú loksins sýnt á Íslandi. Bára tekur sér far með Lestinni í dag.
Breska djasshljómsveitin Sons of Kemet gaf á dögunum út plötuna Your Queen is a Reptile eða Drottning yðar er skriðdýr. Platan kemur ekki út í tilefni að konunglegu brúðkaupi Harry og Meghan heldur er það hárbeitt ádeila gegn bresku konungsstjórninni. Tómas Ævar Ólafsson veltir fyrir sér drottningum og skriðdýrum í þætti dags
Everyday Africa er Instagram síða sem virðist vera hafa umbyltandi áhrif á ímynd Vestur-landabúa á Afríku. Everyday Africa samanstendur af ljósmyndurum sem koma víðs vegar að í álfunni og taka myndir af hversdagslífi í ríkjum álfunnar. Stofnendur síðunnar, ljósmyndarinn Peter DiCampo, og blaðamaðurinn Austin Merrill, hyggjast sýna Afríku í nýju ljósi, sýna Afríku í því ljósi sem fréttamiðlar gera ekki, og geta ekki. Á Instagram síðunni, sem þrjúhundruð fjörtíu og fimm þúsund fylgjendur skoða, eru nú að finna hátt í fjögur þúsund myndir.