Það er tónlist út um allt. Í stórmörkuðum, verslunarmiðstöðvum, veitingastofum, hjá rakaranum, á flugvöllum og á hótelum. En hvernig er þessi tónlist valin? Hvað liggur til grundvallar og hvaða markmið eru höfð í huga? Við fjöllum um tónlist í almannarými í Lestinni í dag. Gestur okkar verður Kristinn Pálsson sem hefur unnið í nokkur ár fyrir fyrirtæki sem heitir AtmoSelect við nákvæmlega það að setja saman lagalista.
Í októbermánuði ætlar Eydís Blöndal, ljóðskáld og heimspekinemi, að taka sér far með Lestinni og flytja nokkra pistla um kvennastörf. Í fyrsta pistli sínum veltir Eydís fyrir sér óútskýrðum launamun kynjanna.
Og Kanadíska teknóskáldkonan Marie Davidson framleiðir prósaljóð fyrir dansgólfið og takta fyrir tilvistarkreppur, um leið og hún afhjúpar myrkari kima plötusnúða- og klúbbamenningar samtímans með nístandi íróníu. Hennar fjórða skífa, Working Class Woman, kom út dögunum við standandi lófaklapp gagnrýnenda. Davíð Roach Gunnarsson segir frá Marie Davidson og setur tónlist hennar í hljóðkerfi Lestarinnar í dag.
Marta Sigríður Pétursdóttir kvikmyndagagnrýnandi fjallar um kvikmyndirnar A Star is Born eftir bandaríska leikstjórann Bradley Cooper og Lazzaro felice (eða Happy as Lazzaro) eftir ítalska leikstjórann Alice Rohrwacher.