Skortur á fjölbreytni hefur lengi verið vandamál í tölvuleikjum. Stelpur skortir fyrirmyndir í bransanum, of fáir tölvuleikir höfða til kvenna og umhverfið er jafnvel kvenfjandsamlegt. Þessu öllu vill María Guðmundsdóttir breyta. María, sem er stofnandi tölvuleikjafyrirtækisins Parity, tekur sér far með Lestinni í dag.
Kvikmyndin Cool as Ice frá 1990 var tilraun Hollywood til að græða á rapparanum Vanilla Ice en hún er almennt talin ein versta mynd allra tíma. Hún er þó orðin að költ-klassík í dag og nú stendur til að endurútgefa myndina í lúxusútgáfu.
Í þættinum í dag verður fjallað um sjarmerandi lélegar kvikmyndir og stjörnuhrap Vanilluíssins alræmda. Einnig verður sagt frá Gullegginu, frumkvöðlakeppni sem ætluð er ungu fólki en verkefnið er nú að fara af stað í tólfta sinn, Melkorka Sigríður Magnúsdóttir verkefnisstjóri verður gestur Lestarinnar í dag. Textar ensku tónlistarkonunnar Kate Bush koma við sögu að gefnu tilefni.
Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur að venju pistil í Lestinni á þriðjudegi, og fjallar í dag um það þegar réttlætið setur upp gerviaugu, og nýja auglýsingu fyrir strigaskó.
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson