Lestin

Lestin

Download on the App Store

Lestin episodes

  • Matthías Johannessen, Halloween, #fallingstars, ríkisvald og auðvald
    Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Matthías Johannessen skáld og fyrrverandi ritstjóra sem var að senda frá sér ljóðabókina Enn logar jökull.
    Lestin skoðar líka nýjustu tískubóluna á interneti hinna ofurríku í Rússlandi, Bandaríkjunum og Kína. Hrasandi stjörnur, eða #Fallingstars, felst í því að dreifa myndum á samfélagsmiðlum þar sem maður liggur kylliflatur á jörðinni með andlitið niður eins og maður hafi hrasað með fangið fullt af verðmætum varningi - skartgripum, merkjavöru, handtöskum og peningaseðlum.
    Marta Sigríður Pétursdóttir kvikmyndagagnrýnandi fjallar í dag um dönsku kvikmyndina Den Skyldige eftir Gustave Möller, sem er framlag Dana til Óskarsverðlauna að þessu sinni, og bandarísku kvikmyndina Halloween eftir David Gordon Green með Jamie Lee Curtis og Judy Greer í aðalhlutverkum.
    Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli sínum í dag um samspil ríkisvalds og auðvalds.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Litla hafpulsan, gereyðingarvopn, norrænar kvikmyndir, brauðrist/rista
    Í norðausturhluta Reykjavíkurtjarnar situr nú óvenjuleg kynjavera, plaststytta sem sýnir hnarreista fölbleika pylsu með hafmeyjusporð sitjandi á gulri brauðbollu. Litla hafpulsan, sem er framlag listakonunnar Steinunnar Gunnlaugsdóttur til 100 ára fullveldisafmælis Íslendinga og hluti af Cycle-listahátíðinni, hefur vakið blendin viðbrögð. Sumum þykir hún argasta smekkleysa en aðrir segja hana frábært verk og hvetja til þess að hún fái varanlegan sess í tjörninni. Lestin heimsækir Litlu hafpulsuna í dag.
    Tómas Ævar Ólafsson fjallar í pistli sínum um síendurtekið rifrildi um ristavélar og brauðristar sem skýtur gjarnan upp kollinum í fermingarveilsum og jólaboðum. Tómas spyr: Á maður að segja brauðrist eða ristavél?
    Sigríður Pétursdóttir flytur tíðindi frá kvikmyndahátíðinni í Lundúnum sem fram fór á dögunum, í dag hugar hún að norrænum hluta hátíðarinnar.
    Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi. Í dag fjallar hann meðal annars um klónaðan hund og gereyðingavopnaráðstefnu Nato sem fer fram á Íslandi um þessar mundir.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    54 min
  • Mesópótamía, Airwaves-ráðstefna, Harry Bosch, Schitt's Creek
    Fyrsta ritmál mannkyns varð til í hinu merkilega menningarsamfélagi Mesópótamíumanna, á svæði sem nú tilheyrir Írak. Þessi uppfinning var fyrst notuð til að halda bókhald og skrásetja varning en fljótlega varð til ríkuleg bókmenntahefð sem er ennþá tiltölulega lítið rannsökuð. Kolbrún Lilja Kolbeinsdóttir, bókmenntafræðingur, hefur rannsakað og vinnur nú að þýðingum á nokkrum mikilvægum bókmenntaverkum frá Mesópótamíu. Í þætti dagsins ferðast Lestin fimm þúsund ár aftur í tímann með Kolbrúnu Lilju.
    Einnig verður rætt við Sigtrygg Baldursson, framkvæmdastjóra Útóns, Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar, um ráðstefnuhald í tengslum við tónlistarhátíðina Iceland Airwaves sem hefst í næstu viku.
    Toshiki Toma, prestur innflytjenda á Íslandi og ljóðskáld, mælir með bók sem að hans mati lýsir samtímanum betur en aðrar bækur. En það eru bækur um leynilögreglumanninn Harry Bosch.
    Og Áslaug Torfadóttir fjallar um kanadísku sjónvarpsþættina Schitt's Creek.
    55 min
  • Danska nýbylgjan, ljósmæður, Matthew Dear og London Film Festival
    Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Dag Kára Pétursson kvikmyndaleikstjóra um dönsku nýbylgjuna í kvikmyndagerð en á morgun efna Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og Norræna Húsið til málþings um nýsköpun í danska kvikmyndageiranum í tilefni af 100 ára afmæli fullveldis Íslands.
    Bandaríski rafbarítónninn Matthew Dear óx úr grasi í fæðingarborg tekknósins og hefur gert tilraunir á eigin rödd í ríflega áratug. Davíð Roach Gunnarsson rýnir í hans nýjustu afurð, breiðskífuna Bunny, í Lestinni í dag.
    Eydís Blöndal ljóðskáld fjallar áfram um kvennastörf og hlustendur frá tíðindi frá kvikmyndahátíðinni í Lundúnum, London Film Festival, en henni lauk á sunnudag.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    52 min
  • Ödipus, umdeild klerkakvikmynd, bíó byggt á bókum, ritsmiðja í Árbæ
    Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Ásu Helgu Hjörleifsdóttur kvikmyndaleikstjóra um listina að aðlaga skáldsögur að kvikmyndaforminu en hún heldur á næstunni námskeið um efnið hjá Endurmenntun HÍ. Á námskeiðinu læra þátttakendur að skrifa handrit byggt á bók að eigin vali, og fá einstaka innsýn í þetta listform, aðlögun. Ása segir nánar frá í Lestinni í dag.
    Marta Sigríður Pétursdóttir kvikmyndagagnrýnandi fjallar um tvær kvikmyndir í þætti dagsins, pólsku myndina Kler eftir Wojciech Smarzowski og Gräns, eða Mæri, eftir íransk/sænska kvikmyndaleikstjórann Ali Abbasi.
    Tvisvar í mánuði hittist hópur kvenna á besta aldri í Borgarbókasafninu í Árbæ, þær skrifa, lesa upp textana sína og gefa hverri annarri gagnrýni og ábendingar. Skrifstofan er opin og ókeypis ritsmiðja á vegum Borgarbókasafnsins í Árbæ en sams konar smiðja er einnig starfrækt í Kringlunni. Þátttakendur nýta smiðjuna ýmist til að skrásetja endurminningar sínar, vinna úr sárri lífsreynslu í ljóðum, eða virkja ímyndunaraflið og skrifa skáldsögur. Lestin brunar upp í Árbæ og heimsækir ritsmiðju borgarbókasafnsins.
    Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í miðvikudagspistli um hugtök væntingar og ætlunar með hliðsjón af sögunni um Ödipus konung.
    55 min
  • Klám, Bjartar sveiflur, listin að vera alveg sama, St. Vincent,
    Á tímum kynlífsbyltingarinnar á sjöunda og áttunda áratugnumr jókst sýnileiki nektar og kynlífs í vestrænni menningu. Í kvikmyndum og sjónvarpi, bókum og blöðum, leikhúsi og ljósmyndum var kynlíf ekki aðeins gefið í skyn heldur var því lýst af sívaxandi nákvæmni. Hér á landi eins og víðar var á þessum tíma hart deilt um klám, hvernig skyldi skilgreina það, hvers konar sviðsetning á kynlífi þætti æskileg og hvað skyldi bannað. Þetta er umfjöllunarefni nýrrar bókar eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur, Stund klámsins, en bókin er fyrsta fræðilega verkið um sögu kláms á Ísland - tímamótaverk. Kristín Svava tekur sér far með Lestinni í dag.
    Hljómsveitin Bjartar sveiflur gefur á morgun út plötu sem hefur að geyma endurgerðir nokkurra þekktra íslenskra dægurlaga. Tveir meðlimir sveitarinnar taka sér far með Lestinni í dag.
    Tómas Ævar Ólafsson fjallar um hljómplötuna MassEducation með bandarísku tónlistarkonunni St. Vincent en um er að ræða endurgerð plötunnar Masseduction sem kom út í fyrra og vakti mikla athygli.
    Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi og fjallar í dag um sjálfshjálparbók frá árinu 2016 og stóuspekinginn Epíktetus.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    51 min
  • Kvennafrí, Sapiens, Travis Scott, The Haunting of Hill House,
    Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Maríönnu Clöru Lúthersdóttur um kvennafrí, en stundvíslega klukkan 14:55 eru konur hvattar til að ganga úr vinnu og ganga síðan fylktu liði niður á Arnarhól þar sem haldinn verður samstöðufundur. Maríanna er verkefnisstjóri kvennafrís og segir frá í þættinum í dag.
    Halldór Björnsson, veðurfræðingur, segir frá bók sem að hans mati á meira erindi við samtímann en aðrar bækur, bók sem við eigum að lesa hér og nú. Bókin sem hann velur er metsölubókin Sapiens, eftir ísraelska sagnfræðinginn Yuval Noah Harari, bók sem varpar áhugaverður og óvæntu ljósi á sögu mannkyns.
    Við kíkjum á nýtt tónlistarmyndband með rapparanum Travis Scott, en myndbandið við Sicko Mode er ofhlaðið og gallsúrt ferðalag um heimaborg hans, Houston í Texas.
    Og sjónvarpsþátturinn The Haunting of Hill House þykir ekki aðeins draugalegasti sjónvarpsþáttur ársins, heldur líka einn sá besti. Áslaug Torfadóttir hættir sér inn í Hill House í Lestinni í dag.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Kurt Vile, Karíbahafið, kvennastörf og Haraldur Jónsson
    Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Harald Jónsson myndlistarmann en á laugardag verður opnuð á Kjarvalsstöðum yfirlitssýning á verkum hans. Sýningin nefnist Róf og spannar þrjátíu ára feril Haraldar.
    Í byrjun árs ferðaðist Halldór Ragnarsson, myndlistarmaður, um eyjar Suður-Karíbahafsins í tvo mánuði. Hann dvaldist á fáförnum eyjum og ljósmyndaði þar fólk og staði og útkoman kemur nút út í ljósmyndabók sem nefnist Leit að lífi. Bókin inniheldur einnig brot úr ferðadagbók Halldórs, hugleiðingar sem varpa ljósi á hið innra tilvistarlega ferðalag listamannsins. Halldór tekur sér far með Lestinni og ræðir um ferðalög, ljósmyndir og leitina að lífi. Á fimmtudögum í októbermánuði flytur Eydís Blöndal, ljóðskáld, pistla um kvennastörf, hlustendur heyra annan pistil hennar í þættinum í dag. Og Davíð Roach Gunnarsson fjallar um nýútkomna plötu með bandaríska tónlistarmanninum Kurt Vile.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    51 min
  • Nýtt íslenskt bíó, stafræn fótspor, Blood on the tracks, bréf til Evró
    Stafræni heimurinn birtist okkur yfirleitt sem loft- og óefniskenndur. Því gerum við okkur illa grein fyrir þeim ummerkjum sem við skiljum eftir okkur, greinileg fótspor og skýr slóð sem fyrirtæki og stjórnvöld geta rakið, safnað saman og notað í ýmsum tilgangi. En geta einstaklingar á einhvern hátt falið slóð sína eða minnkað stafræna fótsporið sitt? Oktavía Hrund Jónsdóttir, öryggisráðgjafi og baráttukona fyrir stafrænum réttindum, tekur sér far með Lestinni í dag og ræðir um friðhelgi einkalífsins í netheimum.
    Vefútgáfa breska blaðsins The Guardian greindi frá því í gær að ítalski kvikmyndaleikstjórinn Luca Guadagnino, höfundur mynda á borð við Call me by your Name og Suspira, hyggist gera kvikmynd eftir hljómplötunni Blood on the Tracks með Bob Dylan. Platan kom út árið 1975 og þykir ein albesta plata Dylans. Einnig var tilkynnt á dögunum að væntanlegur væri pakki frá Columbia-útgáfufyrirtækinu, 14. pakkinn í bootleggseríunni svokölluðu, sem helgaður verður þessari frægu plötu og hefur meðal annars að geyma upptökur sem ekki hafa heyrst áður. Lög af plötunni Blood on the Tracks hljóma í hljóðkerfi Lestarinnar í dag, og rætt verður við Guðmund Andra Thorsson, rithöfund og Alþingismann sem hefur miklar mætur á plötunni.
    Í Lestinni í dag verður flutt opið bréf til Evrópu. Þetta er brot úr ljóðinu “Bréf til Evrópu“ eftir sænska ljóðskáldið Athenu Farrokhzad sem var frumflutt á ljóðahátíðinni Dagar ljóða og víns í Berlín í ágúst. En á hverju ári fá hátíðarhaldarar er eitt ljóðskáld fengið til að ávarpa Evrópu, stöðu hennar og vandamál. Bréfið hefur verið þýtt af Eiríki Erni Norðdahl og er hér lesið upp af Sönnu Magdalenu Mörtudóttur. En ljóðið verður hluti af Cycle Music and Art Festival sem fer fram í Kópavogi 25 til 28. október og verður þar flutt í heild sinni, en þema hátíðarinnar í ár er inclusive nation - “Þjóð meðal þjóða.“
    Marta Sigríður Pétursdóttir kvikmyndagagnrýndi fjallar í þættinum um dag um kvikmyndina Undir halastjörnu eftir Ara Alexander Ergis Magnússon sem frumsýnd var á dögunum, og nýja íslenska heimildamynd, Bráðum verður bylting.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    55 min

About Lestin

From the publisher's feed

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

More shows like Lestin

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

214 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners