Súrt íslenskt grín, nýblaðamennska, Yanni eða Laurel, morðtímarit og ný raftónlist - einhvern veginn svona hljóðar leiðarlýsing dagsins. „Besta vopn blaðamannsins er það sem ég kalla upplýsingaráráttu. Fólk vill nefnilega ólmt segja þér frá einhverju sem þú veist ekki - Þannig öðlast það eins konar yfirburðarstöðu“. Þetta sagði bandaríski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Tom Wolfe, en upplýsingarárátta er meðal fjölda hugtaka sem hann fann upp á á ferlinum. Hann er einn þeirra sem tilheyrðu og skrifuðu undir merkjum nýblaðamennsku eða New Journalist. Wolfe, lést fyrr í vikunni, 88 ára að aldri - við minnumst hans hér í Lestinni í dag. Heimildamaður okkar verður Jóhannes Ólafsson, dagskrárgerðarmaður á RÚV. Kaupa dót eru stuttir grínþættir sem eru aðgengilegir á Facebook. Þetta er að öllum líkindum súrasta íslenska grínið á internetinu í dag. Maðurinn á bak við þættina, Tumi Björnsson, fær far með Lestinni í dag. Annað tölublað morðtímaritsins, eða Murder Magazine, kom út á dögunum. Þemað að þessu sinni er: Erótík og kerfi. Við fræðumst nánar um blaðið hér á eftir. Annar listrænna stjórnenda þess, Bergrún Anna Hallsteinsdóttir, segir frá. Í vikunni hafa netverjar deilt um hvort nafnið, Yanni eða Laurel, heyrist í stuttri hljóðklippu sem farið hefur manna á milli á samfélagsmiðlum. Í þætti dagsins veltum við fyrir okkur hvað deilan segir okkur um stöðu mannsins í alheiminum, og allt það sem liggur mögulega utan skynsviðs okkar. Á dögunum kom út fyrsta LP-plata Brooklyn-búans Jeremy Malvin sem framleiðir raftónlist undir listamannsnafninu Chrome Sparks. Á skífunni sem er samnefnd verkefninu, er að finna ofgnótt hugmynda og einstakan bræðing hins lífræna, stafræna og hliðræna.