Lestin

Lestin

Download on the App Store

Lestin episodes

  • Derek Jarman, Alita, Ken Nordine, stórsagnig og frásagnir
    Efni Lestarinnar í dag: Í gær voru 25 ár liðin síðan breski kvikmyndagerðarmaðurinn Derek Jarman lést af völdum HIV. Í þættinum í dag verður rifjuð upp áhrifarík bók eftir þennan merka listamann. Marta Sigríður Péturdóttir fjallar um bandarísku kvikmyndina Alita: Battle Angel sem er byggð á vinsælli Manga-teiknimyndasögu eftir japanska listamanninn Yukito Kishiro. Um er að ræða cyber-pönk vísindaskáldsögutrylli úr smiðju kanadíska leikstjórans James Cameron, sem framleiðir myndina og skrifar handritið en leikstjórnin er hins vegar í höndum bandaríska kvikmyndaleikstjórans Roberts Rodriguez. Bandaríska ljóðskáldið, þulurinn og djasstónlistarmaðurinn Ken Nordine er látinn, hann andaðist á laugardaginn, 98 ára gamall. Nordine er talinn einn besti þulur frá upphafi í útvarpi og sjónvarpi. Hann var frægur fyrir auðþekkjanlega og djúpa bassarödd sína sem margir þekktu í gegnum auglýsingar og stiklur, sem og djasstónlist hans, sem kennd var við orðadjass. Þórður Ingi Jónsson fjallar um líf og störf þessa merka manns í þættinum dag. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli dagsins um frásagnir, stórsagnir og póstmódernisma.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson.
    55 min
  • Brun Ganz, fjölmiðlafrumvarp, Sergo Bisquets
    Efni Lestarinnar í dag: Svissneski leikarinn Bruno Ganz andaðist á föstudag, 77 ára gamall. Ganz var einhver þekkasti kvikmyndaleikari Evrópu, átti að baki feril sem spannaði hálfa öld, í leikhúsi, kvikmyndum og sjónvarpi. Á ferli sínum lék hann í ríflega hundrað kvikmyndum og var margverðlaunaður. Þekktastur var Ganz fyrir hlutverk sín í myndum á borð við Himinn yfir berlín, eftir þýska kvikmyndaleikstjórann Wim Wenders, frá árinu 1987, og Downfall frá árinu 2004, þar sem Ganz lék Adolf Hitler afar eftirminnilega. Ganz verður minnst í Lestinni í dag, gestir þáttarins verða Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri og Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi. Fjölmiðlar um allan heim eiga undir högg að sækja en líklega er það ekkert nýtt. Valgerður Jóhannsdóttir, aðjúnkt í blaða- og fréttamennsku tekur sér far með Lestinni í dag og fer yfir fjölmiðlafrumvarp menntamálaráðherra um stuðning við einkarekna fjölmiðla, og svarar spurningum um það hvers vegna það kann að vera þarft og af hverju svo margir forráðamenn einkarekinna fjölmiðla fetta fingur út í það. Í pistli sínum í dag leiðir Tómas Ævar Ólafsson hugann að Holu íslenskra fræða vestur á melum í Reykjavík og spyr hvort endilega þurfi að byggja þetta blessaða Hús íslenskra fræða. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur að venju pistil í Lestinni á þriðjudegi, og fjallar í dag um fótboltamann og afdrífaríka ákvörðun sem hann tók í gær.
    Umsjón: Anna Marsibil Clausen og Eiríkur Guðmundsson.
    55 min
  • Dj flugvél og geimskip, Herdís Stefánsdóttir, Berlinale, Luther
    Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við dj flugvél og geimskip, sem er listamannsnafn Steinunnar Harðardóttir, en hún sendi á dögunum frá sér sína þriðju plötu, sem ber heitið Our Atlantis! Steinunn er nýkomin úr tónleikaferðalagi um Evrópu og heldur útgáfutónleika í Iðnó á miðvikudag, Steinunn verður gestur Lestarinnar í dag. Önnur tónlistarkona kemur við sögu í þættinum í dag, en ferill Herdísar Stefánsdóttur kvikmyndatónskálds tók skyndilegan og óvæntan vaxtarkipp á síðasta ári þegar hún var beðin um að semja tónlist fyrir Warner Brothers-kvikmyndina The Sun is Also a Star. Á þeim tíma var Herdís einnig að upplifa persónulegan vaxtarkipp, aðallega um sig miðja þar sem hún bar barn undir belti; var komin 30 vikur á leið. Í þættinum í dag verður rætt við Herdísi um feril hennar, frá rafpoppi sveitarinnar East of My Youth, inn í heim kvikmyndanna, og um skörun tveggja stærstu verkefna hennar til þessa. Einnig verður hugað að kvikmyndum í þættinum í dag, en kvikmyndahátíðinni í Berlín lauk núna um helgina og í pistli frá hátíðinni segir Ásgeir H Ingólfsson frá sigurmyndinni, Samheiti, sem fjallar um Ísraelsmann í Frakklandi og erfitt samband hans við föðurlandið. Einnig fjallar Ásgeir um hneykslismál sem skekur frönsku kirkjuna, ferðasögu ensku tónlistarkonunnar P.J. Harvey um Afganistan, Kósóvu og Washington, og rússneska barnahermenn í fyrri heimstyrjöldinni. Og Áslaug Torfadóttir fjallar í dag um bresku sjónvarpsþáttaröðina Luther.
    Umsjón: Anna Marsibil Clausen og Eiríkur Guðmundsson.
    55 min
  • Margerite Duras, umhverfiskvíði, Robyn
    Efni Lestarinnar í dag: Á Frönsku kvikmyndahátíðinni sem nú stendur yfir í Háskólabíói er sýnd myndin La Douleur, eða Kvölin, en hún byggir á samnefndri sögu eftir franska nýsögu-höfundinn Marguerite Duras. Sögusvið bókarinnar er París í júní árið 1944. Aðalpersóna er hún sjálf og segir sagan frá því þegar þáverandi eiginmaður hennar, Robert Antelme, rithöfundur og forystumaður í andspyrnuhreyfingunni, var handtekinn og fluttur í útrýmingabúðir. Marguerite berst við óttann um að heyra aldrei frá honum aftur. Frásagnir byggja á meintri dagbók sem Duras segist hafa skrifað á þessum tíma. Lestin skoðar La Douleur og frásagnarstíl Duras í þætti dagsins. Rætt verður við Torfa Tulinius, prófessor í íslenskum miðaldafræðum við Háskóla Íslands, en hann þekkir vel til verka Duras. Einnig verður í Lestinni í dag rætt við Sólu Þorsteinsdóttur menningarfræðing um umhverfiskvíða og fleira sem tengist orðræðunni um áhrif loftslagsbreytinga, en hún skrifaði meistararitgerð sem nefnist: ,,Fögur orð og fyrirheita duga okkur ekki lengur." Íslensk loftslagsorðræða greind í ljósi kenninga um loftsslagssinnuleysi." Og hugað verður að nýrri tónlist í þætti dagsins: Sænska súperpoppskvísan Robyn gaf út sína áttundu breiðskífu seint á síðasta ári, eftir átta ára hlé. Robyn verður fertug í sumar, en er búin að vera poppstjarna frá því áður en hún komst á unglingsaldur, þó hún hafi fyrst virkilega fundið fjölina sína fyrir rúmum áratug. Sérgrein hennar er hárnákvæma og ljúfsára melankólían sem gefur annars venjulegu popplagi þessa auknu vigt sem það þarf til að lifa lengur og dýpra í meðvitund aðdáenda en ella. Davíð Roach Gunnarsson segir frá Robyn og plötunni Honey í Lestinni í dag.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson.
    55 min
  • Floni, Le Grand Bain, Vice, J Dilla, lýðræðishugtakið
    Tónlistarmaðurinn Floni vakti fyrst athygli innan hiphop og rappsenunnar með útgáfu fyrstu breiðskífu sinnar árið 2017. Í síðustu viku gaf hann út aðra breiðskífu sína, Floni 2. Lestin kynnir sér plötuna nánar í þætti dagsins - Floni tekur sér far með Lestinni og leyfir hlustendum að skyggnast inn í hugarheim sinn og tónlistarsköpun. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar um opnunarmynd Franskrar kvikmyndahátíðar, Le Grand Bain, Að synda eða sökkva, gamanmynd sem fjallar um átta miðaldra karlmenn í tilvistarkreppu sem stunda samhæfða sundfimi og stefna á heimsmeistaramót. Marta fjallar einnig um kvikmyndina Vice eftir leikstjóra kvikmyndarinnar The Big Short, Adam McKay, mynd sem fjallar um ævi og störf valdamesta varaforseta Bandaríkjanna, Dick Cheney. Bandaríski upptökustjórinn, taktsmiðurinn og rapparinn J Dilla hefði orðið 45 ára á dögunum en hann lést árið 2006. Dilla hefur verið kallaður Mozart rappsins en aðdáendur hans og fylgjendur fagna svokölluðum Dilla degi þann 6. febrúar. Stiklað verður á stóru um feril J Dilla og rætt við Magnús Tryggvason Eliassen, trommara í Dillalude, íslenskri hljómsveit sem tileinkuð er meistaranum. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli dagsins um mörk lýðræðishugtaksins og hvort unnt sé að víkka þau út og gera hið efnahagslega að hinu pólitíska.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Pólitík í Söngvakeppninni, hljóðmengun, Albert Finney
    Efni Lestarinnar í dag: Pólitískar stimpingar eru nær óumflýjanlegar þegar fulltrúar 42 þjóðríkja koma saman enda er yfirleitt eitthvert hitamál á borðinu í kringum Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Réttindi hinsegin fólks, átök á Krímsskaga og þjóðarmorð eru allt dæmi um málefni sem sett hafa svip sinn á keppnir fortíðar og eins þykir mörgum mikið fara fyrir frændhyglinni í kosningunum um besta lagið. Í ár er pólitíkin komin til Íslands jafnvel áður en sjálf aðalkeppnin hefst. Lagið "Hatrið mun sigra" er komið í lokaumferð Söngvakeppni sjónvarpsins en það vísar í deilur Ísraela og Palestínumanna. Í Lestinni í dag er rætt við sérfræðinga FÁSES - Félag áhugamanna um söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva - um pólitík í söngvakeppninni og það hvort fleiri mótmælalög finnist í erlendum undankeppnum þetta árið. Í pistli sínum í dag hlustar Tómas Ævar Ólafsson á Reykjavíkurborg og veltir því fyrir sér hvort finna megi þögnina sjálfa innan borgarmúranna. Er þagnarvænt í Reykjavík eða er hljóðmengunin búin að leggja höfuðborgina undir sig, spyr Tómas í dag. Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi og enska leikarans Alberts Finney verður minnst, en hann andaðist í síðustu viku, 82ja ára gamall.
    Umsjón: Anna Marsibil Clausen og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Grammy-verðlaunin, Hatari, Russian Doll, Berlinale
    Efni Lestarinnar í dag: Það var mikið um dýrðir í Staples Center í Los Angeles í nótt þar sem Grammy-verðlaunin voru afhent með pompi, prakt og fullt, fullt af pæjum. Konur komu sáu og sigruðu í flestum stóru flokkunum og sömuleiðis sem skemmtikraftar kvöldsins þar sem þær voru í yfirgnæfandi meirihluta. Í Lestinni í dag verður fjallað um Grammy-verðlaunin og rýnt í há- og lágpunkta hátíðarinnar. Fyrra undanúrslitakvöld fyrir Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í Tel Aviv í maí fór fram um helgina. Tvö lög komust áfram, Eitt andartak, í flutningu Heru Bjarkar og Hatrið mun sigra í flutningi Hatara, þessi lög tryggðu sér sæti í úrslitum Söngvakeppninnar árið 2019. Það er óhætt að segja að atriði Hatara hafi vakið mikla athygli, rýnt verður í atriðið í Lestinni í dag. Ásgeir H Ingólfsson segir frá mongólskum hirðingjum, amerískum kvikmyndagagnrýnendum og úkraínsku hungursneiðinni í pistli frá kvikmyndahátíðinni í Berlín sem stendur nú sem hæst, þar sem spurningar vakna meðal annars um framtíð blaðamennsku. Og bandarísku sjónvarpsþættirnir Russian Doll eru einhverjir frumlegustu og skemmtilegustu þættir síðustu missera og bjóða áhorfendum að uppgötva eitthvað nýtt við hvert enduráhorf. Áslaug Torfadóttir fjallar um þættina í Lestinni í dag.
    Umsjón: Anna Marsibil Clausen og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Staða prentverks á Íslandi, Beirút, Toro Y Moi og Chillwave-stefna
    Efni Lestarinnar í dag: Á morgun verður opnuð í Listasafni Íslands sýningin Beirút, Beyrut, Beyrouth, Beyrout þar sem saga félagslega flókins samfélags verður dregin fram og skoðuð með skerpu og hlýju. Heiti sýningarinnar vísar til þess menningarlega fjölbreytileika sem Líbanon og Austurlönd nær búa yfir en þau eiga sér langa sögu sem fjöltyngt fjölmenningarsvæði. Fjallað verður um þessa áhugaverðu sýningu í Lestinni í dag. Einnig verður í þættinum hugað að stöðu prentverks á Íslandi, Hallgrímur Helgason rithöfundur lýsti í viðtali við Lestina á dögunum áhyggjum sínum af því að Íslendingar væru hættir að prenta bækur. Gestur þáttarins í dag verður Haukur Már Haraldsson, hann er menntaður setjari, hefur fengist við blaðamennsku, ritstjórn, útlitshönnun og kennslu, og er höfundur bókarinnar Frá Hólum til Reykjavíkur - Fyrstu 300 árin í prentsögu Íslendinga, sem kom út árið 1992. Haukur talar um stöðuna eins og hún er nú, og merka prentsögu Íslendinga. Og á dögunum kom út sjötta hljóðversplata bandaríska tónlistarmannsins Toro Y Moi, hún nefnis Ytri friður, Outer Peace. Toro þessi framreiðir lágstemmt grúví raftónlist og kom upp úr senu sem hefur verið kölluð Chillwave, og var áberandi seint á óþekka áratugnum (noughties, fyrsta áratug þessara aldar). Davíð Roach Gunnarsson fjallar um plötuna Outer Peace og fræðir hlustendur um Chillwave-stefnuna í Lestinni í dag.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Hljómplötusafn Sigurjóns Samúelssonar, USEE STUDIO, Simone de Beauvoir
    Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um hljómplötusafn Sigurjóns Samúelssonar, bónda á Hrafnabjörgum við Ísafjarðardjúp. Sigurjón hóf hljómplötusöfnun um miðja síðustu öld, hann andaðist árið 2017 og skildi eftir sig merkilegt safn hljómplatna, alls um það bil 7000 plötur, sem nú hefur verið afhent Landsbókasafni Íslands. Af því tilefni verður opnuð í Þjóðarbókhlöðunni í dag sýning sem helguð er safni Sigurjóns, komið verður við í Þjóðarbókhlöðunni í þætti dagsins og rætt við Ólaf Engilbertsson og Bryndísi Vilbergsdóttur. Halla Hákonardóttir og Helga Björg Kjerúlf eru hönnuðirnir á bakvið USEE STUDIO en hönnunarstofan sendi nýverið frá sér fatalínuna Egaleo. Línan er þróuð og unnin út frá róttækum sjálfbærum sjónarmiðum, til að mynda er megin efniviður flíkanna gamlir efnalagerar og rekjanlegur lífrænn bómull. Þær Halla og Helga framleiddu línuna í Grikklandi, en Aþena hefur að geyma ríka textíl- og fata- framleiðslusögu sem hefur orðð undir eftir að evrópsk framleiðsla fluttist að mestu til Suðaustur-Asíu, vegna ódýrs vinnuafls þar. Þær Halla og Helga segja hlustendum Lestarinnar nánar frá fatalínunni Egaleo í þætti dagsins. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar í þættinum í dag um kvikmyndirnar Tryggð eftir Ásthildi Kjartansdóttir, þýsku nornamyndina Hakazussa eftir Lukas Feigelfeld, og Transit eftir Christian Petzold, en tvær síðarnefndu myndirnar eru sýndar á Þýskum kvikmyndadögum sem nú standa yfir í BíóParadís. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli sínum um franska heimspekinginn Simone de Beauvoir og bók hennar, Pyrrhos og Kíneas, sem var hennar fyrsta heimspekiverk, kom út árið 1944, Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir þýddi ritið á íslensku, og kom þýðing hennar út í Lærdómsritaröð Hins íslenska bókmenntafélags á síðasta ári.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • The Specials, andfætlur hugans,
    Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um ensku hljómsveitina The Specials sem stofnuð var í Coventry á Englandi árið 1977 og naut á sínum tíma töluverðra vinsælda fyrir tónlist sem kennd er við tónlistarstefnuna ska. Á föstudag kom út fyrsta plata hljómsveitarinnar í tæp tuttugu ár, hún nefnist Encore og hefur hlotið góðar viðtökur. Rætt verður í þættinum í dag við Kjartan Guðmundsson blaðamann um The Specials og tónlistarstefnuna ska sem á rætur að rekja til Jamaika. Aftarlega í hugum okkar búa furðuverur sem við verðum lítið vör við nema við sérstakar aðstæður. Í pistli sínum í dag velti Tómas Ævar Ólafsson fyrir sér svokölluðum andfætlum hugans og tengir þær við flugþreytu, ofskynjanir og trúarbrögð. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi.
    Umsjón: Anna Marsibil Clausen og Eiríkur Guðmundsson
    55 min

About Lestin

From the publisher's feed

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

More shows like Lestin

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

214 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners