Í Lestinni í dag er tónlist fyrirferðarmikil, bæði frá Íslandi og Senegal. Þá koma húsfreyjur og bakaralistin við sögu - þó í sitt hvoru lagi.
Tónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, sem kallar sig GDRN, hefur vakið verðskuldaða athygli undanfarna mánuði með trega- og sálarfullri R'n'B tónlist sinni. Nú er komin út 11 laga plata, fyrsta breiðskífan, Hvað ef? Í Lestinni í dag verður rætt við GDRN um tónlistina, tregann og allt það sem gæti hafa orðið.
Senegalski tónlistarmaðurinn Youssou N'Dour, heldur tónleika ásamt fríðu föruneyti í Eldborgarsal Hörpu annað kvöld. N'Dour er einn þekktasta tónlistarmaður Afríku, og á að baki langan og glæsilegan feril. Við ætlum að fjalla um Youssoue N'Dour í Lestinni í dag, gestir á fyrsta farrými verða tónlistarmennirnir Jakob Frímann Magnússon, Samúel Jón Samúelsson, og tónleikahaldarinn Þorsteinn Stephensen, sem stendur í ströngu þessa dagana, í síðustu viku stóð hann fyrir tónleikum kanadísku hljómsveitarinnar Arcade Fire .
Raunveruleikaþættir sem miða að því að láta bæði þátttakendum og áhorfendum líða vel verða sífellt meira áberandi. Forsprakki þessarar stefnu eru án efa bresku bökunarþættirnir The Great British Bake Off sem snúa aftur á skjáinn í vikunni. Áslaug Torfadóttir fjallar um þá í þættinum í dag.
Og Lestin heldur áfram að taka þátt í fullveldismaraþoni Reykjavíkurakademíunnar, sem fram fór á dögunum, þar var fjallað um fullveldið, sögu Íslands og samfélag í fortíð og nútíð. Mjög fjölbreytt dagskrá þar á ferð. Og í dag heyrum við í Lönu Kolbrúnu Eddudóttur, sagnfræðinema og dagskrárgerðarmanni, þema hennar: Kvennasaga í húsfreyjunni.