Stafræni heimurinn birtist okkur yfirleitt sem loft- og óefniskenndur. Því gerum við okkur illa grein fyrir þeim ummerkjum sem við skiljum eftir okkur, greinileg fótspor og skýr slóð sem fyrirtæki og stjórnvöld geta rakið, safnað saman og notað í ýmsum tilgangi. En geta einstaklingar á einhvern hátt falið slóð sína eða minnkað stafræna fótsporið sitt? Oktavía Hrund Jónsdóttir, öryggisráðgjafi og baráttukona fyrir stafrænum réttindum, tekur sér far með Lestinni í dag og ræðir um friðhelgi einkalífsins í netheimum.
Vefútgáfa breska blaðsins The Guardian greindi frá því í gær að ítalski kvikmyndaleikstjórinn Luca Guadagnino, höfundur mynda á borð við Call me by your Name og Suspira, hyggist gera kvikmynd eftir hljómplötunni Blood on the Tracks með Bob Dylan. Platan kom út árið 1975 og þykir ein albesta plata Dylans. Einnig var tilkynnt á dögunum að væntanlegur væri pakki frá Columbia-útgáfufyrirtækinu, 14. pakkinn í bootleggseríunni svokölluðu, sem helgaður verður þessari frægu plötu og hefur meðal annars að geyma upptökur sem ekki hafa heyrst áður. Lög af plötunni Blood on the Tracks hljóma í hljóðkerfi Lestarinnar í dag, og rætt verður við Guðmund Andra Thorsson, rithöfund og Alþingismann sem hefur miklar mætur á plötunni.
Í Lestinni í dag verður flutt opið bréf til Evrópu. Þetta er brot úr ljóðinu “Bréf til Evrópu“ eftir sænska ljóðskáldið Athenu Farrokhzad sem var frumflutt á ljóðahátíðinni Dagar ljóða og víns í Berlín í ágúst. En á hverju ári fá hátíðarhaldarar er eitt ljóðskáld fengið til að ávarpa Evrópu, stöðu hennar og vandamál. Bréfið hefur verið þýtt af Eiríki Erni Norðdahl og er hér lesið upp af Sönnu Magdalenu Mörtudóttur. En ljóðið verður hluti af Cycle Music and Art Festival sem fer fram í Kópavogi 25 til 28. október og verður þar flutt í heild sinni, en þema hátíðarinnar í ár er inclusive nation - “Þjóð meðal þjóða.“
Marta Sigríður Pétursdóttir kvikmyndagagnrýndi fjallar í þættinum um dag um kvikmyndina Undir halastjörnu eftir Ara Alexander Ergis Magnússon sem frumsýnd var á dögunum, og nýja íslenska heimildamynd, Bráðum verður bylting.
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson