Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Barða Jóhannsson tónlistarmann sem fagnar um þessar mundir afmæli þriggja platna með hljómsveitinni Bang Gang. Af því tilefni verður efnt til boðs í Rokksafni Íslands í Hljómahöll í Reykjanesbæ á morgun. Þar verður nýtt myndband Bang Gang frumsýnt, hljómsveitin Bang Gang tekur nokkur af bestu lögum sveitarinnar, auk þess sem Rokksafni Íslands verður formlega afhend stytta af Barða sem upprunalega var framleidd og sýnd í Triennale sem er hönnunarsafn í Milano á Ítalíu. Styttan er komin til landsins og kemur til með að standa í Rokksafni Íslands. Barði verður gestur Lestarinnar í dag. Kári Valtýsson, lögmaður, sendi frá sér sína fyrstu skáldsögu á dögunum. Sagan nefnist Hefnd og fjallar um Íslending sem gerist byssubófi í villta vestrinu í Bandaríkjunum um miðja nítjándu öld. Kári verður gestur Lestarinnar í dag. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar í dag um kvikmyndirnar Blindspotting og The Girl in the Spider's Web. Og hugað verður að merkilegri plötu: Wu-Tang Clan er rapp-stórveldi, hip hop-heimsálfa, fatalína, íkonógrafía, lífstíll, fagurfræði og söguheimur út af fyrir sig. En allt hófst það með plötu sem kom út fyrir aldarfjórðungi síðan, Enter The Wu Tang (36 chambers). Davíð Roach Gunnarsson spilar Wu Tang Clan í hljóðkerfi lestarinnar í dag og hækkar svo um munar.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson