Bandaríska tímaritið Time velur að þessu sinni hóp fréttafólks víða um heim, sem hefur lagt líf sitt í hættu við að upplýsa almenning um sannleikann, manneskjur ársins 2018. Þeirra á meðal Jamal Khashoggi sem var myrtur í Istanbúl í október, þegar hann fór inn á ræðismannsskrifstofu Sádi-Arabíu í borginni, en margt bendir til þess að ráðamenn í Sádi-Arabíu hafi fyrirskipað morðið á honum, Khashoggi hafði skrifað á gagnrýnan hátt um stjórnvöld þar í landi fyrir bandaríska stórblaðið Washington Post. Einnig koma hér við sögu blaðamenn Reuters, þeir Wa Lone og Kyaw Soe Oo, sem eru í fangelsi í Mjanmar, fyrir að hafa skrifað um meðferð stjórnvalda þar í landi á Róhingjum. Og þannig mætti áfram telja. Time kallar þetta fólk verðina, fólkið sem stendur vörð um sannleikann, fólkið sem leggur líf sitt í sölur við að upplýsa almenning um sannleikann. Í Lestinni í dag verður rætt um stöðu og mikilvægi blaðamennsku í samtímanum, gestur þáttarins hér verður Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans.
Út er komin bókin Mosar á Íslandi eftir Ágúst H. Bjarnason, grasafræðing. Þetta er greiningarlykill að öllum tegundum mosa sem vaxa hér á landi. Lestin heimsækir Ágúst og fræðist nánar um mosa í þætti dagsins. Bandaríski grasafræðingurinn Robin Wall Kimmerer heldur því meðal annars fram að töfrandi heimur mosa geymi lykil að alvöru eftirtektar- og athyglisgáfu mannsins - við skoðum líka hvort eitthvað sé til í þeirri staðhæfingu í þætti dagsins.
Og Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar í dag um kvikmyndina Suspiria eftir ítalska leikstjórann Luca Guadagnino, mynd sem er innblásin af hrollvekju frá árinu 1977, mynd eftir annan ítalskan leikstjóra, Dario Argento. Danslistin er mikilvægur þáttur í myndinni og atvinnudansarar leika stór hlutverk, meðal annars Halla Þórðardóttir, dansari úr Íslenska dansflokknum, og við heyrðum í henni hér í Lestinni í síðustu viku. En Marta Sigríður fjallar sumsé um þessa mynd, Suspiria í þættinum í dag.