Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um hljómplötusafn Sigurjóns Samúelssonar, bónda á Hrafnabjörgum við Ísafjarðardjúp. Sigurjón hóf hljómplötusöfnun um miðja síðustu öld, hann andaðist árið 2017 og skildi eftir sig merkilegt safn hljómplatna, alls um það bil 7000 plötur, sem nú hefur verið afhent Landsbókasafni Íslands. Af því tilefni verður opnuð í Þjóðarbókhlöðunni í dag sýning sem helguð er safni Sigurjóns, komið verður við í Þjóðarbókhlöðunni í þætti dagsins og rætt við Ólaf Engilbertsson og Bryndísi Vilbergsdóttur. Halla Hákonardóttir og Helga Björg Kjerúlf eru hönnuðirnir á bakvið USEE STUDIO en hönnunarstofan sendi nýverið frá sér fatalínuna Egaleo. Línan er þróuð og unnin út frá róttækum sjálfbærum sjónarmiðum, til að mynda er megin efniviður flíkanna gamlir efnalagerar og rekjanlegur lífrænn bómull. Þær Halla og Helga framleiddu línuna í Grikklandi, en Aþena hefur að geyma ríka textíl- og fata- framleiðslusögu sem hefur orðð undir eftir að evrópsk framleiðsla fluttist að mestu til Suðaustur-Asíu, vegna ódýrs vinnuafls þar. Þær Halla og Helga segja hlustendum Lestarinnar nánar frá fatalínunni Egaleo í þætti dagsins. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar í þættinum í dag um kvikmyndirnar Tryggð eftir Ásthildi Kjartansdóttir, þýsku nornamyndina Hakazussa eftir Lukas Feigelfeld, og Transit eftir Christian Petzold, en tvær síðarnefndu myndirnar eru sýndar á Þýskum kvikmyndadögum sem nú standa yfir í BíóParadís. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli sínum um franska heimspekinginn Simone de Beauvoir og bók hennar, Pyrrhos og Kíneas, sem var hennar fyrsta heimspekiverk, kom út árið 1944, Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir þýddi ritið á íslensku, og kom þýðing hennar út í Lærdómsritaröð Hins íslenska bókmenntafélags á síðasta ári.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson