Efni Lestarinnar í dag: Framlag Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, sem fram fer í Tel Aviv í Ísrael í maí, verður valið á laugardag. Óhætt er að segja að lag Hatara, Hatrið mun sigra, hafi vakið mesta athygli af þeim fimm lögum sem koma til greina. Sitt sýnist hverjum um lagið og atriðið, sem og það hvort yfir höfuð sé rétt að taka þátt í keppninni, í ljósi ítrekaðra mannréttindabrota Ísraelsstjórnar í samskiptum hennar við Palestínumenn. Á föstudag birtist í Stundinni grein eftir Nínu Hjálmarsdóttur, sviðslistakonu, listgagnrýnanda og framleiðanda, sem ber yfirskriftina: ,,Að eigna sér baráttu annarra - Hatari í Eurovision." Í greininni segist Nína meðal annars ekki efast um að meðlimir hljómsveitarinnar séu einlægir í stuðningi sínum við málstað Palestínu, en hún heldur því fram að með gjörningi sínum vinni þeir gegn málstaðnum, þeir eigni sér baráttu annarra. Og hún staðhæfir að mikill meirihluti Palestínumanna (rithöfundar, listamenn, menningarstofnanir meðtalin) líti svo á að það besta sem fólk og stofnanir frá öðrum þjóðum geti gert til að hjálpa, sé að sniðganga Ísrael, þar með talið menningarviðburði. Meðlimir Hatara hafa sagt að fráleitt sé að taka þátt í Söngvakeppni sem haldin er í ríki sem traðkar á mannréttindum, en úr því sem komið sé, verði Íslendingar að nýta dagskrárvald sitt til að vekja athygli á pólitísku inntaki keppninnar og framgöngu Ísraelsríkis. Í Lestinni í dag verður rætt við Þórunni Ólafsdóttur sem starfað hefur að mannúðarmálum í Palestínu og víðar, um ýmsar hliðar þessa flókna máls. Óskarsverðlaunin voru afhent Kaliforníu í nótt. Aldrei þessu vant var enginn kynnir á hátíðinni en að öðru leyti gekk lífið nokkurn veginn sinn vanagang; fötin voru fín, ræðurnar voru tilfinningaþrungnar og einhver datt af sviðinu. Lestin rennir í hápunkta Óskarsins með aðstoð Ingu Söru Guðmundsdóttur, Óskarssérfræðings Rúv Núll. Og ekkert lát virðist á vinsældum ofurhetja ýmiss konar en systkinin í The Umbrella Academy slá nýjan tón með því að setja fjölskylduerjur og systkinaríg í forgrunn í þessum skemmtilegu þáttum sem sýndir eru á Netflix. Áslaug Torfadóttir fjallar um The Umbrella Academy í Lestinni í dag.
Umsjón: Anna Marsibil Clausen og Eiríkur Guðmundsson.