Giacomo Leopardi var ítalskt ljóðskáld, ritgerðahöfundur og heimspekingur. Það er gjarnan talað um hann sem eitt af höfuðskáldum Ítala á 19. öld, og sagt að ekkert ítalskt skáld hafi verið jafn ástælt meðal þjóðar sinnar og Leopardi. Hann er kallaður skáld bölsýnisins, klökkvaskáld, enda myrkrið, nóttin, endalok, dauði og tilgangsleysi fyrirferðarmikil þemu í kvæðaskap hans og skrifum. Við æltum að fjalla um eina af ritgerðum hans í þætti dagsins, hún nefnist Samtal Náttúrunnar og Íslendingsins, og er að finna í þekktu Siðferðispistla-safni Leopardis. Ólafur Gíslason listfræðingur þýddi ritgerðina og hann verður gestur Lestarinnar í dag.
Tónlistarhátíðin Eurosonic fer fram í Groningen í Hollandi í næstu viku. Þetta er tónlistarráðstefna og hátíð þar sem helstu útvarpsstöðvar og fulltrúar tónlistarhátíða víðsvegar um Evrópu koma saman til að ráða ráðum sínum og kynnast nýrri og athyglisverðri tónlist frá hinum ýmsu evrópulöndum. Sigtryggur Baldursson er framkvæmdastjóri ÚTÓN - Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar - hann verður gestur okkar hér rétt á eftir.
Og tónlist kemur meira við sögu í þættinum í dag. Hljómsveitin Khruangbin er skipuð þeim Mark Speer, Lauru Lee, og Donald Johnson, hljóðfæraskipan er hefðbundin, gítar, bassi og trommur, en hljómsveitin er þó eins langt frá staðlaðri rokkhljómsveit og hugsast getur. Á plötunni Con Todo El Mundo leggja þau heiminn að fótum sér í útsýnisferð um exótískar strandir og eyðimerkur, og tilbiðja grúvið á öllum áningarstöðum. Davíð Roach Gunnarsson segir frá Khruangbin í Lestinni í dag.