Iðnsamfélagið og framtíð þess er viðfangsefnið á fyrstu breiðskífu ROHT sem kom út nú á dögunum. Tónlistin er hreinræktað iðnaðarpönk: hávær, skítug og illa þjökuð af samfélagslegri bölsýni og tilvistarangist. Sveitina skipa hjónin Þórir Georg og Júlía Aradóttir en þau hafa lengi verið virk á pönkjaðri Reykvísku tónlistarsenunnar. Hljómsveitin ROHT tekur sér far með Lestinni í dag.
Og í þættinum í dag verður einnig haldið áfram að fá fólk til mæla með bókum sem tala inn í okkar samtíma, með einum eða öðrum hætti, mæla með bókum sem við eigum að lesa hér og nú. Í dag er röðin komin að Fríðu Ísberg, rithöfundi, en hún mælir með bókinni The Brief and Frightening Reign of Phil eftir bandaríska rithöfundinn George Saunders.
Davíð Þór Katrínarson, sem kallar sig Svarta Laxness, var fenginn til að yrkja hátíðarljóð - fullveldisljóð, í tilefni af 100 ára afmæli fullveldisins. En hvernig fullveldi? Hvernig Ísland er það sem Svarti Laxness sér í ljóði sínu? Þórður Ingi Jónsson ræðir í þættinum í dag við Davíð Þór Katrínarson, leikara og rappara.
Og Áslaug Torfadóttir fjallar um sjónvarpsþættina Dietland.
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson.