Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Maríönnu Clöru Lúthersdóttur um kvennafrí, en stundvíslega klukkan 14:55 eru konur hvattar til að ganga úr vinnu og ganga síðan fylktu liði niður á Arnarhól þar sem haldinn verður samstöðufundur. Maríanna er verkefnisstjóri kvennafrís og segir frá í þættinum í dag.
Halldór Björnsson, veðurfræðingur, segir frá bók sem að hans mati á meira erindi við samtímann en aðrar bækur, bók sem við eigum að lesa hér og nú. Bókin sem hann velur er metsölubókin Sapiens, eftir ísraelska sagnfræðinginn Yuval Noah Harari, bók sem varpar áhugaverður og óvæntu ljósi á sögu mannkyns.
Við kíkjum á nýtt tónlistarmyndband með rapparanum Travis Scott, en myndbandið við Sicko Mode er ofhlaðið og gallsúrt ferðalag um heimaborg hans, Houston í Texas.
Og sjónvarpsþátturinn The Haunting of Hill House þykir ekki aðeins draugalegasti sjónvarpsþáttur ársins, heldur líka einn sá besti. Áslaug Torfadóttir hættir sér inn í Hill House í Lestinni í dag.
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson