Lestin

Lestin

Download on the App Store

Lestin episodes

  • Hraðlest: Leturhönnun, peningaseðlar, Klubhuis, maí 1968, Krókur
    Atli Bollason ræði í dag við Guðmund Úlfarsson. Guðmundur er grafískur hönnuður sem hannar meðal annars letur, en hann rekur letursmiðjuna OrType. Er leturhönnun vaxandi fag hér á landi? Heyrum af því nánar í þætti dagsins. Og við sögu í Hraðlest í dag kemur ABC Klubhuis í Antverpen, Krókur í Garðahverfi, Kristín Þorkelsdóttir, Stúdentaóeirðirnar í maí 1968, Karl Ólafur Hallbjörnsson og virk hlustun.
    57 min
  • Maí 1968, Kristín Þorkelsdóttir & peningaseðlarnir, Avengers: Infinity
    Fyrir nákvælega hálfri öld síðan, þann 3. maí árið 1968 hófust stúdentaóeirðirnar í París, mótmæli sem voru kröftug að Evrópa og heimskapítalisminn nötraði. Við heyrum í Einari Má Jónssyni sagnfræðingi sem var staddur í París þennan áhrifamikla mánuð fyrir fimmtíu árum síðan. „Nýr peningaseðill byrjar sem autt blað og endar sem flókin prentflétta með tiltekinni áferð. Hönnunin gengur út á að fólk átti sig á því að það er með verðmæti í höndunum og þekki seðilinn frá öðrum slíkum.“ Þetta segir Kristín Þorkelsdóttir, grafískur hönnuður og myndlistarmaður en hún hannaði meðal annars alla þá peningaseðla sem nú eru í umferð. Við heimsækjum listakonuna í þætti dagsins, skyggnumst meðal annars á bak við gerð peningaseðlanna. Gunnar Theodór Eggertsson skellti sér síðan í bíó og sá Avengers: Infinity Wars. Hann rýnir í nýjustu Marvel ofurhetjukvikmyndina í þætti dagsins.
    57 min
  • Þorgrímur Einarsson, ABC Klúbbhús, hljóðheimar og virk hlustun
    Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að myndlist og heimspeki. Lestin kíkir til Antverpen í Belgíu og heimsækir þar ABC klúbbhús, sýningarrými sem er rekið af sjö íslenskum listamönnum búsettum í borginni. Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli sínum í dag um hljóðheima og virka hlustun. Við heimsækjum einnig Þorgrím Andra Einarsson, myndlistarmann en hann opnar sýninguna ,,Hetjur og fjórfætlingar'' í Gallerí Fold á laugardaginn.
    Umsjónarmenn: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Kristján Guðjónsson
    57 min
  • Ljósmæður, Krókur í Garðahverfi,
    Lestin býður í dag velkomnar um borð tvær ljósmæður, en ljósmæður hafa sem kunnugt er átt í samningaviðræðum við ríkið sem staðið hafa í ríflega hálft ár. Fræðst verður um ljósmóðurstarfið í þætti dagsins, og leitað svara við þeirri spurningu, hvers vegna viðræðurnar hafa staðið yfir svo lengi sem raun ber vitni. Á Garðaholti í Garðabæ má enn í dag að finna gamla sveitabæi. Krókur, nefnist einn þeirra, og er hann tæplega hundrað ára gamall. Krókur er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem í dag er varðveittur sem safn. Lestin leit við og kynnti sér Krók. Í dag höldum við einnig til Lundúna þar sem við hittum rapparann og utangarðstónlistarmanninn Onoe Caponoe. Hann er eitt stærsta nafnið í neðanjarðarrappsenu Lundúna en hann er afar frumlegur, sérstakur og jafnvel vanmetinn tónlistarmaður þar í borg.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Hraðlest: Atli Bollason, dagur bókar, Högni, ADAM, Laxness, kynjuð mál
    Hraðlestin leggur af stað 17:03 og kemur að venju víða við. Í pistli dagsins leggur Atli Bollason út af laginu Glue með hljómsveitinni Bicep og spyr hvað hafi orðið af framtíðinni og voninni um betri heim. Á meðal annars efnis í þættinum í dag: Dagur bókarinnar, Högni Egilsson, kvikmyndarýni, Halldór Laxness og unga fólkið, plötubúðir, kynjuð málnotkun. Og Halldór Armand Ásgeirsson á næturklúbbi í Berlín.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • #Bergmálsklefinn, Jón Steingrímsson, Unknown Mortal Orchestra
    Efni Lestarinnar í dag: #Bergmálsklefinn er ný íslensk ópera um kynjahyggju og opinbert niðurrif á samfélagsmiðlum. Bergmálsklefinn segir sögu fjögurra einstaklinga og frá upplifun þeirra af Twitter; áhorfendum er því dýft ofan í margbreytilegan, fyndinn, dimman og oft absúrd heim samfélagsmiðla þar sem ferhyrnt tjáning hugsana er í formi 140 stafa. Ingunn Lára Kristjánsdóttir, leikstjóri og höfundur verksins, og Ísabella Leifsdóttir, söngkona og framleiðandi Bergmálsklefans, verða gestir Lestarinnar í dag. Einnig verður rætt Ófeig Sigurðsson rithöfund um Jón Steingrímsson eldklerk, en Ófeigur fjallar um hann og skáldsögu sína, Jón, frá árinu 2010, á málþingi sem Félag um átjándu aldar fræði heldur á laugardag undir yfirskriftinni Af sögulegum skáldsögum sem gerast á átjándu og nítjándu öld. Og Léttfönkaða nýsjálenska síkadelísveitin Unknown Mortal Orchestra gerir út frá hipster-höfuðborginni Portland og var að gefa út sína fjórðu breiðskífu á dögunum, plötu sem ber hinn óflúraða grunnþarfatitil Sex & Food. Davíð Roach Gunnarsson rýnir í plötuna og rekur sögu sveitarinnar í Lestarferð dagsins.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Halldór Laxness í framhaldsskólum, kynjun orða, Zgjim Elshani
    Efni Lestarinnar í dag: Spurt verður að gefnu tilefni hvort unglingar séu hættir að lesa skáldverk Halldórs Laxness sér til gagns og gamans. Rætt verður við Guðbjörn Sigurmundsson framhaldsskólakennara, og Halldór Guðmundsson, ævisöguritara Laxness. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson og Eydís Blöndal ljóðskáld velta fyrir sér kynjun orða og máltilfinningu.Og góð tónlist getur fundið hljómgrunn hvar sem er. Tónlistarstefnan grime, hinn grjótharði breski skóli í rappi, hefur ferðast alla leið til Kósóvó og í þættinum dag verður rætt við taktsmiðinn Zgjim Elshani frá Prishtinu. Hann hefur vakið athygli í grime-senunni, en hann var að gefa út fyrstu smáskífu sína sem nefnist The Prishtina EP. Ljóðlist eftir Marianne Moore verður einnig flutt.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Hljómplötuverslanir, Fringe Festival, næturklúbbar, nornir, Markús
    Í Lestinni í dag verður meðal annars sagt frá alþjóðlegu fjöllistahátiðinni Reykjavík Fringe Festival sem haldin verður í fyrsta sinn í Reykjavík í sumar. Markús Bjarnason tekur sér far með Lestinni í dag og segir frá nýju lagi en hann fagnar útgáfu þess með tónleikum á Húrra á morgun, ásamt alkemistunum. Tómas Ævar Ólafsson hugar að degi hljómplötuverslanna sem haldinn var hátíðlegur um helgina. Og Halldór Armand Ásgeirsson flytur pistil, og fjallar í dag um samband næturklúbba og guðsríkis og spyr hvort við viljum öll innst inni láta dæma okkur. Og það er alþjóðlegur dagur norna, eða hvað?
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Dagur bókarinnar, Kringlan, Adam, The Death of Stalin
    Efni Lestarinnar í dag: Högni Egilsson tónlistarmaður kemur í heimsókn, sest við flygilinn, og frumflytur splúnkunýtt lag við ljóð eftir Halldór Laxness, en í dag er afmælisdagur skáldsins, og dagur bókarinnar. Högni mun síðan koma fram á Gljúfrasteini í kvöld, í tilefni dagsins. Við förum síðan í Kringluna og ræðum við fólk um lestraráhuga. Gunnar Theodór Eggertsson fjallar í dag um tvær kvikmyndir, íslensku kvikmyndina Adam eftir Maríu Sólrúnu og The Death of Stalin eftir skoska leikstjórann Armando Iannucci. Og góð tónlist getur fundið hljómgrunn hvar sem er. Og
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Hraðlest: Atli Bollason, Boards of Canada, Jung, Forman, fleira
    Lestin leggur af stað 17:03. ,,Það var logið að okkur," segir Atli Bollason í pistli dagsins sem fjallar um það hvernig við Íslendingar höfum verið sviknir um sumarið sem poppmenningin lofaði okkur. Í dag eru tuttugu ár upp á dag liðin síðan að skoski bræðradúettinn Boards of Canada breytti landslagi rafrænnar tónlistar til frambúðar. Music Has The Right to Children kom út 20. apríl 1998 og Davíð Roach Gunnarsson rifjar upp töfrana og fegurðina sem geislar ennþá frá þeirri frábæru skífu. Og við sögu í Hraðlest í dag kemur Rauða bókin eftir Carl Gustvav Jung, Milos Forman, tónlistarmaðurinn Indriði, draumapopp og eflaust sitthvað fleira.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min

About Lestin

From the publisher's feed

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

More shows like Lestin

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

214 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners