Lestin

Lestin

Download on the App Store

Lestin episodes

  • Skjaldborg, Söngur Kanemu, Guernica
    Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að kvikmyndum og myndlist. Halldór Armand Ásgeirsson fjallar í pistli sínum um nýja bóka sem fjallar um Guernica eftir Picasso. Við förum síðan til Patreksfjarðar en um helgina fór þar fram Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildarmynda. Við fræðumst um Skjaldborgarbíó í þætti dagsins, og fræðumts nánar um myndina Söngur Kanemu eftir Önnu Þóru Sigþórsdóttur en hún vann bæði áhorfenda- og dómnefndarverðlaun Skjaldborgar í ár.
    57 min
  • Hraðlest & Ísrael - 12 stig
    Eiga Íslendingar að sniðganga Júróvisjón á næsta ári? Í pistli dagsins rýnir Atli Bollason í skilaboð ísraelsku söngkonunnar Nettu, sem fór með sigur af hólmi í Júróvisjón síðustu helgi, í ljósi ofbeldisins á Gaza undanfarnar vikur. Leiðarlýsing hraðlestarinar í dag hljóðar nokkurn veginn svona: Stjarnfræðilegur satanismi, Þögnin, nýblaðamennska og Tom Wolfe, Réttararkitektúr, vangaveltur um pítsur, utangarðslistakonan Maude Lewis, Þjóðlegur hryllingur, Gianni Versace, Vargur og Yanni eða Laurel.
    57 min
  • Tom Wolfe, Kaupa dót, Yanni eða Laurel, Chrome Sparks, Murder Mag
    Súrt íslenskt grín, nýblaðamennska, Yanni eða Laurel, morðtímarit og ný raftónlist - einhvern veginn svona hljóðar leiðarlýsing dagsins. „Besta vopn blaðamannsins er það sem ég kalla upplýsingaráráttu. Fólk vill nefnilega ólmt segja þér frá einhverju sem þú veist ekki - Þannig öðlast það eins konar yfirburðarstöðu“. Þetta sagði bandaríski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Tom Wolfe, en upplýsingarárátta er meðal fjölda hugtaka sem hann fann upp á á ferlinum. Hann er einn þeirra sem tilheyrðu og skrifuðu undir merkjum nýblaðamennsku eða New Journalist. Wolfe, lést fyrr í vikunni, 88 ára að aldri - við minnumst hans hér í Lestinni í dag. Heimildamaður okkar verður Jóhannes Ólafsson, dagskrárgerðarmaður á RÚV. Kaupa dót eru stuttir grínþættir sem eru aðgengilegir á Facebook. Þetta er að öllum líkindum súrasta íslenska grínið á internetinu í dag. Maðurinn á bak við þættina, Tumi Björnsson, fær far með Lestinni í dag. Annað tölublað morðtímaritsins, eða Murder Magazine, kom út á dögunum. Þemað að þessu sinni er: Erótík og kerfi. Við fræðumst nánar um blaðið hér á eftir. Annar listrænna stjórnenda þess, Bergrún Anna Hallsteinsdóttir, segir frá. Í vikunni hafa netverjar deilt um hvort nafnið, Yanni eða Laurel, heyrist í stuttri hljóðklippu sem farið hefur manna á milli á samfélagsmiðlum. Í þætti dagsins veltum við fyrir okkur hvað deilan segir okkur um stöðu mannsins í alheiminum, og allt það sem liggur mögulega utan skynsviðs okkar. Á dögunum kom út fyrsta LP-plata Brooklyn-búans Jeremy Malvin sem framleiðir raftónlist undir listamannsnafninu Chrome Sparks. Á skífunni sem er samnefnd verkefninu, er að finna ofgnótt hugmynda og einstakan bræðing hins lífræna, stafræna og hliðræna.
    57 min
  • Þögn, Maud Lewis, Gianni Versace, pítsur
    Nútímamaðurinn býr við meira áreiti en nokkur skepna í jarðsögunni og upplifir æ sjaldnar algjöra þögn. Þróunarlíffræðingar hafa bent á að heili mannskepnunnar sé hreinlega ekki fær um að takast á við slíkt yfirflæði upplýsinga. Þagnarathvörf og kyrrðarvökur, þar sem fólk kemur saman og þegir, njóta því sífellt meiri vinsælda í dag. Rætt verður við Ástu Arnadóttur, jógakennara, sem hefur stundað og staðið fyrir kyrrðarvökum í tvo áratugi. Og við rýnum í naíf, tvívíð málverk kanadísku utangarðslistakonunnar Maud Lewis í þætti dagsins, en vinsældir hennar náðu nýjum hæðum þegar út kom ævisöguleg kvikmynd um listakonuna á síðasta ári. Morðið á ítalska fatahönnuðinum Gianni Versace vakti heimsathygli árið 1997 en hann var myrtur fyrir utan heimili sitt í Miami af ókunnugum manni. Nú hefur ofurframleiðandinn Ryan Murphy gert leikna þáttaröð um atburðina sem leiddu að morðinu. Áslaug Torfadóttir skoðar málið í þætti dagsins. „Fyrir mörgum er pítsan sérstakt hugðarefni og jafnvel nokkurs konar þráhyggja. Í dag er ekki óalgengt að fjárfesta í pítsustein eða stáli eða rækta súrdeigsmóður sérstaklega fyrir pítsudeigið eða að panta sérstaka tómata beint frá Ítalíu og up að dyrum o.s.frv“ Tómas Ævar Ólafsson veltir fyrir sér hvað góð pítsla þarf að uppfylla? Hann spyr: Hver er munurinn á venjulegri pítsu og ekta pítsu? Hann hringir til Ítalíu og ræðir við mann sem þekkir góðar pítsur.
    57 min
  • Þjóðlegur hryllingur, arkitektúr, Isle of Games, Ikea
    Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að hugtakinu ,,folk horror'', samsuðu tölvuleikja og lista, arkitektúr sem meðal annars varpar ljósi á óleysta glæpi. Notkun á hugtakinu “folk horror“ hefur færst í aukana í heimi hryllingsmyndanna á seinustu árum en það mætti útleggjast sem þjóðlegur hryllingur. Um er að ræða myndir sem sækja innblástur í heiðin sagnamynni Evrópu og galdrafár miðalda. Í dag skoðum við nokkrar helstu myndir stefnunnar og ræðum stuttlega við leikstjórann Hrafn Gunnlaugsson en kvikmynd hans Myrkrahöfðinginn gæti fallið undir þessa stefnu. Isle of Games er leikjahátíð sem beinir sjónum sínum að sambandi leikja og lista í samtímanum. Hátíðin verður haldin í Iðnó næstkomandi föstudag, þar mun gestum gefast tækifæri á að upplifa nýja hlið á tölvuleikjum sem ekki hafa áður verið til sýnis á Íslandi. Á bak við hátíðina stendur fjölbreyttur hópur af bæði fag- og áhugafólki um listir, tölvuleiki og menningarlegt gildi þeirra. Einn þeirra, Sigursteinn Jóhannes Gunnarsson, verður gestur okkar í þætti dagsins. Getur arkitektúr gagnast við að varpa ljósi á óleysta glæpi og mannréttindabrot? Það er sannfæring bresku rannsóknarstofnunarinnar Forensic Architecture, en þar koma saman arkitektar, fræðimenn og rannsóknarblaðamenn og beita hinum ýmsu verkfærum byggingarlistarinnar til að rannsaka möguleg mannréttindabrot stjórnvalda, vopnuð átök og umhverfisglæpi. Stofnunin var nýlega tilnefnd til hinna bresku Turner-myndlistarverðlauna, og að því tilefni verður rætt við einn meðlim stofnunarinnar, arkitektinn Stefán Laxness. Og Halldór Armand Ásgeirsson flytur að vanda pistil hjá okkur á þriðjudegi.
    57 min
  • Eurovision & stjórnmál, Vargur, svartmálmur
    Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að nýrri íslenskri kvikmynd, Eurovision og svartmálmi. Framlag Ísraels vann Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í ár. Í kjölfar hefur sprottið upp umræða um pólitísk áhrif keppninnar og spyrjum við því í þætti dagsins:,,Er hægt að aðskilja skemmtanagildi keppninnar og pólitík?''. Heimildamenn okkar verða Vera Illugadóttir, dagskrárgerðakona á Rás 1, og Laufey Helga Guðmundsdóttir, ritari Félags Áhugamanna um Söngvakeppi Tónlistarmenn tengdir íslensku svartmálmsútgáfunni Vánagandr voru nýlega beðnir um að semja og flytja nýtt tónverk á hinni virtu öfgarokkhátíð Roadburn Festival í Hollandi. Í Lestinni verður rætt við forsprakka hópsins um Sól án varma, sjötíu mínútna myrkraverk þar sem tekist er á við klassísk svartmálmsþemu, hið illa og djöfullega, en á stjarnfræðilegum skala. Og Gunnar Theodór Eggertsson fjallar um tvær nýjar myndir, You were never really here, og íslensku spennumyndina Vargur eftir Börk Sigþórsson.
    57 min
  • Menningarmarxísmi, Skjaldborg, pottaplöntur,
    Eftir tæpa tíu daga hefst hátíð íslenskra heimildamynda - Skjaldborg á Patreksfirði. Þær Helga Rakel Rafnsdóttir og Halla Kristín Einarsdóttir, skipuleggjendur hátíðarinnar, verða gestir okkar í þætti dagsins. Pottaplöntur njóta sífellt meiri vinsælda í innanhúshönnun, þær lífga upp á heimilið eða vinnustaðinn, bæta andrúmsloftið og eru einstaklega instagram-vænar. Fyrir marga borgarbúa samtímans, og ekki síst þá sem eru af þúsaldarkynslóðinni, eru pottaplöntur sú náttúra sem þeir eiga í hvað nánasta samlífinu með. Loji Höskuldsson er einn þeirra myndlistarmanna sem hefur tekist á við þessa nýju náttúruskynjun í verkum sínum. Við ræðum við Loja um pottaplöntur, garða og tilbúna náttúru. Í pistli sínum fjallar Karl Ólafur Hallbjörnsson um hugtakið "menningarmarxisma" og almenna notkun þess í pólitískri orðræðu, ekki síst eins og hún birtist á netinu.
    57 min
  • Met Gala, klifur, ný en gömul skyrta, systir Irene O'Connor
    Í huga áhugafólks um tísku er fyrsti mánudagurinn í maí heilagur, enda fer þá fram Met Gala-viðburðurinn í New York borg. Við rýnum í viðburðinn í þætti dagsins. Heimildamaður okkur verður Álfrún Pálsdóttir, ritstjóri Glamour. Klifur er ört vaxandi íþróttagrein hér á landi sem víðar. Þar er tekist á við þverhnípta klettaveggi með líkamsstyrkinn einan að vopni. en hvað er það sem drífur manneskjuna áfram upp brattann, stöðugt lengra og hærra? Í þætti dagsins veltum við fyrir okkur tilhneigingu mannsins til að gera sér leik úr hættulegustu hliðum náttúrunnar. Eftir slétta tíu daga hefst hátíð íslenskra heimildamynda - Skjaldborg á Patreksfirði. Þær Helga Rakel Rafnsdóttir og Halla Kristín Einarsdóttir, skipuleggjendur hátíðarinnar, verða gestir okkar í þætti dagsins. Og Halldór Amand Ásgeirsson er að vanda með pistil hjá okkur á þriðjudegi. Í dag fjallar hann um gamla nýja skyrtu. Platan Fire of God's Love kom út í Bandaríkjunum og Ástralíu árið 1976 en vakti litla sem enga athygli á þeim tíma. Platan er fyrir margar sakir sérstök, en að baki hennar standa tvær nunnur - systir Irene O'Connor og systir Marimil Lobregat. Við rifjum upp plötuna í þætti dagsins
    57 min
  • Eve Online, innflytjendur í íslenskum bókmenntum, Atlanta & Childish G
    Vinátta og traust innan sýndarheims, innflytjendur í íslenskum skáldsögum og lífið í Suðurríkjum Bandaríkjanna - einhvern veginn svona hljóðar leiðarlýsing Lestarinnar í dag. Sjónvarpsþættirnir Atlanta gerast í Atlanta í Georgíu og fjalla um daglegt líf Earn og vina hans sem reyna að ná endum saman. Áslaug Torfadóttir kíkti á lífið í Suðurríkjunum. Rætt verður einnig um nýtt lag og tónlistarmyndband Childish Gambino, This Is America. Leikstjórinn Jón Bjarki Magnússon er verðlaunaður blaðamaður, skáld og rithöfundur. Hann hefur unnið sem blaðamaður á DV, Stundinni og þýska rannsóknarmiðlinum Correctiv ásamt því að hafa gefið út ljóðabókina Lömbin í Kambódíu (og þú). Um þessar mundir eru það þó heimildarmyndir sem eiga hug hans og hjarta, en hans fyrsta stuttheimildarmynd, Even Astroids Are Not Alone, var frumsýnd á heimildarmyndahátíðinni Ethnocineca í Vín um helgina. Myndin fjallar um vináttu og traust innan íslenska fjölspilunartölvuleiksins EVE Online. Við fræðumst nánar um myndina í þætti dagsins. Hvernig tala innflytjendur í íslenskum skáldsögum? Tala þeir málfræðilega rétt, með þykkum áberandi hreim eða tala þeir bara ekki yfirhöfuð? Þetta hefur Sólveig Ásta Sigurðardóttir, dotorsnemi við Rice-háskóla í Texas, rannsakað og flutti fyrirlestur um efnið í Gerðubergi í síðustu viku. Sólveig tók sér far með lestinni og ræddi um birtingarmyndir innflytjenda í nokkrum íslenskum skáldsögum, hvernig þeir eru sýndir og hvernig þeir tala.
    57 min

About Lestin

From the publisher's feed

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

More shows like Lestin

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

214 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners