Lestin

Lestin

Download on the App Store

Lestin episodes

  • Beyoncé & Jay Z á Louvre, XXXTentacion, hrun í Hörpu og náttúruvín
    Tónlistahjónin Beyoncé og Jay Z læddust heldur betur upp að heiminum um helgina, eins og venjan er orðin í tónlistarheimi samtímans. Þau gáfu út sameiginlega 9 laga plötu undir listamannaheitinu The Carters og er það fyrsta platan sem þau gefa út í heild. Um helgina frumsýndu þau nýtt tónlistarmyndband við lagið heitir Apeshit og myndbandið heldur betur eitthvað fyrir augað en myndbandið er tekið upp á hinu víðfræga Louvre safni í París. Í Lestinni í dag rýnum við í nýtt tónlistarmyndband hjónanna Beyoncé og Jay Z og sláum á þráðinn til Æsu Sigurjónsdóttur, dósent í listfræði við Háskóla Íslands um þetta listræna myndband.
    Rapparinn XXXtentacion var skotinn til bana í Florida á mánudag, aðeins 20 ára að aldri. Hann var ein skærasta stjarna hinnar svokölluðu Soundcloud-rappsenu - ágengrar, lyfjaðrar og tilfinningaþrunginnar jaðarrapptónlistar. Það sem spilaði þó ekki síður hlutverk í frægð rapparans var ótrúleg hegðun hans, vímuefnaneysla, geðsjúkdómar og ógeðfellt ofbeldi sem hann var sekur um. Við ræðum við Þórð Inga Jónsson, tónlistarmann, um stuttan og stormasaman feril XXXtentacion.
    Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur sinn vikulega pistil. Í dag rifjar Halldór upp atburðarásina í Hörpu í maí og hvernig hinn heilagi andi efnahagshrunsins lifir ennþá góðu lífi.
    Náttúruvín eru nýjasta tíska meðal fagurkera sem vilja gera vel við sig í mat og drykk. Í hugum margra þeirra markar náttúruvín afturhvarf til víngerðar eins og hún var stunduð um árþúsundir áður en hún úrkynjaðist um miðja síðustu öld, þegar víngerð fór að verða stöðluð og menn tóku að bæta við ýmsu aukaefnum til að ná sem mestri stjórn á afurðinni. Náttúruvín bjóða þessari hefð birginn og það hefur vakið úlfúð. Þetta er jú ekki bara meinlaus spurning um smekk, heldur stríðsyfirlýsing á hendur víniðnaðar sem lýtur ströngum reglugerðum og veltir mörghundruð milljörðum króna á ári hverju í skjóli þeirra. Hafa talsmenn náttúruvína eitthvað til síns máls eða eru berin bara súr? Við spáum í hinar nýju þrúgur reiðinnar í þættinum í dag.
    57 min
  • Rappráðstefna í Veröld, The Alienist og Fjallkonan í dragi
    Í tilefni af 100 ára afmæli fullveldis Íslands var efnt til ráðstefnu um rapp og hipp hopp í Veröld - húsi Vigdísar. Þar var fjallað um rapp sem listform og danskir og íslenskir listamenn munu koma fram. Ráðstefnan breyttist síðan í tónleika þar sem bæði íslenskir og danskir rapparar tróðu upp. Við segjum örlítið frá efni fundarins og veltum fyrir okkur íslensku rappi, hvað eru íslenskir rapparar að segja?
    The Alienist eru nýir spennuþættir sem gerast í New York um aldamótin 1900 þar sem sturlaður raðmorðingi gengur laus. Áslaug Torfadóttir hætti sér í heimsókn og rýnir í þættina í dag.
    Þjóðhátíðardagur Íslendinga, 17. júní, var í gær. Hátíðarhöld fóru fram um land allt venju samkvæmt og rigningin buldi að hefðbundnum sið. Á Austurvelli voru ræður í pontu, skátar báru fána, Jón Sigurðsson hylltur og Fjallkona klæddi sig skautbúningi og flutti ljóð - Sigrún Edda Björnsdóttir flutti ljóð eftir Lindu Viljhjálmsdóttur. Fjallkonan var þó ekki ein. Í fyrsta sinn í sögunni voru fjallkonurnar í hátíðarhöldum í Reykjavík tvær talsins og önnur þeirra var í dragi. Dragdrottningin Gógó Starr segir langþráðan draum hafa ræst þegar hún brá sér í hlutverk fjallkonunnar og leiddi skrúðgöngu niður í Hljómskálagarðinn. Gógó Starr er gestur Lestarinnar í dag.
    57 min
  • Hraðlest:
    Beðmál í borginni, Anthony Bourdain, Arrested Development, drengur með hjálm, Chanel Monet, Erna Hlöðversdóttir, Glenn Branca, Snorri Hallgrímsson, Kids see ghosts og pólitískur margbreytileiki.
    Það er HM, augu heimsins beinast að Rússlandi. Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur kemur inn á sérstaklega í tilefni mótsins og fjallar í pistli sínum um ofmetna hæfileika leikmanna og mikilvægi góðra ákvarðanna.
    57 min
  • Harlem endurreisnin, Kanye West & Kid Cudi, drengur með hjálm.
    Harlem endurreisnin í Bandaríkjunum var pólitísk og félagsleg hreyfing sem hófst á 3. áratug 20. aldar. Þetta var stór og áhrifamikil listahreyfing; rithöfundar, tónlistarmenn og aðrir listamenn af afrísk-amerískum uppruna spruttu fram og tjáðu og túlkuðu breytta stöðu svartra með sínum eigin hætti. Við rifjum upp umfjöllun Lestarinnar um þetta merkilega tímabil með Hólmfríði Garðarsdóttur, prófessor í spænsku við Háskóla Íslands. Í síðustu viku kryfjaði Davíð Roach Gunnarsson tvær fyrstu af þeim fimm plötum sem ódæli snillingurinn Kanye West hefur dundað sér við að taka upp á búgarði sínum í Wyoming og koma út með viku millibili um þessar muyndir. Í dag rýnir hann í þriðju plötuna sem kom út í síðustu viku, samstarfsverkefni Kanye og Kid Cudi; Kids See Ghosts. Síðastliðinn sunnudag var bein útsending hér á Rás 1 af fjölum Tjarnarbíós þar sem verkið Hjálmurinn flutt, en verkið var hluti af Listahátíð. Hjálmurinn er eftir rithöfundinn Finn-Ole Heinrich og textanum fylgir tónlist eftir nútímatónskáldið Söruh Nem tsov. Sagan fjallar um lítinn dreng með hjálm og frásögn hans af því hvernig það kom til að hann fór að ganga með hjálm til. Á sviðinu í Tjarnarbíó var hljómsveitin Adapter og sögumaður verksins var Guðmundur Felixson. Guðmundur var gestur lestarinnar.
    57 min
  • Janelle Mone & vélmenni, líkamleiki, Snorri Hallgrímsson
    Snorri Hallgrímsson, tónskáld og framleiðandi, gefur frá sér sína fyrstu sóló breiðskífu á föstudaginn. Þó platan sé hans fyrsta þá hefur tónlist hans slípast í gegnum margra ára reynslu af kvikmyndatónsmíðum. Snorri er gestur okkar í þætti dagsins. Þarf lífvera að vera mennsk til að njóta réttinda? Hvers konar réttindi fylgja meðvituðum smíðisgripum mannsins á borð við gervigreind, klónað fólk og vélmenni? Í Metropolis seríu sinni glímir tónlistarkonan Janelle Monáe við réttindamál vélmenna í martraðarkenndri framtíðarsýn. Og við höldum áfram hugleiða um mannslíkamann, en í pistli sínum í dag fjallar Karl Ólafur Hallbjörnsson um líkamleika og miðlun samfélagslegra sýndarmynda. Hann spyr: Hvernig lærum við að skilja líkamann gegnum samfélagsmiðla?
    57 min
  • Sex and the City, Singapúr og sokkar, Glenn Branca
    Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að menningarfyrirbæri sem á um
    þessar mundir 20 ára útgáfuafmæli, einnig verður hugað að bandarísku tónskáldi
    sem lést fyrir rúmum mánuði, og fundi alþjóðlegra leiðtoga sem fór fram í nótt að
    íslenskum tíma. Nú eru tuttugu ár frá því sjónvarpsþættirnir, og menningarfyrirbærið, Sex and the
    City, eða Beðmál í borginni, hófu göngu sína. Við rifjum upp þættina í dag og
    spyrjum: Eiga þeir erindi í okkar samtíma? Heimildarmenn okkar verða Alexandra
    Ýr van Erven og Hrefna Björg Gylfadóttir. Í pistli sínum í dag fjallar Halldór Armand Ásgeirsson um leiðtogafundinn í
    Singapúr og flugvélar fullar af sokkum. Þórður Ingi Jónsson fer síðan yfir ævi og feril bandaríska tónskáldsins Glenn
    Branca en hann lést úr krabbameini í hálsi í maímánuði, 69 ára að aldri. Branca
    spilaði lykilrullu í hinni svokölluðu no wave listasenu sem spratt upp í New York
    seint á áttunda áratugnum og var þekktur fyrir drunandi gítarorkestrur þar sem
    hann ýtti hljóðfærinu að ystu mörkum.
    57 min
  • Pólitískur margbreytileiki, kjólar, Arrested Development
    Í lestinni í dag verður meðal annars hugað að kjólum, nýjum en þó gömlum sjónvarpsþáttum og fjölmenningarlegum marbreytileika.
    Gamanþættirnir Arrested Development voru fyrst sýndir árið 2003 og gengu á sjónvarpsstöðinni Fox í þrjár þáttaraðir. Þrátt fyrir að vera vinsælir meðal gangrýnenda var áhorf á þá lítið og því ákvað Fox að taka þá af dagskrá. Þættirnir áttu sér þó alltaf gallharða aðdáendur og sífelt fjölgaði í þeim hópi eftir því sem fleiri uppgötvuðu þá og öðluðust þeir fljótt költ-status sem einhverjir bestu gamanþættir sögunnar. Netflix gerði samning um framleiðslu á þáttunum árið 2013 og hefur streymisveitan nú gefið út tvær þáttarraðir. Áslaug Torfadóttir, sjónvarpsrýnir Lestarinnar, rýnir í nýjustu þáttaröðina, þá fimmtu, sem frumsýnd var á dögunum.
    Einn af af hverjum tíu íbúum Íslands í dag er innflytjandi, aðfluttur Íslendingur. Íslensk stjórnmál og valdastofnanir landsins eru þó ekki enn farnar að sýna slíkan fjölmenningarlegan margbreytileika. Við ræðum við Guðrúnu Lindu Rafnsdóttur, sem hefur rannsakað upplifun innflytjenda af aðgengi sínu og áhrifum á íslenskt samfélag. En niðurstöður rannsókna hennar geta kannski vísað okkur veginn í því hvernig við tryggjum sem flestum íbúum landsins aðgengi að valdinu. Og við heimsækjum einnig Ernu Hlöðversdóttur, sem opnaði um helgina sína fyrstu einkasýningu í Kirsuberjatrénu. Á sýningunni má sjá skúlptúra af kjólum í hinum ýmsu stærðum og gerðum. Erna segir okkur frá blæti sínu fyrir kjólum, ástríðu á pappamassa og tengslum milli hjúkrunarfræði og listar, en hún hefur nýverið lokið störfum sem hjúkrunarfræðingur.
    57 min
  • Hraðlest:
    Við sögu í Hraðlest í dag kemur meðal annars frímerkjasöfnun, sjónvarpsþátturinn Killing Eve, umdeild auglýsingamynd, náttúruást, bullstörf, vinsælasti tölvuleikur heims, minningar úr síðari heimsstyrjöldinni og pólitískur djass
    57 min
  • Jordan Peterson, safnarasýng, Pusha T og Kanye West
    Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að nýrri tónlist, frímerkjum og umdeildum kenningum Jordans Peterson. Við kíkjum á verðmæt frímerki og ýmiskonar söfn í þætti dagsins. Norræna safnarasýningin Nordia 2018 fer fram í TM-höllinni í Garðabæ um helgina, en sýningin er stærsti viðburður norrænna frímerkjasafnara á árinu. Við röltum um sýninguna með Sigurði R. Péturssyni, safnara og formann sýningarnefndar. Karl Ólafur Hallbjörnsson fór á fyrirlestur kanadíska sálfræðingsins Jordan Peterson í vikunni og í pistli dagsins veltir hann fyrir sér kenningum og vinsældum þessa gríðarlega umdeilda höfundar. Davíð Roach Gunnarsson rýnir síðan í nýjustu plötu Pusha T.
    57 min
  • Stríðsminningar, kaldhæðni og vinsælasti tölvuleikur heims
    Stríðsminningar, vinsælasti tölvuleikur heims og kaldhæðni sem lífstíll. Þannig hljómar leiðarlýsing lestarinnar í dag. Hinn litríki og líflegi fjölspilunar-skotleikur Fortnite: Battle Royal er einn allra vinsælasti tölvuleikur heims um þessar mundir. Hann virðist höfða sérstaklega til barna og ungmenna, og ólíkt flestum slíkum leikjum er hann ekki síður vinsæll hjá stelpum en strákum. Við ræðum við Bjarka Þór Jónsson, ritstjóra tölvuleikjavefsins Nörd norðursins, um gríðarlegar vinsældir Fortnite. Katrín Ólafsdóttir Mixa bjó í Austrurríki á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar. Árið 1947 gaf hún út endurminningar sínar í bók sem nefnist Liðnir dagar. Bókin er eins konar dagbók sem Katrín hélt úti á meðan stríðinu stóð. Þar lýsir hún hversdagslegu lífi á tímum síendurtekinna loftárása, óvissu og óöryggis, glundroða, flótta og tvístrunar fjölskyldu og vina. Sonur hennar, Ólafur Mixa, gegnir veigamiklu hlutverki í bókinni. Við heimsækjum Ólaf í þætti dagsins og fræðumst nánar um Liðna daga. Og við rifjum upp pistil Karls Ólafs Hallbjörnssonar, þar sem hann velti fyrir sér kaldhæðni, hreinskilni og fjarlægð.
    57 min

About Lestin

From the publisher's feed

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

More shows like Lestin

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

214 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners