Lestin

Lestin

Download on the App Store

Lestin episodes

  • Carl Jung & Rauða bókin, kynjuð málnotkun, hvalveiðar, draumapopp
    Efni Lestarinnar í dag: Rauða bókin er ferðalag eins merkasta geðlæknis 20. aldarinnar um eigin dulvitund. Rauða bókin er skrautskrifuð og myndskreytt bók sem Carl Gustav Jung dundaði sér við í 16 ár á fyrri hluta síðustu aldar. Lestin skoðar athyglisverða sögu ritsins í þætti dagsins. Heimildarmaður þáttarins verður Hallfríður J. Ragnheiðardóttir, sem þekkir vel til verka Jungs. Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli dagsins að gefnu tilefni um kynjaða málnotkun og tvíræðni orðsins ,,maður." Og hvalveiðar koma við sögu að gefnu tilefni í Lestinni í dag sem og besta draumapopp-plata allra tíma að mati bandaríska veftímaritsins Pitchfork.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Ölvis, Zuckerberg, A Quiet Place, Ghost Story, Kendrick Lamar
    Efni Lestarinnar í dag: Bandaríski rapparinn Kendrick Lamar kemur við sögu í þættinum í dag en tilkynnt var í gær að hann fengi hin virtu Pulitzer-verðlaun fyrir plötu sína Damn, sem kom út á síðasta ári. Einnig verður rætt við tónlistarmanninn Örlyg Þór Örlygsson sem kemur fram undir listamannsheitinu Ölvis. Gunnar Theodór Eggertsson fjallar um kvikmyndirnar A Quiet Place eftir bandaríska leikstjórann John Krasinski og Ghost Story eftir bandaríska leikstjórann David Lowery. Og Halldór Armand Ásgeirsson fjallar í pistli dagsins um gamla dagbókarfærslu og Zuckerberg í ameríska þinginu.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Milos Forman, Indriði, Cult
    Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um tékkneska kvikmyndleikstjórann Milos Forman sem andaðist á föstudag, 86 ára gamall. Forman átti að baki langan og glæsilegan feril og var margverðlaunaður, höfundur mynda á borð við Árshátíð slökkviliðsmannanna, Gaukshreiðrið og Amadeus. American Horror Story hefur hrætt líftóruna úr áhorfendum síðastliðin 6 ár. Útgáfufyrirtækið figureight hefur nú tilkynnt um fyrstu útgáfu ársins; ding ding með Indriða sem kemur út 18. maí næstkomandi. Indriði (Ingólfsson) hefur komið víða við í íslensku tónlistarlífi, hefur meðal annars gert garðinn frægann með hávaðarokksveitinni Muck, auk þess sem hann er menntaður myndlistamaður frá LHÍ, og hefur tekið þátt í hinum ýmsu gjörningum. Indriði verður gestur Lestarinnar í dag. Og nýjasta þáttaröðin American Horror Story: Cult þykir ein sú óhugnalegasta til þessa. Áslaug Torfadóttir skoðar í dag ástæðuna fyrir því.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Arcade Fire & Nick Cave
    Lestin í dag er að miklu leyti helguð kanadísku hljómsveitinni Arcade Fire sem heldur tónleika í Laugardalshöll þann 21. ágúst næstkomandi. Rætt verður við Þorstein Stephensen tónleikahaldara, Óla Dóra og Dönu Rún Hákonardóttur, og Davíð Roach Gunnarsson fjallar um sögu hljómsveitarinnar sem er eins sú virtasta í heiminum í dag. Einnig verður í Lestinni í dag hugað að öðrum tónleikum, með ástralska tónlistarmanninum Nick Cave og hljómsveit hans, The Bad seeds, í Kaupmannhöfn, en sýnt verður frá þessum tónleikum í bíóhúsum um allan heim, og meðal annars í Bíóparadís.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Ættfræði, Rakel Tómas, samkynjun, þrá
    Lestin brunar í dag meðal annars vestur í Skerjafjörð og heimsækir ættfræðiþjónustuna ORG, rætt verður þar við Odd F. Helgason um ættfræði og gagnagrunna. Fyrsta einkasýning listakonunnar Rakelar Tómasdóttur verður opnuð í Norr11 á morgun. Rakel verður tekin tali í þætti dagsins. Nína Richter var fjórtán ára þegar hún áttaði sig á því að ekki allir upplifðu persónur, tölur og bókstafi með skýrum og afmörkuðum einkennislit. Samskynjun eða ,,synesthesia" er fyrirbæri sem er lokaður heimur fyrir mörgum, en sjálfsagður hlutur fyrir synthesum. Synthesar geta upplifað tölur, bókstafi, fólk, hljóð eða aðra hluti í litatónum, en samskynjun getur verið af ýmsum toga. Dæmin um samskynjun í lista- og menningarsögunni eru óteljandi, en hvað þýðir þetta í raun og veru? Málið verður skoðað í Lestinni í dag. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli dagsins um þrá.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Karlmennska & Tom Digby, Eliza Reid & Iceland Writers Retreat, golfmót
    Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við bandaríska heimspekinginn Tom Digby um karlmennsku en hann hefur rannsakað fyrirbærið í þrjátíu ár og hélt erindi um efnið í Háskóla Íslands á dögunum. Eliza Reid segir frá rithöfundabúðunum Iceland Writerts Retreat sem hefjast á morgun, en þær eru nú haldnar í fimmta sinn, auk þess sem boðið verður upp á upplestrarkvöld í Norræna húsinu í kvöld þar sem innlendir og erlendir rithöfundar lesa úr verkum sínum. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi og fjallar í dag um atvik sem gerðist á alþjóðlegu golfmóti um helgina, og spurninguna um það hvers vegna við höldum stundum með óvinsælu fólki.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Vísindin, DJ Platurn, Requim
    Efni Lestarinnar í dag: Vísindafélag Íslendinga hélt um helgina málþing um veirur og vísindasöguna í Safnahúsinu. Þorsteinn Vilhjálmsson, prófessor emeritus, var meðal þeirra sem fluttu þar erindi, en hann fjallaði um sögu íslenskra vísinda síðustu öldina og gagnkvæma víxlverkun vísinda og samfélags. Hlustendur heyra í Þorsteini í þætti dagsins. Requiem, eða Sálumessa, nefnast nýir breskir spennuþættir á Netflix þar sem dularfullt barnshvarf virðist mögulega eiga sér yfirnáttúrulegar skýringar. Áslaug Torfadóttir kannaði málið og segir frá í Lestinni í dag. Og Þórður Ingi Jónsson ræðir við Illuga Magnússon, sem er betur þekktur sem DJ Platurn, og er plötusnúður og skífuskenkjari sem búsettur er í Oakland í Bandaríkjunum. Hann hefur búið þar síðan á níunda áratugnum og tekið virkan þátt í hip-hop senunni þar. Nú nýverið gaf hann út ástríðuverkefnið Breaking the Ice en það er tileinkað gamalli íslenskri dægurlagatónlist. Og fuglar syngja sem aldrei fyrr í Lestinni í dag.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Hraðlest: Atli Bollason, Mannasiðir
    Efni Lestarinnar í dag: Atli Bollason fjallar í pistli dagsins um tónlistargagnrýni og segir: Íslensk tónlistargagnrýni er svo gott sem dauð, um leið og hann auglýsir eftir ungum gagnrýnendum. Og Hraðlestin brunar á föstudegi, við sögu koma Baraflokkurinn, Freyja Eilíf, Prince, Brett Anderson, Haukur Ingvarsson, Jóhann Helgason, Halldór Armand Ásgeirsson, Jorge Luis Borges og Digable Planets, svo nokkuð sé nefnt.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Brett Anderson, Mannasiðir, rúnir, Digable Planets
    Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Hauk Ingvarsson, rithöfund og bókmenntafræðing, um nýútkomna sjálfsævisögu breska tónlistarmannsins Bretts Andersons, Coal Dark Mornings. Anderson er forsöngvari í hljómsveitinni Suede sem sló í gegn í byrjun níunda áratugarins og hafði mikil áhrif og sjálfsævisaga hans þykir merkileg fyrir margra hluta sakir. Lesstofan gaf nýverið út bók um íslenskar rúnir, Runes: The Icelandic Book of FUÞARK. Saga og merking rúnanna er þar rakin en hver rún einnig teiknuð upp með samræmdu letri í takt við nútímaleturhönnun. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenska rúnastafrófið er sett fram heildstætt. Teresa Dröfn Freysdóttir, doktorsnemi í miðaldafræðum, skrifar texta bókarinnar, og Siggi Odds, grafískur hönnuður, hannar rúnakerfin. Þau segja nánar frá bókinni í þætti dagsins. Á dögunum var endurútgefin ein besta plata rappsögunnar, tíunda áratugarins og þótt víðar væri flokkað. Það er aldarfjórðungur síðan fiðrildið, maríubjallan og lirfan teygðu sig í nýja afsönnun á tíma og rúmi. Davíð Roach Gunnarsson rýnir í tímamótaverkið Reachin' (A New Refutation of Time and Space) með djassrappsveitinni Digable Planets í ferðalagi dagsins. Heiða Jóhannsdóttir fjallar um sjónvarpsmyndina Mannasiði eftir Maríu Reyndal sem RUV sýndi um páska.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min

About Lestin

From the publisher's feed

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

More shows like Lestin

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

214 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners