Lestin

Lestin

Download on the App Store

Lestin episodes

  • Hraðlest: Pikkarónarnir, gaurinn, huldukonur, kynjakettir, Hawking og
    Í þættinum koma við sögu The Big Lebowski, Dagur Kári Pétursson, huldukonur, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir, Ásta Kristín Benediktsdóttir, Íris Ellenberger, Benazir Bhutto, Stephen Hawking, kynjakettir, og Halldór Armand Ásgeirsson. Og Tinnabók dagsins er Tinni og pikkarónarnir, og það verður síðasta Tinnabókin í Lestinni, viðmælandi Gísla Baldurs Marteinssonar í dag er Tinni Sveinsson.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Sónar, Flugrás 714 til Sydney, Andið eðlilega, Þorsteinn frá Hamri
    Efni Lestarinnar í dag: Sónarhátíðin verður sett í sjötta skipti hér á landi á morgun og margir tugir tónlistarmanna og plötusnúða koma fram í Hörpu um helgina. Davíð Roach Gunnarsson rýnir í sögu og sérkenni Sónar, og bendir á nokkra listamenn á hátíðinni sem er vert að bera sig sérstaklega eftir. Gunnar Theodór Eggertsson fjallar um kvikmyndina Andið eðlilega eftir Ísold Uggadóttur sem frumsýnd var í síðustu viku. Og Tinnabók dagsins er Flugrás 714 til Sydney, gestur Gísla Marteins Baldurssonar verður Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og bókmenntafræðingur.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Stephen Hawking, Vorsýning Kynjakatta, óendanleiki, Vaila Veinólínó
    Lestin minnist í dag enska vísindamannsins Stephens Hawking sem er látinn, 76 ára að aldri. Hawking var eðlisfræðingur og heimsfræðingur, og höfundur bókarinnar Saga tímans sem kom út árið 1988, og varð mjög vinsæl. Kettir koma við sögu í Lestinni í dag en um síðustu helgi var Officera-klúbburinn í Reykjanesbæ undirlagður af köttum enda var þar haldin Vorsýning Kynjakatta. Lestin fór á staðinn og ræddi við þátttakendur. Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli sínum í dag um óendanleika og tilvist talna. Og Tinnabók dagsins er Vandræði ungfrú Vailu Veinólínó, sem kom út árið 1963, viðmælandi Gísla Marteins Baldurssonar í dag verður Baldur Stefánsson ráðgjafi.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Big Lebowski, The Assassination, Tinni í Tíbet
    Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um kvikmyndina The Big Lebowski eftir Joel og Ethan Cohen, en um þessar mundir eru tuttugu ár liðin frá frumsýningu myndarinnar. Hún hlaut ekkert sérlega góðar viðtökur á sínum tíma, í marsmánuði árið 1998, en hefur notið gríðarlegra vinsælda allar götur síðan. Gestur Lestarinnar í dag verður Dagur Kári Pétursson kvikmyndaleikstjóri. Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi og Tinnabók dagsins er Tinni í Tíbet, sem kom fyrst út árið 1960, og þykir vera ein albesta Tinnabókin, viðmælandi Gísla Marteins Baldurssonar verður Halla Helgadóttir framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands. Og við skoðum einnig nýja hlaðvarpsþáttaröð frá BBC World Service, The Assassination, en þættirnir fjalla um morðið á pakistönsku stjórnmálakonunni Benazir Bhutto
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Pönk safnafræði, hinsegin huldukonur, Kolafarmurinn, The Tick
    Efni Lestarinnar í dag: Á undanförnum misserum hafa rannsóknir sem beita kenningum hinsegin fræða við greiningu á viðfangsefnum verið nokkuð áberandi hér á landi og jafnvel mætti tala um hinsegin vakningu innan hugvísinda. Á Hugvísindaþinginu um helgina hélt Íris Ellenberger erindi um verkefnið hinsegin huldukonur, sem snýst um að leita að heimildum um hinsegin kynverund kvenna fyrir tíma sjálfsmyndarpólitíkur og réttindabáráttu samkynhneigðra á Íslandi. Fræðst verður nánar um verkefnið í þætti dagsins, og grúskað verður í gömlum heimildum á Kvennasögusafninu með þeim Ástu Kristínu Benediktsdóttur og Írisi Ellenberger. Guðrún Dröfn Whitehead, lektor í safnafræðum við Háskóla Íslands, segir frá fyrirbærinu pönk safnafræði, en hún tengist nýjum jaðarsamtökum í Bretlandi sem leggja áherslu á að söfn geti orðið í ríkari mæli mikilvægur samfélagslegur, pólitískur og menningarlegur vettvangur. Ofurhetjur af öllum stærðum og gerðum eru gríðarlega vinsælar þessa dagana. Áslaug Torfadóttir fjallar í dag um eina í sérstakari kantinum, bláa blóðmaurinn The Tick. Og Tinnabók dagsins er Kolafarmurinn, viðmælandi Gísla Marteins Baldurssonar í dag verður Sigrún Helga Lund.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Hraðlest: Atli Bollason, Ísold, að spekúlera, hasarblöð, ritskoðun
    Lestin kemur að venju víða við í dag. Í pistli dagsins býður Atli Bollason upp á samkvæmisleik, og spyr: Ef þú hefðir mátt vera á dögum hvar sem er, hvenænr sem er - hvar og hvenær hefðirðu þá verið? Tinnabók dagsins er að þessu sinni Leynivopnið, viðmælandi Gísla Marteins Baldurssonar að þessu sinni verður Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari, blaðamaður og rithöfundur. Og boðið verður upp á hraðlest á föstudegi, þar sem við sögu koma kvikmyndaleikstjórinn Ísold Uggadóttir, umræða um ritskoðun lista, stórhættuleg bandarísk hasarblöð, samtal um mikilvægi þess að spekúra, bláir himnar, og sitthvað fleira.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Ísold Uggadóttir, Florida Project, L'Aterlier, Laurie Anderson, Tinni
    Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Ísold Uggadóttur kvikmyndaleikstjóra, kvikmynd hennar Andið eðlilega verður frumsýnd í Reykjavík í kvöld en myndin hefur vakið mikla athygli að undanförnu og unnið til verðlauna, meðal annars á Sundance-kvikmyndahátíðinni. Fjallað verður um plötuna Landfall sem bandaríska listakonan Laurie Anderson gaf nýlega út, en platan er unnin í samstarfi við Kronos-kvartettinn. Á plötunni tjáir Anderson upplifun sína af fellibylnum Sandy sem gekk á land í New York í október árið 2012 og olli mikilli eyðileggingu. Gunnar Theodór Eggertsson fjallar í dag um kvikmyndirnar The Florida Project eftir bandaríska leikstjórann Sean Baker og L'Atelier (eða The Workshop) sem sýnd er á kvikmyndahátíðinni Stockfish sem nú stendur yfir. Og ævintýri Tinna halda áfram í Lestinni í dag. Gísli Marteinn Baldursson ræðir í dag við Sævar Helga Bragason um bækurnar Eldflaugastöðina og Í myrkum mánafjöllum.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Ritskoðun lista, endurtekningar, Svarta gullið
    Efni Lestarinnar í dag: Sigrún Inga Hrólfsdóttir, myndlistarkona og deildarforseti myndlistardeildar Listaháskóla Íslands, flutti erindi á Háskóladeginum um ólöglega list. Hún fjallaði þar um hina ýmsu listamenn sem hafa farið yfir mörk hins löglega eða ögrað með eftirminnilegum hætti. Í ljósi ritskoðunar á verkum Santiago Sierra á ARCOmadrid listkaupstefnunni í síðustu viku, og alls kyns umræðna í tengslum við metoo-byltinguna, verður Sigrún spurð út í ritskoðun á 21. öldinni í þætti dagsins. Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar um endurtekningar í pistli dagsins og Tinni verður á sínum stað, í dag er röðin komin að Svarta gullinu, viðmælandi Gísla Marteins Baldurssonar verður Jón Karl Helgason.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Ógn af bandarískum hasarblöðum, mikilvægi þess að spekúlera, ofbeldi,
    Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Kristínu Svövu Tómasdóttur rithöfund og sagnfræðing um ógnina sem menn álitu að stafaði af bandarískum hasarblöðum á sjötta áratug síðustu aldar en þau voru meðal annars talin ógna velferð barna og unglinga og stuðla jafnvel að því að þau leiddust út á glæpabrautina. Kristín heldur erindi um efnið á Hugvísindaþingi Háskóla Íslands sem hefst á föstudag, í málstofu sem kennd er við bandarísku bylgjuna, þar sem fjallað verður um bandarísk menningaráhrif á Íslandi og skoðað með hvaða hætti fjallað var um bandaríska list og menningu í íslensku samhengi. Í síbreytilegum heimi þar sem tæknibreytingum og samfélagsbreytingum fleygir fram, er sífellt mikilvægara fyrir hönnuði að rannsaka tiltekin viðfangsefni af dýpt í samtali við aðra fræðimenn og sérfræðinga. Garðar Eyjólfsson, fagstjóri meistaranáms í hönnun við Listaháskóla Íslands, hélt erindi um mikilvægi þess að spekúlera í hönnunarrannsóknum í Listaháskólanum núna um helgina. Lestin fræðist nánar um erindið með Garðari í þætti dagsins: spurt verður: Til hvers að spekúlera? Ævintýri Tinna halda áfram í Lestinni, fjallað verður í dag um tvær bækur sem komu út á árum síðari heimstyrjaldarinnar, Sjö kraftmiklar kristalskúlur og Fangana í sólhofinu. Gestir Gísla Marteins Baldurssonar í dag verða Felix Bergsson og Þorsteinn Bachmann. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur fjallar í pistli dagsins um ofbeldi, réttindi og frelsi.
    Umsjón: Eiríkur Guðmundsson og Anna Gyða Sigurgísladótti
    57 min
  • Myrra Rós, Queer Eye for the Straight Guy, Leyndardómur einhyrningsins
    Efni Lestarinnar í dag: Myrra Rós er ein þeirra tónlistarmanna sem spiluðu á Reykjavik Folk Festival um helgina. Tónlist hennar er sögð sniðin að dimmum haustkvöldum og ýmist líst sem draumkenndu, eða lágstemmdu þjóðlagapoppi. Lestin heimsækir hana á Stokkseyri í þætti dagsins, þar sem hún býr ásamt eiginmanni sínum. Þórður Ingi Jónsson ræðir við meðlimi pönkhljómsveitarinnar Show me the body á frumsýningu á nýrri vefþáttaröð hennar í New York. Áslaug Torfadóttir fjallar í dag um sjónvarpsþættina Queer Eye for the straight guy. Og Tinnabækur dagsins eru að þessu sinni tvær, eitt ævintýri á tveimur bókum, Leyndardómur einhyrningsins og Fjársjóður Rögnvaldar rauða, sem komu fyrst út á árunum 1942 til 1944, og á íslensku á árunum 1976 og 1977. Viðmælandi Gísla Marteins Baldurssonar í dag verður rithöfundurinn Yrsa Sigurðardóttir.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min

About Lestin

From the publisher's feed

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

More shows like Lestin

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

214 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners