Lestin

Lestin

Download on the App Store

Lestin episodes

  • Stockfish, sérfræðingur í hári, Dularfulla stjarnan
    Efni Lestarinnar í dag: Kvikmyndahátíðin Stockfish hófst í Bíóparadís í gær, þetta er í fjórða sinn sem hátíðin er haldin en hátíðin leggur áherslu á metnaðarfulla dagskrá, og einungis sýndar sérvaldar alþjóðlegar verðlaunamyndir á hátíðinni. Heiða Jóhannsdóttir fjallar í Lestinni í dag um opnunarmynd hátíðarinnar, An Ordinary man, með þeim Heru Hilmarsdóttur og Ben Kingsley í aðalhlutverkum, en einnig um rússnesku kvikmyndina Loveless og A Fantastic woman, verðlaunamynd frá Chile. Gunnur Martinsdóttir Schlüter er sérfræðingur í hári eftir að hún skrifaði forvitnilega BA-ritgerð um táknmyndir hárs í þýsku leikhúsi og leikhúsheimi. Atli Bollason hringdi í Gunni og fékk að fræðast nánar um málið auk þess að lesa brot úr ókláruðu leikriti Gunnar sem byggir á rannsóknarefninu, meira um það í Lestinni í dag. Og Tinnabók dagsins er Dularfulla stjarnan, viðmælandi Gísla Marteins Baldurssonar verður Sævar Helgi Bragason.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • David Sylvian, Gusgus, N1 Ártúnshöfða, Krabbinn með gylltu klærnar
    Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um enska tónlistarmanninn David Sylvian en hann varð sextugur í síðustu viku. Sylvian á að baki langan og glæsilegan feril sem hófst á áttunda áratugnum með hljómsveitinni Japan, sem naut mikillar virðingar á sínum tíma. Í kjölfarið fylgdi sólóferill sem einkennst hefur af stöðugri leit, stöðugri þróun. Valgeir Sigurðsson tónlistarmaður þekkir vel til verka Sylvians og hann verður gestur Lestarinnar í dag. Hljómsveitin Gusgus er olían og gangverkið í íslenskri danstónlist, og þeirra síðasta skífa er slípuð og straumlínulöguð eining sem svíkur engan. Davíð Roach Gunnarsson setur sveigjanlegar lygar í hátalarakerfi Lestarinnar í dag og fjallar um nýútkomna breiðskífu Gusgus, The Lies are More Flexible. Á N1 Ártúnshöfða er starfsmaður sem þykir hafa afar góð áhrif á viðskiptavini sína. Lestin kom við í bílalúgunni í Ártúnshöfða og ákvað að kynnast manninum betur. Og Tinnabók dagsins er Krabbinn með gylltu klærnar, viðmælandi Gísla Marteins Baldurssonar í dag verður Hrafn Jónsson.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Gucci & sæborgin, kaldhæðni, tunglið, Veldissproti Ottókars konungs
    Efni Lestarinnar í dag: Ítalska tískuhúsið Gucci vakti mikla athygli á tískuvikunni í Mílanó í síðustu viku. Hönnuður lúxus-fatamerkisins, Alessandro Michele, segir kenningar Donnu J. Haraway um Sæborgina, og Michels Foucaults um fagurfræði sjálfsins, hafa verið aðal innblásturinn að sýningunni. Lestin rýnir í athyglisverða sýningu Micheles í þætti dagisins og rætt verður við listakonuna Sögu Sigurðardóttur. Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli dagsins um kaldhæðni, fjarlægðir og hreinskilni. Og Tinnabók dagsins er Veldissproti Ottókars konungs, viðmælandi Gísla Marteins Baldurssonar í dag verður Sveinn Guðmarsson.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Kúst & fæjó, Maya Deren, íslenskan, Surtsey
    Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað að gefnu tilefni um kúst og fæjó kynslóðina, Mayu Deren, íslenskuna og Tinna í Surtsey. Úkraínski kvikmyndaleikstjórinn Maya Deren var einhver mikilvægasti frumkvöðull tilraunakenndrar kvikmyndagerðar á 5. og 6. áratugnum. Deren var líka dansari, kvikmyndafræðingur, skáld, rithöfundur og ljósmyndari. Hundrað ár voru í fyrra liðin frá fæðingu hennar, við fjöllum nánar um Mayu Deren í Lestinni í dag. Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur fjallar í pistli dagsins um íslenskuna á stafrænum tímum. Austuríski heimspekingurinn Ludwig Wittgenstein kemur meðal annars við sögu hjá honum í dag, sömuleiðis grein sem birtist í breska blaðinu The Guardian í gær. Og Tinnabók dagsins er Svaðilför í Surtsey, hún kom fyrst út árið 1938 en á íslensku árið 1971. Viðmælandi Gísla Marteins Baldurssonar verður Róbert Marshall, fjölmiðlamaður, útivistarmaður og fyrrverandi alþingismaður.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • serpentwithfeet, Crazy Ex-girlfriend, mexíkósk tónlist og skurðgoð
    Efni Lestarinnar í dag: Bandaríski Avant-R & B tónlistarmaðurinn serpentwithfeet hefur getið sér gott orð síðustu misseri. Hann verður einn þeirra fjölmörgu tónlistarmanna sem koma fram á tónlistarhátíðinni Sónar í næsta mánuði. Lestin skoðar serpentwithfeet nánar í þætti dagsins. Þættirnir Crazy-Ex Girlfriend hafa hlotið einróma lof gagnrýnenda síðan þeir voru frumsýndir fyrir þremur árum en samt virðast margir áhorfendur seinir að taka við sér. Áslaug Torfadóttir veltir fyrir sér ástæðu þessa. Heiða Vigdís Sigfúsdóttir fjallar um listamenn í Mexíkó sem nota tónlist sína til að berjast fyrir mannréttindum í landi þar sem fjölmiðlar eru ekki frjálsir. Og Tinnabók dagsins er Skurðgoð með skarð í eyra, viðmælandi Gísla Marteins Baldurssonar verður Óskar Þór Axelsson.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • MGMT, Blái lótusinn, gamall maður öskrar á ský
    Efni Lestarinnar í dag: San Fransíska sýrupoppsveitin MGMT gaf út sýna fjórðu breiðskífu á dögunu, Litle Dark Age, eða litlu miðöldina. Þar nálgast meðlimir sveitarinnar loksins aftur klístruðu popplagasmíðarnar sem þeir kunna svo vel, og skífan er þeirra besta og aðgengilegasta verk frá því þeir slógu í gegn með frumburðinum Oracular Spectecular, fyrir meira en áratug síðan. Davíð Roach Gunnarsson fjallar um MGMT í Lestinni í dag. Atli Bollason verður á sínum stað í föstudagslestinni, og Tinnabókin sömuleiðis, í dag er röðin komin að Bláa lótusnum. Viðmælandi Gísla Marteins Baldurssonar verður Úlfhildur Dagsdóttir.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Skíðastökk, Altered Carbon, The Shape of Water & Black Panther, Tinni
    Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um kvikmyndirnar Black Panther eftir bandaríska kvikmyndaleikstjórann Ryan Coogler og The Shape of Water eftir mexíkóska leikstjórann Guillermo del Toro. Einnig verður fjallað um sjónvarpsþættina Altered Carbon sem eru á meðal dýrustu þátta sem framleiddir hafa verið fyrir Netflix. Tinnabók dagsins verður á sínum stað, í dag er röðin komin að Vindlum farós, viðmælandi Gísla Marteins Baldurssonar verður Halla Oddný Magnúsdóttir. Og vetrarólympíuleikar standa nú yfir í PyeongChang í Suður-Kóreu, og þar er meðal annars keppt í skíðastökki. Hugað verður að þeirri íþróttagrein í þættinum í dag.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Storytel, Berlinale, sjálfið, Tinni í Ameríku
    Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um Storytel, streymiþjónustu sem nú er aðgengileg á Íslandi, en um er að ræða áskriftarþjónustu - eins konar Spotify eða Netflix - fyrir hljóðbækur. Rætt verður við Stefán Hjörleifsson framkæmdastjóra fyrirtækisins. Hlustendur fá einnig tíðindi frá Berlinale - kvikmyndahátíðinni í Berlín sem nú stendur yfir, en henni lýkur á sunnudag, tíðindamaður Lestarinnar í Berlín er Hulda Rós Guðnadóttir og hún segir frá í þættinum í dag. Karl Ólafur Hallbjörnsson veltir því fyrir sér hvenær maður byrjar að vera maður sjálfur - og hvenær maður hættir því. Og ævintýri Tinna halda áfram í Lestinni í dag. Í dag er röðin komin að bókinni Tinni í Ameríku, en viðmælandi Gísla Marteins Baldurssonar verður Þorgrímur Kári Snævarr, en hann er með próf í teiknimyndasögum frá háskólanum Esa Saint-Luc í Brussel, en höfundur Tinnabókanna, Hergé, tók þátt í að stofna þann skóla.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Kristniboðar, Tinni í Kongó, óður til Hæstaréttar, Altered Carbon
    Efni Lestarinnar í dag: Næsta sunnudag hefst hin árlega kristniboðsvika á vegum Kristniboðssambandsins. Undirtitill hátíðarinnar í ár er ,,Fylgdu Jesú'', og virðist hún, af grafík að dæma, eiga að höfða sérstaklega til yngri kynslóðarinnar. Forvitnast verður um starf kristniboða í þætti dagsins, og spurt: Hvernig er að vera kristniboði? Hefur starfið eitthvað breyst á síðustu árum? Hvers vegna að breiða út trú sína? Og ævintýri Tinna halda áfram í Lestinni í dag. Bók dagsins er Tinni í Kongó, bók sem skrifuð var í því andrúmslofti sem ríkti í Evrópu upp úr 1930, þegar öfgakennd þjóðernis- og kynþáttahyggja réð ríkjum - skoðanir sem sumum finnst ganga aftur þessi misserin. Eiríkur Bergmann Einarsson verður gestur Gísla Marteins Baldurssonar í dag, en Eiríkur hefur kynnt sér hugmyndafræði fasisma og hugmyndir um yfirburði hvíta kynstofnsins, sem sjást svo greinilega í Tinna í Kongó, en bókin er bönnuð víða um heim þótt slíkt bann hafi aldrei komið til tals á Íslandi af neinni alvöru. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur í dag pistil sem hann kallar óð til Hæstaréttar. Áslaug Torfadóttir fjallar um þættina Altered Carbon
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Brúin, Afrófútúrismi, Dagur hinna dauðu, Tinni
    Efni Lestarinnar í dag: Á laugardag hófst hér á Rás 1 ný þáttaröð þar sem Gísli Marteinn Baldursson fjallar um teiknimyndasöguhetjuna Tinna. Hver kynslóðin á fætur annarra naut þess að lesa um ævintýri blaðamannsins knáa sem belgíski myndasöguhöfundurinn Hergé færði til bókar á sínum tíma. Þessar bækur voru þýddar á íslensku og nutu mikilla vinsælda, og njóta enn. Í Lestinni í dag og næstu daga, og raunar vikur, verður ein Tinnabók tekin fyrir í hverjum þætti. Gísli Marteinn byrjar í dag, og fjallar um fyrstu Tinna-bókina, Tinni í Sovétríkjunum, sem kom upphaflega út í janúar árið 1929, Gísli ræðir í dag við þýðanda bókarinnar, Björn Thorarensen, son Þorsteins Thorarensens sem gaf út Tinnabækurnar á sínum tíma. Sjónvarpið sýnir í kvöld tvö síðustu þættina í hinni geysivinsælu þáttröð ,,Brúin." Lestin hitar upp fyrir kvöldið með aðdáanda þáttanna, Áslaugu Guðrúnardóttur, kynningar- og markaðsstjóra. Heiða Vigdís Sigfúsdóttir heldur áfram að fræða hlustendur um hina ýmsu kima mexíkóskrar menningar, í dag er viðfangsefnið Dagur hinna dauðu. Og Þórður Ingi Jónsson skoðar fyrirbærið afró-fútúrisma nánar í þættinum í dag.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min

About Lestin

From the publisher's feed

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

More shows like Lestin

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

214 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners