Lestin

Lestin

Download on the App Store

Lestin episodes

  • Hraðlest: Atli Bollason, Nan Goldin, Cindy Sherman, Kristín Eiríksdótt
    Efni Lestar í dag. Það hefur eitthvað breyst. Krakkarnir í MH og Versló fíla sömu tónlistina og klæðast sömu fötunum. Atli Bollason spyr hvað hafi
    orðið um kúlið. Er það kannski komið aftur þangað sem það á heima: lengst úti á jaðrinum? Við sögu í hraðlest í dag koma meðal annars bandarísku
    ljósmyndararnir Nan Goldin og Cindy Sherman, Jóhanna Bogadóttir myndlistarkona, og Kristín Eiríksdóttir rithöfundur.
    57 min
  • Cindy Sherman, Django Django, bakvið augnlokin
    Efni Lestarinnar í dag: Cindy Sherman, einn áhrifamesti myndlistamaður samtímans, birtir nú nýjustu verk sín á samfélagsmiðlinum Instagram. Sherman, sem þekkt er fyrir að nota eigið andlit og líkama sem efnivið, nýtir sér vinsæl snjallsímaforrit á borð við FaceTune og Perfect365, við vinnslu sjálfsmyndanna. Lestin rýnir í myndirnar og fjallar að gefnu tilefni um stöðu ljósmyndunar í dag. Spurt verður meðal annars: Hafa mörkin milli atvinnu- og áhugaljósmyndunar máðst út, með fjölgun símtækja, og myndavéla, nú þegar notendur á Instagram eru orðnir rúmlega 700 milljónir? Skoska lista-, skrýti- og hræripoppsveitin Django Django gaf á dögunum út sína þriðju breiðskífu; Marble Skies. Þar halda þeir áfram að þræða hið erfiða einstigi; óþrjótandi tilraunamennsku með ólíkar stefnur og stíla án þess þó að tapa eigin höfundareinkennum. Davíð Roach Gunnarsson fjallar um Django Django í þættinum í dag. Og Soffía Bjarnadóttir rithöfundur fer með hlustendur í ferðalag á bakvið augnlokin.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Kristín Eiríksdóttir, Karl Ólafur, blóðmánuðurinn
    Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Kristínu Eiríksdóttur rithöfund sem hlaut í gær Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir skáldsöguna Elín, ýmislegt. Einnig verður hugað að blóðmánanum sem nú læðist rjóður um himininn. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson flytur pistil í Lestinni á miðvikudegi.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Nan Goldin, Mark Hollis, Marvelous Mrs. Maisel, pizzur og pólitík
    Efni Lestarinnar í dag: Aukning dauðsfalla vegna ofneyslu sem rekja má til ópíóða og misnotkun á morfínskyldum lyfjum hefur verið mikið í
    umræðunni síðustu daga enda talað um að við lifum nú á tímum ópíóða-krísu. Bandaríski ljósmyndarinn Nan Goldin tjáði sig nýlega um eigin
    ópíóða-fíkn. Lestin kannar málið nánar í þætti dagsins. Fyrir sléttum 20 árum gaf breski tónlistarmaðurinn Mark Hollis út samnefnda sólóplötu.
    Platan hefur allar götur síðan verið í hávegum höfð af tónlistaráhugafólki, en Hollis var áður forsprakki hljómsveitarinnar Talk Talk. Lestin rifjar þessa
    plötu upp í dag með tónlistarmanninum Borgari Magnasyni. Áslaug Torfadóttir, sjónvarpsrýnir Lestarinnar, fjallar í dag um nýjustu afurð Amy
    Sherman-Palladino, þættina Marvelous Mrs. Maisel. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur fjallar í þriðjudagspistli um pizzur og pólitík.
    55 min
  • Þorsteinn frá Hamri, Jóhanna Bogadóttir
    Lestin minnist í dag Þorsteins frá Hamri sem andaðist í gær, 79 ára að aldri. Þorsteinn var eitt fremsta skáld þjóðarinnar um langt árabil, en á þessu ári eru sextíu ár liðin frá því að fyrsta bók hans, Í svörtum kufli, kom út. Þorsteinn sendi frá sér 26 ljóðabækur á sínum ferli, auk skáldsagna, sagnaþátta og þýðinga. Gestir Lestarinnar í dag verða bókmenntafræðingarnir Ástráður Eysteinsson og Páll Valsson, og rithöfundarnir Jón Kalman Stefánsson, Sigurbjörg Þrastardóttir og Vigdís Grímsdóttir. Einnig verður hugað að myndlist í Lestinni í dag. Sýningin Myrkraverk stendur nú yfir á Kjarvalsstöðum en þar mætast ólíkar kynslóðir listamanna og sýna dularfull, spennandi verk sem auðga ímyndunaraflið á þessum myrkasta tíma ársins. Meðal listamanna sem þar sýna er Jóhanna Bogadóttir. Lestin kíkir í heimsókn til Jóhönnu og fræðist nánar um hugar- og myndheim hennar.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Hraðlest: Ursula Le Guin, Þorsteinn frá Hamri, Japan, Sei Shónagon
    Efni Lestarinnar í dag: Framtíðin kemur hvort sem þú vilt eða ekki. Eða svo segja þeir allavega. Í pistli dagsins bregður Atli Bollason upp svipmyndum úr sjálfkeyrandi langerðabíl framtíðarinnar. Við sögu í hraðlest á föstudegi koma einnig Sei Shonagon, Ursula Le Guin, Hermann Stefánsson, Þorsteinn frá Hamri, Japan, Halldór Armand Ásgeirsson, Soffía Bjarnadóttir og fleiri.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Mark E. Smith, Woolf, Grammy-verðlaunin, augnlokin
    Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um enska tónlistarmanninn Mark E. Smith, forsprakka póst-pönk hljómsveitarinnar The Fall, en hann andaðist í gær, sextugur að aldri. Forsíðu Google prýðir í dag mynd af engri annarri en breska rithöfundinum Vigriníu Woolf, enda fæddist þetta merka skáld á þessum degi, 25. janúar. Lestin minnist hennar í þætti dagsins. Davíð Roach Gunnarsson spáir í Grammy-verðlaunaafhendinguna sem fram fer á sunnudag. Og Soffía Bjarnadóttir rithöfundur fer með hlustendur í ferðalag á bak við augnlokin.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Ursula K. Le Guin, Three Billboards Outside Ebbing, þögn & Köben
    Efni Lestarinnar í dag: Margverðlaunaði bandaríski rithöfundurinn Ursula K. Le Guin lést í fyrradag, 88 ára að aldri. Hún er þekktust fyrir fantasíu- og vísindaskáldskap en eftir hana liggja einnig ljóð, smásögur, barnabækur og ritgerðir. Lestin minnist hennar í dag með Brynhildi Björnsdóttur og Eyju M. Brynjarsdóttur. Gunnar Theodór Eggertsson fjallar í dag um kvikmyndina Three Billboards Outside Ebbing, Missouri eftir Martin McDonagh, en myndin er tilnefnd til Óskarsverðlauna í ár sem besta myndin, auk þess sem Franced McDormand er tilnefnd fyrir besta leik í aðalahlutverki. Karl Ólafur Hallbjörnsson flytur pistil í Lestinni á miðvikudegi og fjallar í dag um þögn. Og Sigrún Alba Sigurðardóttir lýkur í dag pistlaröð sinni um ljóðrænt rými Kaupmannahafnar.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Haust í Skírisskógi, Sei Shónagon, dauði samhengisins, Kaupmannahöfn
    Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um skáldsöguna Haust í Skírisskógi eftir Þorstein frá Hamri. Verkið kom fyrst út árið 1980 en um var að ræða þriðju skáldsögu Þorsteins. Sagan hefur nú verið endurútgefin í tilefni af 60 ára rithöfundaafmæli Þorsteins og áttræðisafmæli hans þann 15. mars næstkomandi. Rætt verður við Hermann Stefánsson rithöfund um bókina en hann skrifar inngang að nýju útgáfunni. Sei Shónagon var hirðmær við japönsku keisarahirðina á síðari hluta tíundu og fyrri hluta elleftu aldar. Dagbók hennar, sem hún kallaði Koddabók, er merkileg heimild um japanskt hirðlíf á Heian-tímabilinu. Lýsingar Shónagon á klæðaburði, lifnaðarháttum, trúarbrögðum, siðavenjum, veðurfari og líffræði, svo fátt eitt sé nefnt, eru stórbrotnar. Enn merkilegri eru þó lýsingarnar á hennar innra lífi. Lestin rýnir í Koddabókina og hugarheim Sei Shónagon í þætti dagsins. Shónagon er af mörgum talinn fyrsti bloggarinn, en var hún kannski fyrsti tístarinn? Sigrún Alba Sigurðardóttir heldur áfram að tala um ljóðrænt rými borgarinnar og er sem fyrr stödd í Kaupmannahöfn og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur fjallar í dag um dauða samhengisins á vorri gruggugu öld.
    55 min
  • World Narcosis, I Zombie, Arnar Heiðmars, Kaupmannahöfn
    Efni Lestarinnar í dag: Arnar Heiðmars, myndasöguhöfundur og ritstjóri, opnaði fyrr í mánuðinum myndasögusýninguna Here and Back Again í Grófinni. Lestin skyggnist inn í hugarheim Arnars í þætti dagsins. Hljómsveitin World Narcosis hefur vakið mikla athygli í jaðarsenu landsins seinustu árin. Kim Kelley, ritstýra tónlistarveitunnar Noisy, lýsti tónlist bandsins sem ófyrirsjáanlegri blöndu af öfgakenndu þungarokki og hældi þeim óspart fyrir framsæknar lagasmíðar. Sveitin var að gefa út aðra breiðskífu sína í fullri lengd, nefnist hún Lyruljóra. Þórður Ingi Jónsson heimsækir liðsmenn World Narcosis að gefnu tilefni í þætti dagsins. Áslaug Torfadóttir fjallar um rómantísku uppvakninga-sjónvarpsþáttaröðin I Zombie. Og Sigrún Alba Sigurðardóttir menningarfræðingur og lektor við Listaháskóla Íslands heldur áfram að tala um ljóðrænt rými stórborgarinnar, hún staðsetur sig í Kaupmannahöfn og talar um borgina út frá persónulegri reynslu og blandar saman við kenningar borgarfræða.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min

About Lestin

From the publisher's feed

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

More shows like Lestin

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

214 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners