Lestin

Lestin

Download on the App Store

Lestin episodes

  • Ágætis byrjun, R6013, Múrarar
    Í Lestinni í dag verður meðal annars spurt hvort rokkið sé dautt og sömuleiðis hljómplatan sem sjálfsætt listaverk. Hljómsveitin Mammút kemur við sögu en hún hlaut Krókinn, viðurkenningu Rásar 2, fyrir framúrskarandi flutning á árinu 2017, við hátíðlega athöfn hér í húsakynnum Ríkisútvarpsins í gær. Einnig verður hugað nýrri þáttaröð sem hefur göngu sína á Rás eitt á morgun, hún ber yfirskriftina Ágætis byrjun en þar verður fjallað um listsköpun Íslendinga í heil hundrað ár. R6013 er tónleikarými í Þingholtunum í miðbæ Reykjavíkur. Ægir Sindri Bjarnason, tónlistarmaður, rekur rýmið. Lestin stöðvaði við Ingólfsstræti 20 í morgun og forvitnaðist nánar um R6013.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Sólveig Matthildur, Úsland, Manakamana, Konstantínos
    Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um útgáfufyrirtækið Úsland sem hefur sérhæft sig í útgáfu spuna-tónverka á undanförnum árum en nýlega voru allar plötur fyrirtækisins gefnar út í einum pakka. Rætt verður við Albert Finnbogason tónlistarmann og einn aðstandenda útgáfunnar. Tónlistarkonan Sólveig Matthildur gaf nýverið út plötuna Unexplained miseries and the acceptance of Sorrow, sem mætti þýða einhvern veginn svo: Óútskýrðar kvalir og viðurkenning sorgarinnar. Sólveg er kannski betur þekkt sem einn liðsmanna pönk-hljómsveitarinnar Kælan mikla, og einn aðstandenda plötuútgáfunnar Hið myrka man og jaðar-tímaritsins Myrkfælni. Hún býr í Berlín, en eins og fleiri Íslendingar sem búsettir eru erlendis, er hún heima yfir hátíðirnar. Hún hefur útbúið hljóðvers- og æfingaaðstöðu í bílskúr föður síns í Breiðholtinu. Lestin heimsækir umræddan bílskúr, og kynnist Sólveigu og tónlist hennar betur í þætti dagsins. Yrca Roca Fannberg kvikmyndaleikstjóri segir frá kvikmyndinni Manakamana sem kvikmyndaklúbburinn Í myrkri sýnir í Kling & Bang í kvöld en myndin fjallar um för pílagríma sem ferðast í kláfum yfir frumskógum Nepals til að heimsækja Manakamana-hofið sem reist var á 17. öld. R6013 er tónleikarými í Þingholtunum í miðbæ Reykjavíkur. Lestin skoðar rýmið nánar í þætti dagsins. Og gríska skáldið Konstantínos Kavafis kemur við sögu í Lestinni í dag að gefnu tilefni.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundson
    55 min
  • Mammút, Svanurinn, samfélagsmiðlar & Kierkegaard
    Efni Lestarinnar: Margra mánaða tónleikaferðalag hljómsveitarinnar Mammút er nú á enda. Ferðalagið hefur staðið yfir frá því hljómsveitin gaf út nýjustu breiðskífuna, Kinder Versions, sem sker sig úr frá fyrri plötum þar sem hún er frumraun bandsins á ensku. Mammút hefur lítið spilað hér heima en halda nú heimkomutónleika í Gamla Bíói annað kvöld. Lestin fræðist nánar um ferðalag síðustu mánaða, og nýjustu plötuna í þætti dagsins. Þær Ása Dýradóttir og Kata Mogensen verða gestir þáttarins. Einnig verður rætt við Ásu Helgu Hjörleifsdóttur kvikmyndaleikstjóra en kvikmynd hennar, Svanurinn, sem byggð er á samnefndri skáldsögu eftir Guðberg Bergsson, verður frumsýnd í kvöld. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar um samfélagsmiðla og styðst meðal annars við hugmyndir manns sem var á dögum löngu fyrir tíma slíkra miðla, danska heimspekingsins og rithöfundarins Sörens Kierkegaards.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Plötuútgáfa á árinu 2018, Wormwood, Omar Khayyam
    Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að plötuútgáfu á árinu 2018 og gluggað í grein sem birtist á vef breska ríkisútvarpsins BBC um áramót, þar sem farið er yfir væntanlega útgáfu á árinu, og þær plötur nefndar sem menn á þeim bænum binda mestar vonir við. Sönn, óleyst sakamál hafa verið vinsælt umfjöllunarefni kvikmynda, sjónvarpsþátta og hlaðvarpa að undanförnu. Heimildaþættirnir Wormwood fjalla einmitt um slík mál. Áslaug Torfadóttir fer í rannsóknargírinn í Lestinni í dag. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur að venju pistil í Lestinni á þriðjudegi.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min

About Lestin

From the publisher's feed

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

More shows like Lestin

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

214 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners