Lestin

Lestin

Download on the App Store

Lestin episodes

  • Hraðlest: Seinni hluti kúlsins, Baldvin Z, Foucault, Tarkovski, Black
    Lestin leggur af stað á miklum hraða laust eftir klukkan fimm. Atli Bollason heldur áfram að fjalla um ,,kúlið" og við sögu í hraðlestinni í dag koma kvikmyndaleikstjórinn Baldvin Z, Svarti pardusinn, valentínusardagurinn, franski heimspekingurinn Michel Foucault, rússneski kvikmyndaleikstjórinn Andrej Tarkovski, Guðrún Gísladóttir og fleiri.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Black Panther & Afrófútúrismi, Guðrún Gísla, MTV, Moon Safari
    Efni Lestarinnar í dag: Svarti pardusinn, sem á ensku kallast Black panther, er fyrsta svarta ofurhetjan sem nýtur almennrar hylli. Stórmyndin Black Panther hefur notið mikillar hylli Vestanhafs og er útgáfu hennar fagnað um víða veröld, enda hér á ferðinni saga sögð frá sjónarhorni fólks af Afrískum uppruna og inniheldur undirtón í anda Afrófútúrisma. Lestin rifjar upp sögu Svarta pardusins í þætti dagsins, og skoðar einnig fyrirbærið Afró-fútúrisma. Guðrún Gísladóttir leikkona rifjar upp kynni sín af rússneska kvikmyndaleikstjóranum Andrej Tarkovsky, en hún fór með hlutverk í síðustu mynd þess merka leikstjóra, Fórninni, sem sýnd verður á Meistaravetri í BíóParadís um helgina. RÚV hóf á dögunum sýningar á nýjum heimildarþáttum um níunda áratuginn í Bandaríkjunum þar sem fjallað er um dægurmál og sögulega viðburði, en einnig er poppmenningin krufin. Þar er meðal annars fjallað um fyrsta tónlistarsjónvarpið og þann stórviðburð þegar sjónvarpsstöðin MTV svaraði bænum unga fólksins árið 1981, og sameinaði sjónvarp og útvarp með byltingarkenndum hætti. Nína Richter segir frá í þættinum í dag. Og Lestin rifjar í dag upp meistaraverkið Moon Safari, með frönsku hljómsveitinni Air, en platan kom út fyrir sléttum 20 árum.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Foucault, Valentínusardagurinn, hugtak listarinnar
    Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um Sögu kynferðisins eftir franska heimspekinginn Michel Foucault, en í síðustu viku kom út fjórða og síðasta bindi þess mikla verks, 34 árum eftir andlát höfundarins. Bókin nefnist Játningar holdsins en í henni beinir Foucault sjónum sínum að hinum kristnu miðöldum. Rætt verður við Björn Þorsteinsson heimspeking um Foucault í þættinum í dag. Í inngangi að bók Alain de Bottons, Essay on Love, skrifar kanadíski rithöfundurinn Shela Heti: ,,Það er í ástinni sem að við verðum líkust okkur sjálfum, og hvað mest lík öllum öðrum í þessum heimi." Í dag er Valentínusardagurinn og Lestin heldur upp á daginn með því að hlýða á nokkrar vel valdar ástarsögur. Una Margrét Jónsdóttir, Broddi Broddason, Gréta Kristín Ómarsdóttir og Hafsteinn Himinljómi Regínuson segja frá. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar um hugtak listarinnar og stöðu hennar í samtímanum í miðvikudagspistli sínum.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Baldvin Z, tyllidagar, alþjóðlegur dagur útvarps
    Í Lestinin í dag verður meðal annars hugað að alþjóðlegum degi útvarps, nýjum kvikmyndum, byggingakrönum og svo þeim gamansömu tyllidögum sem nú líða. Menn háma nú í sig rjómabollur, saltkjöt, baunasúpu og sælgæti, dulabúa sig síðan með grímuklæðnaði. Þessir dagar; bolludagur, sprengidagur og öskudagur eiga þó uppruna sinn í siðum kirkjunnar. Lestin ferðast aftur til 1957 og flytur erindi Magnúsar Más Lárussonar, prófessors, um uppruna þessarra daga. Og við höldum upp á alþjóðlegan dag útvarps sem er í dag, og ræðum við Hrein Valdimarsson tæknimann hér hjá Ríkisútvarpinu til margra ára, og spyrjum hann meðal annars: Til hvers þurfum við útvarp? Halldór Armand Ásgeirsson flytur að vanda pistil hjá okkur í Lestinni á þriðjudegi. Yfirskriftin er: Allt hverfur. Að lokum heimsækjum við Baldvin Z, kvikmyndaleikstjóra og forvitnumst um sögugerð og einnig um kvikmyndina Lof mér að falla, sem væntanleg er í bíóhús síðar á þessu ári.
    Umsjónarmaður: Anna Gyða Sigurgísladóttir
    57 min
  • Jóhann Jóhansson, Rastafari, Happy!, Þór Þórbergsson
    Lestin minnist í dag Jóhanns Jóhannssonar tónskálds sem andaðist á föstudag. Jóhann var kominn í röð fremstu kvikmyndatónskálda samtímans, vinir hans og samstarfsmenn, Kristín Björk Kristjánsdóttir og Úlfur Eldjárn verða gestir þáttarins. Fyrir fimm árum síðan vann Heiða Vigdís Sigfúsdóttir sem sjálfboðaliði í Mexíkóborg um árabil með heimilislausum strákum. Eftir háskólanám sneri hún aftur til stórborgarinnar til að læra meiri spænsku og kynnast menningunni betur. Hún er því nú í Mexíkóborg og ætlar að fræða hlustendur Lestarinnar um ýmsa kima Mexíkóskrar menningar í dag og næstu mánudaga. Í dag fjallar hún um rastamenningu en allt frá áttunda áratug síðustu aldar hefur mið-amerísk rastamenning og reggí-tónlist orðið að tískufyrirbæri og hluti af meginstraumum Vesturlandabúa. Þór Þórbergsson gaf út sína fyrstu ljóðabók fyrir jólin, Lestin fræðist nánar um þá bók í þætti dagsins Og Áslaug Torfadóttir fjallar í dag um bandarísku sjónvarpsþættina Happy!
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Hraðlest: Dream Wife, Bergman & Kristín Jóhannesdóttir, Katrín Jakobsd
    Efni Lestarinnar: Á dögunum var fjallað um dauða rokksins Í Lestinni. Nú hafa þrjár stelpur sparkað svo fast í líkið að það rumskar svo um munar, það er bresk-íslenska hljómsveitin Dream Wife sem á dögunum gaf út sína fyrstu breiðskífu sem er samnefnd sveitinni. Platan hefur komið þeim á forsíðu breska blaðsins NME, sem segir að hljómsveitin sé ein þeirra sveita sem muni „eiga“ árið 2018. Davíð Roach Gunnarsson segir frá Dream Wife í Lestinni í dag. Og hraðlestin verður á sínum stað á föstudegi. Á meðal gesta í henni verða Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands, Jón Ólafsson heimspekingur, Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri, ofurhetjan She-Ra, Gunnar Theodór Eggertsson, og rithöfundarnir Halldór Armand Ásgeirsson og Soffía Bjarnadóttir.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Bergman & kvenhlutverk, Katrín Jakobsdóttir, Soffía Bjarnadóttir
    Efni Lestarinnar í dag: Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra rýnir í íslenskar ástarsögur í næstu viku í Hannesarholti. Að gefnu tilefni verður því rætt við hana um ástarsögur, afþreyingarefni og myrkar hliðar mannsins, í þætti dagsins. Í sumar verða hundrað ár liðin frá fæðingu sænska leikstjórans Ingmars Bergmans. Lestin hugar í dag að kvenhlutverkum í kvikmyndum Bergmans, rætt verður við Kristínu Jóhannesdóttur leikstjóra. Og Soffía Bjarnadóttir rithöfundur fer með hlustendur í ferðalag á bakvið augnlokin.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • The Clash, Call Me By Your Name, Lói, óperusöngur,
    Í Lestinni í dag verður haldið upp á alþjóðlegan dag, 7. febrúar, sem helgaður er ensku rokkhljómsveitinni The Clash. Hljómsveitin var stofnuð í Lundúnum árið 1976 og vakti mikla athygli fyrir kröftuga tónlist og beinskeyttan boðskap. Útvarpsstöðvar víða um heim spila tónlist hljómsveitarinnar á þessum degi, og það gerir Lestin líka, rætt verður við Jón Atla Benediktsson rektor Háskóla Íslands sem gjörþekkir sögu The Clash. Heiðdís Hanna Sigurðardóttir flutti óperuaríu á Hlustendaverðlaunum fm957 í síðustu viku. Heiðdís verður gestur Lestarinnar, spurt verður: er meiri áhugi í dag á klassískri tónlist meðal ungs fólks en oft áður? Gunnar Theodór Eggertsson fjallar í dag um kvikmyndirnar Lói - Þú flýgur aldrei einn, eftir Árna Ólaf Ásgeirsson, og Call my by your name eftir ítalska kvikmyndaleikstjórann Luca Guadagnino. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í Lestinni í dag um það sem er nauðsynlegt, og það sem er mögulegt.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • She-Ra, Berlínarmúrinn, umskurður drengja
    Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað að gefnu tilefni um Berlínarmúrinn, múrinn var reistur árið 1961 og hann féll þann 9. nóvember árið 1989, hann stóð því í 10.315 daga, og í gær voru 10.316 dagar síðan múrinn féll. Það er því lengri tími liðinn frá því að múrinn féll en hann stóð, og þess minnast menn nú. En hvaða merkingu hafði múrinn, og hvaða augum líta menn hann í dag? Rætt verður við Jón Ólafsson heimspeking um Berlínarmúrinn. Netflix og Dreamworks Animations vinna nú að endurgerð á teiknimyndaþáttum um ofurkvendið She-Ra. Hún er einnig þekkt sem prinsessa máttarins, tilheyrir hópi myndasöguhetja sem kenna sig við Masters of the Universe og er tvíburasystir He-Mans. Þættirnir eru væntanlegir síðar á þessu ári og koma til með fagna vináttu kvenna og valdeflingu. Bjarni Gautur Tómasson, kvikmyndagerðamaður, fræðir hlustendur nánar um She-Ra í þætti dagsins, og af einhverjum ástæðum laumast rapparinns Vanilla Ice inn í söguna. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi og fjallar í dag um frumvarp sem lagt hefur verið fram á Alþingi Íslendinga, sem hefur það markmið að banna umskurð drengja, Halldór fjallar einnig um umræðu um trúarbrögð á Íslandi.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • In The Fade, þýsk rappsena, Borðeyri, The Path,
    Efni Lestarinnar í dag: Nýjasta kvikmynd þýska leikstjórans Fatih Akin, In The Fade, hefur notið vinsælda síðustu mánuði enda hreppti leikstjórinn fyrir stuttu Gyllta hnöttinn í flokki erlendra kvikmynda fyrir þessa mynd. Myndin er nú sýnd á Þýskum kvikmyndadögum í Bíó Paradís - Ása Baldursdóttir, dagskrárstjóri kvikmyndahússins fræðir hlustendur nánar um nýjustu mynd Akins í þætti dagsins. Áslaug Torfadóttir kannar lífið innan veggja sértrúaðarsafnaðar sem er umfjöllunarefni sjónvarpsþáttanna The Path sem sýndir eru á streymisveitunni Hulu og fjalla um líf heittrúaðra Meyerista. Lestin brunar líka alla leið til Borðeyrar við Hrútafjörð, og ræðir við Vilhelm Vilhelmsson sagnfræðing um bæinn sem var á sínum tíma miðstöð verslunar í héraðinu, en er nú einhver minnsti þéttbýliskjarni landsins, þar búa nú um tíu manns. Vilhelm flytur á morgun erindi um Borðeyri í Þjóðminjasafninu á morgun, undir yfirskriftinni ,,Brothætt frá upphafi. Byggaðarsaga Borðeyrar við Hrútafjörð." Og Þórður Ingi Jónsson hugar í Lestinni í dag að þýsku rappsenunni.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min

About Lestin

From the publisher's feed

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

More shows like Lestin

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

214 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners