Lestin

Lestin

Download on the App Store

Lestin episodes

  • Hraðlest: Dolores O Riordan, Martin Luther King, Scott Walker
    Á meðal efnis í Lestinni í dag: Á hátíð tónlistar og friðar, Woodstock, árið 1994, söng írska sönkonan Dolores O Riordan með hljómsveit sinni The Cranberries um hverfulleika lífsins og drauma, sem virðast aldrei verða það sem þeim var ætlað. O Riordan andaðist á mánudag, 46 ára gömul, Lestin minnist hennar í þætti dagsins. Við sögu í Lestinni í kemur einnig bandaríski baráttumaðurinn Martin Luther King, en á mánudag var haldinn hátíðlegur vestanhafs dagur sem við hann er kenndur, en King fæddist þann 15. Janúar árið 1929. Einnig verður fjallað um andlitsförðun, bókakisi kemur við sögu, og bresk-bandaríski tónlistarmaðurinn Scott Walker, svo nokkuð sé nefnt.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Soffía Bjarnadóttir, Gin ljónsins, bókaköttur, Lindstrøm
    Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um Gin ljónsins sem er útgáfufélag stofnað af þeim Elínu Eddu Þorsteinsdóttur og Guðrúnu Brjánsdóttur, en Guðrún er höfundur fyrstu bókar útgáfunnar. Skollaeyru nefnist ljóðabók hennar. Lestin fræðist nánar um Gin ljónsins og Skollaeyru í þætti dagsins. Penninn Eymundsson við Laugaveg 77 á dyggan og traustan fastagest sem mætir á morgnana er búðin er opnuð og fer út með síðasta starfsmanni á kvöldin er búðinni er lokað. Gesturinn er vissulega spendýr, en ekki mennskur. Soffía Bjarnadóttir rithöfundur hefur í dag pistlaröð sem nefnist Bak við augnlokin, en í þessum fyrsta pistli renna tímarnir saman bakvið augnlokin, heimshryggð nútímamannsins kemur við sögu, yfirvofandi eldur og enski tónlistarmaðurinn James Blake, svo fátt eitt sé nefnt. Og stuttu fyrir síðustu jól var tilkynnt að norski raftónlistarmaðurinn Lindstrøm væri væntanlegur á Sónar-tónlistarhátíðina í Hörpu í mars. Lindstrøm þessi er ásamt samlanda sínum Todd Terje í fararbroddi stefnu sem nefnd hefur verið geimdiskó, kosmískur bræðingur sem sækir jafnt í Kraftwerk, Mike Oldfield og Bee Gees. Davíð Roach Gunnarsson ferðast með Lestinni um diskótek himingeimsins í þættinum í dag.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Andlitsförðun, lífið, Kaupmannahöfn, ljósmyndahátíð
    Efni Lestarinnar í dag: Sögu andlitsförðunar má rekja langt aftur í tímann. Tilhneiging fólks til að fegra sig og snyrta hefur langtum verið sterk og því hefur verið haldið fram að líkamslist hafi verið meðal fyrstu helgisiða fólks. Þessi tilhneiging hefur þróast og breyst síðustu þúsundir ára og fyrirfinnst nú, í einhverri mynd, í nær öllum samfélögum heims. Við skoðum í dag tilgang og hlutverk andlitsförðunar með Ester Önnu Emilsdóttur og grípum einnig niður í gamlan þátt. En við heyrum einnig hugleiðingar eldri fræðimanna og rithöfunda um málið, þar á meðal Svövu Jakobsdóttur og Guðmundar Finnbogasonar. Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í dag um hugtakið líf, og veltir því fyrir sér hvernig við skiljum fyrirbærið líf. Sigrún Alba Sigurðardóttir menningarfræðingur og lektor við Listaháskóla Íslands heldur áfram að fjalla um Kaupmannahöfn sem góðan íverustað, Sigrún fjallar um ljóðrænt rými stórborgarinnar í þættinum í dag. Og hugað verður að Ljósmyndahátíð Íslands sem hefst á morgun, en um er að ræða alþjóðlega ljósmyndahátíð sem hefur það að markmiði að vinna að framþróun ljósmyndunar sem listforms.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Svanur, Himnaríki og helvíti, Anne Sexton, Reykjavík, Gall
    Í Lestinni í dag verður fjallað um það sem efst er á baugi í menningarlífinu. Við sögu í þættinum í dag koma meðal annars kvikmyndin Svanurinn, leiksýningin Himnaríki og helvíti, bandaríska skáldkonan Anne Sexton, borgin Reykjavík. Og franska söngkonan France Gall sem andaðist um síðustu helgi.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Astor Piazolla & Joaquin Turina, draugasaga, Bicep, ofurgreind
    Lestin flytur meðal annars í dag rúmlega hundrað ára gamla Draugasögu sem rekja má til Páls Jónssonar, fyrrum innheimtumanns hjá Tollskrifstofunni. Þórbergur Þórðarsson, rithöfundur, skrásetti sögu hans árið 1946 og las í útvarpinu á 70 ára afmælisdegi sínum, þann 12. Mars 1959. Við heyrum draugasöguna í þætti dagsins, en við sögu koma huldumenn í lest. Davíð Roach Gunnarsson fjallar um írska raftónlistar-dúettinn Bicep, Karl Ólafur Hallbjörnsson beinir sjónum sínum í dag að ofurgreind og sýndarvíti. Og Björk Níelsdóttir sópransöngkona segir frá tónleikum undir yfirskriftinni Ballöður fyrir brjálæðinga sem fram fara í Norðurljósasal Hörpu um helgina, en þar flytur tónlistarhópurinn Stirni Ensemble suðræn og seiðandi verk sem fá hjörtun til að slá örar, meðal annars eftir Astor Piazolla og Joaquín Turina.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Leikhústónlist, Puzzy Patrol, internetið, Anne Sexton
    Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Hjálmar H. Ragnarsson tónskáld um leikhústónlist, en Hjálmar semur tónlistina við leikverkið Himnaríki og helvíti sem byggir á skáldsögum eftir Jón Kalman Stefánsson og frumsýnt verður í Borgarleikhúsinu á morgun. Í gær var fjallað í Lestinni um upplifun tónlistarkvenna af notkun tækni í tónlistarsköpum - Lestin heldur áfram að fjalla um tónlistarkonur í þætti dagsins, en efnt verður til stórtónleika hiphop-kvenna í Gamla Bíói þann 20. janúar næstkomandi. Viðburðafyrirtækið Puzzy Patrol stendur að tónleikunum, en það sérhæfir sig í því að skipuleggja viðburði með listakonum og femínískum talskonum. Markmiðið er að styrkja konur í listum, fræða almenning um femínisma og skapa þannig jákvæðan umræðugrundvöll. Valgerður Arnardóttir og Ingibjörg Björnsdóttir standa að fyrirtækinu, þær segja nánar frá Puzzy Patrol í þætti dagsins. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson flytur pistil í Lestinni á miðvikudegi, en hann er ævinlega á sveimi um hina ýmsu króka og kima veraldarvefsins. Og við flytjum einnig ljóð eftir bandaríska játningaskáldið Anne Sexton.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Bóksala & framtíð bókamarkaðar á Íslandi, tónlistarkonur og tækni
    Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Egil Örn Jóhannsson, formann Félags íslenskra bókaútgefenda, um bóksölu, og framtíð bókamarkaðar á Íslandi. Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi, og fjallar í dag um það hvað nýjar rannsóknir í sálfræði segja okkur um samband ótta og stjórnmálaskoðana. Og borgin Reykjavík kemur við sögu, að gefnu tilefni í þættinum í dag. Þjóðfræðingurinn og tónlistarkonan Auður Viðarsdóttir segir okkur frá meistararannsókn sinni í þjóðfræði en í henni kannar hún upplifun tónlistarkvenna af notkun tækni í tónlistarsköpun og dregur fram samfélagslegt og menningarlegt samhengi tónlistarsköpunar kvenna. En tækni og tónlist sameina einmitt tvö svið sem hafa langtum verið áberandi karllæg. Tæknin er að sjálfsögðu ekki karllæg í eðli sínu en erfitt hefur þó reynst að breyta stöðluðum hugmyndum okkar um hana. Auður segir okkur nánar frá rannsókn sinni hér á eftir.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • France Gall, Svanurinn, Black Mirror, Geisha Cartel
    Efni Lestarinnar í dag: Gunnar Theodór Eggertsson gagnrýnir kvikmyndina Svaninn eftir Ásu Helgu Hjörleifsdóttur sem frumsýnd var í síðustu viku. Franska söngkonan og fyrrum Eurovision-sigurvegarinn France Gall er látin, 70 ára að aldri. Lestin minnist tónlistarkonunnar í þætti dagsins með Jónatan Garðarssyni og Unni Söru Eldjárn. Black Mirror þættirnir hafa hrætt líftóruna úr kvíðnum áhorfendum síðan 2011 með sýn sinni á framtíð tækninnar. Áslaug Torfadóttir horfði á nýjustu þáttaröðina sem var nýlega frumsýnd á Netflix og segir frá í Lestinni í dag. Og Þórður Ingi Jónsson ræðir við meðlimi hljómsveitarinnar Geisha Cartel sem vinna nú að sinni fyrstu plötu.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min

About Lestin

From the publisher's feed

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

More shows like Lestin

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

214 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners