Lestin

Lestin

Download on the App Store

Lestin episodes

  • Jóhann Helgason, La Vida Boheme, póstmódernismi, Prince
    Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Jóhann Helgason tónlistarmann sem ætlar að höfða mál gegn höfundi og útgefanda lagsins You raise me up sem varð heimsfrægt í flutningi bandaríska tónlistarmannsins árið 2003, en lagið þykir minna mjög á lag Jóhanns, Söknuð, sem Vilhjálmur Vilhjálmsson söng á sínum tíma, árið 1977. „Það vantar háska í popp tónlist“, sagði tónlistarmaðurinn Prince við blaðamann í byrjun 9. áratugarins. Spennuna, leyndardóminn og dulúðina vantaði þó ekki í tónlist hans, Lestin skoðar háskalegu ástarballöðuna ,,It's Gonna Be Lonely'' í þætti dagsins. Heiða Vigdís Sigfúsdóttir ræðir við venesúelska tónlistamanninn Sebastián Ayala meðlim hljómsveitarinnar La Vida Bohème. Hann segir söguna af því hvernig hljómsveitarmeðlimir flúðu heimaland sitt og nota tónlist til að færa fregnir af sí versnandi ástandi í Venesúela. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjalla í pistli sínum í dag um póstmódernisma, og leitar að skilgreiningu.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Baraflokkurinn, Freyja Eilíf, Wild Wild Country, Jorge Luis Borges
    Efni Lestarinnar í dag: Lestin fór á tónleika með Baraflokknum sem haldnir voru á veitingastaðnum Hard Rock við Lækjargötu í gærkvöld, en hljómsveitin hélt þrenna tónleika um páskana, stemningu verður miðlað og rætt við hljómsveitarmeðlimi og tónleikagesti. Freyja Eilíf opnaði um helgina sýninguna Sýndarrými, eða Virtual Space, í Gallerí Úthverfu á Ísafirði. Í sýninginarrýminu er gestum boðið að upplifa leiðslu inn á stafrænar víddir gegnum vídjó-, texta-, hljóð- og listaverk, sem myndlistarkonan vann í samvinnu við meðvitund tölvu sinnar og í gegnum hugleiðslutilraunir þar sem hún mætti öndum af hinu stafræna sviði. Freyja verður gestur Lestarinnar í dag. Árið 1981 fluttist indverskur trúarhópur til smábæjar í Oregon og byggði þar upp samfélag sem átti eftir að hafa gríðarleg áhrif á íbúa bæjarins. Áslaug Torfadóttir kynnti sér þessa atburði í þáttunum Wild Wild Country. Og Halldór Armand Ásgeirsson flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi og fjallar í dag um argentínska rithöfundinn Jorge Luis Borges og líf í endurminningu.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Þjáning & tjáning, 12 tónar, Narcocorridos, tæknihyggja & Pírataflokku
    Efni Lestarinnar í dag: Líkamlegar hremmingar geta af sér frásagnir, enda hefur maðurinn ævinlega haft þörf fyrir að greina frá reynslu sinni. Vilborg Bjarkadóttir hefur í mastersverkefni sínu í hagnýtri þjóðfræði verið að rannsaka gildi sagnamennsku í bataferli eftir slys, fræðst verður nánar um verkefnið í þætti dagsins. Litið verður við í hljómplötuversluninni 12 tónum, en hún fagnar 20 ára afmæli sínu um þessar mundir. Heiða Vigdís Sigfúsdóttir fjallar um mexíkósku tónlistina narcocorridos sem samin er til heiðurs eiturlyfjabarónum og er ólögleg í heimalandinu. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli dagsins um Pál Skúlason heimspeking, tæknihyggju og Pírataflokkinn.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Um harðstjórn, Blurred lines, Cambridge Analytica
    Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Guðmund Andra Thorsson, rithöfund og Alþingismann, sem hefur þýtt ritið Um Harðstjórn: Tuttugu lærdómar sem draga má af tuttugustu öldinni, eftir bandaríska sagnfræðinginn Timothy Snyder. Spurt verður hvort höfundarréttur sé endanlega farinn úr böndunum, en í vikunni sem leið féll dómur í máli sem dánarbú bandaríska tónlistarmannsins Marvins Gayes höfðaði gegn flytjendum slagarans Blurred lines. Dómurinn er fordæmisgefandi og óhætt að segja að tónlistarheimurinn nötri vegna þess að hinum dæmdu er gert að sök að hafa stolið ,,stemningunni" í lagi Gayes. Nína Richter rýnir í málið í Lestinni í dag og spyr meðal annars hvaða áhrif það muni mögulega hafa á tónlistarbransann. Og Halldór Armand Ásgeirsson fjallar um Cambridge Analytica-hneykslið í síðustu viku og hvað kvikmynd frá árinu 1998 getur sagt okkur um það.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Ateria, X-Files, Víti í Vestmannaeyjum
    Efni Lestarinnar í dag: Hljómsveitin Ateria sigraði Músíktilraunir að þessu sinni, en hana skipa systurnar Ása og Eir Ólafsdóttir, og frænka þeirra, Fönn Fannarsdóttir. Hljómsveitin var stofnuð í fyrra og hefur höfuðstöðvar í Vesturbæ Reykjavíkur. Meðlimir hljómsveitarinnar verða gestir Lestarinnar í dag. Gunnar Theodór Eggertsson fjallar um kvikmyndina Víti í Vestmannaeyjum sem frumsýnd var fyrir helgi. Og sjónvarpsþættirnir X-Files eru fyrir löngu orðnir klassískir en í fyrra snéru þeir aftur á skjáinn eftir langt hlé. Áslaug Torfadóttir kynnti sér þessa nýju útgáfu af X-Files og segir frá í Lestinni í dag.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Hraðlest: Kylie Minogue, nunnur, ritskoðun, útlit, dans, holdleg ást
    Efni Lestarinnar í dag: Atli Bollason hefur lengi verið aðdáandi áströlsku söngkonunnar Kylie Minogue og skellti sér á tónleika með henni í Berlín fyrr í vikunni. Og hann segir frá í pistli dagsins. Og Hraðlestin brunar á föstudagi. Við sögu í þættinum koma meðal annars nunnan og tónlistarkonan Irene O'connor, Ólafur Gíslason, Andri Björnsson, Halldór Armand Ásgeirsson, Katrín Gunnarsdóttir, ljósmyndarinn Haruhiko Kawaguchi og Tómas Ævar Ólafsson.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Crescendo, Artemisia Gentileschi, Car Seat Headrest, Jelena Ciric
    Í lestinni í dag verður meðal annars rætt við Katrínu Gunnarsdóttur, dansara og danshöfund, en hún frumsýnir í Tjarnarbíói í kvöld verk sitt Crescendo þar sem hún sækir meðal annars innblástur í vinnusöngva og erfiðisvinnu kvenna. Tónlistarkonan Jelena Ciric hefur búið hér á landi í rúmt eitt og hálft ár, hún er serbnesk að uppruna en hefur búið um víða veröld, í Kanada, Mexíkó, á Spáni og nú á Íslandi. Jelena verður gestur Lestarinnar í dag, fræðst verður nánar um list hennar og líf. Maður er nefndur Will Toledo, bandarískur og 25 ára að aldri, sem gengst við hljómsveitarnafninu Car Seat Headrest. Hann hóf feril sinn átján ára þegar hann gaf út tólf plötur á fjórum árum í sjálfsútgáfu áður en Matador-útgáfan tók hann upp á sína arma. Hann er einn af fáum sem tekst að halda sér á floti í rokkbrotsjó samtímans þar sem fátt er um fína drætti. Lestin kynnir til leiks Car Seat Headrest í ferðalagi dagsins. Og Melkorka Gunborg Briansdóttir skoðar málverk 17. aldar listmálarans Artemisiu Gentileschi í tengslum við #metoo byltinguna.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Sister Irene O'connor, Lauren Auder, Design Talks, markaðurinn
    Efni Lestarinnar í dag: Hönnunarráðstefnan DesignTalks var haldin í Hörpu á Hönnunarmars 2018 í síðustu viku. Hópur innlendra og erlendra fyrirlesara úr ýmsum geirum atvinnulífsins kynntu hugmyndir sínar og verkefni, en öll mættu þau áskorunum samtíma og framtíðar með aðferðafræði hönnunar. Nína Richter heimsótti ráðstefnuna og lýsir því sem fram fór í Lestinni í dag. Lauren Auder er nítján ára gamall söngvari og tónlistarmaður sem búsettur er í Lundúnaborg en hann er hægt og bítandi að ryðja sér til rúms í alþjóðlegu tónlistarsenunni. Þórður Ingi Jónsson heyrir í Auder í þætti dagsins. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar um markaðinn sem siðferðilegt og pólitískt athafnasvið.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Ritskoðun á vorum tímum, lögregluhetjur, vísindasamfélagið, Laura Marl
    Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um viðhorf samtímans til lista í tilefni af banni Facebook á sunndag á birtingu hins fræga málverks Frelsisgyðjan leiðir fólkið, eftir franska 19. aldar málarann Eugene Delacroix en á því má sjá berbrjósta kvenhetju, þjóðartákn frönsku byltingarinnar, leiða fólkið, vopnuð flaggi. Bannið var reyndar dregið til baka, en segir það okkur þrátt fyrir það, eitthvað um hvernig við umgöngumst listir hér og nú? Og um mátt ritskoðunar á vorum tímum? Ólafur Gíslason listfræðingur verður gestur Lestarinnar í dag. Tómas Ævar Ólafsson fjallar um mismunandir tegundir lögregluhetja, og hefur til hliðsjónar skáldsöguna Infinite Jest eftir bandaríska rithöfundinn David Foster Wallace og Dougie Jones úr sjónvarpsþáttunum Twin Peaks eða Tvídröngum. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur fjallar um áhyggjur í vísindasamfélaginu á því að frumleiki fari dvínandi. Og við rifjum einnig upp plötuna Semper Femina eftir bresku tónlistarkonuna Lauru Marling
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Af hverju skiptir útlit máli? Haruhiko Kawaguchi, Solo Female Traveler
    Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að ljósmyndum, ofurhetjum, ferðalögum og útliti. Andri Steinþór Björnsson, prófessor við Sálfræðideild Háskóla Íslands, heldur erindi í Háskóla Íslands á fimmtudaginn, sem ber yfirskriftina: Af hverju skiptir útlit máli? En eins og heitið gefur til kynna mun hann ræða útlitsdýrkun og hvenær sú áhersla verður síðan að sálrænum vanda. Andri verður gestur okkar í þætti dagsins. Samfélag kvenna sem ferðast einar er í dag umfjöllunarefni Heiðu Vigdísar Sigfúsdóttur, sem búsett er í Mexíkóborg um þessar mundir. Hún ræðir við meðlimi ýmsra hópa vefsamfélagsins, eins og Solo Female Travelers, og veltir fyrir sér tilvist slíkra samfélaga. Áslaug Torfadóttir endurnýjar síðan kynni sín við New York einkaspæjarann Jessicu Jones en Netflix var að hefja sýningar á annarri þáttaröð af samnefndum þáttum um hana. Og við fjöllum einnig um japanska ljósmyndarann Haruhiko Kawaguchi sem er frægur fyrir að mynda pör vakumpökkuð saman í gegnsæju plasti.
    57 min

About Lestin

From the publisher's feed

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

More shows like Lestin

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

214 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners