Spegillinn

Loðna, sprengja í Donetsk og Landsbjörg


Listen Later

Hafrannsóknastofnun hefur lagt til skerðingu á loðnukvóta um tæp 35 þúsund tonn í um 870 und tonnum Vertíðin er þrátt fyrir það sú stærsta í átján ár. Ólöf Rún Erlendsdóttir talaði við Guðmund Jóhann Óskarsson sviðsstjóra hjá Hafrannsóknastofnun.
Bandaríkjastjórn segir Rússa nú vera með á annað hundrað þúsund hermenn við landamæri Úkraínu, sem er mesti liðssafnaður í Evrópu síðan í seinni heimstyrjöldinni. Bílsprengja sprakk í Donetsk-héraði nú seinnipartinn. Birta Björnsdóttir sagði frá.
Rúmlega 400 starfsmenn Landspítalans eru frá vinnu með COVID og hafa aldrei verið fleiri. Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir forstjóri spítalans segir að núverandi ástand gangi ekki mikið lengur. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir ræddi við hana og Elísabetu Benedikz, yfirlækni gæða og sýkingavarna sem segir að skráðum atvikum hafi fjölgað. Undirmönnun og faraldurinn skýri það að hluta en alvarlegum atvikum vegna COVID hafi ekki fjölgað.
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segist ekki þekkja dæmi þess að fyrirtæki hafi misnotað stuðning stjórnvalda vegna heimsfaraldursins. Haukur Holm talaði við hann.
Ís á Þingvallavatni kemur í veg fyrir að hægt sé að ná flugvélinni sem þar hvílir á botninum upp fyrr en í seinni hluta mars í fyrsta lagi að sögn Odds Árnasonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns á Suðurlandi. Haukur Holm tók saman.
------------
Það sem áður þótti sjálfsögð opinber þjónusta er að hverfa úr hinum dreifðu byggðum. Þetta gerist á Íslandi og þetta gerist meðal frænda okkar í Noregi. Þar er hagræðing og sameining í opinberum rekstri helsta pólitíska hitamálið. Gísli Kristjánsson segir frá.
Undanfarnar vikur hefur sá dagur varla liðið að björgunarsveitir hafi ekki verið kallaðar til í verkefni stór og smá. Otti Rafn Sigmarsson formaður Landsbjargar segir umhugsunarefni hvort svo stór hluti af viðbragði almannavarna sé á herðum sjálfboðaliða en engu síður sé þetta sá háttur sem hér sé á og við höfum vanist. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við hann.
Sænska fjarskiptafyrirtækið Ericsson er enn á ný í ólgusjó vegna spillingarmála. Starfsmenn Ericsson í Írak greiddu milliliðum fyrir að fara um umráðasvæði hryðjuverkasamtaka, meðal annars þeirra sem kenna sig við íslamskt ríki. Kári Gylfason sagði frá.
Umsjón: Anna Kristín Jónsdóttir. Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon. Stjórn útsendingar fréttahluta: Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

21 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

19 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

32 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

42 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

12 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

15 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners