Spegillinn

Lokaviðvörun í loftslagsmálum, skipulagsmál og grænlenskir bændur


Listen Later

Lokaviðvörun til yfirvalda er yfirskrift nýrrar loftslagsskýrslu Milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna. Þetta er þriðji hluti sjöttu skýrslunnar um loftslagsbreytingar og snýr hann að því til hvaða aðgerða sé hægt að grípa til að halda hnattrænni hlýnun í skefjum. Skýrslan er yfirgripsmikil, telur hátt í 3.700 blaðsíður og er hugsuð sem leiðarvísir í aðgerðum gegn loftslagsbreytingum. Bjarni Rúnarsson ræddi við Brynhildur Davíðsdóttir, varaformaður loftslagsráðs og prófessor í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands
Gauti Jóhannesson, fráfarandi forseti sveitarstjórnar í Múlaþingi er ósáttur líkt og margir sveitarstjórnarmenn við að skipulagsvald haf- og strandsvæða sé ekki hjá sveitarfélögunum. Lagaumhverfið hefði mátt vera skýrara í kringum fiskeldi í fjörðunum, lögin um haf- og strandsvæði hafi verið sett fyrst og fremst til að bregðast við fiskeldi og hann vonar að áður en beislun vindorku fer lengra verði lagaumhverfið komið á betri rekspöl en reyndin varð með haf- og strandsvæðin. Rúnar Snær Reynisson ræddi við Gauta.
Ný og mjög vísindalega kenning er komin fram um af hverju byggð Norrænna manna lagðist af á Grænlandi á 15. öld. Ekki var það kuldinn og ekki var það vankunnátta við veiðar heldur óbærilegir þurrkar. Þarna er komið nýtt svar við gamalli gátu eins og Gísli Kristjánsson, fréttaritari í Osló, rekur hér.
Helstu atriði frétta:
Forseti Úkraínu fór ófögum orðum um framferði innrásarhers Rússa þegar hann ávarpaði öryggisráð Sameinuðu þjóðanna í dag. Annaðhvort ætti að reka Rússa úr ráðinu eða leggja það niður.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar kröfðust þess að Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra mætti til þings og gerði grein fyrir ummælum sínum um framkvæmdastjóra Bændasamtakanna í seinustu viku.
Öllum íbúum Shanghai, fjölmennustu borgar Kína, hefur verið skipað að halda sig heima til að stöðva útbreiðslu kórónuveirunnar. Rúmlega þrettán þúsund smit greindust þar í gær.
Ungur Akureyringur sem er sjálfboðaliði með hópi fólks við landamæri Úkraínu safnar fyrir bíl til að hjálpa fólki í neyð. Hann er vongóður um að Íslendingar leggi söfnuninni lið.
Spegillinn 5. apríl 2022.
Umsjónarmaður: Bjarni Rúnarsson.
Tæknimaður: Jón Þór Helgason.
Stjórn fréttaútsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

14 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

20 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

30 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

40 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

13 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

16 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

29 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners