Spegillinn

Lyfjamisnotkun og tjáningarfrelsi blaðamanna


Listen Later

Spegillinn 15. febrúar 2022
Umsjónarmaður: Bjarni Rúnarsson
Tæknimaður Gísli Kjaran Kristjánsson
Engar líkur eru á að ákærur verði gefnar út á hendur fjórum blaðamönnum sem hafa réttarstöðu sakbornings vegna umfjöllunar sinnar um Skæruliðadeild Samherja. Þetta segir hæstaréttarlögmaður.
Ungur drengur slapp nær ómeiddur þegar hann féll niður sprungu á Þingvöllum í dag. Það var ekki síst fyrir snarræði björgunarsveitarmanns sem var í nágrenninu.
Varnarmálaráðuneyti Úkraínu varð fyrir tölvuárás í dag. Neðri deild rússneska þingsins biðlar til Rússlandsforseta um að viðurkenna sjálfstæði tveggja héraða í Úkraínu - aðgerð sem Atlandshafsbandalagið varar við.
Tveir tékkneskir karlmenn sem björgunarsveitir leituðu að á Vatnajökli, eru fundnir heilir á húfi.
Lengri umfjöllun:
Enn og aftur er misnotkun á lyfjum í íþróttum í brennidepli eftir að að lyf á bannlista greindist hjá ungum rússneskum keppanda á Ólympíuleikunum. Það sér ekki fyrir endann á því máli en það skiptir öllu að hægt sé að treysta því að keppni sé heiðarleg segir framkvæmdastjóri Lyfjaeftirlits Íslands. Hann segir ekki auðvelt að segja hve útbreidd misnotkun lyfja er hér og telur þörf á að bæta í eftirlitið. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Birgi Sverrisson framkvæmdastjóra Lyfjaeftirlits Íslands.
Fjórir blaðamenn voru í gær boðaðir í yfirheyrslu í næstu viku hjá rannsóknarlögreglumanni frá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Það eru Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, Aðalsteinn Kjartansson, blaðamaður á Stundinni, Arnar Þór Ingólfsson, blaðamaður á Kjarnanum og Þóra Arnórsdóttir, ritstjóri Kveiks. Þau fjölluðu um skæruliðadeildina svokölluðu sem starfaði á vegum Samherja og reyndi að klekkja á blaðamönnum sem fjölluðu um fyrirtækið. Blaðamennirnir hafa réttarstöðu sakbornings fyrir meint brot gegn friðhelgi einkalífs. Bjarni Rúnarsson ræddi við Halldóru Þorsteinsdóttur, sérfræðing í fjölmiðlarétti og héraðsdómara.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

147 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

21 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

11 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

19 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

32 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

42 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

12 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

6 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

15 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

31 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners