Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn

Download on the App Store

Mannlegi þátturinn episodes

  • Erla Axels við Selvatn, vinkill og Rósa Guðný lesandinn
    Selvatn, í Miðdalslandi í Mosfellsbæ, er sennilega ekki þekktasta vatn Höfuðborgarsvæðisins en þar eru þó nokkuð mörg sumarhús og þar er myndlistarkonan Erla Axels með vinnustofu í Listaseli með góðu útsýni bæði yfir vatnið og Miðdalsheiðina. Erla opnaði sýningu í þessu fallega umhverfi um síðustu helgi og aflvaki myndanna er upplifanir og minningar úr náttúrunni við Selvatn. Verkin vann hún síðastliðinn tvö ár og stendur sýningin í stuttan tíma, eða til 9.júní. Við heimsóttum Erlu Axels í Listaselinu við Selvatn.
    Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Vinkill dagsins er borinn við forsetakosningar, sjómannadag og sjóhunda. Minnst er á afleitar veðurhorfur á Íslandi og líka fjallað um fellibylinn Remal sem herjaði á Bangladesh fyrir skömmu en þjóðsögur þaðan eru mjög áhugaverðar og við fengum stuttan úrdrátt úr einni slíkri.
    Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Rósa Guðný Arnardóttir, háskólanemi og crossfit þjálfari. Hún sagði okkur frá því hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Rósa talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Recursion eftir Blake Crouch,
    Dune e. Frank Herbert
    Utopia for Realists e. Rutger Bregman
    Eclipse e. Stephanie Meyer
    Tónlist í þættinum í dag:
    Fram í heiðanna ró / GÓSS (Daniel E. Kelly, texti Friðrik A. Friðriksson)
    Allt í gúddí / Ólöf Arnalds (Ólöf Arnalds)
    Lífsgleði / Pónik (Jean & Vanguard, texti Þorvaldur Halldórsson og Erlendur Svavarsson)
    UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    55 min
  • Ólafía Hrönn föstudagsgestur og þjóðlegir réttir á kosninganótt
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Ólafía Hrönn Jónsdóttir, leikkona, söngkona og lagahöfundur. Hún hefur auðvitað leikið fjölda hlutverka á sviði og í sjónvarpi og kvikmyndum og svo er hún meðlimur í Heimilistónum og Hljómsveit Jarþrúðar og hefur sungið víða. Framundan er Sumarkjólaball Heimilistóna í Gamla Bíói, en við fórum auðvitað aftur í tímann með Ólafíu, á æskuslóðirnar, í Reykjavík, á Höfn í Hornafirði og á Laugarvatni. Við fórum svo með henni á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag og spjallið leiddi okkur á skemmtilegar slóðir, til dæmis þegar hún sagði frá því hvaðan draumurinn um að verða leikkona kom, grínið og hljómsveitirnar, en hún er nýbúin að stofna tríó sem ber nafnið Mamma þín.
    HP sósan var svo til umfjöllunar í Matarspjallinu með Sigurlaugu Margréti, en í síðustu viku fjölluðum við um Worchestershire sósuna. Svo ræddum við hugmyndir að þjóðlegum smáréttum og partýmat sem sniðugt gæti verið að bera á borð á kosningavökunni annað kvöld.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Nú liggur vel á mér / Ingibjörg Smith (Óðinn G Þórarinsson og Númi Þorbergs)
    Tuð / Hljómsveit Jarþrúðar (Ólafía Hrönn Jónsdóttir)
    Haltu utan um mig / Heimilistónar (Ólafía Hrönn Jónsdóttir)
    UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    50 min
  • Borgarstjóri og lífsgæðakjarnar og rannsóknir á samsæriskenningum
    Til stendur að byggja á þriðja þúsund íbúðir auk hundruða hjúkrunarrýma á uppbyggingareitum sem hafa verið skilgreindir sem sérstakir „lífsgæðakjarnar” fyrir eldri borgara í Reykjavík. Borgarstjóri skrifaði sl.föstudag undir viljayfirlýsingar um uppbyggingu á fjórum stöðum í borginni þar sem þróuð verður ný nálgun á húsnæði og þjónustu fyrir fólk á besta aldri. Á teikniborðinu eru allt að 2600 nýjar íbúðir auk hjúkrunarrýma og kallað var eftir samstarfsaðilum um þróun og uppbyggingu á lífsgæðakjörnum í maí í fyrra. Nú eru fjögur teymi farin af stað og hafa átt samtöl við félög eldra fólks en einnig sótt sér alþjóðlega ráðgjöf við þróun og útfærslu lífsgæðakjarnana. Einar Þorsteinsson borgarstjóri kom í þáttinn í dag og sagði okkur betur frá þessu og svo notuðum við tækifærið og ræddum við hann um mengunarmál í borginni, almenningssamgöngur og hvernig honum hefur liðið í þessu nýja starfi, en hann tók við embætti borgarstjóra í upphafi árs.
    Svo heyrðum við í Eiríki Bergmann, prófessor við félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst, en hann tekur þátt í að stofna norrænt samstarfsnet um rannsóknir á samsæriskenningum, CONNOR (Nordic Network of Conspiracy Theories Research), sem byggir meðal annars á rannsóknum Eiríks. Auk hans er Hulda Þórisdóttir, prófessor við stjórnmálafræðideild HÍ, í stjórn Íslandsdeildar CONNOR. Á opnunarráðstefnunni komu saman um 50 fræðimenn frá Norðurlöndum og víðar og þar kynnti Eiríkur helstu rannsóknir sínar á vopnvæðingu samsæriskenninga. Eiríkur var á línunni í dag og sagði okkur frekar frá þessu samstarfsneti, hvernig það kom til og hver markmið þess eru.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Lífið er undur / Egill Ólafsson (Egill Ólafsson)
    Herbergið mitt / Brimkló (Arnar Sigurbjörnsson, texti Vilhjálmur frá Skáholti)
    UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    55 min
  • Gagnvirkt Íslandskort barna, líknardeildin og Jónatan um Rúnar Gunnarsson
    Í tilefni þess að 80 ár eru liðin í ár frá stofnun lýðveldis á Íslandi efndu Safn Jóns Sigurðssonar á Hrafnseyri og Þjóðgarðurinn á Þingvöllum til verkefnisins Heill heimur af börnum - börn setja mark sitt á Íslandskortið. Hugmyndin að því var að hvetja börn til að miðla því sem þeim finnst mikilvægt og áhrifaríkt í lífi sínu og umhverfi á sjónrænan hátt og koma því til skila á nýju gagnvirku Íslandskorti sem er í mótun. Kristín R. Vilhjálmsdóttir, kennari og menningarmiðlari var á línunni og sagði okkur betur frá þessu verkefni í þættinum í dag.
    Líknarmeðferð er hugtak sem margir tengja við yfirvofandi lífslok einstaklinga með illkynja sjúkdóma, þegar „ekkert er lengur hægt að gera.“ Staðreyndin er að líknarmeðferð er mun meira en meðferð við lok lífs og margt er hægt að gera til að bæta líðan og efla lífsgæði. Líknardeildin í Kópavogi sinnir einstaklingum 18 ára og eldri og fjölskyldum þeirra og þar starfar þverfaglegur hópur starfsfólks, meðal annars læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, sjúkraþjálfi, sálfræðingur, prestur og sérhæft starfsfólk. Líknardeildin átti 25 ára afmæli í apríl og af því tilefni fengum við þær Ólöfu Ásdís Ólafsdóttur og Örnu Dögg Einarsdóttur til að koma í þáttinn fyrr í vor og við heyrðum það viðtal aftur í dag.
    Jónatan Garðarsson kom svo til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk. Í dag sagði hann okkur frá tónlistarmanninum Rúnari Gunnarssyni, sem setti heldur betur mark sitt á íslenska tónlistarsögu þrátt fyrir að hafa látist langt fyrir aldur fram. Hann var auðvitað í hljómsveitinni Dátum, spilaði meðal annars með Sextett Ólafs Gauks og samdi nokkur lög sem urðu gríðarlega vinsæl og lifa góðu lífi enn í dag og við heyrðum þrjú þeirra auk þess sem Jónatan fræddi okkur um líf Rúnars.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Þá það / María Magnúsdóttir (Karl Olgeirsson, texti Bragi Valdimar Skúlason)
    Glugginn / Flowers (Rúnar Gunnarsson, texti Þorsteinn Eggertsson)
    Gvendur á Eyrinni / Dátar (Rúnar Gunnarsson, texti Þorsteinn Eggertsson)
    Undarlegt með unga menn / Sextett Ólafs Gauks (Rúnar Gunnarsson, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson)
    UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    57 min
  • Að velja háskólanám, heiftúðug umræðuhefð og veðurspjallið
    5. júní rennur út umsóknarfrestur í flesta háskóla á landinu. Það getur verið snúið að finna út hvaða nám hentar manni best og við fengum Grétu Matthíasdóttur, forstöðukona nemendaráðgjafar Háskólans í Reykjavík, í þáttinn til að fara vítt og breitt yfir sviðið og hvernig hægt er að hjálpa nemendum að finna sína leið.
    Gunnar Hersveinn, heimspekingur og rithöfundur, kom svo í þáttinn, en hann skrifaði pistil sem við rákumst á um umræðuhefðina sem skapast hefur hér á landi, og reyndar víða í öðrum löndum, þar sem stíllinn einkennist til dæmis af því að láta andstæðinginn, eða þann sem þú ert ósammála, fá það óþvegið. Að fólk með andstæðar skoðanir sé ekki að tala saman, heldur hafi meiri áhuga á að skamma hvert annað, hæðast að og grafa undan. Við ræddum þessa umræðuhefð við Gunnar í þættinum.
    Að lokum kom Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur til okkar í veðurspjallið. Í dag sagði hann okkur frá miklum hitum sem hafa geysað undanfarnar vikur í Mexíkó. Mörg hitamet hafa fallið og sérstaklega heitar nætur. Dýr hafa drepist af hitaslagi og þurrkar fylgja og nú er óttast að vatn geti endanlega gengið til þurrðar í Mexíkóborg á næstu vikum. Svo rifjðuum við upp vorið í fyrra, en um þetta leyti gerði hret svo stórsá á trjágróðri. Nú er sem betur fer annað uppi á teningnum. Milt þessa daga, en spáð er kólnandi veðri, t.d. á kjördag. Að lokum sagði Einar okkur frá því hversu fáar mannaðar veðurstöðvar eftir í dag.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Líf / Hildur Vala (Jón Ólafsson, texti Stefán Hilmarsson)
    Almost Over You / Önnu Jónu Son (Haraldur Þorleifsson)
    Óbyggðirnar kalla / KK & Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson)
    Ferðabar / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna)
    UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    54 min
  • Grindvíkingar heiðursgestir á Sjómannadaginn, vinkill og Sigríður lesandinn
    Sjómannadagurinn, hátíðisdagur allra sjómanna, verður næsta sunnudag, 2. júní. Aríel Pétursson, formaður sjómannadagsráðs, og Eggert Sólberg Jónsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar komu í þáttinn í dag, en Sjóarinn síkáti, hátíð Grindvíkinga, verður sem sagt haldinn í Reykjavík og Grindvíkingar verða sérstakir heiðursgestir í ár. Við fengum þá til að segja okkur frá hátíðinni í ár og hvernig þetta mun allt saman fara fram. Það verður auðvitað fjölbreytt dagskrá, leikir, tónleikar og margt fleira á hafnarsvæðinu á Grandanum.
    Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og vinkill dagsins var borinn að moldviðrinu sem þyrlaðist upp í Flóanum í vikunni. Í ljósi þess þá skoðaði Guðjón jarðrækt almennt í sögulegu en yfirborðslegu samhengi og velti svolítið fyrir sér hvernig þúfur myndast og hvaða þýðingu þær hafa fyrir hann og kannski einhver fleiri.
    Svo að lokum var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Sigríður Soffía Níelsdóttir, dansari, danshöfundur og hún er einnig þekkt meðal annars fyrir flugeldasýningahönnun og blómalistaverk. Það opnaði ný sýning eftir hana, Eldblóm, í Hönnunarsafni Íslands fyrir helgi sem við fengum hana til að segja okkur frá, en auðvitað sagði hún okkur aðallega frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Sigríður Soffía sagði frá eftirtöldum bókum og höfundum:
    Milk and Honey e. Rupi Kaur
    Hold on to your Kids e. Gabor Mate
    Jelli e. Bompas & Parr
    At Work e. Piet Oudolf
    Veröld sem var e. Stefan Zweig
    Tónlist í þættinum í dag:
    Vorblik / Pálmi og Dísa (Pálmi Sigurhjartarson og Herdís Anna Þorvaldsdóttir)
    Sjóarinn síkáti / Jón Fanndal (Jón Fanndal Bjarnþórsson)
    Sölvi Helgason / Mannakorn (Magnús Eiríksson)
    UMSJÓN GUNNAR HANSSON
    52 min
  • Margrét Einarsdóttir föstudagsgestur og matarspjall um Worchesterhire sósu
    Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í dag var Margrét Einarsdóttir búningahönnuður. Hún hefur rekið tískuverslun, verið stílisti og hannað föt í fjölmörgum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Meðal annars fyrir kvikmyndirnar Hrútar, Vonarstræti og Snertingu, nýjustu mynd Baltasars Kormáks og svo hannaði hún búningana í sjónvarpsþáttröðunum Verbúðinni, Aftureldingu og þessa dagana er hún að vinna í gríðarstórri þáttaröð, King and Conquerer. Við fórum með henni aftur í tímann og rifjuðum upp æskuslóðirnar, í Svíþjóð og Reykjavík og fórum svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag og fengum hana til að segja okkur hvernig það kom til að hún fór að vinna í sínu fagi.
    Í matarspjallinu töluðum við um hina frægu Worcestershiresósu. Sósan rekur uppruna sinn til Englands á 19. Öld, en hvað er í henni og í hvað er best að nota hana?
    Tónlist í þættinum í dag:
    Ég lifi í draumi / Björgvin Halldórsson (Eyjólfur Kristjánsson og Aðalsteinn Ásberg Sigurðarson)
    Fever / Sarah Vaughan (Eddie J. Cooley & John Davenport)
    Paroles... Paroles... / Dalida & Alain Delon (Giancarlo del Re, Giovanni Ferrio & Matteo Chiosso)
    UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    52 min
  • Saga Brynhildar, sytkinin á Húðvaktinni og Ingibjörg Smith
    Fyrir nokkrum árum fór Brynhildur Pétursdóttir að finna fyrir einkennum á mjaðmasvæði sem voru sakleysisleg í fyrstu en fóru versnandi og tveimur árum síðar var hún orðin svo slæm að hún þurfti að nota hækjur til að geta gengið. Eftir að hafa hitt ótal sjúkraþjálfara, lækna, osteopata, kírópraktora og nuddara í leit að svari, neyddist hún að leggjast sjálf í rannsóknir og seint og um síðir bárust böndin að spjaldliðum, sem því miður virðist vera lítil þekking á. Brynhildur hefur deilt sögu sinni ítarlega á síðunni www.konaikerfi.com og hún sagði okkur sína sögu í þættinum í dag.
    Nýlega rákum við augun í þjónustu sem kallast Húðvaktin. Þau sem standa á bak við vaktina eru systkinin Jenna Huld, húð- og kynsjúkdómalæknir og Bjarni Eysteinsbörn framkvæmdastjóri. Þau segja mikilvægt að geta sinnt læknisþjónustu í gegnum netið og með því bætt þjónustu við landsbyggðina og hraðað ferlinu ef mikið er í húfi. Jenna Huld hefur einnig starfaði í Svíþjóð en Svíar standa framarlega í þróun fjarlækninga og er það fyrirmyndin að Húðvaktinni. Jenna og Bjarni sögðu okkur meira frá þessu í þættinum.
    Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur um okkar frábæra tónlistarfólk. Nú var röðin komin að Ingibjörgu Smith, sem lést nýlega, en hún var ein af okkar fyrstu dægurlagasöngkonum og söng nokkur gríðarlega vinsæl lög, til dæmis Við gengum tvö og Nú liggur vel á mér, sem við heyrðu í þættinum. Jónatan sagði okkur meira frá þessari merku tónlistarkonu í þættinum.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Egils appelsín / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna)
    Heitt toddý / Ellen Kristjánsdótir (erlent lag, texti Friðrik Erlingsson)
    Við gengum tvö / Ingibjörg Smith (Valdimar Hólm Hallstað og Friðrik Jónsson)
    Nú liggur vel á mér / Ingibjörg Smith (Óðinn G. Þórarinsson og Númi Þorbergsson)
    UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    53 min
  • Kvennakórinn Katla, póstkort frá Magnúsi og Vera Sif Rúnarsdóttir
    Við kíktum niður í Hörpu á æfingu hjá kvennakórnum Kötlu en þær eru með árlega vortónleika næstu helgi og kórinn er fjölmennur, en um 80 konur eru skráðar í hann og sérstök áhersla er lögð á búninga, leikmuni og gleði. Þær vilja líka láta gott af sér leiða í okkar samfélagi. Samstýrur kórsins, Hildigunnur Rúnarsdóttir og Lilja Dögg Gunnarsdóttir, sögðu okkur frá starfinu og einnig var rætt við konur í búninganefnd kórsins, þær Ragnheiði Bjarnadóttur og Elínu Hörpu Valgeirsdóttur og svo að lokum stjórnarkonurnar Guðrúnu Helgadóttur, Söndru Harðardóttur og Sólveigu Ingólfsdóttur .
    Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag. Í Þýskalandi standa núna yfir réttarhöld yfir næstum þrjátíu manns sem eru ákærðir fyrir að skipuleggja vopnaða byltingu gegn stjórn landsins. Aðalsprautan í hópnum er sjötíu og tveggja ára fasteignasali sem kallar sig prins Hinrik þrettánda. Frá þessu var sagt í póstkorti dagsins, en Magnús er nýkominn frá Þýskalandi þar sem þetta er ein aðalfréttin í fjölmiðlum. Hann sagði líka frá heimsókn sinni í pyntingartækjasafn í borginni Rothenburg, en safnið geymir ótrúleg tæki og tól frá miðöldum sem voru notuð til knýja fram játningar hjá sakamönnum aðallega konum sem voru kærðar fyrir galdra.
    Sjónaukinn, árleg ráðstefna heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri fór fram í síðustu viku. Þar voru flutt fjölmörg fjölbreyttu erindi en stór hluti af erindum á ráðstefnunni eru kynningar nema sem eru að ljúka meistaranámi í heilbrigðisvísindum á rannsóknarverkefnum sínum. Vera Sif Rúnarsdóttir kynnti niðurstöður rannsóknar á tengslum áfalla í æsku við almennt heilsufar á fullorðinsárum. Vera sagði okkur meira frá því í þættinum í dag.
    Tónlist í þættinum í dag:
    Þín hvíta mynd / Kristjana Stefánsdóttir og Svavar Knútur Kristinsson (Sigfús Halldórsson og Tómas Guðmundsson)
    Everybody’s Talkin’ / Harry Nilson (Fred Neil)
    Adios Muchachos / Stanley Black (Sanders & Vedani)
    UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    51 min
  • Náttúran á Heilsuvaktinni, vinkill um nettröll og Dóra Björg lesandinn
    Við byrjuðum þáttinn í dag á Helgu Arnardóttur og Heilsuvaktinni. Rannsóknir sýna svo ekki verður um villst að náttúran hefur góð áhrif á okkur og gott betur því kórtisólið í líkamanum lækkar, blóðþrýstingur lækkar og hjartsláttur líka við það eitt að vera úti í náttúrunni. Kristín Sigurðardóttir, bráða- og slysalæknir sem einblínt hefur á streitu og áhrif hennar síðustu ár, segir okkur þjást af náttúruleysi. Hún á að sjálfsögðu ekki við getuleysi heldur er þetta þýðing hennar á fyrirbæri sem kallast á ensku nature deficit disorder. Með því að verja dágóðum tíma í náttúrunni getum við dregið verulega úr neikvæðum áhrifum streitu í okkar daglega lífi. Helga Arnardóttir ræddi við Kristínu á Heilsuvaktinni í dag.
    Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og í vinkli dagsins er komið víða við. Fyrst fjallar Guðjón aðeins um eggjaát, en aðal atriðið er frétt sem Guðjón las í gær um að verið sé að nota nettröll til að ata frambjóðendur auri sem hleypti Guðjóni af stað í að búa til sögu þar sem umboðsmenn nettrölla og frambjóðanda hittast til að hafa samráð um aurkast sem leiðir inn í frásögn úr Þjóðsögum Ólafs Davíðssonar og endar svo á kurteisisbrýningu. Þetta kom betur í ljós í vinkli dagsins.
    Lesandi vikunnar í þetta sinn var svo Dóra Björg Árnadóttir sérfræðingur hjá alþjóðadeild Ríkislögreglustjóra. Við fengum að vita hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafi haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Dóra Björg talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
    Piranesi e. Susanna Clarke
    Hamnet e. Maggie O'Farrell
    Gamache serían e. Louise Penny
    The Thursday Murder Club e. Richard Osman
    DaVinci Code e. Dan Brown
    The Murder of Roger Ackroyd e. Agatha Christie
    Dóra nefndi einnig Guðrúnu Helgadóttur, Astrid Lindgren, Harry Potter bækurnar og Twilight bókaröðina.
    UMSJÓN GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
    52 min

About Mannlegi þátturinn

From the publisher's feed

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1. Netfang: [email protected]. Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

More shows like Mannlegi þátturinn

Segðu mér by RÚV

Segðu mér

17 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

17 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Spjallið by Spjallið Podcast

Spjallið

14 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners