Spegillinn

Mannúðarkrísa vegna flóttamanna, Varnargarðar Grindavík


Listen Later

Spegillinn 26.5. 2021
Umsjónarmaður: Bergljót Baldursdóttir
Sextán sjúklingar liggja nú fastir á bráðamóttöku Landspítalans því fullt er á öðrum deildum spítalans. Vegna skorts á bráðalæknum er til umræðu að fá aðra sérgreinalækna til að sinna ákveðnum störfum á bráðamóttökunni.
Fasteignaverð hækkar um 22% frá þessu ári til ársloka 2023 að mati Íslandsbanka, en stærsti hluti hækkunar þessa árs sé kominn fram. Rætt við Jón Bjarka Bentsson yfirhagfræðing Íslandsbanka og Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra Samtaka Iðnaðarins
Aukinn hlutur einkareksturs í heilbrigðisþjónustu á undanförnum árum er á skjön við viðhorf almennings sem vill að hið opinbera reki og fjármagni lykilstofnanir í heilbrigðisþjónustu. Þetta segir Rúnar Vilhjálmsson, prófessor í félagsfræði.
Þingflokkur Pírata hefur sent formlegt erindi til ÖSE, Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu, um að stofnunin skipuleggi kosningaeftirlit hér á landi í alþingiskosningunum í haust. Flokkurinn lýsir yfir áhyggjum af afskiptum Samherja af fjölmiðlum og prófkjörsmálum. Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, sagðist á Alþingi í dag hafa fundað með fulltrúum ÖSE til að meta þörf á auknu eftirliti í haust.
Gróft svifryk fauk yfir suðvesturhornið í dag. Það er ekki rakið til eldgossins á Reykjanesskaga heldur til suðurstrandarinnar. Rætt við Þorstein Jóhannsson, loftgæðasérfræðing hjá Umhverfisstofnun
Stjórnvöld í Þýskalandi ætla að leggja tvo og hálfan milljarð evra í sérstakan sjóð sem ætlað er að hleypa nýju lífi í menningarstarfsemi landsins. Hún hefur legið í dvala síðustu misseri vegna heimsfaraldursins.
Það stefnir í alvarlega mannúðarkrísu hér á landi ef haldið er áfram að vísa flóttamönnum á götuna, segir Áshildur Linnet, teymisstjóri hjá Rauða krossinum. Bergljót Baldursdóttir ræddi við hana
Kæling líkt og beitt var í Heimaeyjargosinu gæti verið valkostur ef verja þarf höfnina í Grindavík. Lagt er til að leiðigarðar verði látnir umlykja bæinn til að verja hann hrauni í því eldsumbrotaskeiði sem virðist hafið á Reykjanesskaga. Reyna á að leiða hraun fram hjá höfninni. Ragnhildur Thorlacius ræddi við Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjón hjá Ragnhildur Thorlacius talaði við hann og Ara Guðmundsson, byggingarverkfræðingur hjá Verkís
Einnig verður sagt frá uppákomunni í Bretlandi þar sem fyrrum aðalráðgjafi forsætisráðherra Bretlands sakaði stjórnvöld um að hafa sofið á verðinum þegar COVID-19 faraldurinn blossaði upp. Sigrún Davíðsdóttir talar frá London.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

SpegillinnBy RÚV

  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7
  • 4.7

4.7

6 ratings


More shows like Spegillinn

View all
Vikulokin by RÚV

Vikulokin

6 Listeners

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

143 Listeners

Bylgjan by Bylgjan

Bylgjan

3 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

127 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Heimsglugginn by RÚV

Heimsglugginn

13 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

22 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

35 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

7 Listeners

Skuggavaldið by skuggavaldid

Skuggavaldið

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners