Með lífið í lúkunum

Með lífið í lúkunum

Download on the App Store

Með lífið í lúkunum episodes

  • Hvað er blóðsykurstjórnun? Elísabet Reynisdóttir. (Heilsumoli 41)

    Í þessum þriðja Heilsumola frá Betu Reynis er fjallað um Blóðsykustjórnun, en með því er átt við að nota mataræðið til að stjórna blóðsykrinum.

    Þær stöllur ræða um skammtastærðir, sterkju, tímasetningu máltíða, kynjamun, að taka ábyrgð á eigin mataræði og eigin heilsu með því að hlusta á líkamann og margt fleira. 




    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    35 min
  • Frábær febrúar, 28 daga heilsuáskorun HeilsuErlu. (Heilsumoli 38)

    Hefur þig lengi langað til þess að gera einhverjar breytingar á heilsuhegðun þinni en það gerist einfaldlega bara ekki eða þú kemur þér ekki í að fara af stað? 

    Stundum þurfum við einfaldlega smá spark í rassinn til þess að komast af stað og þá verður allt auðveldara í kjölfarið.

    Ein af uppáhalds tilvitnunum mínum er ACTION OFTEN COMES BEFORE MOTIVATION en þýðir að stundum þurfum við einfaldlega að bara byrja, taka ábyrgð og gera eitthvað í málunum og síðan kemur hvatningin. Ekki bíða eftir að hvatningin hellist yfir þig því mögulega gerist það aldrei.

    Í febrúar ætla ég að bjóða þér í 28 daga Heilsuáskorun. Þú setur þér EITT stórt markmið sem þú ætlar að gera daglega allan febrúar mánuð. Þetta getur verið að taka út slæman ávana sem er ekki að gagnast þér lengur og hefur neikvæð áhrif á heilsuna eða að bæta inn nýrri góðri venju.

    Hugmyndir eru t.d. að bæta inn daglegri hreyfingu, bæta inn grænmeti í öll mál, sleppa áfengi, sleppa viðbættum sykri, skrifa í þakklætisdagbók, taka D vítamín, nota tannþráð, sofa í 8 klst og svo framvegis. 


    Hvernig virkar áskorunin?

    1. Þú sækir blaðið FRÁBÆR FEBRÚAR og prentar það út (Efstu tvö blöðin eru eins nema annað er með fallegri bakgrunn, þriðja blaðið er svo dæmi um hvernig fylla skal út). 
    2. Þú velur þér svo eitthvað EITT sem þig hefur lengi langað til að gera og mun hafa jákvæð áhrif á heilsuna þína.
    3. Þú merkir svo inn daglega (gerir X við hvern dag mánaðarins). 
    4. Þar að auki getur þú sett inn allt að 8 aðrar venjur sem þig langar að gera sem allra oftast í febrúar og hakað við þær þá daga sem þú gerir þær.
    5. Eftir 28 daga verður þetta stóra markmiðið eða heilsuvenja vonandi orðinn mikilvægur hluti af þínu lífi og þú tekur þá ákvörðun um það hvort að þú haldir henni áfram eða ekki.
    6. Sama hvernig gengur, ekki gefast upp! Þó það komi einn og einn erfiður dagur, hoppaðu bara strax aftur á heilsuvagninn þinn og haltu áfram. 
    7. Það væri gaman að heyra hvernig gengur. Sendu mér skilaboð á Instagram eða ef þú deilir einhverju í story þá má endilega tagga @heilsuerla
    8. GÓÐA SKEMMTUN! 


    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    6 min
  • 106. Að veikjast á dularfullan hátt. (Óþol fyrir tækni, hljóðfælni, verkir, P-DTR meðferð, samvægi og núllstilling taugakerfisins). Sölvi Freyr Valdimarsson

    Í þættinum ræðir Erla við Sölva Frey Valdimarsson, nýútskrifaðan dúx Menntaskólans við Hamrahlíð, sem veiktist á mjög dularfullan hátt þegar hann var í 10.bekk. 

    Eftir að hafa gengið á milli lækna og annara fagmanna eins og barnalækna, taugalækna, heimilislækna, sjúkraþjálfara, naprapata, heilara, nálastungu og margra fleiri fann hann loksins bót meina sinna eftir 10 kvalarfulla og krefjandi mánuði. 

    Sölvi segir okkur frá þessari erfiðu lífsreynslu sinni og stefnir nú sjálfur á nám í Læknisfræði og P-DTR meðferðinni sem bjargaði honum og hjálpaði honum að ná heilsu aftur.  


    Þátturinn er unninn í samstarfi við:

    💙 -HEILSUHILLUNA. Hefur þú prófað Better You munnúðana?

    🌱  -SPÍRUNA. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 

    🐘  -VIRKJA. Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal.

    💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.

    💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í sængurgjöf. 


    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    1 hr 33 min
  • 105. Ert þú með ofþanið taugakerfi? (Vagus taugin, öndun, bandvefur, líkamsvitund og jafnvægi.) Sigrún Haraldsdóttir

    Í þættinum ræðir Erla við Sigrúnu Haraldsdóttur stofnanda Happy hips um Vagus taugina (Flökkutaugina), bandvef, ofþanið taugakerfi, hraðann í nútíma samfélagi, öndun, líkamsvitund og hvernig hægt er að núllstilla taugakerfið.  

    En hvað er Vagus taugin? Vagus taugine að Flökkutaugin eins og hún er líka nefnd er oft séð sem “umferðarstjórnandi”, þar sem hún er mikilvæg samskiptabraut milli líkamans og heilans en hún vinnur við að stýra öndun, hjartslætti, vöðvum, meltingu, koki, raddböndum og hæfileika okkar til að upplifa, vinna úr og fá botn í reynslu okkar. Vagus taugin er bæði skyn og hreyfitaug og er oft kölluð “drottning” parasympatíska kerfisins (sefkerfisins), eins konar bremsa líkamans. 


    Þátturinn er unninn í samstarfi við:

    💙 -HEILSUHILLUNA. Hefur þú prófað Better You munnúðana?

    🌱  -SPÍRUNA. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 

    🐘  -VIRKJA. Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal.

    💗 - ÞÍN FEGURÐ. Snyrtistofa á 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar.

    💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í skírnargjöf. 



    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    1 hr 34 min
  • Box öndun í boði Sigrúnar Haralds (Heilsumoli 35)

    Á næstu dögum fer í loftið alveg frábært viðtal við Sigrún Haraldsdóttur eiganda Happy hips um Vagus taugina. Hún talar meðal annars um mikilvægi öndunar til þess að róa taugakerfið og býður ykkur hér upp á stutta öndunaræfingu sem þið getið nýtt ykkur hvar og hvenær sem er. 

    Box öndun (Kassaöndun) 6-4-8-4.

    Sigrún Haraldsdóttir leiðir okkur í gegnum áhrifaríka öndunaræfingu til þess að róa taugakerfið. Innöndun á 6 sek- halda inn andanum í 4 sek- fráöndun á 8 sek og svo halda aftur í 4 sek. 

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    4 min
  • 2026 Himnastigar- Sjáumst á nýársdag (Heilsumoli 34)

    Sjáumst í Himnastiganum í Kópavogi á nýársdag. 

    Síðustu þrjú ár (á nýársdag) hef ég haldið viðburð í Himnastiganum sem er nú orðinn ómissandi hefð fyrir marga. Í þessum örstutta Heilsumola segi ég frá því hvernig þetta byrjaði allt á 365 Himnastigum árið 2023, sem urðu svo 1000 Himnastigar árið 2024 og loks 2025 Himnastigar árið 2025. 

    Á nýársdag 1.janúar 2026 ætlum við að endurtaka leikinn hafa gaman saman og vekja athygli á mikilvægi daglegrar hreyfingar.

    Öll eru velkomin og við ætlum að reyna að ná samtals 2026 ferðum í Himnastiganum þennan dag! Munið að margt smátt gerir eitt stórt.

    Hægt verður að mæta hvenær sem er yfir daginn, frá nýársdagsmorgni til miðnættis á nýársdag. Það má ganga, hlaupa eða skríða. 

    Þeir sem mæta geta svo sett inn mynd af sér og sínum í Facebook viðburðinn og þar verður einnig hlekkur til þess að skrá fjölda ferða. Ef þið setjið í story á Instagram má endilega tagga HeilsuErlu




    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    9 min

About Með lífið í lúkunum

From the publisher's feed

Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð…

More shows like Með lífið í lúkunum

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Heilsuvarpid by Ragga Nagli

Heilsuvarpid

10 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Í alvöru talað! by Gulla og Lydía

Í alvöru talað!

1 Listeners

UltraForm Hlaðvarp by Sigurjón Sturluson

UltraForm Hlaðvarp

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Auðnast by Ghost Network®

Auðnast

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms by heilsuhladvarp

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

4 Listeners