Með lífið í lúkunum

Með lífið í lúkunum

Download on the App Store

Með lífið í lúkunum episodes

  • 104. Mataræði er kóngur. (Heilsuvenjur, föstur, kríur, jarðtenging og fleira.) Sigurjón Ernir Sturluson

    Í þættinum ræðir Erla við Sigurjón Erni Sturluson, íþróttafræðing, ofurhlaupara og frumkvöðul um æsku hans og hvernig hún hefur mótað hann, heilsuvenjur, jarðtengingu, kríur, föstur, næringarþéttni, ranghugmyndir í samfélaginu, tilgang lífsins og fleira.

    Sigurjón er eigandi UltraForm og er einnig með hlaupaþjálfun og lífsstílsþjálfun. Hann hefur reynt flest á eigin skinni til að komast að því hvernig hægt sé að hámarka heilsu og deilir þekkingu sinni á Instagram og Facebook.


    Þátturinn er unninn í samstarfi við:

    💙 -HEILSUHILLUNA. Gæti digest meltingarensím frá Enzymedica hjálpað þér?

    🌱  -SPÍRUNA. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 

    🐘  -VIRKJA. Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal.

    💗 - ÞÍN FEGURÐ. 20% afsláttur af brúnku með kóðanum: erla20.

    💦  -UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í jólagjöf. 


    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    1 hr 16 min
  • 103. Að dúxa endurhæfingu. (Lýðheilsa, heilaheilsa, öndunaræfingar, næringarþéttni, hreyfing og svefn). Sonja Sif Jóhannsdóttir

    Í þættinum ræðir Erla við Sonju Sif Jóhannsdóttur, íþróttafræðing um lýðheilsu, heilaheilsu, endurhæfingu eftir höfuðhögg, Vagus taugina, mikilvægi öndunaræfinga, næringarþéttni, svefn, hreyfingu, spennandi rannsókn sem hún gerði á heilsu sjómanna og margt fleira. 

    Sonja starfar í Menntaskólanum við Hamrahlíð og Háskóla Íslands, hún er íþróttakona og mögnuð heilsufyrirmynd. Hún hefur starfað í „heilsubransanum" í yfir 30 ár.

    Ekki missa af þessu frábæra spjalli við þessa fróðu konu.


    Þátturinn er unninn í samstarfi við:

    💙 - HEILSUHILLUNA. Gæti digest meltingarensím frá Enzymedica hjálpað þér?

    🌱  - SPÍRUNA. Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 

    🐘  - VIRKJA. Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal.

    💗 - ÞÍN FEGURÐ. Gjafabréf í dekur er tilvalið í jólapakkann.

    💦  - UNGBARNASUND ERLU. Gefðu töfrandi samverustundir í jólagjöf. 

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    1 hr 53 min
  • Svo lengi lærir sem lifir. Ólympískar lyftingar, HM ævintýrið og hugarfar. Kári Walter og HeisluErla (Heilsumoli 33)

    Í undirbúningi mínum fyrir HM í ólympískum lyftingum stakk Kári þjálfari upp á því að við myndum taka smá hlaðvarpsspjall um vegferðina. Úr varð skemmtilegur og óhefðbundinn þáttur þar sem að ég er ekki spyrillinn heldur er þetta spjall um muninn á ólympískum lyftingum og kraftlyftingum, hvers vegna styrktarþjálfun er mikilvæg fyrir alla og hvers vegna ólympískar lyftingar eru frábær stuðningur við aðrar íþróttagreinar. Svo ræðum við auðvitað um undirbúninginn fyrir mótið, ferðalagið á HM, keppnina sjálfa og allt í kringum það.

    Ég set reglulega inn frá æfingum á Instagram og áhugasamir um ólympískar lyftingar geta einnig fylgt Kára og Lyftingarsambandi Íslands (LSÍ)

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    1 hr 8 min
  • 102. Hvað eru „triggerar"? (Áfallastreita, sjálfsvitund, taugakerfið og leiðavísir að ósýnilegum sárum). Anna Sigurðardóttir

    Í þessum þætti ræðir Erla við Önnu Sigurðardóttur sálfræðing um triggera eða kveikjur. Leitast er við að svara ýmsum áhugaverðum spurningum. Hvað eru triggerar? Hver ber ábyrgð á því að við triggerumst? Afhverju bregðumst við við á ólíkan hátt og hvað getum við gert í kjölfarið? Hvað er áfallasteita? Hvað er kveikjuviðvörun?

    Trigger getur verið leiðavísir að ósýnlegum sárum og tækifæri til sjálfsvitundar. Viðbrögð okkar eru samspil af líffræðilegri næmni, sögulegri reynslu og persónuleika og samhengis í núinu /daglegri líðan. 

    Mig langar einnig að hvetja ykkur til þess að hlusta á fyrra viðtal við Önnu um heilsumissi í kjölfar áfalls og nýju Heilsumolana um Þörfina fyrir því að hafa stjórn og sambandið við okkur sjálf. 


    Þátturinn er unninn í samstarfi við:

    💙 Heilsuhillan- Hair Volume frá New Nordic- fyrir fallegt og heilbrigt hár.  

    🌱 Spíruna - Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 

    🐘 Virkja - Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal

    💗 Þín fegurð - Gjafabréf í dekur er tilvalið í jólapakkann.

    💦 Ungbarnasund Erlu - Töfrandi samverustundir!




    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    1 hr 16 min
  • Hugleiðsla fyrir triggera. Anna Sigurðardóttir (Heilsumoli 30)

    Á næstunni kemur út þáttur um triggera eða kveikjur. Frábært viðtal við Önnu Sigurðardóttur sem lýsir á mannlegan og um leið faglegan hátt hvað gerist í líkamanum og afhverju þegar við ,,triggerumst". 

    Hér kemur ein stutt hugleiðsla sem hægt er að nýta við þessar aðstæður. 


    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    6 min
  • 101. Sorg er eins og öldugangur. (Íþróttir, ofþjálfun, missir, áföll, örmögnun, lífsgleði og drifkraftur). Silja Úlfarsdóttir

    Í þættinum ræðir Erla við Silju Úlfarsdóttur um lífið, sorgina, missir, áföll, mikilvægi íþrótta, eldmóð, fyrirmyndir og margt fleira. Farið er yfir allan tilfinningaskallann frá hlátri til gráturs.

    Silja er að eigin sögn íþróttapönkari sem brennur fyrir málefni sem tengjast íþróttum og hefur verið mikill jáhrifavaldur í þeim málefnum síðustu ár. Hún er algjör gleðisprengja, vinur vina sinna, stórkostleg mamma og er með alveg magnaðann og smitandi drifkraft. 

    Á nokkurra ára tímabili dundu röð áfalla yfir Silju og fjölskyldu hennar og í viðtalinu segir hún frá því hvernig það er að vinna úr slíkum áföllum, lifa með sorg og halda áfram lífinu.

    Silja heldur úti síðunni Klefinn.is og frábæra hlaðvarpinu Klefinn

    Áhugasamir geta einnig kíkt á Siljaulfars.is


    Þátturinn er unninn í samstarfi við:

    💙 Heilsuhillan- Hair Volume frá New Nordic- fyrir fallegt og heilbrigt hár.  

    🌱 Spíruna - Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu? 

    🐘 Virkja - Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal

    💗 Þín fegurð - 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar

    💦 Ungbarnasund Erlu - Töfrandi samverustundir!


    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    2 hr 20 min
  • 100. Heilsuspjall fegðina. (Fyrirmyndir, lágkolvetna mataræði, heilbrigðiskerfið, örmögnun og lífsstíll). Dr. Guðmundur Björnsson

    Í þættinum ræðir Erla við Guðmund Björnsson föður sinn og heilsufyrirmynd um starfsferil hans sem læknir, lífstíl, lágkolvetna mataræði, heilbrigðiskerfið, mikilvægi þess að hugsa vel um heilsuna, vera ekki fastur í vítahring þess að þurfa að taka þátt í öllu sem er í boði, stressaðu sig ekki of mikið og taka hlutunum ekki of alvarlega.

    Guðmundur er sérfræðingur endurhæfingarlækningum og hefur starfað á ýmsum sviðum á sinni starfsævi, t.d. á slysadeild Borgarspítalans, í heilsugæslu og í áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar, á Heilsustofnun NLFÍ, Læknafélagi Íslands, rekið eigið fyrirtæki og starfað við tryggingalæknisfræði.

    Hann gaf út bókina Þú getur grennst og breytt um lífsstíl fyrir rúmum 20 árum um áhrif lágkolvetna mataræðis á heilsu og hefur sjálfur alltaf passað að hreyfa sig reglulega og forgangsraða svefni.  


    💙 Hair Volume frá New Nordic- fyrir fallegt og heilbrigt hár.  

    🌱 Spíruna - Ert þú búin að smakka Sumarsalati HeilsuErlu? 

    🐘 Virkja - Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal

    💗 Þín fegurð - 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar

    💦 Ungbarnasund Erlu - Töfrandi samverustundir!

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!


    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    57 min
  • 99. Ekki vera hrædd við að gera mistök. (Móðurmissir, dugnaður, þrjóska, mörk og hættuleg ímynd ofurkonunnar). Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir

    Í þættinum ræðir Erla við hina dásamlegu Ragnhildi Steinunni Jónsdóttur um lífið og tilveruna, að alast upp hjá einstæðum föður, eldmóð í starfi, mikilvægi þess að setja mörk, hvernig það er að eiga tvíbura, hættulega ímynd ofurkonunnar, metnað, dugnað og þrjósku.

    Ragnhildur Steinunn er líklega flestum landsmönnum kunnug enda hefur hún verið ein öflugasta sjónvarps- og dagskrárgerðarkona landsins í yfir 20 ár. Nýjasta verkefni hennar er heimildarmyndin Takk Vigdís sem hún hefur unnið hörðum höndum að síðustu mánuði.

    Vertu með í Facebook hóp hlaðvarpsins ef þú vilt fylgjast með á bakvið tjöldin. 


    Þátturinn er unninn í samstarfi við:

    💙 Heilsuhillan og Nutrilenk - Lykillinn að góðri liðheilsu

    🌱 Spíran - Ert þú búin að smakka Heilsusalat HeilsuErlu?

    🐘 Virkja- Bókaðu frítt 20 mín kynningarviðtal

    💗 Þín fegurð - 2.hæð í Firðinum í hjarta Hafnarfjarðar

    💦 Ungbarnasund Erlu - Töfrandi samverustundir!

    Fylgdu HeilsuErlu á Instagram!

    1 hr 7 min

About Með lífið í lúkunum

From the publisher's feed

Í hlaðvarpinu Með lífið í lúkunum fær HeilsuErla til sín einstaklinga úr ýmsum áttum sem hafa þekkingu á fjölbreyttum sviðum heilsu og einnig fólk sem hefur á einn eða annan hátt jákvæð…

More shows like Með lífið í lúkunum

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

462 Listeners

Heilsuvarpid by Ragga Nagli

Heilsuvarpid

10 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

130 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

32 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

33 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Í alvöru talað! by Gulla og Lydía

Í alvöru talað!

1 Listeners

UltraForm Hlaðvarp by Sigurjón Sturluson

UltraForm Hlaðvarp

0 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Auðnast by Ghost Network®

Auðnast

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

15 Listeners

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms by heilsuhladvarp

Heilsuhlaðvarp Lukku & Jóhönnu Vilhjálms

4 Listeners